Dagblaðið - 24.01.1976, Side 7

Dagblaðið - 24.01.1976, Side 7
Pagblaðið. Laugardagur 24. janúar 1976. 7 Heimsókn á blað í New stœrsta dag- _ — og borðað upp á rússneska vísu Hvert eru allir aö fara? spyr James Thurber. Og svarið er „A Costelios Restaurant”, auövitað. Maturinn bragðaðist alveg ljómandi yel og við yfirgáfum staðinn mett og ánægð. Þá var haldið sem leið liggur á Daily News. Blaðið er til húsa i stórri og virðulegri byggingu á 42. stræti. Patterson var mjög upptekinn þegar við komum. Hann sér um verkalýðsmál Llaðsins og eins og fyrr greindi stóð yfir verkfall sorphreinsunarmanna, sem hann var að „leysa”. Hann lánaði okkur hins vegar ungan blaðamann, sem sýndi okkur allt hátt og lágt. Þarna er dálitið meiri erill en við islenzkir blaðamenn eigum að venjast. Þar sem allir frétta- mennirnir hafa aðsetur (þeir eru um 150 talsins) var svo mikill hávaði og læti að allt virtist vera á stampi. Skrif- borðin stóðu þarna hvert ofan i öðru og allir simar hringjandi. Þetta er kallað „City desk”. 1 ljós kom að blaðamennirnir þarna þurfa ekki að brjóta heilann um fyrirsagnir á greinar sinar eða yfirleitt að vanda sin skrif að neinu leyti. Þarna sátu sex spekingar við borðog lásu alla hrúguna yfir og smiðuðu fyrirsagnir á allar greinar. Þeir þykja mjög snjallir fyrirsagnahöfundar og fyrirsagnir Daily News hafa fengið viðurkenningu. En allir sem unnið hafa á dagblaði vita hve þýðingarmikið er að fyrir- sögnin sé góð. Við skruppum lika i prent- smiðjuna, sem var með gamla iaginu, blý-sats og allt það. Stendur til að breyta yfir i nýtizku prentaðferðir á þessu ári, en það er bæði dýrt og mikil fyrirhöfn hjá svo stóru blaði. Þeir eru búnir að kaupa öll tæki og semja um greiðslu fyrir þau á næstu ellefu árum. Tækin verða afhent i vor i' einu lagi. Daily News hefur stærsta upplag dagblaðs i New York, kemur út i tveim millj. eintaka á dag i fimm útgáfum. Þetta er morgunblað, en fyrsta útgáfan kemur út kl. 7 að kvöldi, þ.e. daginn fyrir útgáfudag. Siðasta útgáfan kemur kl. 3 að morgni útgáfudags. Þegar skoðunarferðinni um blaðið var lokið var okkur sýndur fundarsalur blaðsins. Hann var ekki ýkja stór og allir veggir þaktir af hillum, sem á stóðu hinir ýmsu verðlauna- gripir. A veggjunum voru lika innrömmuð alls kyns verðlaunaskilriki, sem blaðinu höfðu verið veitt við hin ýmsu tækifæri. Fyrir góða frétta- mennsku, gott málfar, góðar fyrirsagnir og frábærar frétta- myndir. Daily News leggur mikla áherzlu á fréttamyndir enda hefur það hvorki meira né minna en sextiu blaðaljós- myndara i þjönustu sinni. Ljós- myndadeildin er raunar eina deifd blaðsins sem hefur fengið nýtizkuinnréttingar og er mjög vel að henni búið. Nú hafði dóttirin bætzt i hópinn og við biðum eftir að Patterson yrði búinn með verk sitt. Þá skyldi haldið á „blaða- manna-bar” i nágrenninu. Hann var ekki nema stein- snar frá og nefndist staðurinn Costellos Restaurant. Þarna voru samankomnir ekki færri en 300 blaðamenn, — allir karl- kyns. Okkur kvenfólkinu kom saman um að það væri mikil lifsreynsla út af fyrir sig að vera einu kvenkyns verurnar innan um svo marga karlmenn! Þarna voru blaðamenn frá hinum ýmsu blöðum og fjöl- margir frá Sameinuðu þjóðunum sem eru þarna skammt frá. Einn af fastagestum þessa veitingastaðar er teiknarinn og blaðamaðurinn James Thurber og voru myndir hans á veggjum uppi. Fyrir nokkrum árum voru sýndir þættir i islenzka sjón- varpinu, þar sem hann teiknaði og sagði frá. Þetta voru afar skemmtilegir þættir. Við hittum þarna bæði blaða- menn, lögfræðinga, lögreglu- stjóra og kepptust allir við að heilsa upp