Dagblaðið - 15.12.1975, Blaðsíða 8
8
DagblaðiO. Mánudagur 15. desember 1975.
Hœttir Whitlam af-
skiptum af pólitík?
— eftir yfirburðosigur Frasers í þingkosningunum
Malcolm Fraser, forsætis-
ráðherra Astraliu, fagnar nú
mesta kosningasigri i sögu
landsins. Hann sagði i Canberra
er Urslit ldgu fyrir að fyrsta verk
stjórnar sinnar yrði að glima.viö
efnahagsvandann.
Fraser er hálffimmtugur
Ihaldsmaður.sem tók við stjórn af
fyrri forsætisráðherra, Gough
Whitlam, er sá var rekinn frá
völdum af landstjóra drottningar,
Sir John Kerr. Fraser hefur
skorað á landa sina að leggjast á
eitt til að endurreisa efnahagslif
landsins. Hann hefur heitið þvi að
standa viö þær félagslegu um-
bætur.sem fyrri stjórn Verka-
mannaflokksins — undir stjórn
Whitlams — hafi hafið, og hann
lofaöi að „vernda þá sem minna
mega sin”.
Mjög fljótlega eftir að talning
atkvæöa Ur kosningunum i fyrra-
dag hófst lá ljóst fyt ir að Frjáls-
lyndi flokkur Frasers hafði unnið
stórkostlegan sigur. Endanlegar
úrslitatölur liggja ekki fyrir fyrr
en eftir nærri mánuö, en allt
bendir til þess, aö Fraser hafi nú
53 sæta meirihluta i neðri deild
þingsins, þar sem eru 127 þing-
menn og sex sæta meirihluta i
efri deild, þar sem eru 64 þing-
menn. Búizt hafði verið við ivið
meiri sigri Frasers. Flokkur hans
hefurbætt viösigum 6%,enhon-
um hefði dugað innan við
eitt prósent til að sigra Whitlam
og Verkamannaflokk hans.
Stofnandi Frjálslynda flokksins
og fyrrum forsætisráðherra
stjórnar hans, Sir Robert
Menzies, sagði um úrslitin, að
þau væru persónulegur sigur
Frasers, sem heföi háð kosninga-
baráttu sina allt frá upphafi á að-
dáunarverðan • hátt.
Hinn brottrekni og sigraði for-
sætisráðherra, Gough Whitlam,
sagði niðurlútur eftir
kosningarnar, að framtið
lýðræðisins i landinu væri dökk.
Talið er, að Whitlam ihugi nú að
hætta afskiptum af stjórnmálum,
enda er honum kennt persónu-
lega um það afhroð, sem Verka-
mannaflokkurinn hefur beðið i
þessum kosningum. Flokksleið-
toginn sagði I gærkvöld, að hann
væri fús að þjóna flokki sinum á
hvern þann hátt sem talinn væri
heppilegur.
Hollund:
Kuldinn í lestinni
vann bug ó skœru-
liðunum sex
Sex suður-mólúkkeyskir skæru-
liðar, stifir af kulda, gáfust upp i
Beilen i Hollandi i gær og slepptu
23 gislum sfnum lausum eftir að
hafa haldið þeim i járnbrautar-
lest I tólf daga.
Skæruliðarnir gengu óvopnaðir
út úr lestinni fimm mlnútum eftir
að einn gíslanna hafði skjírt lög-
reglu frá þvi, að þeir hyggðust
gefast skilyrðislaust upp.
Gislarnir, sem einnig voru
orönir heldur hrjáðir af kulda eft-
ir aö hafa verið nauðugir i
Iskaldri lestinni—þar sem hitinn
var um og undir frostmarki —
veifuðu vasaklútum og treflum út
um glugga lestarinnar um leið og
skæruliðarnir gengu út.
Að sögn lögregluyfirvalda i
Hollandi verða skæruliðarnir,
sem eru félagar i róttækum sam-
tökum. S-Mólúkkeyinga, er berj-
ast fyrir sjálfstæði heimalands
sins frá Indónesiu, ákærðir fyrir
morð. Hámarksrefsing fyrir
morð i Hollandi er 30 ára fangelsi.
