Dagblaðið - 16.09.1975, Síða 24
Þegar flugrekstrarleyfi var tekið af Sunnu:
Yfirmot telur tjón Sunnu
nema 26.6 milljónum
Férðaskrifstofan Sunna hf.
höfðaði á sinum tima skaða-
bótamál á hendur samgöngu-
málaráðherra f.h. rikissjóðs, og
gerði kröfu um rúmlega 60
milljón króna skaðabætur
vegna tjóns, sem hún taldi sig
hafa orðið fyrir vegna svipt-
ingar á flugrekstrarleyfi, sem
áður hafði verið veitt.
Dómkvaddir matsmenn,
Bárður Danielsson, og Guð-
mundur Magnússon, prófessor,
komust að þeirri niðurstöðu, að
tjón það, sem orðið hafði, væri
rúmlega 35 milljónir króna.
Yfirmat i Sunnumálinu hefur
nú lækkað undirmatiö á tjóni
ferðaskrifstofunnar um 9
milljónir króna. Dómkvaddir
yfirmatsmenn hafa skilað
matsgerð. Meta þeir tjón
Ferðaskrifstofunnr Sunnu
vegna sviptingar á ftugrekstrar-
leyfum á kr. 26.635.115.00 sam-
kvæmt öðrum þeirra kosta, sem
undirmatið byggði á.
Samkvæmt hinum kostinum,
sem undirmatið fjallaði um,
lækkar tjónið að mati yfirmats-
manna úr kr. 14.185.000,00 i kr.
5.374.261.00.
Samkvæmt fyrra kostinum
var undirmatiö kr. 34.430.411,00
en samkvæmt yfirmatinu kr.
26.635.115,00 sem fyrr greinir.
Dómkvaddir yfirmatsmenn
eru þeir Jóhannes L.L.
Helgason, hrl., Guðmundur
Einarsson, viðskiptafræðingur,
og Ólafur Jónsson, loftsiglinga-
fræðingur.
Er yfirmatsgerðin all
viðamikið verk, og er i rök-
stuðningi vitnað til kannana,
sem gerðar voru árekstri leigu-
flugfélaga almennt. Meðal
annars er vikið að rekstrar-
örðugleikum, sem leiddu til
þess, að stórfyrirtæki á þessu
sviði drógu saman seglin eða
hættu rekstri. Eru i þvi sam-
bandi nefnd fyrirtæki eins og
brezka stórfyrirtækið Courtline,
norska félagið Meyer, Spearer í
Finnlandi, Aviation i Þýzkalandi
og Donaldson i Bretlandi.
Þess er vænzt, að mál-
flutningur geti farið fram fyrir
undirrétti i haust, en með dómi
verður kveðið á um þann
ágreining, hvort Ferðaskrif-
stofan Sunna á réttmæta bóta-
kröfu á hendur rikissjóði og þá
hve mikla.
—BS—
Kort Arnórs Hjálmarssonar af
flugleiðinni. Punktarnir 17.47 og
18.10 eru miöanirnar á vélinni frá
Stokksnesi. 18.31 heyrist siðast til
vélarinnar rétt við Vik og eins og
punktalinan sýnir hefur hana bor-
ið undan veðri. Stefnan er beint I
jökulinn.
Vélin stefndi
beint ó
jökulinn
Kona ó hestbaki heyrði síðast til
vélarinnar
Þannig var umhorfs á slysstaðnum skömmu eftir að flak vélarinnar fannst I gærdag, flakið hafði
splundrazt og liklegt að sprenging hafi orðið I eldsneytisgey mum (DB-mynd, Björgvin Pálsson).
Læknirinn á Twin Comance
vélinni er fórst á Eyjafjállajökli
reiknaði ekki með rikjandi veður-
skilyrðum og flaug þvi vafalitið
beina stefnu i jökulbunguna, þar
sem hann og ung kona hans létu
lifið. Flugvélin hefur rétt verið
komin yfir Reynisfjall, er læknir-
inn telur sig vera yfir Vest-
mannaeyjum.