á þessa furðufugla sem komnir voru alla leið frá Islandi. Þegar liða tók á kvöldið urðu barstólarnir sifellt óþægilegri, þeir voru að sjálfsögðu bak- lausir eins og titt er um slika stóla. Við vorum orðnar svolitið valtar i sessi eftir alla kokkteil- ana og fannst ekki illa til fundið að. koma okkur heim áður en slys hlytist af. Allir kvöddust með miklum virktum. Auðvitað var barþjónninn orðinn „bezti vinur okkar”. Hann hét Fred Percudani og var gamall hjól- reiðakappi. Voru myndir á veggjum þvi til sönnunar. Mike þurfti að fara aftur að vinna og „halda áfram að leysa verkfallið” og við ókum heim- leiðis, ánægð eftir enn einn vel- heppnaðan dag i stórborginni. —A.Bj. Skreytingar á Russian Tearoom veitingastaðnum voru allar mjög „rússneskar” og þjónarnir i kósakkafötum. ✓ almennan flokk, 47 i unglinga- flokk og 24 i kvennaflokk. Al- mennum flokki er siðan skipt eftir elo stigum i 6 flokka. Þegar þetta er skrifað er Helgi ólafs- son efstur i A-flokki með 4 vinn- inga af fjórum, Staðan i A-flokki er annars óljós vegna mikils fjölda biðskáka, en meðfylgj- andi tafla sýnir stöðuna eins og hún var sl. sunnudagskvöld. 1 B- flokki er efstur Hilmar Karlsson með 3 1/2’vinning af 4. Hér á eftir fara þrjár skákir úr Skákþinginu, skemmtilegar en alls ekki gallalausar. 1 fyrstu skákinni, sem tefld var i þriðju umferð, eigast þeir við Bragi Halldórsson og Magnús Sólmundarson. Bragi snýr á Magnús i byrjun skákar- innar, og virðist stefna i auð- veldan sigur hans, þegar hann i 20. leik leikur illilega af sér, leikur 20. Bcd4 i stað Dxd4, en eftir það á hann sér ekki við- reisnar von. Hv. Bragi Halldórsson. Sv. Magnús Sólmundarson. Óregluleg byrjun. 1. d4 C5 2. e4 cxd4 3.Rf3 e5 4. Bc4 Dc7 5. Bb3 Bb4+ 6. C3 dxc3 7. Bxf7+ Kxf7 8. Db3 + d5 9. Dxb4 cxb2 10. Bxb2 d4 11. Rbd2 h6 12. Hcl Rc6 13. Hxc6 bxc6 14. Rc4 Kg6 15. Rcxe5+ Kh7 16. h4 Re7 17. Dc4 Da5+ 18. Kdl Hf8 19. Rg5+ Kh8 20. Bxd4? Ba6 21. Ref7+ Hxf7 22. Rxf7 + *Kh7 23. Rg5+ Dxg5 24. Dxa6 Dxg2 25. Hel Hd8 Hvitur gafst upp. t næstu skák, sem er úr fjórðu umferð, eigast þeir við Margeir Pétursson og Ómar Jónsson. Margeir fær fljótlega frelsingja á drottningarvæng og á skemmtilegan hátt gerir hann út um skákina. Hv. Margeir Pétursson Sv. ómar Jónsson Griinfeld vörn. 1. c4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Rc3 d5 4. d4 Bg7 5. e3 0-0 6. b4 b6 7. Bb2 c5 8. bxc5 Bxc5 9. Hcl cxd4 10. Rxd4 Bb7 11. Db3 Db6 12. c5 Dxb3 13. axb3 Rc6 14. Rcb5 Hfc8 15. Rxc6 Bxc6 16. Rd4 Hab8 17. Ba6 Hc7 18. Bc3 Bb7 19. Ba5 Hcc8 20. Be2 . Rd7 21.b4 a6 22. 0-0 Re5 23. Bb6 Rc6 24. Rxc6 Hxc6 25. b5 axb5 26. Bxb5 Hc8 27. Bd7 Hf8 28. Hfdl e6 29. C6 Bb2 30. Hc2 Ba3 31. Bc7 svartur gafst upp. Að lokum er svo skák úr fjórðu umferð þar sem þeir eig- ast við Sævar Bjarnason og Helgi Ólafsson. Sævar fær snemma hagstæðara tafl en Helgi yerst vel. Keppendur lentu báðir i timahraki og Sævar hafnaði jafnteflisboði. Skömmu seinna lék hann af sér, gaf Helga kost á smáfléttu, sem ieiddi til sigurs. Annar heppnis- sigur Helga i mótinu, en það er jú sagt að heppnin fylgi þeim góða. Hv. Sævar Bjarnason. Sv. Helgi Ólafsson. Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Db6 8. Rb3 Rbd7 9. De2 Dc7 10. 0-0-0 Be7 11.g4 h6 12.Bxf6 Bxf6 13. h4 b5 14. Bg2 Bb7 15. g5 hxg5 16. Hxg5 Hxhl 17. Hxhl Bxc3 18. bxc3 Dxc3 19. e5 Bxg2 20. Dxg2 Hc8 21. exd6 a5 22. Hh3 Dc4 23. Kb2 Dxf4 24. Db7 De5 + 25. C3 De2+ 26. Kcl Dfl + 27. Kc2 Df5+ 28. Kb2 Df2+ 29. Ka3 b4+ 30. Ka4 Dxa2 + 31. Kb5 De2+ 32. Kxa5 Da2+ 33. Kxb4 + Dxb3+ 34. Kxb3 Rc5+ Hvitur gafst upp.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.