Dagblaðið - 27.10.1975, Síða 18
18
Pagblaðið. Mánudagur 27. október 1975.
Jú, jú, það gengur allt vel mamma, geturðu farið á
annan fund á morgun?
eftir Colin Porter
10 f SLYSADEILD
, er slysinu olli
EFTIR AREKSTUR I ölvaður
Tiu manns voru flutt i slysa-
deild frá umferðarslysi er varð á
Suðurlandsbraut, á móts við Ask,
kl. 1.30 á iaugardagsnóttina. Var
fólkið meira og minna meitt, en
mest þó leigubilstjóri og kona er
sat i framsæti bils hans. Eru þau
beinbrotin, fóru úr liði og hlutu
fleiri meiðsli.
Areksturinn varð á beinni braut
þar sem engin gatnamót eru. En
Buick-bil var ekið yfir á rangan
vegarhelming og lenti þá á leigu-
bil og næsti bill þar á eftir gat
ekki náð að nema staðar og lenti
aftan á leigubilnum. Fimm voru i
Buickbilnum og 5 i leigubilnum og
var allt það fólk flutt i slysadeild.
ökumaður Buickbilsins var ölv-
aður við stýrið.
—ASt.
SKEMMT OG EYÐILAGT
FYRIR TUGI ÞÚSUNDA
Mikill innbrotafaraldur var i einhverju af verkfærum og er það
Vestmannaeyjum um helgina og trú lögreglunnar, að þau hafi
þau sýnilega framin i ölæði og e.t.v. verið notuð við hin inn-
frekar i þeim tilgangiaðskemma brotin. Hvergi var miklu stolið,
og eyðileggja en til aúðgunar. aðallega sælgæti og vindlingum,
Voru 4 innbrot tilkynnt á laugar- en illa um gengið, ekki sizt i
dagsmorgun og sunnudag. Var sjoppunni, þar sem mikið var
brotizt inn i sjoppu, verzlun, gos- brotið, sælgæti og fleiru hent um
og sælgætislager og i viðgerða- öll gólf og rakkremi sprautað
verkstæði Vinnslustöövarinnar. A yfir.
siðastnefnda staðnum var stolið ASt
Enn meðvitundarlaus eftir slys
Ungur piltur liggur enn meðvit-
undarlaus frá þvi kl. 3.30 á laug-
ardagsnótt, er hann féll á vélhjóli
á Laufásvegi. Ekki er vitaö ná-
kvæmlega um aðdraganda slyss-
ins en á einhvern hátt hefur pilt-
urinn fallið af hjóli sinu. Er hann
með sprungna höfuðkúpu og hef-
Eldri hjón i Vestmannaeyjum
vöknuðu við heldur ónotalegt
atvik aðfaranótt sunnudagsins.
Kom óátekin appelsinflaska
fljúgandi inn um svefnherbergis-
rúðuna og stráðust glerbrot og
innihald flöskunnar um allt her-
Brotizt var inn i sölubúð Kaup-
félagsins i Keflavik i nótt og taldi
verzlunarstjórinn að stolið hefði
verið 20—30 vindlingalengjum
auk skiptimyntar og einnig er
saknað ávisunar að upphæð 20
þúsund kr.
Rannsóknarlögreglan hefur
handtekið ungan mann sem játað
ur ekki komið til meðvitundar.
Pilturinn var skilrikjalaus og á ó-
umskráðu vélhjóli og gerði það
rannsóknarlögreglu erfitt fyrir.
Lögreglan óskar eftir að hafa
samband við sjónarvotta að slys-
inu.
bergið. Einhver náungi, sem leið
átti framhjá, framdi þetta lúa-
lega bragð, en var svo sporlaust
horfinn er lögregla hóf leit að
honum. Svefnherbergið er á 2.
hæð hússins, svo að vanda hefur
þurft skotið. ASt
hefur á sig innbrotið og þjófnað i
Kaupfélaginu. Við fyrstu yfir-
heyrslur kvaðst hann ekki hafa
stolið nema 8 vindlingalengjum
og harðneitar að hafa stolið ávis-
uninni.
Telur lögreglan að hugs-
anlega séu fleiri viðriðnir inn-
brotið. Málið er i rannsókn.
ASt.
4ra bíla árekstur
á Akureyri
Ungur ökumaður á Akureyri,
sem er nýlega búinn að taka öku-
próf, varð heldur óheppinn i öku-
ferð sinni á Akureyri i gær.