1 Reynishverfi var Hrefna
Finnbogadóttir ein á ferð á hesti á
heimleið til Neðri Presthúsa.
Þoka var mikil og Hrefna kvaðst
ekki einu sinni hafa séð Reynis-
fjall, sem hún var þó örskammt
frá. Hún heyrði dyn i flugvél, sem
hún taldi af minni gerð, og fjar-
lægðist hljóðið til norðurs i átt til
Kveikti í timbri
t nótt varö vart við eld i éikar-
stafla, sem stendur hjá skipa-
smiðastöðinni Vör á Akureyri.
Eldurinn varð fljótt slökktur, en
nokkrar skemmdir urðu á
timbrinu. Talið er liklegast, að
kveikt hafi verið I staflanum.
jökla. Það fannst Hrefnu undar-
legt. Hún leit á klukku sina
skömmu siðar og var hún þá rétt
liðlega 7.30. Er Hrefna heyrði sið-
an tilkynninguna i sjónvarpinu
um hvarf vélarinnar, taldi hUn á-
stæðu til að tilkynna það, er hUn
hafðiupplifað. Hrefna og maður á
Norður-Götum, sem er bær nær
jökíi, voru þau siðustu er heyrðu
til hinnar týndu vélar, sem örfá-
um minUtum siðar fórst á bungu
Eyjafjallajökuls.
Y firfl ugum ferðarstjórarnir
Amór Hjálmarsson og Valdimar
Ólafsson fengu tvær staðará-
kvarðanir á flugvelinni, sem
framkvæmdar voru af varnarlið-
inu á Stokksnesi. Út frá þeim og
með miði af versnandi veðri og
roki reiknaði Arnór Ut hugsanlega
flugstefnu. Nú er i ljós komið að
tilgáta Arnórs var mjög nærri þvi
sem raun hefur á orðið.
En Flugumferðarstjórninni
barst fjöldi tilkynninga frá fólki
varðandi vélina. Fullyrtu sumir
að þeir hefðu séð hana. Tilkynn-
ingarnar voru sumar mjög mis-
visandi, en að venju allar kannað-
ar og allir möguleikar þeirra. 250
manns tóku þátt i leit frá flug-
björgunarsveitum, SVFI og skát-
um. Unnu þær sveitir þrekvirki.
Tólf flugvélar flugu 16 flug i sam-
bandi við leitina við mjög erfið
skilyrði.
Sigurjón Einarsson flugmaður i
vél Flugmálastjómar fann vél-
ina. Hann hafði sveimað ' við
Eyjafjallajökul nokkra stund.
Skyndilega létti þokunni af jöklin-
um og sá Sigurjón þá flakið. Þá
tók hann eftir daufum merkjum
frá radiósendi i flakinu á jöklin-
um, en þau merki voru svo dauf
að hann hafði ekki veitt þeim at-
hygli fyrr en hann hafði eygt flak-
ið.
Sigurjón sagði að ef flughæð
litlu vélarinnar hefði verið 1-200
m meiri hefði vélin sloppið við
jökulinn. Hefði svo verið, hefði
vélin fjalla vegna komizt út yfir
Faxaflóa. En það eru svo mörg
,,ef” I svona dæmi, að vart má
skoöa dæmið út frá einu sliku,
sagöi Valdimar yfirflugumferð-
arstjóri.
—A.St.
BÍLLINN STEYPTIST í GJÁ í VEGINUM
Litill bill af Keflavikurflug-
velli steyptist i gær ofan i gmnn
aö brú yfir Laxá i Kjós, skammt
frá Vindási. Þetta leit illa út, þvi
billinn varð gjörsamlega i
hvarfi af veginum séð og lenti á
steinsteyptum brúarsökklinum.
Þama er verið að reisa nýja
brú, og eru engar hindranir eða
merkingar á veginum, en gert
ráö fyrir að umferðin fari eftir
hiiðarvegi, sem lagður hefur
verið til bráðabirgða. Þar við
bætist, að mishæð á veginum
gerir það að verkum, að þessar
framkvæmdir sjást ekki fyrr en
rétt er komið að þeim.
