Dagblaðið - 15.12.1975, Qupperneq 18
18
Dagblaðið. Mánudagur 15. 'desember 1975
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Fjögur lið ó toppnum að
hólfnuðu keppnistímabili
Að keppnistlmabilinu hálfn-
uðu i ensku deildunum er
keppnin ákaflega tvisýn i 1.
deildinni. QPR, Liverpooi,
Manch. Utd. og Derby hafa for-
ustu með 28 stíg, en fast á eftir
fylgja Manch. City, Leeds og
West Ham með 26 stig. Atta til
tiu liö hafa enn möguleika á
enska meistaratitlinum — og
greinilegt að lokaspretturinn
verður ákaflega spennandi eins
og á siðasta keppnistimabili. öll
liðin hafa leikið 21 leik af hinum
42, nema Leeds og West Ham.
Leik þessara liða i haust var
frestað vegna Evrópukeppni og
hefur enn ekki verið leikinn. Sex
lið hafa þvi tapað jafn mörgum
stigum eða 14.
Aðalleikur umferðarinnar á
laugardag var milli efstu lið-
anna fyrir umferðina, QPR og
Derby, i Lundúnum. Þar mætt-
ust 15 landsliðsmenn á köldum
vetrardegi — rjómi enskrar
knattspyrnu, en leikurinn var
ekki nógu góður, þegar tillit er
tekið til þess. Spennan þving-
andi. Stan Bowles enn i ónáð hjá
QPR — en Kevin Hector var
settur úr Derbyliðinu vegna
Leighton James. Francis Lee
léksinn siðasta leik fyrir keppn-
isbannið. Leikmenn Derby
komu til Loftus Road minnugir
slæmra leikja við QPR — þá
ekki sizt i haust, þegar QPR
vann 5—1 i Derby. En Dave
McKay, framkvæmdastjóri
D.erby, talaði digurbarkalega
fyrir leikinn. „QPRer ekki nógu
gott lið — aðalkeppinautar okk-
ar um meistaratitilinn verða
Liverpool og West Ham,” sagði
hann.
Framan af sýndu liðin litið og
níu min. fyrir hlé varð QPR fyr-
ir áfalli. Don Mason meiddist
eftir samstuð við Charlie
George og yfirgaf völlinn. t 6
min. lék QPR með 10 mönnum,
en þá kom 17 ára piltur inn á,
Phil Nutt. t siðari hálfleiknum
sótti QPR mun meira — Derby
gaf eftir miðjuna og lék upp á
stig. A 26. min. átti Dave Thom-
as þrumufleyg — knötturinn
smalla i þverslá og hrökk út aft-
ur. Skömmu siðar stóð hann fyr-
ir opnu marki — en mistókst,
þegar auðveldara var að skora.
Þar slapp Derby tvivegis fyrir
hom. En á 79. min. gaf sókn
QPR ioks árangur. Nutt fékk
knöttinn frir og skoraði auð-
veldlega hjá Boulton. Þá loks
drógu leikmenn Derby sig út úr
varnarskelinni. Fóru að sækja.
Þegar 5 min. voru til leiksl.oka
tók James, sem litið hafði sést i
leiknum og var t.d. alveg i
skugga Dave Thomas (báðir
upphaflega með Burnley),
sprett upp kantinn. Gaf vel fyrir
á George, sem missti þá klaufa-
lega af knettinum i góðu færi —
en það kom ekki að sök fyrir
Derby. Bruce Rioch náði honum
og skoraði af öryggi. 3ja mark
hans i haust. Lee átti skot rétt
framhjá — fyrirliðinn Archie
Gemmill skot, sem Phil Parkes
varði vel. En George hvarf —
félagi hans áður fyrr i Arsenal,
Frank McLintoch, elzti maður-
inn á vellinum, sá um það. QPR
nær sigri, en jafntefli þó ekki ó-
sanngjarnt.
En litum á úrslitin á laugar-
dag.