Sveigði hann inn i Hrafnagils-
stræti, en tókst svo óhönduglega
beygjan að hann lenti á kyrrstæð-
um bil. Skipti engum togum, að sá
kastaðist á næsta bil þar fyrir
framan og sá á þarnæsta bfl, svo
alls urðu þeir fjórir sem voru
meira og minna skemmdir eftir
þessa sögulegu beygju. Ekki
meiddist ökumaðurinn. Fjórir
aðrir árekstrar urðu á Akureyri
um helgina, en engin slys á fólki.
___________________—ASt.
Lagði fjórar
konur ó bakið
á sjálfan
kvennafrídaginn
„Kvöldiö og nóttin sem fylgdi
eftir kvennafridaginn slær held
ég velflestum gamlárskvöldum
við hvað slys og allskyns erjum
viðvikur,” sagði einn af rannsókn-
arlögreglumönnum borgarinnar i
morgun. Ein af frásögnum hans
var um árekstur i Hraunbæ á
föstudagskvöldið. Karlmaður
sem var einn á ferð i bil sfnum ók
inn á aöalbraut og lenti á Fiat-bil
sem i voru fjórar konur. Skipti
það engum togum að Fiatinn valt
og sneri hjólum upp. Ekki var um
alvarlegt slys á konunum að
ræða, en það þótti hraustlega gert
að leggja fjórar konur á bakið á
sjálfan kvennafridaginn. —ASt.
Á rauðu Ijósi
yfir gatnamót
Tvö umferðarslys urðu á
Kringlumýrarbraut á sunnudag.
Frá þeim báðum var fólk flutt i
slysadeild, en ekki var um alvar-
leg slys að ræða. Hið fyrra varð á
mótum Hamrahliðar en hið sið-
ara á mótum Háaleitisbrautar, er
bil var þar ekið yfir gatnamót á
rauðu Ijósi. —ASt.
—ASt.
GOSFLASKA INN UM
SVEFNHERBERGISRÚÐUNA
Viðurkennir hluta þýfisins
T—y-rrr": "r -
Andlét
Gunnar ólafsson
véltæknifræðingur lézt 15. októ-
berog verður jarðsettur frá Foss-
vogskirkju i dag. Gunnar var
fæddur á Hvammstanga 6. janúar
1922, sonur hjónanna Ólafs
Gunnarssonar læknis og Rögnu
Gunnarsdóttur. Hann nam plötu-
og ketilsmiðaiðn i Landssmiðj-
unni og lauk sveinsprófi 1946.
Stundaði framhaldsnám i Sviþjóð
og lauk véltæknifræðiprófi árið
1948. Hann starfaði i tvö ár við
Skipasmiðastöðina Eriksberg i
Gautaborg, vann frá 1951—’58
sem tæknifræðingur við Lands-
smiðjuna, frá 1958—’67 sem vél-
tæknifræðingur hjá Vélsmiðjunni
Héðni, frá 1967—’69 hjá Vatns-
veitu Reykjavikur, en árið 1969
var hann skipaður véltæknifræð-
ngur hjá Skipaskoðun rikisins þar
sem hann starfaði til dauðadags.
Agústa Hildibrandsdóttir
Stóragerði 13 lézt 19. október sl.
og verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju i dag klukkan 15.
Agústa var fædd i Móhúsum i
Garði 24. ágúst 1894. Hún var
dóttir hjónanna Hildibrands
Tómassonar og Steinunnar Jóns-
dóttur. Arið 1916 giftist hún eftir-
lifandi eiginmanni sinum Sigurði
Arnasyni og eignuðust þau fjögur
börn, Árna, Aðalstein, Hjördisi
Þorbjörgu og Bryndisi Agústu,
sem öll eru á lifi.
Sigurbjörg Jónsdóttir
fyrrverandi kennslukona lézt
þriðjudaginn 21. október. Hún
verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni á morgun, þriðjudaginn 28.
október kl. 15.
Maria Hallgrimsdóttir
Brávallagötu 16A andaðist i
Landakotsspitalanum 18. okt.
Kveðjuathöfn um hana fer fram i
Dómkirkjunni á morgun klukkan
13.30, en jarðsett frá Akureyrar-
kirkju miðvikudaginn 29. október
kl. 13.30.
Karl Júliusson
fyrrverandi bryti lézt að Reykja-
lundi 19. október. Otför hans fer
fram frá Dómkirkjunni i dag kl.
13.30.
Þorsteinn Þorkelsson
skrifstofustjóri, Bólstaðarhlið 39,
lézt i Landsspitalanum 17. októ-
ber. Útförhans fer fram frá Foss-
vogskirkju á morgun kl. 13.30.
Agústa Kristin Ingimundardóttir
Andcrsen
lézt i Landakotsspitala 18. októ-
ber siðastliðinn. Hún verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju á
morgun kl. 15.
Ingólfur Ásbjörnsson
Sólheimum, Grimsnesi, lézt að-
faranótt 23. október sl.