Við stöpulinn er ófyllt gjá, og
þar steyptist billinn ofan i og
skall á stöplinum. 1 bilnum voru
tvær bandariskar stúlkur og
meiddust þær ekki verulega, en
fengu taugaáfall. Sjúkrabill var
sendur á staðinn og mun hafa
flutt stúlkurnar undir læknis-
hendi.
—SHH
frjálst, úháð dagblað
Þriöjudagur 16. september 1975.
Maí kom pottlaus
og hníflaus á
miðin
Þegar átti að fara að elda i túr
Hafnarfjarðartogarans Mai um
mánaðamótin júlf-ágúst, fannst
ekkert til að elda i eða með,
hvorki pottar, hnifar né annað
nauðsynlegt, svo ekki var annað
að gera en að stinga sér ein-
hvers staðar inn á höfn og kaupa
nauðsynlega útrústningu fyrir á
annað hundrað þúsund krónur.
Einsýnt þykir, að einhver eða
einhverjirhafi sýnt það framtak
er skipið var á útleiöinni að
henda öllu þessu dóti i sjóinn.
Forráðamenn skipsins munu
hafa hugsað sér að upplýsa
þennan verknað sjálfir, en ekki
haft erindi sem erfiði, og hefur
nú rannsóknarlögreglan i
Hafnarfirði fengið málið til
meöferðar. En hætt er við, að
málið verði ekki auðveldlega
upplýst, þar sem skipt hefur
verið um áhöfn á skipinu að
mestu eða öllu leyti siðan þetta
var.
—SHH
Stolnar lúður
étnar í höfuð-
borginni
Tveir skipverjar af Hafnar-
fjarðartogaranum Mai laumuð-
ust á aðfaranótt sunnudagsins
ofan i lest skipsins og höfðu á
brott með sér talsvert af lúðu,
sem þar beið löndunar, isuð og
fin, ásamt öðrum afla. Svo var
haldið til Reykjavikur i sölutUr.
Salan gekk vel. Tvö veitinga-
hUs borgarinnar vildu gjarnan
kaupa lUðu af skipverjunum og
keyptu samtals fyrir 13 þUsund
krónur á 150 krónur kilóið, en
útgerðin fær 200 kr. fyrir kflóið
upp úr skipi.
Þegar mennirnir voru gripn-
ir, áttu þeir þrjár lúður óseldar
og voru látnir skila þeim. Sam-
talshafa þetta verið eitthvað yf-
ir 100 kiló, sem þeir stálu, þvi
veitingahUsin fengu 85 kg og 3
lúður áttu þeir eftir, þegar þeir
náðust, en lúðurnar voru 10-20
kg á þyngd.
Mennirnir hafa játað verkn-
aðinn og óskað eftir þvi, að and-
virði þýfisins verði dregið af
kaupi þeirra, en bátsmaðurinn
taldi beztu refsinguna vera þá
að láta þá landa karfanum. —
En Utgeröin hefur rekið menn-
ina.
—SHH
Ekið á konu
— á gangbraut með
blikkandi Ijósum
Um hádegisleytið i gær var
ekið á konu á gangbraut við mót
Glerárgötu og Þórunnarstrætis
á Akureyri. HUn var flutt á
sjúkrahUsið, en reyndist ekki
alvarlega meidd. — Þarna er
iðulega mikil umferð gangandi
fólks, en umferðarljós eru ekki
á gatnamótunum, heldur blikk-
andi ljós til merkis um, að þar
sé gangbraut. —SHH
Reiðhjól og vél-
hjól lentu saman
Um áttaleytið i morgun fór
piltur á vélhjóli svo nærri 9 ára
gamalli stúlku á reiðhjóli, að
hjól þeirra rákust saman og
stúlkan hraut i götuna. Þetta
var á Reykjavikurvegi f
Hafnarfirði. Stúlkan var flutt á
Slysadeild, en fékk að fara
þaðan heim aö rannsókn
lokinni. —SHH