1. deild
Aston Villa — Norwich 3-2
Burnley — West Ham 2-0
Everton — Birmingham 5-2
Ipswich — Leeds 2-1
Leicester — Newcastle 1-0
Manch. City — Coventry 4-2
QPR —Derby County 1-1
Sheff.Utd. — Manch.Utd. 1-4
Stoke —Arsenal 2-1
Tottenham — Liverpool 0-4
Wolves —Middlesbro 1-2
2. deild
BristolCity — Hull 3-0
hag. A 42. min. tók John Case
homspyrnu — Toshack gaf á
Keegan, sem skallaði i mark. Á
53. min. skoraði Case frábært
mark eftir að Toshack hafði
splundrað vörn Lundúnaliðsins
— og Tottenham-liðið féll alveg
saman. Eftir það var aðeins eitt
liðá vellinum og Phil Neal skor-
aði 3ja markið á 74. min. Fimm
min. fyrir leikslok skallaði
Steve Heighway i mark eftir
homspyrnu Keegans. Við sigur-
inn skauzt Liverpoolupp i annað
sætið. Manstu hvar liðið var eft-
ir fyrstu umferðirnar? t 18.
sæti!
Ipswich vann Leeds frammi
fyrir 27 þúsund áhorfendum og
það var verðskuldaður sigur i
leik tveggja góðra liða. Varnar-
mennirnir voru sterkari i f .h. og
ekkert mark þá skorað. Ipswich
tryggði sér svo sigurinn á 6 mi'n
kafla i s.h. A 69. min. skoraði
Mike Lambert með þrumufleyg
frávitateigogá 75. min. skoraði
ungi varnarmaðurinn John
Peddelty af enn lengra færi, 25
m. Rétt i' lokin skoraði Duncan
McKenzie eina mark Leeds.
Sóknarleikurinn réð rikjum á
Goodison Park i Liverpool. Bob
verjast. Gordon Hill skoraði
annað markið á 30. min. —
fyrsta mark hans fyrir Manch.
Utd. siðan hann var keyptur frá
'Millvall. 0—2 i hálfleik, en á 52.
min. fékk Sheff. Utd. vita-
spymu. Keith Eddy spyrnti
knettinum i þverslá — en Bill
Dearden var fyrstur að átta sig
og skoraði 1—2. En strákarnir
hans Docherty réðu gangi leiks-
ins. Pearson skoraði sitt annað
mark á 75. min. Renndi knettin-
um i mark með innanfótar-
spyrnu eftir sendingu Steve
Coppell — og Lou Macari skor-
aði 4. markið nokkrum min. fyr-
ir leikslok. Coppell var bezti
maður á vellinum, en var ó-
heppinn að skora ekki 2—3
mörk.
Þó sex mörk væru skoruð á
Maine Road kom það fyrsta
ekki fyrr en á 43. min. Dennis
Tueart gaf þá með hælnum á Al-
an Oakes, sem skoraði og stað-
an var 1—0 fyrir Manch. City i
leikhléi. Markaregn var i s.h.
Peter Barnes, Tommy Booth og
Tueart skoruðu fyrir City —
David Cross og Mike Ferguson
fyrir Coventry. Áhorfendur
27.256
Enn hafa 8-10 lið möguleika ó enska meist-
aratitlinum. Efstu liðin gerðu jafntefli
Stórsigrar Lancashireliða
Carlisle —Chelsea 2-1
Fulham — Bolton 1-2
Luton Town — WB A 2-1
Nottm.For. — Portsmouth 0-1
Oldham — Blackburn 2-1
Southampton — NottsCo. 2-1
Sunderland — Oxford 1-0
York —Bristol Rovers 0-0
Á föstudag:
Charlton — Plymouth 2-0
Orient — Blackpool 0-1
Stórsigur Liverpool vekur
mesta athygli — og þetta var
dagur Lar.cashireliðanna stóru,
Manchester-liðinskoruðu fjögur
mörk hvort eins og Liverpool,
og Everton gerði enn betur —
skoraði fimm.
