Helgarblaðið - 07.02.1992, Qupperneq 21

Helgarblaðið - 07.02.1992, Qupperneq 21
Helgar 21 blaðið Með mörg sverð á lofti Með vorinu er væntan- leg bæði hljómplata og bók frá Bjartmari Guð- iaugssyni. Hingað til hefur Bjartmar lagt á borð fyrir okkur lög og texta en eftir nokkurt hlé í plötuútgáf- unni kemur einnig bók sem inniheldur ljóð, prósa og myndir. Bjartmar segir að mynd- listin hafi alltaf verið aðal- búgreinin hjá sér, lagasmíð- amar hafi verið aukabúgrein og söngurinn sjálfsbjargar- viðleitni. Þetta kemur óneit- anlega nokkuð á óvart og því best að byrja á bytjun- inni. Þessa dagana er Bjartmar að hefja upptökur á nýrri plötu. Samhliða plötunni ætlar hann síðan að gefa út bók. í bókinni verða ljóð af plötunni og prósar sem eru hluti af stærra verki, skáld- sögu sem Bjartmar hefur lokið við að skrifa. Mynd- imar í bókinni verða bæði teikningar, akrílmyndir og olíumyndir. Bjartmar segist hafa verið í læri hjá Magn- úsi A. Amasyni og Þórði Ben Sveinssyni, og borið trönumar fyrir Magnús í nokkur sumur. Það hafi allt- af verið ætlunin að hasla sér völl i myndlistinni. Utgáfa skáldsögunnar bíður að minnsta kosti haustsins. Bjartmar segist hafa skrifað og skrifað í tvö ár og á endanum setið uppi með 800 síðna sögu. Og þar eð hann sé ekki Rússi, vinni Bjartmar hann nú að því að stytta söguna niður í tvö til þrjú hundmð síður. Skáldsagan hefur fengið titil, sem ekki má birta hér, en hvorki plat- an né mynd- og prósabókin sem koma út með vorinu, hafa fengið titil. Þetta er óvenjulegt miðað við fyrri vinnubrögð Bjart- mars, því yfirleitt segist hann hafa unnið plötumar sínar út frá titli en ekki öf- ugt. En þar með er ekki öll sagan sögð af Bjartmari. Innan skamms fer hann í ferð um landið með Manna- komum og er meiningin að heimsækja sem flesta staði á landsbyggðinni. Blúsband- ið, sem er önnur hlið á Magnúsi Eiríkssyni, er sið- an að fara í hljóðver að taka upp plötu, og þegar sumarið kemur, verða það Bjartmar og Blúsbandið sem fara um landið. Þótt Bjartmar segi mynd- listina vera sína aðalbú- grein, hafa myndir hans aldrei birst opinberlega. Það verða þvi tíðindi þegar mynd- og prósabókin kemur út, og þegar skáldsagan kemur, ef Bjartmar styttir hana þá ekki þar til ekkert er eftir. Tónlist, textar, sög- ur og myndir. Þetta minnir á Mugg, sem líka var með mörg sverð á lofti. Bjartmar er einhvers konar Muggur nútímans. Sykurmolarnir Björk, Bragi, Þór, Magga, Sigtryggur og Einar Örn. Líf Sykur- molanna framlengt Þá er tveggja ára þögn Sykurmolanna rofin, og sumir velta því fyrir sér hversu margir leggja við hlustir í þetta skipti. Eftir glæsilega byrjun á „Life’s Too Good“ kom „Here To- day Tomorrow Next We- ek“, sem lagði ekki eins margar hlustir að velli og sú fyrri. Þá þóttust margir vissir um að þriðja breið- sldfa Sykurmolanna réði því hvort hljómsveitin lifði eða lognaðist útaf. Af fyrstu viðbrögðum að dæma virðist nýja platan „Stick Around For Joy“ ætla að ffamlengja alþjóðlegt líf Sykurmol- anna. Það er margt sem gerir „Stick Around...“ að aðgengilegri plötu en „Here Today...“. Það sem gerði þá plötu að vissu leyti erfiða var að á disknum amk. voru allt of mörg lög, eða alls 16. „Here Today...“ var því bæði yfirþyrmandi og sundurlaus. Að minu mati veðjuðu Molamir líka á vitlaust lag þegar þeir völdu „Re- gínu“ til að ryðja braut- ina. Það vom mörg önnur lög betur til þess fallin, til dæmis „Speed Is The Key“. Núna virðast Sykur- molamir hins vegar hafa valið rétt lag til að kynna nýju plötuna sína. „Hit“ hefur gert það gott á bæði háðum og óháðum vin- sældalistum í Bretlandi. Fór i 17. sæti háða list- ans, sama sæti og Mezzo- forte náði með „Garden Party“, og þaut í fyrsta sæti óháða listans. Þeir dómar sem undirritaður hefur séð í breskum blöðum hafa líka verið lofsamlegir. „Hit“ er meðal bestu laga Sykur- molanna. Aðallega vegna þess að það er