Dagblaðið - 05.01.1976, Síða 9
Dagblaðið. Mánudagur 5. janúar 1976.
9
Gengu á
rúður í
miðbœnum
og brutu
Helgin varð róleg i miðborg-
inni. E*kki bar annað umtals-
vert til tiðinda en að á laugar-
dagsnóttina voru brotnar tvær
rúður. Hér var um hrein
skemmdarverk að ræða, þvi
ekki var leitað inn fyrir rúð-
urnar til þjófnaðar.
Lögreglumenn á miðborg-
arstöðinni höfðu hendur i hári
skemmdarvarganna litlu eftir
að verkin voru unnin. Voru
þarna á ferð tveir nátthrafnar,
nokkuð drukknir. Voru þetta
ungir piltar 18 ára gamlir.
Umferðin i miðborginni
gekk snurðulaust fyrir sig.
Tálmanir mynduðust á nokkr-
um gatnamótum vegna skaf-
rennings. Hvergi kom til ó-
happa. —ASt.
Erfið fœrð í
Árbœjarhverfi
og Breiðholti
Færð i Árbæjarhverfi og i
Breiðholti varð mjög erfið um
helgina, aðallega þó á laugar-
daginn. Höfðu lögreglumenn i
Arbæjarstöð nokkurt amstur
af og erfiði, en reyndu eftir
mætti að hjálpa til og aðstoða
og margir leituðu til lögregl-
unnar.
Margir minni bilar urðu
fastir hér og þar og veitti lög-
reglan mörgum aðstoð. Flest-
ir sáu þó að betra var að skilja
bilana eftir heima. Aðalleið-
irnar i hverfinu urðu aldrei ó-
færar með öllu, enda var þeim
haldið opnum með snjóruðn-
ingstækjum. Viða sköpuðust
timabundnir erfiðleikar, en úr
þeim rættist án teljandi ó-
happa. —ASt.
Enn kolt stríð flugmonna
vegna stjórnarkjörs í FÍA
Tveir Loftleiðamenn af 5 stjórnarmönnum mœta ekki á stjórnarfundum
Allt situr við hið sama i mál-
efnum stjórnar Félags isl. at-
vinnuflugmanna frá þvi á sið-
asta aðalfundi félagsins, sem
haldinn var i byrjun desember.
Þá töldu þeir flugmenn er hjá
Loftleiðum starfa, að þeir væru
rangindum beittir og tillögur
þeirra vera hundsaðar. Tveir
flugmenn, er hjá Loftleiðum
starfa, voru kjörnir i stjórn fé-
lagsins. Þeir hafa ekki mætt á
stjórnarfundi frá þvi að þeir
voru kosnir. Astæðan fyrir
þeirri ákvörðun að mæta ekki er
að sögn Loftleiðamannanna þær
aðferðir sem á aðalfundi var
beitt við stjórnarkjörið og þær
ofbeldisaðgerðir sem þar voru
hafðar i frammi.
Dagblaðið ræddi við einn af
flugmönnum Loftleiða um þessi
mál. Hann kvað þá ákvörðun ó-
breytta að þeir stjórnarmenn úr
hópi Loftleiðamanna, sem
kjörnir voru i stjórn, myndu
ekki mæta á stjórnarfundum.
Hann kvað alveg óljóst hvort
annað félag yrði stofnað, en
framkvæmd slikrar tillögu yrði
engum félagsmanni FIA til
góðs.
Er til aðalfundar kom, kom i
ljós að starfshópur Flugfélags
tslands og starfshópur' Land-
helgisgæzlunnar innan Fél. isl.
atvinnuflugmanna höfðu mynd-
að með sér samstarf varðandi
framgang mála. Lá þá ljóst fyr-
ir að þessir hópar myndu fá
kjörna 3 menn i aðalstjórn en 2
yrðu kosnir úr hópi Loftleiða-
manna. Hóparnir fengju siðan
sinn hvorn manninn 1 vara-
stjórn.
Aðalfundurinn var mjög fjöl-
sóttur og menn fóru með umboð
annarra félagsmanna er voru
forfallaðir vegna starfa sinna.
Loftleiðamenn tilnefndu tvo
menn til stjórnarstarfa og einn i
varastjórn. Hinn hópurinn
hlýddi ekki þessum tilnefning-
um og kaus aðra Loftleiðamenn
til áðurnefndra starfa. Þetta
fannst Loftleiðamönnum vera
að bita höfuðið af skömminni,
og hafa ekki viljað taka þátt i
stjórnarstörfum.
Bæði Ft og Loftleiðir hafa
lista yfir starfsaldur sinna flug-
manna. Ekki hafa komið fram
raddir um sameiningu þessara
lista, enn sem komið er að
minnsta kosti. Félögin hafa að
miklu leyti aðskilinn rekstur
þrátt fyrir sameininguna og enn
hefur þvi ekki verið rætt um
sameiningu listanna.
—ASt
BÍLAINNFLUTNINGUR ÞRIÐJUNGUR AF ÞVÍ SEM ÁÐUR VAR
Bílainnflutningur á s.l. ári var
ekki nema tæplea þriðjungur af
þvi sem hann var árið þar á
undan. Endanlegar tölur liggja
enn ekki fyrir, en hins vegar
liggja fyrir tölur um bilainn-
flutning fyrstu 10 mánuði ársins
og af þeim koma ofangreindar
staðreyndir i ljós.
Á fyrstu 10 mánuðum ársins
1975 var fluttur inn eftirtalinn
fjöldi bifreiða. í svigum eru töl-
ur yfir innflutning bifreiða á
sama timabili árið á undan.
Almenningsbifr
Station-bifr.
Aðrar fólksbifr.
Jeppabifreiöar
Sendibifreiöar
Vörubifreiðar
Aðrar bifreiðar
21 (34)
101 (325)
2149 (7569)
473 (1367)
95 (243)
120 (465)
40 (86)
Alls eru þetta fyrstu 10 mán-
uði ársins 2999 bilar móti 10089
sömu mánuði árið á undan. Ætla
má að þessar tölur, sem teknar
eru upp úr Hagtiðindum i
nóvember 1975 segi ekki alveg
rétt til um fjölda innfluttra bila
og muni þar e.t.v. muna allt að
100 bifreiðum. En tölurnar gefa
rétta hugmynd um hlutfallið
milli ára.
A öllu árinu 1974 voru fluttar
inn 10633 bifreiðir. Arið 1973 var
flutt inn 8051 bifreið. Geta má
sér til um að heildarinnflutning-
ur bifreiða allt árið 1975 sé milli
3400 og 3500.
í ársbyrjun 1975 voru yfir 2000
bilar til á lager bifreiðainnflytj-
enda hér á landi. Sá lager er til
var þá er þvi aðalhluti allra
þeirra bifreiða er seldur var hér
á liðnu ári.
—ASt.
Leyfðu óskunum að
rætast
Þær veröa aö fá tækifæri - mörg og góö tækifæri.
SÍBS- happdrættið býöur þau. Þar hækka vinning-
arnir um 50 milljónir og veröa 201 milljón og
600 þúsund. Og aukavinningurinn er sannkallaö-
ur óskabíll: Citroén CX 2000. Bifreiö, sem kom
fyrst á markaö 1974, hönnuö til aö mæta kröf-
Happdrætti
um nútímans um öryggi, þægindi og sparneytni.
Vinningarnir veröa 17500 talsins, frá 10 þúsund
kr. upp í milljón. En kannski koma vinningar á
50 - 200 þúsund þægilegast á óvart. Hvaö
finnst þér?
Auknir
möguleikarallra
s * * A
'>>*'**>* **í