Dagblaðið - 05.01.1976, Page 24
Eitt stœrsta fíkniefnamál
til þessa nú í rannsókn
— bandarískir hermenn og fjöldi íslendinga flœktir í málið
Eitt umfangsmesta, ef ekki
það umfangsmesta fikniefna-
mál, sem upp hefur komið hér-
lendis til þessa, er nú i mjög við-
tækri rannsókn i Keflavik. Lög-
reglan i Keflavik, tollgæzlan á
Keflavikurflugvelli, lögreglan á
Keflavikurflugvelli og rann-
sóknadeild hersins vinna saman
að rannsókn málsins. Þrátt fyr-
ir að rannsóknsé skammt á veg
komin, er þegar ljóst að um
gifurlegt magn fikniefna er að
ræða, en rannsóknaraðilar vilja
engar tölur nefna á þessu stigi.
Tveir bandariskir hermenn
hafa setið i gæzluvaröhaldi sið-
an fyrir jól og munu að likindum
sitja eina ,viku enn.Fleiri her-
menn hafa verið i gæzluvarð-
haldi i skemmri tima og fjöldi
Islendinga er flæktur i málið og
hafa nokkrir þegar verið i
gæzluvarðhaldi.
Málið á langa forsögu og nær
innflutningurinn yfir langan
tima. Samkvæmt þvi sem blað-
iö kemst næst hefur talsverðu af
fikniefnunum verið dreift meðal
bandariskra hermanna á Kefla-
vikurflugvelli, meðal fslendinga
þar og einnig utan vallár. Um
margháttuð fikniefni er að ræða
en á þessu stigi eru hlutföll efn-
anna óljós, enda heildarmagnið
ekki fyrirliggjandi enn. Stöðugt
bætast nýjar upplýsingar við,
sem flækja fleiri og fleiri i málið
og er búizt við að rannsókn þess
verði mjög timafrek.
GS.
Togara-
menn fá
skammir
Brezki flotinn hefur skamm-
að togaraskipstjóra fyrir að
veiða fyrir utan fyrirskipuð
vemdarsvæði.
„Við getum ekki slegið stdl-
hring um svona stórt svæði,”
sagði Robert Gerken, skip-
stjóri á freigátunni Andro-
medu i tilkynningu til skip-
stjóra. Um 14 togarar eru
sagðir að veiðum um 22 milur
fyrir sunnan verndarsvæði og
um 15 mflum frá Seyðisfirði,
samkvæmt skeyti frá
Reuter-fréttastofunni, i trássi
við fyrirmæli flotans. Þarna
hefur veiðztvel. —HH
Fréttir í BBC um ferðir varðskipa:
Líklega var ég
anzi nálœgt
mörkunum
— segir fréttamaður BBC, Mik Magnússon
1 fréttatimum BBC útvarpsins
i gærdag var sagt frá þvi að bú-
izt væri við að tvö varðskipanna
mundu leggja úr höfn þann dag.
Talsvert margir á Islandi leggja
eyrunvið fréttatima BBC og
vakti einn þessara manna at-
hygli blaðsins á þessu og taldi
jafnframt að hér væri um brot á
öllum reglum að ræða, bannað
væri að flytja fréttir af ferðum
varðskipanna.
1 frétt BBC sagði Mik
Magnússon, fréttamaður stofn-
unarinnar hér i Reykjavik m.a.
að búizt væri við að tvö varð-
skipanna legðu úr höfn i dag og
það þriðja, þ.e. skuttogarinn
Baldur, legði upp i þessari viku.
Yrðu þá fimm varðskip um
næstu helgi að störfum á veiði-
svæðum Bretanna.
Ólafur Jóhannesson dóms-
málaráðherra staðfesti i gær-
kvöldi að allar fréttir af ferðum
varðskipanna væru bannaðar.
,,Það er skýrt tekið fram i lög-
um um þetta, það er algjörlega
ólöglegt að gefa nokkrar upp-
lýsingar um ferðir skipanna,”
sagði ráðherrann og benti á að
brezkum starfsmanni sendi-
ráðsins hefði verið visað úr
landi i siðasta þorskastriði fyrir
það að gefa slikar uppiýsingar.
Mik Magnússon er eini frétta-
maður BBC i London sem talar
Mik Magnússon
islenzku. Hann er þekktur fyrir
velvilja i okkar garð i landhelg-
ismálum sem og öðrum málum.
Hann hefur verið hér á landi
undanfarnar 6 vikur á vegum
BBC vegna landhelgismálsins.'
Hann býr á Hótel Loftleiðum og
þar hittum við hann i gærkvöldi
við undirbúning útsendingar á
viðtali við Helga Hallvarðsson
skipherra: ,,Ég hef liklega verið
anzi nálægt mörkunum”, sagði
Mik, ,,en ég sagði aðeins að
,,búizt væri við” að tvö varðskip
færu úr höfn i gær”.