melódískt en ekki mónótónt eins og mörg lög þeirra hafa verið. Hvað melódiu varðar mættu Mol- amir líta betur til átrúnaðargoðanna Abba og Boney M. En þeim tekst hins vegar vel upp með titla. „Hit“ Heimir Már Pétursson skrifar getur þýtt „hit- lag“ upp á ensku, þótt það geri það ekki i textanum í viðkomandi lagi. Og „Stick Around For Joy“ er vel heppnaður titill sem felur í sér áskorun. Þá er bara spumingin hvort inni- haldið stendur undir titlinum. í fyrsta lagi er það mikil framför að á þessari plötu era tíu lög en ekki sextán. Þessi tíu lög era líka heil- steyptara safn en á fyrri plötu. „Stick Around...“ byijar á ágætri til- vísun í James Bond í laginu „Gold“, svo kemur „Hit“, og þá lag sem vinnur vel á, „Leash Called Love“. Þar era allir í réttum hlutföllum, ekki hvað síst Björk og Einar og gítarleikur Þórs eins og best verður á kosið. Trommuleikurinn er mjög svip- aður í gegnum alla plötuna. Tempó laganna er mjög keimlíkt. Það er helst að bragðið sé út af taktinum í „Chihuahua", sem er að komast í uppáhald hjá mér, ásamt „Vitamin". „Stick Around...“ á eftir að staldra lengur við en „Here Today...“. Þeir sem bíða eftir tónleikum með Syk- urmolunum geta farið að hlakka til fyrirhugaðra tónleika í Reykjavík um næstu mánaðamót. Þar á eftir hefst tónleikaferðalag þeirra um England og meginland Evrópu, og siðan verður haldið vestur um haf. Frá Bandaríkjunum berast þær fféttir að „Hit“ hafi farið beinustu leið í sextánda sæti Modem Rock- listans í Billboard, hæst nýrra laga, og era þetta bestu viðtökur sem Sykurmolamir hafa fengið til þessa. Þá er „Hit“ á lista yfir mest spiluðu lögin á 29 útvarpsstöðvum í Banda- ríkjunum. TónVist I utani úrl irrtn- 1 utn A lj:i_ Hilmar Örn Hilmarsson Það er ekki oft sem eitt- hvað furðulegt og gott er gefið út á Islandi. Islensk tónlist er annað hvort bara furðuleg eða góð þegar best lætur. Islenskir tónlistarmenn era nefnilega brenndir sama markinu og aðrir listamenn landsins. Þeir era alltaf í túnfætinum heima. Út- víkkun heilans nær yfirleitt ekki lengra en til heimsmenningar Reykjavíkur. Plata galdramanns- ins Hilmars Amar, „ísland“, er því fagnaðarefni. Loksins hefur ís- lenskur tónlistarmaður siglt skipi sínu út úr landhelginni og uppfyrir veðrahjúpa. „ísland“ gæti hafa verið gefin út hvar sem er í sólkerfinu, það er ekkert sem gerir plötuna sérís- 1 lenska. Hilmar Öm gæti hvort heldur sem væri verið að bíða eftir rútuj upp í Borgárfjörð eða ferð út í geiminn, og hann tekur hlustand- ann með sér í þetta óræðna ferða- lag. Þetta er ekki plata sem maður lætur líða undir masi yfir kaffi- bolla. Hún krefst hlustunar. Menn verða að slökkva á stöðvum amst- urs og leyfa tónlistinni að ráða ferðinni. Þótt „ísland" hafi verið nærri sex ár í vinnslu, kemur plat- an út sem heilsteypt verk. Hilmar Öm notar mikið hljóðgervla og raftækni ýmiss konar, en gerir það svo smekklega að það er engu lík- ara en hann hafi fangað hljóm stjamanna. Styrkur plötunnar ligg- ur líka í notkun radda og bak- radda, en þar era margir tilkvadd- ir, til dæmis Lísa Páls og Björk Guðmundsdóttir. Söngurinn er þó aðallega kominn úr barka Davids Tibets. Án þess að lasta önnur lög vil ég sérstaklega vekja athygli á „The Dream of a Shadow of Smoke“ og „Merry-Go-Round and Around". Fyrra lagið er mikil- fenglegt minningarlag um Karl Sighvatsson, en bæði era lögin dæmi um góða lagasmíð og vand- aða úrvinnslu. Nýlega var sýnt í Reykjavík leikrit sem heitir „Dampskipið ís- land“. Ekki sá ég leikritið, en tit- illinn vísar í túnfótinn heima. Plata Hilmars gæti heitið „Geim- skipið ísland“, og borið þann titil með réttu. Hilmar skipar einn fárra íslendinga bekk með alþjóð- legum tónlistarmönnum um þessar mundir, en honum ætti ekki að leiðast þar, hann er meðal jafn- ingja. Föstudagurinn 7. febrúar

x

Helgarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.