Dagblaðið - 23.01.1976, Side 17
Pagblaðið. Föstudagur 23. janúar 1976.
17
Veðrið
Norðan kaldi og bjart
•veður i dag. Frostið
verður 10 stig.
Einar Guðnason,
fyrrv. prófastur i Reykholti,
verður jarðsunginn frá Reykholti
laugardaginn 24. janúar, en
kveðjuathöfn fer fram i Dóm-
kirkjunni i dag kl. 14. Einar var
fæddur að Óspaksstöðum i Húna-
vatnssýslu 19. júli 1903. Foreldrar
hans voru hjónin Guðni bóndi
Einarsson og Guðrún Jónsdóttir.
Hann lauk embættisprófi i guð-
fræði 1929. Ári siðar vigðist hann
prestur að Reykholti i Borgarfirði
og gegndi þvi embætti til 1973, er
'hann lét af störfum vegna aldurs.
Þegar séra Einar hafði verið eitt
ár i Reykholti tók héraðsskólinn
þar til starfa. Varð hann þegar
kennari við skólann og var það
alla sina embættistið. Eftirlifandi
kona séra Einars er Anna
Bjarnadóttir, dóttir dr. Bjarna
Sæmundssonar, fiskifræðings.
Hún var kennari við skólann eins
og maður hennar. Þau eignuðust
5 börn, tvö misstu þau kornung.
Þóra Guðrún Kristjánsdóttir
verður jarðsungin i dag kl. 2 frá
Hafnarfjarðarkirkju. Þóra
iæddist i Bygggarði á Seltjarnar-
nesi 27. júli 1891. Hún var næstelzt
niu barna hjónanna Kristjáns
Guðnasonar og Pálinu Egils-
dóttur. Þóra fór 13 ára gömul til
Þorsteins Egilssonar móður-
bróður sins, er þá bjó á Lauga-
vegi 45 i Reykjavik. Arið 1912 fór
Þóra vestur um haf til Kanada,
þangað sem tveir bræður hennar,
Eyþór og Guðni, voru farnir á
undan henni, og dvaldist hún i
Winnipeg um tveggja ára skeið.
Hún sneri aftur til tslands 1914.
Tveim árum siðar giftist hún
Helga Ólafssyni trésmið og
bjuggu þau alla tið i Hafnarfirði.
Þau eignuðust fjórar dætur.
Einar Vestmann
lézt i sjúkrahúsi Akraness
aðfaranótt 21. janúar.
Þórdis ólafsdóttir
Bólstaðarhlið . 32 verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju i
dag kl. 1.30.
Matthias Matthiasson
frá Grimsey, fyrrv. deildarstjóri i
Kron, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju laugardaginn 24
janúar kl. 10.30.
Sigurjón Jónsson,
Borgarvegi 16, Ytri-Njarðvik,
verður jarðsunginn frá Kefla-
vikurkirkju, laugardaginn 24.
janúar kl. 2.
Gróa Margrét Jónsdóttir
lézt að Elliheimilinu Grund, að
kvöldi 20. þ.m.
Guðjón Sigurðsson
Jónshúsi, Garði lézt að Vifils-
staðaspitala 20. þ.m.
Fuglaverndarfélag
íslands
Fyrsti fræðslufundur Fugla-
verndarfélags Islands 1976 verður
haldinn i Norræna húsinu
fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30.
Sýndar verða tvær kvikmyndir
teknar af Magnúsi Jóhannssyni,
fyrst hin þekkta mynd um
islenzka haförninn en siðan
myndin Fuglarnir okkar. Eftir
hlé verða sýndar tvær franskar
náttúrumyndir, önnur frá Mada-
gaskar.
Öllum er heimill aðgangur.
Skagfirðingafélagið
i Reykjavik
Ariðandi fundur að Siðumúla
35, þriðju hæð sunnudag 25.
janúar kl. 15. Fundarefni: húsa-
kaup félagsins. — Stjórnin.
Fundur á vegum
iþróttakennarafélags
íslands
verður haldinn á Ilótel Esju
mánudaginn 26. janúar kl. 8.30.
Umræðuefni: ,,Konur og iþrótt-
ir”. Frummælendur: Haukur.
Sveinsson og Hlin Torfadóttir.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki.
Útivistarferðir
Sunnudagur 25. janúar kl. 13.
Um Alfsnes.Fararstjóri Einar Þ.
Guðjohnsen. Verð 600 kr. Brottför
frá BSÍ, vestanverðu. — Útivist.
Kinversk-islenzka
menningarfélagið efnir
til kvikmyndasýningar
á laugardaginn 24. janúar kl. 2
siðdegis i Stjörnubió. Sýnd verður
kinverska kvikmyndin „Skinandi
rauða stjarnan”, sem gerð er
eftir samnefndri skáldsögu. Þar
er sagt frá atburðum, sem
gerðust i kringum árið 1940 þegar
Kinverjar áttu hendur sinar að
verja fyrir Japönum. Einnig
fléttast inn i atburðarásina tog-
streita milli Kuomingtang og kin-
verska kommúnistaflokksins.
Aðalsöguhetjan er litill drengur
sem tekur virkan þátt i bar-
áttunni ásamt ættingjum sinum.
Mynd þessi er fyrsta sinnar teg-
undar sem Kinverjar láta gera
með ensku tali. Hún hefur notið
gifurlegra vinsælda i Kina og
algengt að fólk hafi farið 3—4
sinnum að sjá þessa mynd.
öllum er heimill ókeypis
aðgangur.
Borðtennis
Hin árlega keppni um
Arnarbikarinn — Arnarmótið —
fer fram i Laugardalshöllinni,
laugardaginn 24. janúar kl.
