Dagblaðið - 15.12.1975, Blaðsíða 11
Dagblaðið. Mánudagur 15. desember 1975.
11
ÞEIR KENNA KUNG
í ÞINGHOLTUNUM
Sjálfsvörnin i kung fu byggist upp á vörn slöngunnar er storkurinn ræðst á hana. Hér sýna tveir nem
endur Matsoka Sawamura hvernig slikt fer fram.
■FU
Margt fólk hefur haft sam-
band við Dagblaðið og spurzt
fyrir um undarlega austur-
lenzka tónlist sem bærist öðru
hvoru út Ur húsi við Þingholts-
strætið. Við kunnum enga skýr-
inguá þessu, en brugðum okkur
á staðinn til að kanna málið.
Er við börðum að dyrum tók á
möti okkur japanskur maður,
Matsoka Sawamura að nafni.
,,Ég rek hérna austurlenzka
nudd- og æfingastofu,” svaraði
hann spurningunni um hvaða
starfsemi færi þarna fram. ,,Við
æfum helzt kung fu og einnig er
það notað i lækningatilgangi. 1
kung fu er það mikið atriði að
hafa stjórn á andardrættinum
og það hjálpar fólki sem á i erf-
iðleikum með andardrátt, er
með asma eða veilt fyrir
hjarta.”
En nú hafði blaðamaður séð
nokkrar kung fu myndir i bió, og
þær sýndu allt annað en lækn-
ingagildi og þess háttar.
,,Kung fu biómyndirnar eru
bara plat,” sagði Matsoka.
,,Hið raunverulega kung fu
skiptist eiginlega i tvennt, ann-
ars vegar er það sjálfsvörn og
þá hundrað prósent sjálfsvöm.
Hins vegar er svo lækningalega
hliðin.
I rauninni byggist kung fu
sjálfsvörnin upp á sjálfsvörn
eiturslöngunnar. Eiturslöngur
ráðast aldrei á neinn að fyrra
bragði, þær eru bara að verja
sig.”
— Hverjir æfa helzt kung fu
hjá þér?
,,Það er alls konar fólk. Það
hefur verið nokkuð mikið um að
krakkar komi hingað. Ég er
mjög ánægður með árangurinn
sem þau hafa náð.”
— Hvaðan úr heiminum ber
þig að?
,,Ég er frá Japan, eða öllu
heldur Okinawa sem margir
MATSOKA SAWAMURA; Kung
fu skiptist i tvennt, annars veg-
ar sjálfsvörn og hins vegar hef-
ur það lækningalegt gildi. DB-
myndir: Björgvin.
ilJapan.
Ég fluttist hingað árið 1959 og
kann mjög vel við mig. Hér er
enginn her og engin læti og
bardagar. Ég var kallaður i jap-
anska herinn árið 1945, þá fjór-
tán ára gamall. Ég var settur i
hjúkrunardeild hersins og þar
komst ég i kynni við kung fu.”
— Hvað hefurðu kennt kung
fu lengi hér á landi?
,,1 þrjú ár. Ég hef aldrei aug-
lýst starfsemina og það eru
bara kunningjar minir og kunn-
ingjar þeirra sem koma hingað
og æfa sig. Þú minntist á tónlist-
ina áðan. Hún er eingöngu notuð
vegna hijómfallsins og er mjög
mikilvæg til að fólk nái réttum
rythma við æfingarnar.” —AT
Sönglög finars Markan komin út
Nýkomin eru út 43 sönglög Ein-
ars Markan, nótnabók i stóru
broti. Otgefandi er ekkja Einars,
Vilhelmina Markan, en Carl Bill-
ich bjó til prentunar.
1 formála að sönglagaheftinu
segir: „Einar Markan var fæddur
i Ólafsvik 17. júli 1902, lézt i
Reykjavik 6. febrúar 1973.
Hann var þekktur sem ein-
söngvari frá unga aldri, hleypti
snemma heimdraganum og hóf
söngnám ungur að árum bæði i
Osló og Berlin.
Hann hélt fjölda tónleika og
söng inn á hljómplötur. Einar var
fjölhæfur og þróttmikill listamað-
ur, gæddur djúpum tilfinningum,
sem greinilega kom fram i ágæt-
um baritonsöng. Einnig hafði
hann sköpunarhæfileika i fleiri
listgreinum. út hafa komið eftir
hann, þrjár ljóðabækur: Ég verð
að syngja (1941), Ljóðheimar
(1946) og Saga, ljóð og óperutexti
(1968).
Einar lagði einnig stund á mál-
aralist og eftir hann liggja marg-
ar myndir, sumar i einkaeign.”
Félagsprentsmiðjan prentaði
nótnaheftið. Myndskreytingar
annaðist Árni Elfar.
VEGURINN VERÐUR
LOKAÐUR í VETUR
— ef ekki verður settur
burður, segir Guðmundur
„Ef ekki kemur þegar i stað
nothæfur ofaniburður i nýja veg-
inn til Þorlákshafnar, verður veg-
urinn lokaður i vetur”, sagði
Guðmundur Sigurðsson i
Þorlákshöfn i viðtali við Dagblað-
ið.
Þessa vegarkafla hefur áður
verið getið i fréttum vegna ófærð-
ar. Er mönnum i fersku minni,
þegar Þorlákshafnarbúar lokuðu
veginum með þvi aö leggja bilum
á hann þveran til þess að
mótmæla tregðu vegamálayfir-
valda til þess að hefla hann og
halda honum við.
LAUGAVEGUR 49 ER
Vegna greinar i Dagblaðinu um
eldgildrur i gömlum húsum
hringdi ibúi að Laugavegi 49 og
bar harðlega á móti þvi að illa
væri gengið frá húsnæðinu hvað
eldvarnir snerti. 1 húsinu eru
í honn nothœfur ofani-
Sigurðsson í Þorlákshöfn
Að sögn Guðmundar er þessi
vegur nú ekkert annað en forar-
eðja. Kvað hann dæmi þess, að
leigubilstjórar neituðu farþegum
um akstur til Þorlákshafnar
vegna ástands vegarins nú.
„Ofaniburðurinn þolir ekki rign-
ingu”, sagði Guðmundur. „Menn
hafa áhyggjur af þvi, að flutn-
ingur á fiski verði útilokaður,
þegar til vertiöarinnar dregur.
Menn eygja hélzt það úrræði að
opna gamla veginn aftur, ef ekki
verður úr þessu bætt þegar i
stað”, sagði Guðmundur að lok-
um.
BS
ÍBÚÐARHÆFUR
reykskynjarar og slökkvitæki.
Einnig eru tveir stigar frá hverri
ibúð. Húsnæðið hefur fengið
viðurkenningu frá Eldvarnaeftir-
litinu fyrir að vera ibúðarhæft.
sagði þessi ibúi hússins. -AT.
BOSC
kynningarverð á Panther
í gjafakassa. Verðlækkun kr. 3.500.—
BOSCH
COMBI
Tilvalin jólagjöf, takmarkaðar birgðir
f&unnai Srfþzehbbm h.f.
Reykjavik, Akureyri,
umboðsmenn víða.