Eftir aö skæruliðarnir höfðu
stöðvað lestina á stöku járn-
brautarspori i Beilen fyrir 12 dög-
um skutu þeir þrjá gisla sinna til
bana og hentu likum þeirra út á
teinana.
Uppgjöf sexmenninganna kom
mjög á óvart. Allt i kring um lest-
ina voru nokkur hundruð lög-
reglu- og hermanna, er höfðu bú
ið sig undir lengra umsátur og
blóðug endalok. Skæruliðarnir
sex tilkynntu Jóhannesi
Manusama, forseta útlagastjórn-
ar S.-Mólúkkaeyja, um uppgjöf
sína. Maiíusama hefur verið
þakkað að eiga mestan þátt i að
málalok urðu giftusamleg.
Gislarnir voru allir ómeiddir.
Þeir voru fluttir á sjúkrahús.
S-Mólúkkeyingarnir voru fluttir
hver i sinu lagi til fangelsa i Hol-
landi.
Ættingjar og vinir gislanna
vissu varla sitt rjúkandi ráð eftir
— gáfust
skilyrðislaust
upp í gœr,
gíslarnir allir
ómeiddir
uppgjöf skæruliðanna. í hótelinu i
Beilen, þar sem ættingjarnir
höfðu beðiö svefnlausir siðan um-
sátrið hófst var mikið dansað,
sungið, hlegið, og grátið, að sögn
sjónarvotta.
Einn gislanna sagði frétta-
mönnum, að skærulibarnir hefðu
farið vel með þá og engum pynt-
ingum beitt. í upp hafi umsáturs-
ins voru nokkrir gislanna bundnir
á höndum og fótum en siðustu
dagana voru allir lausir og liðugir
um borð i lestinni. Hann taldi að
það hefði að verulegu leyti verið
kuldinn i lestinni sem fór niður i 8
stiga frost i fyrrinótt, sem hefði
ráðið uppgjöf skæruliðanna.
ENGIN FORN VAR OF STOR
— sagði bœjarstjórinn í Beilen um 12 daga lömun bœjarlífsins
Uppgjöf skæruliðanna i Beilen
gerði ibúum smábæjarins auðvelt
aö anda léttara eftir að bæjarlifið
hafði verið nær lamað i 12 daga,
eða allt siðan S-Mólúkkey ingarnir
rændu lestinni.
Ibúar Beilen muna ekki aðra
eins daga sfðan kandadiskar her-
sveitir hröktu hermenn Hitlers á
brott i siðari heimsstyrjöldinni
Hermennirnir og skriödrekarn-
ir, sem komu til Beilen eftir
lestarránið, höfðu um tima ein-
angraö bæinn frá umheiminum.
Hertækin tættu sundur akra
bændanna, sem ekki komust að til
aö sinna uppskerur.ni. Húsmæður
fóru ekki i búðir, heldur keyptu
nauösynjar sinar úr bilaverzlun
um, sem komu að dyraþrepum
þeirra.
„Beilen hefur verið lamaður
bær,” sagði bæjarstjórinn, Auke
Beckering van Thijn, i samtali
við fréttamenn i gær. „Fyrstu niu
dagana voru fréttamenn og yfir-
stjórn aögerðanna I bæjarskrif
stofunum, þannig aö það var
vonlaust fyrir okkur að ætla að
sinna daglegum verkefnum,”
bætti hann við.
Bæjaryfirvöld telja, aö kostn-
aöurinn, sem orðið hefur af um
sátrinu um lestina, nemi ekki
undir 26 milljónum gyllina eöa
1.7 milljörðum islenzkra króna.
Einn embættismanna hollenzku
rikisstjórnarinnar telur þessa
tölu allt of lága, þvi járnbrautar-
fyrirtækið hafi einnig tapað miklu
fé. Hann sagði aöfsem stæði gæti
enginn spáð i hina raunverulegu
uppiiæö.
Van Rhijn bæjarstjóri segir
alla bændur fá tjón sitt bætt, bæði
beinan skaða og tapaða vinnu-
daga. „Þetta var nauðsynlegt,”
sagði bæjarstjórinn, „og ibúarnir
hafa ekki kvartað. Fólkið i lest-
inni hefur orðið að sitja fyrir um
allt. Engin fórn var of stór.