15.30. Auk þess að vera keppni
um hinn veglega Arnarbikar er
mótið punktamót og verður
keppt i einum opnum flokki.
Þátttökutilkynningum sé komið
til Arna Siemsen, Álftahólum 6,
simi 73295 fyrir 21. janúar.
Stjórnin.
Badmintonfélag
Hafnarfjarðar
Æfingatimar eru á föstudögum
kl. 18.00 — 19.40 og á fimmtu-
dögum kl. 21.20 — 23.00 i iþrótta-
húsinu við Strandgötu.
Frá iþróttafélagi
fatlaðra i Reykjavik.
Æfingar á vegum félagsins verða
aðeins á laugardögum kl. 14—17 á
Háaleitisbraut 13. Sundið verður
á fimmtudögum kl. 20—22 i
Arbæjarsundlaug, þjálfari á báð-
um stöðum. Stjórnin.
Dagatal
Jóhannesar
í JG-músík
Heiðursmaöurinn Jóhannes
Guðmundsson i JG-músík leit inn
á ritstjórnina hjá okkur ekki alls
fyrir löngu og hafði meðferðis
forláta dagatal sem hann hafði
gert. Vakti dagatalið almenna at-
hygli og aðdáun þeirra sem sáu.
Jóhannes sagði alltaf nóg að
gera I skemmtibransanum. Hann
væri alltaf eitthvað að „grina” og
umgengist æ meira fræga
skemmtikrafta. _(SV—
Kjarvalsstaðir: Sýning á verkum
Jóhannesar S. Kjarvals er opin
alla daga nema mánudaga klukk-
an 16—22. Aðgangur og sýningar-
skrá ókeypis.
Kvennasögusafn islands að
Hjarðarhaga 26, 4. hæð til hægri.
Opið eftir umtali. Simi 12204.
Bókasafn Norræna hússinser op-
ið mánudaga—föstudaga kl.
14—19, laugardaga kl. 9—19.
Ameriska bðkasafniðer opið alla
virka daga kl. 13—19.
Skemmtistaðir
Röðull: Stuðlatrló.
Klúbburinn: Kaktus og Hljóm-
sveit Guðmundar Sigurjónssonar
Diskótek.
Ingólfs Café: Gömlu dansarnir.
Tónabær: Haukar.
Tjarnarbúð: Paradis.
Glæsibær: Ásar.
Leikhúskjallarinn: Skuggar.
Sigtún: Pónik og Einar.
Skiphóll: Hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar.
Óðal: Diskótek.
Sesar: Diskótek
Ungó: Cabarett og Sheriff
Hótel Akranes: Hljómsveit Kalla
Bjarna.
Þórscafé: Experiment.
Hver
er
hvað?
Þegar þú þarft aö finna rétta
viðskiptaaðilann til þess að
tala viö, þá er svarið að> finna
í uppsláttarritinu "ÍSLENSK
FYRIRTÆKI"
Þar er að finna nöfn og
stöður þúsunda stjórnenda
og starfsmanna í islenskum
fyrirtækjum, hjá stofnunum
og félagasamtökum og auk
þess starfsmenn stjórnar-
ráðsins ög sveitarstjórnar-
menn.
Sláið upp í
"ÍSLENSK FYRIRTÆKI”
og finnið svarið.
FÆST HJÁ ÚTGEFANDÆ j
t
Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf.
Laugavegi 178 - Símar: 82300 82302
SMUvölfustÍK 13* - Slml 19741 - Póitliólf Si - Rtyklnlk
5 tonna dekkbátur
til sölu. Uppl. í sima 92-7587 á
kvöldin.
Prjónavél.
Passap Duomatik með rafmagns-
drifi til sölu. Uppl. i sima 32125
Nett hjónarúm
með dýnum. verð aðeins frá kr
28.800. Svefnbekkir, 2ja manna
svefnsófar fáanlegir með stólum
eða kollum i stíl. Kynnið yður
verð og gæði. Afgreiðslutimi frá
kl. 1 til 7 mánudaga til föstudaga
Sendum í póstkröfu um land allt
Húsgagnaþjónustan Langholts-
vegi 126, sími 34848.
Til sölu sófasett.
7 mánaða gamalt. Selst með
verulegum afslætti. Uppl. í sima
23747 eftir kl. 19.
4ra tonna trilla
með stýrishúsi og hvalbak til
sölu, skrúfuútbúnaður fylgir.
Upplýsingar i sima 52279.
Electrolux frystikista,
350 litra, til sölu, einnig hvitur
brúðarkjóll, módel, litið númer.
Uppl. i sima 51827.
Ferðaritvél
(full stærð) — sem ný og nær
ónotuð til sölu. — Gerð:
TRIUMPH/ADLER, „gabriele —
25”. Létta má á ásláttarvið-
náminu. — Ritvélarstærð blaða-
manna, rithöf., lögreglu, fyrir
skattframtöl, tollskýrslur o.fl. —
Nýverð kr. 43 þús. Söluverð (stað-
greitt) kr. 30þúsund. — Ab. heftið
fylgir. Póstleggið nafn og sima-
númer i pósthólf 467, Rvik-1.
Til sölu
nýleg Ignis sjálfvirk þvottavél.
litið eldhúsborð og 2 stólar, einnig
Dual HS-38 plötuspilari ásamt ca
50 plötum, einnig Fidelity plötu-
spilari með innbyggðu kassettu-
tæki og útvarpi. Uppl. i sima
13227.
Verzlanir:
Til sölu stálbakkar og kassi fyrir
handþurrkur. Uppl. i sima 74728.