Þrátt fyrir sigurinn mikla
byrjaði Liverpool alls ekki vel i
Lundúnum gegn Tottenham —
og leikmenn Tottenham, sem
hafa átt miklu géngi að fagna að
undanförnu, sóttu mjög framan
af. En beir Duncan og Jones
fóru illa með tækifæri — og svo
sveiflaðist leikurinn Liverpool i
Latchford skoraði fyrsta mark-
ið fyrir Everton með frábærri
spyrnu af 25 m. færi. Howard
Kendall, áður Everton, jafnaði
fyrir Birmingham, þegar hann
lyfti knettinum yfir Dai Davies
— en Garry Jones kom Everton
i 2—1 fyrir hlé eftir undirbúning
Bryan Hamiltons. Á 51. mip.
kom Martin Dobson Everton i
3—1 og á 55. min. skoraði Ham-
ilton fyrsta mark sitt siðan hann
var keyptur frá Ipswich. En
Birmingham gafst ekki upp —
Bob Hatton skallaði frábærlega
i mark á 61. min. Þar stanzaði
markaregnið — George Telfer
skorað 5. mark Everton tveimur
min. fyrir leikslok.
Rúmlega 33 þúsund sáu leik
Sheff. Utd. og Manch. Utd. og
þar tapaði Sheffield-liðið i 17.
sinn i 21 leik. Strax á 3. min.
skoraði Stuart Pearson fyrir
Manch. Utd. eftir fyrirgjöf
Mcllroy og eftir það áttu varn-
armenn heimaliðsins i vök að
QPR vann Stoke 3-2 fyrra laug-
ardag — og þá skoraði Don ,
Masson fyrsta mark QPR.
Peter Shilton nær ekki að verja
á myndinni til hliðar. Á laugar-
dag var Masson borinn af velli
— meiddur.
jafnaði. En Deehan skoraði aft-
ur og það nægði til sigurs, þar
sem Burridge, markvörður
Villa, varði tvivegis snilldar-
lega i lokin frá MacDougall.
Áhorfendur 30.478.
Burnley vann West Ham. ó-
• vænt — en verðskuldað á velli
þar sem erfitt var að fóta sig
vegna hálku. Ray Hankin skor-
aði á 19. min. og nýliðinn Kevin
Kennerly annað mark Burnley á
35. min. eftir að Merwyn Day
hafði misst knöttinn eftir spyrnu
Keith Newtop. En Day bjargaði
WH frá miklu stærra tapi með
frábærri markvörzlu eftir þessi
mistök. Ahorfendur 14.907.
Leicester sigraði Newcastle
með marki Keith Weller á 70.
min. og hafði mikla yfirburði,
þó mörkin yrðu ekki fleiri. Sjö-
undi leikur Leicester án taps.
Ken Hibbittskoraði fyrir Úlfana
eftir 14 min. úr vitaspyrnu — en
þeir höfðu aðeins forustuna i
þrjár min. Þá jafnaði Dave
Armstrong fyrir Middlesbro eft-
ir varnarmistök John McAlle. Á
35. min. skoraði David Mills sig-
urmark Middlesbro með hörku-
skoti af 35 m . færi. Steve Kindon
kom inn sem varamaður og var
nærri að jafna fyrir Úlfana — en
Jim Platt varði glæsilega frá
honum.
1 2. deild heldur Sunderland
forustunni — en átti i miklum
erfiðleikum með Oxford á
heimavelli. Bikarhetjan Porter-
field skoraði sigurmark Sunder-
land. Bolton vann mjög at-
hyglisverðan sigur i Lundúnum
gegn Fulham og er i öðru sæti —
tveimur stigum á eftir. WBA
tapaði i Luton og Johnny Giles,
sem stjórnar liði WBA, var þar
rekinn af velli. Mest kom á ó-
vart tap Nottm. Forest — liðs
Brian Clough — gegn Ports-
mouth. Loksins tókst liði Ian St.