—JBP—
Skyggnið var slœmt í Reykjavík:
Sex ára drengur slasaðist
Erfið akstursskilyrði ollu töf-
um á umferð og slysum núna
um helgina. Mikið var um smá-
árekstra viða um land og hér i
Reykjavik.
Um sjö-leytið siðdegis á laug-
ardag var strætisvagni ekið á
kyrrstæða bifreið á Kringlu-
mýrarbraut við gatnamót
Sléttuvegar. 1 bifreiðinni var
sex ára drengur og kastaðist
hann i henni á aðra kyrrstæða
bifreið.
Litli drengurinn slasaðist
töluvert og var fluttur meðvit-
undarlaus á slysadeild Borgar-
spitalans. Kom hann til meðvit-
undar siðar um nóttina.
Allmiklar skemmdir urðu á
bifreiðunum, sérstaklega þeirri
sem strætisvagninn lenti á.
HP.
... " ...#
Brezkt stórblað segir:
„HÆTTUM
ÞORSKA-
STRÍÐINU"
Brezka stórblaðið Daily mun enginn hafa samúð með
Mirror, sem styður Verka- Bretum,” segir blaðið.
mannaflokkinn, sagði i morgun Blaðið segir ennfremur, að
i leiðara, að Bretar ættu að það sé ekki „snjallt” af Bretum
hætta við þorskástriðið. að bera brigður á kröfur Islend-
„Timitilað ljúka þorskastrið- inga um 200 milna landhelgi.
inu,” var fyrirsögn forystu- Það sé ósnjallt að verja stórum
greinarinnar. fjárhæðum til að vernda veið-
Þar sagði, að James Callag- arnar við ísland. Callaghan ætti
han utanrikisráðherra hlyti nú að nota snilli sina til að finna
að óska, að Bretar þefðu ekki lausn á þessum málum, og auð-
flækzt i deiluna. „Ef einhver veldara sé að komast aö sam-
verður drepinn i baráttu togara komulagi, áður en blóð renni,
— varðskips — og herskips, segir Daily Miðror. —IIH
frjálst, úháð dagblað
Mánudagur 5. janúar 1976.
Fólk átti
góða dag-
stund í
Bláfjöllum
í gœr
í gær var ruddur vegurinn
upp i skiðalöndin i Bláfjöllum.
Stóð ekki á fólki að leita úti-
verunnar á fjöllum uppi og var
straumur bila iBláfjöll þegar i
kjölfar snjóruðningstækjanna.
Fólk átti svo ágætan dag i
Bláfjöllum i gær, þó enn sé
dagurinn stuttur. Siðdegis var
svo straumur bila úr Bláfjöll-
um til borgarjnnar, en að sögn
Arbæjarlögreglunnar var ekki
vitað til að til óhappa hefði
komið.
—ASt.
Slydda vœntanleg
suðvestanlands
Hœtta
áhvass-
•X •
viðri
Um helgina var frost um allt
land og sums staðar talsvert mik-
ið. A laugardaginn komst það nið-
ur i 15 stig á Þingvöllum, en var
viðast hvar þetta 10-12 stig. Dá-
litlar sviptingar voru i vindátt og
snjóaði viðast hvar á landinu um
helgina. Á laugardaginn var skaf-
renningur og éljagangur fyrir
norðan, og einnig skafrenningur
hér syðra.
Á sunnudagsnóttina gekk lægð-
ardrag yfir mitt landið og hvessti
með þvi og i gær var norðaustan
átt og norðan átt viðast hvar á
landinu með snjókomu og élja-
gangi fyrir norðan og austan en
létti til á Suðurlandi.
1 dag er vaxandi austan og suð-
austan átt og er sennilegt að fari
að snjóa upp úr hádeginu og likur
til að veður fari haldur hlýnandi.
Gæti orðið slydda eða rigning á
suðvesturhorninu.
Um austanvert landið verður á-
framhaldandi kuldi, að minnsta
kosti næsta sólarhring og má bú-
ast við sæmilegu veðri norðaust-
anlands i dag.
Hætt er við að hvessi hér suð-
vestanlands. 1 morgun voru 10
vindstig i Vestmannaeyjum og
gæti farið upp i ein 7 vindstig hér i
Reykjavik.
-A.Bj.
Bókaormur
brýzt inn í
bókabúð?
Ekki er vitað hvort mikill
bókaormur var á ferð og má
telja það heldur óliklegt, en
aðfaranótt sunnudags var
brotizt inn i bókabúð Isafoldar
i Austurstræti.
Fengu rannsóknarlögreglu-
menn ekki séð hvort þar hefðu
verið teknar bækur en þjófur-
inn hafði hirt 12—15 þúsund
krónur i peningum og haft á
brott með sér.
HP