Rán af þessu tagi er timanna
tákn... þetta umsátur hefur sýnt
öllum, hvar sem þeir eru, að ekk-
ert bæjarfélag er of litið til að
verða fyrir svona nokkru. Maður
getur aldrei sagt með vissu, að
„svona gerist ekki hér,” sagöi
van Thijn, bæjarstjóri i Beilen.
Leikaramyndir ó veggjum
í íbúð IRA-manna í London
Einn frsku skæruíiðanna gengur út á svalir ibúðar Mathewshjón-
anna i London á föstudaginn eftir að hann og félagar hans gáfust
upp. Lögreglumaðurinn hægra megin er við öllu búinn.
lögreglan i London, að fundizt
hefði„íprengjuverksmiöja” á ó-
tilgreindum staö i borginni.
Tveir skæruliðanna bjuggu þar.
Fréttamenn hafa fengið að
skoða ibúöina, þar sem skæru-
liðarnir bjuggu, og lýstu henni
sem „afar kaldri og óaölaö-
andi”. A vegg hékk mynd af
leikaranum Burt Reynolds með
haglabyssu i hendi sér.
Skæruliðarnir fjórir eru taldir
vera meðal hinna hættulegustu
IRA-manna, sem starfað hafa i
London.
Hjónin Sheila og John
Mathews, sem fjórir frskir
skæruliðar héldu I gislingu i
nærri viku i London, héldu fjöl-
skylduboð I gærkvöldi I ibúöinni,
sem þeim var haldið i.
Frú Mathews sagði frétta-
mönnum I sjúkrahúsinu, sem
hún var flutt til eftir að skæru-
liöarnir gáfust upp á föstudag-
inn, að hún hefði ekki búizt við
aö komast þaöan út á lifi.
Skömmu eftir að umsátrinu
um skæruliðana lauk tilkynnti
Jólin hennar Donnu
Þessi mynd hefur þann tilgang einan að hressa okkur I skammdeg-
inu og kuldanum hér norðurfrá. Stúlkan heitir Donna Bishop og býr
IMiami Beach I Florida I Bandarlkjunum. Hún ætlar að eyða jólun-
um á sólrikri ströndinni þar ...ein sins liðs, segir hún.
Njósnarinn Guillaume
DÆMDUR í DAG
I dag verður kveðinn upp
dómur yfir Gunther Guillaume,
fyrrum aðalráðgjafa Brandts,
þáverandi kanslara
Vestur-Þýzkalands, sem
sakaður hefur verið um njósnir
fyrir Austur-Þýzkaland. Sak-
sóknarinn hefur krafizt
fimmtán ára fangelsis fyrir
Guillaume. Handtaka hans fyrir
hálfu öðru ári leiddi til afsagnar
Brandts.
Guillaume og kona hans,
Christel eru bæði sökuð um
njósnir og landráö. Krafizt hef-
ur veriö 10 ára fangelsisdóms
yfir konu Guillaumes.
Rikissaksóknarinn I Vestur-
Þýzkalandi hefur lýst þvi yfir,
að njósnir þeirra hjóna hafi
stórlega skaðað hagsmuni Vest-
ur-Þýzkalands. Verjendur
hjónanna hafa á móti haldiö þvi
fram, að ekkert bendi til þess
aö þau gögn,sem Guillaume.
komst yfir i samstarfi sinu við
Brandt, hafi verið send til
Austur-Þýzkalands. Verjendur
hafa krafizt þess, að felldar
verði niður landráöaákærurnar
á hendur þeim hjónum. 1 stað
þess veröi þau dæmd fyrir
njósnirnar einar, sem aðeins
hafa i för með sér fimm ára
fangelsisdóm.
Guillaume-hjónin hafa neitað
aö bera vitni I réttarhöldunum
sem staðið hafa yfir i sex
mánuði. Háttsettir vestur-þýzk-
ir embættismenn, þar á meöal
Brandt sjálfur og Georg Leber,
varnarmálaráðherra, hafa
komið fyrir réttinn og borið
vitni.