John aðsigra — en staðan er ljót
eins og hjá York, sem náði þó
stigi gegn Bristol Rovers. Wilf
McGuinness, sem um tima réð
rikjum hjá Manch. Utd., er
framkvæmdastjóri York City.
önnur umferð bikarkeppninn-
ar var háð á laugardag og þar
kom langmest á óvart, að Scar-
borough, lið utan deildanna,
sigraði Preston þó Bobby
Charlton hafi hætt þar — en
Nobby Stiles tók við.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Arsenal tapaði i Stoke — og ó-
heppnin elti liðið. Sammy Nel-
son var borinn af velii á 30. min.
og 8 min. fyrir leikslok var Pet-
er Storey rekinn af velli. George
Armstrong náði fórustu fyrir
Arsenal á 65. min. skoraði frá
vitateignum. En Stoke skoraði
tvö mörk á fjórum min. Fyrst
Geoff Salmons á 75.min. og sið-
an skallaði Jimmy Greenhoff i
mark eftir aukaspyrnu Sal-
mons. Storey var rekinn af velli
eftir átök, sem hófust milli Alan
Ball og John Mahoney, Stoke.
Áhorfendur 18.628.
Martin Peters náði forustu
fyrir Nprwich, þegar hann átti
skot innan á stöng og i mark
snemma leiks á Vilia Park og 75
sek. siðar átti hann hörkuskoti
þverslá. En leikurinn snerist
snögglega i hag Aston Villa.
Ray Graydon jafnaði á 18. min.
og John Deehan kom Villa i 2—1
fjórum min. siðar. Norwich sótti
mjög í s.h. og Ted MacDougall
QPR 21 9 10 2 29-14 28
Liverpool 21 10 8 3 33-19 28
Manch. Utd.21 12 4 5 34-20 28
Derby 21 11 6 4 31-26 28
Manch. City21 9 8 4 36-19 26
Leeds 20 11 4 5 36-22 26
West Ham 20 11 4 5 30-23 26
Stoke 21 10 5 6 28-23 25
Everton 21 8 7 6 37-38 24
Middlesbro 21 8 6 7 22-19 22
Ipswich 21 6 9 6 22-21 21
Aston Villa 21 7 7 7 27-30 21
Tottenham 21 5 10 6 29-33 20
Leicester 21 4 12 5 23-28 20
Newcastle 21 8 3 10 37-31 19
Coventry 21 6 7 8 22-30 19
Norwich 21 7 4 10 30-34 18
Arsenal 21 5 6 10 26-29 16
Burnley 21 4 7 10 22-33 15
Wolves 21 4 5 12 23-35 13
Birming- 21 5 3 13 29-45 13
ham Sheff.Utd. 21 1 3 17 14-48 5
2. Sunderland 21 deild 14 3 4 35-17 31
Bolton 21 11 7 3 37-21 29
Bristol C. 21 11 6 4 38-19 28
Notts Co. 21 9 6 5 21-18 24
Oldham 21 9 6 6 31-30 24
WBA 21 8 8 5 21-21 24
BristolR. 21 6 11 4 24-19 23
Fulham 21 8 6 6 26-18 22
Southampt. 20 10 2 8 36-28 22
Blackpool 21 9 4 8 21-25 22
Luton 21 8 5 8 30-22 21
Nottm. For. 21 7 7 7 23-19 21
Chelsea 21 7 7 7 25-25 21
Hull City 21 8 4 9 22-24 20
Orient 20 6 7 7 16-17 19
Blackburn 21 5 9 7 19-21 19
Charlton 20 7 5 8 24-32 19
Carlisle 21 6 6 9 18-27 18
Plymouth 21 6 5 10 22-31 17
Oxford 21 5 5 11 20-27 15
YorkCity 21 3 4 14 16-38 10
Portsmouth 20 2 6 12 12-33 10