Dagblaðið - 15.12.1975, Síða 1
DAGAR
TIL JÓLA
friálst,
úháú
dagblað
1. árg. — AAánudagur 15. desember 1975 — 82. tbl.
Ritstjócn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022
MEÐAL GUMMITEKKINN ÞO
fleiri
inni-
stœðu-
lausar
ávísanir: ##
Meiri fjöldi innistæöulausra
ávisana en nokkru sinni fyrr
kom fram í könnun þá, sem gerö
var á föstudaginn i bönkum og
sparisjóöum á höfuðborgar-
svæöinu sem og Akureyri þar
. sem ekki reyndist alvarlegur
AÐEINS" 27 ÞUS. KRONUR
misbrestur.
Reyndust þeir vera 1.318.
Heildarupphæð þessara ávisana
reyndist vera kr.
35.764.000,00, eða 1,03% af
ávisanaveltunni þann dag, sem
könnunin var gerð.
Meðaltalsfjárhæö þessara
1.318 ávisana var þvi kr.
27.135,00.
1 næstu ávisanakönnun á und-
an, sem gerð var hinn 7. nóv. sl.
reyndust innistæðulausar ávis-
anir 1.199, en heildarfjárhæðin
um 97 milljönir króna. Þá var
meðaltalsupphæð innistæðu-
lauSra ávísana um kr. 80.000,00
og samanlagt um 3% af veltu
3 aðilar reyndust vera með kr.
876.000,00 I innistæðulausum
ávisunum, sem Seðlabankinn
neitar að annast innheimtu á
vegna siendurtekinna brota á
reglum um meðferð ávisana- og
hlaupareikninga.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
könnunin tekurtilAkureyrarog
gekk framkvæmd hennar vel.
EINAR TIL ÖRYGGISRAÐSINS?
Mikið hefur komið til tals i
rikisstjórninni, að Einar
Agústsson, utanrikisráöherra,
fari til Sameinuðu þjóðanna og
beri upp kæru íslendinga á
hendur Bretum í öryggisráöinu.
Sendiherra Islands hjá Sam-
einuöu þjóöunum hefur afhent
kæruna, sem er vegna ásigl-
ingarinnar á Þór. Svo vill til, aö
formaður öryggisráösins er um
þessar mundir Breti. Hins
vegar getur hann ekki hindrað,
að kæran veröi tekin fyrir.
Fari Einar Agústsson, mun
það verða bráðlega.
Sfðustu fréttir:
Laust fyrir hádegi barst sú
frétt, að Einar Ágústsson mundi
sennilega ekki fara sjálfur til
öryggisráðsins, heldur mundu
Ingvi Ingvarsson sendiherra hjá
S.Þ. og Hans G. Andersen flytja
máliö. —HH
JOLASVEINAR A
HÚSÞÖKUM
Það var múgur og marg-
menni, sem safnaðist saman
niðri á Austurvelli i gær til að
fylgjast með þvl, þegar ljósin
voru tendruð á jólatrénu þar.
Meðal gesta voru að sjálf-
sögðu jólasveinarnir, eða öilu
heldur þeir, sem eru mættir úr
óbyggðum.
Eftir athöfnina brugðu jóla-
sveinarnir sér upp á húsþak og
skemmtu góða stund við mik-
inn fögnuð yngri kynslóðar-
innar. Þar náði Ragnar Th.
Sigurðsson þessari mynd af
sveinunum.
í vígahom:
.
ef varnarliðið bregzt ekki gegn brezkri innrás
Nokkrir Suöurnesjamenn,
sem allir starfa við sjávarút-
veg, hafa sent yfirmanni At-
lantshafsbandalagsins á Kefla-
vikurflugvelli áskorun, þar sem
þeir mótmæla árásum NATO-
herskipa inn i islenzka fiskveiði-
landhelgi. Þeir krefjast þess að
skip þessi verði kölluö út fyrir
fiskveiöitakmörkin þegar i stað
og telja að skip þessi eigi aö
vera landinu til verndar en ekki
til að gera árás á þaö.
Ennfremur segir i áskorun
þessari aö grundvöllurinn fyrir
tilveru herstöövarinnar á Is-
landi sé brostinn þegar herskip
frá þjóð, sem er i NATO, ógni
lifshagsmunum þjóðarinnar. 1
lok tilkynningarinnar segir:
„Stöðvi NATO ekki þessar árás-
ir á gæzluskip okkar, neyðumst
við til þess að undirbúa lokun á
hliðum herstöðvarinnar á
Keflavikurfiugveili.”
Undir þetta rita Garðar
Magnússon, Höskuldarkoti,
Ytri-Njarðvik, Þorsteinn Jó-
hannesson, Reynisstað, Garði,
Eðvald Júliusson, Mánagötu 13,
Grindavik, Gunnlaugúr Karls-
son, Hólabraut 7, Keflavik, Jón
Kr. Jónsson, Tjarnargötu 9,
Sandgerði og Guðmundur
Agústsson, Hliðarenda, Vogum.
—AT—
M
■ >
; m! íSktíifcl
Bruninn á Frakkastíg:
Allt byggt
í óleyfi
- bls. 10
Vil|a hinir
nýríku
krossfesta
Guðna?
Sjá kjailaragrein
Hilmars Jónssonar
bls. 12-13
VERÐBOLG-
UNA
MÁ LÆKNA
— segir OECD og
gefur okkur hollráð
fyrir nœsta ár
— baksíða
■
. . .
**