Fyrirlestur um
nútimalist
Næstkomandi þriöjudagskvöld,
,28. október, heldur prófessor Jean
Onimusfyrirlesturum nútimalist
i Franska bókasafninu á Laufás-
vegi 12. Fyrirlesturinn nefnir
hann „L’informalisme dans l’art
actuel” (Formfrelsi i list nú á
dögum) og mun hann sýna mynd-
ir máli sinu til skýringar.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 og
er öllum heimill aðgangur. Að
.fyrirlestrinum loknum mun Jean
Onimus svara fyrirspurnum við-
staddra.
Þjónusta
Orbeiningar.
Tek aö mér úrbeiningar á stór-
gripakjöti svo og svina- og fol-
aldakjöti, kem i heimahús. Simi
73954 eöa I vinnu 74555.
Er stiflað, fjarlægi stiflur
úr vcskum, W.C., rörum, baðker-
um og niðurföllum, nota til þess
öflugustu og beztu tæki, loft-
þrýstitæki, rafmagnssnigla og
fleira. Vanir menn. Valur Helga-
son, simi 43501.
Gróðurmold heimkeyrð
Agúst Skarphéðinsson. Simi
34292.
Veðrið
Austan kaldi. Skýjað og
dálitil rigning eða súld
með köflum. Hiti 4—6
stig.
SkrÁB frá ( CENGISSKRÁNING NK.196 22. október 1975. Kining K112.00 S»U
15/10 1975 1 Handa rfkj»dolla r 165,60
22/10 1 StcrlitiRkpund 342,45 *
17/10 1 KanartudolU r 161,10
22/10 100 Danakar krómir 2782,30 *
- too Norikjr krónur 3042,25 *
- 100 S.rn«kar krónur 3810,00 *
20/10 100 Kinnuk mbrk /4307,05
22/10 100 Franakir frankar 3801,50 * .
- 100 HcIr. frankar 429.90 »
. 100 Svivsn. frankar 6303,25 *
- 100 Gyllini 6297,65 *
- 100 V. - l>v*k mörk 6482,10 *
- 100 Ltrur 24. 57 *
- 100 Auaturr. Sch. 915,20 *
. 100 Licudoi 625, 10 *
17/10 100 Paietar 280,30
22/10 100 Yen 54. 94 •
15/10 100 Beikningnkrónur Vöruakiptalond 100,14
" 1 Keikningadollar VóruakiptalOnd 1 165,60
* HrvyHng frá ■ f6ua 1 u akraningu
Galleri Súm: Tryggvi Ólafsson
sýnir. Sýningin stendur frá
klukkan 16-22 a.m.k. til mánaða-
móta.
Listasafn tslands: Yfirlitssýning
á verkum Jóns Egilberts. Opið
frá 13.20-22 daglega til 18. nóvem-
ber.
Byggingarþjónusta arkitekta við
Grensásveg: Einar Hákonarson
sýnir. Opið frá 14-22 til 30. októ-
ber.
Kjarvalsstaðir: Sýning á verkum
Jóhannesar S. Kjarvals er opin
alla daga nema mánudaga klukk-
an 16—22. Aðgangur og sýningar-
skrá ókeypis.
MtR-salurinn: Skrifstofa, bóka-
safn, kvikmyndasafn og
sýningarsalur að Laugavegi 178.
Opið á þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl 17.30 — 19.30. — MtR.
Norræna húsið: Ágúst Petersen
sýnir. Stendur til 28. október. Op-
iðfrá 2-10.
Sýningar i Brautarholti 6 á
teikningum eftir Jóhannes
Kjarval. Sýningin er opin frá
16—22 alla daga.
. Tilkynningar
Skrifstofa félags
einstæðra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3—7 e.h.,
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1—5. Simi 11822. A
fimmtudögum kl. 3—5 er lögfræð-
ingur FEF til viðtals á skrifstof-
unni fyrir félagsmenn.
Tökum að okkur
ýmiss konar viðgerðir utan húss
sem innan. Uppl. i sima 71732 og
72751.
Úrbeining á kjöti.
Tek að mér úrbeiningu og hökkun
á kjöti á kvöldin og um helgar.
(Geymið auglýsinguna). Uppl. i
sima 74728.
Smiða opnanlega
glugga, sólbekki o.fl. Simi 21962.
Bilahónun — hreinsun.
Tek að mér að vaxbóna bila á
kvöldin og um helgar. Uppl. i
Hvassaleiti 27. Simi 33948.
Vélahreingerning,
gólfteppahreinsun og húsgagna-
hreinsun (þurrhreinsun). Vanir
menn. Vönduð vinna. Uppl. i sima
40489.