Dagblaðið - 15.12.1975, Qupperneq 10
10
Dagblaðið. Mánudagur 15. desember 1975.
Bruni oð Frakkastíg 13:
VIÐBYGGINGIN BYGGÐ
„bað mátti ekki tæpara
standa,” sagði Gunnar Sigurös-
son varaslökkvistjóri i viðtali
við DB vegna brunans i
fyrrinótt að Frakkastig 13 i
Reykjavik. „Menn urðu eldsins
fljotlega varir og ferðin niður-
eftir gekk tiltölulega greiðlega.
Ef lengra hefði liðið er ég
hræddur um, að verr hefði getað
farið og þá hefði þessi óleyfilega
viðbygging getg valdið nágrönn
unum ómældu tjóni.”
Slökkviliðinu var tilkynnt, að
eldur logaði i húsinu að Frakka-
stig 13 rétt fyrir klukkan tvö i
fyrrinótt. Var allt liðið kallað út,
þar eð þarna eru mörg timbur-
hús og veður afleitt Húsið er
tveggja hæða timburhús, sem
notað er sem verzlunarhúsnæði.
Er slökkviliðið kom á staðinn
reyndist vera eldur i drasli og
einangrun i viðbyggingu við
vörugeymslu samtengda
húsinu, sem einangrað er með
hálmi. Var rifið járn á bakhlið
þess til þess að fyrirbyggja út
breiðslu og fóru reykkafarar inn
i byggingarnar til þess að-ganga
úr skugga um, hvort þar væri
eitthvert fólk. Svo reyndist ekki
vera. Fljótlega tókst að slökkva
eldinn, en skemmdir urðu
í ÓLEYFI
töluverðar.
„Það sem er alvarlegast i
þessu máli, er að viðbygging
þessi og jafnvel vörugeymslan
öll er byggð i óleyfi,” sagði
Gunnar Sigurðsson ennfremur.
„Við höfum staðið i stappi við
eiganda hússins vegna þessa
máls, þar eð við höfum ekki
talið óhætt að byggja meira á
þessu svæði. Kom jafnvel til tals
að láta rifa bygginguna með fó-
getavaldi. Það er ekki nokkur
hemja, að menn þverskallist við
öllum fyrirmælum okkar og
stofni þar með lifi og eignum
nágrannana istórhættu.” HP.
Fárviðri gekk yfir Suðureyri:
Bryggjur hurfu og
elningahús hrundi
Miklar skemmdir urðu i vest-
norðvestanstormi, sem gekk
yfir Suðureyri i fyrrinótt. Stóð
stormurinn beint á þorpið af
hafi og var sjógangur mikill.
Löndunarbryggja og önnur
eldri bryggja með fiskhjalli
hurfu i hafrótið og steinsteypu-
plötur á nýja hafnargarðinum
skemmdust töluvert.
A landi fuku tveir fiskhjallar
út i buskann með fiski og öllu
saman, og einingahús, sem
þarna var i byggingu, nánast
fullbúið, hrundi.
Flokkur manna vann að þvi
að verja nýtt áhaldahús, sem
hreppurinn er með i byggingu
en þar gengu hurðir inn undan
veðurofsanum. Þakplötur fuku
um allt þorpið og brotnuðu við
það rúður i mörgum húsum.
Til marks um veðurhæðina
má nefna, að þriggja tonna bát-
ur sem settur hafði verið á land,
kastaðist eina 100 metra I einni
hrinunni. -HP.
GLÆSILEGT
BRÚÐARSKART
Þær eru ábyggilega fáar
konurnar, sem hafa gift sig i
glæsilegri brúðarkjól en
Guðmunda Heiðdal Sigurðar-
dóttir. Kjóll þessi er hannaður
af Sigrúnu Jónsdóttur og unnu
Guðmunda og móðir hennar,
Kristbjörg Guðmundsdóttir, við
að sauma hann. Verkið telst
þeim mægðum til að hafi tekið
einn og hálfan mánuð miðað við
sex tima vinnu á dag. Það tók
hálfan mánuð að sauma brúðar-
slörið eitt.
Guðmunda gifti sig i Bessa-
staðakirkju á laugardaginn.
Brúðguminn heitir Kári
Kristjánsson. Séra Guðmundur
Óskar ólafsson gaf brúðhjónin
saman, en hann og móðir
brúðarinnar eru systkinabörn.
Hér ganga þau Guðmunda og
Kári úr kirkju eftir hjóna-
vigsluna. Ljósmynd Bjarnleifur.
Allt slökkviliðið var kaliað út vegna brunans, 'enda mikið um
timburhús I hverfinu. Eldurinn var fljótlega slökktur, eftir að
slökkviliðsmenn höfðu rifið járnplötur frá á bakhlið hússins og
komizt þannig að hálmeinangrun, sem byrjuð var að loga DB-
mynd: Bjarnleifur.
Sigurður Þ. Árnason skipherra í Mennirnir í brúnni:
Klippurnar Pétri
Sigurðssyni að þakka
Beittasta vopn okkar i land-
helgisbaráttunni eru klippurnar
svonefndu, — sem reyndar eru
engar klippur eða skæri, eins og
ætla mætti. 1 bókinni Mennirnir
I brúnni, sem Ægisútgáfan gaf
út núna fyrir nokkrum dögum,
er m.a. viðtal viö Sigurð Þ.
Arnason skipherra. Hann er
spurður að þvi hverjum klipp-
urnar séu að þakka.
„Ég veit ekki betur en að það
sé forstjóri Landhelgisgæzlunn-
ar. Þaö er raunar rangnefni að
kalla þetta klippur eða skæri
eins og flestir gera. Þetta er
slæða fjögurra til sex álna, en að
þvi leyti frábrugðin aö álmum-
ar mynda þrihyrning og eru
hvassbrýndar i kverkinni. Þeg-
ar svo virinn klemmist ofan í
raufina missir hann styrkleik-
ann og skerst i sundur. Viö
drögum þessar slæður I venju-
legum togvir,” segir Siguröur
Þ. Árnason, sem hefur skorið
eða slitiö aftan úr 15—20 togur-
um.
1 bókinni, sem til var vitnað,
Mennirnir i brúnni, eru auk
Sigurðar kynntir þeir Tryggvi
Blöndal skipstjóri á Esjunni,
Steinarr Kristjánsson á Laxá,
Þórarinn Ingi Sigurðsson hjá
Eimskip og Bernharð Pálsson á
Stapafelli. JBP
Myndin var tekin fyrir nokkrum dögum þegar Sigurður Þ. Arnason færði þjóðinni nýjan og betri Óðin
frá skipasmiðastöðinni I Árósum. Þar var gerð mikil lagfæring á varðskipinu. Á myndinni eru Pétur
Sigurðsson forstjóri Gæzlunnar, ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra og Sigurður skipherra (DB-
mynd Ragnar).