Dagblaðið - 24.01.1976, Blaðsíða 15
Pagblaöið. Laugardagur 24. janúar 1976.
FALDI ELSKHUGANN I 40 AR
15
Ekkjan Lizzie Edwards i
Welsh vildi ekki verða kjafta-
sögunum að bráð. Hún faldi þvi
elskhuga sinn i fjörutiu ár og
hefur nú komizt i fréttir blaða
um allt Bretland.
Ekkjan hafði falið elskhugann
i húsi si'nu allan þennan tima og
upp um hann komst þegar hann
dó fyrir stuttu. En á sama tima
kom i ljós að allur feluleikurinn
hafði verið til einskis, nágrann-
arnir vissu allir um huldumann-
inn.
Málið byrjaði dag einn árið
1936 þegar sporvagnsstjórinn
Tom Boyd hjólaði af stað með
nesti á bögglaberanum og
sagðist ætla að leita að nýju
húsnæði handa sér og móður
sinni. Hann hvarf gjörsamlega
og fjölskylda hans taldi hann af.
Raunar var það frú Edwards
sem Tom Boyd var á höttunum
eftir. Hann hafði hitt þessa ný-
orðnu ekkju skömmu áður.
Ekkjan bjó með þrem dætrum
sinum sem nú eru allar komnar
vel yfir fimmtugt.
Ein þeirra sagði svo, þegar
loks fréttistum huldumanninn:
— Skömmu eftir dauða föður
mins minnist ég þess að þessi
maður tók að heimsækja móður
mina. Hann flutti stuttu siðar
inn til okkar. Móðir min gaf
enga skýringu en varaði okkur
ætið við að minnast á hann við
kunningjana.
Allt frá þvi Tom Boyd fluttist
til þeirra árið 1936 var systrun-
um meinað að bjóða til sin vin-
um og þegar gestir komu i
heimsókn faldi elskhuginn sig
uppi á lofti.
1 gegnum árin vann hann ekki
handtak og fór aðeins út úr húsi
einstöku sinnum og þá aðeins á
nóttunni. Ekkjan og dæturnar,
sem allar fluttu að heiman
nema sú yngsta, sáu um að bera
mat og sigarettur i huldumann-
Það var þessi feluleikur sem
að lokum leiddi til dauða
áttræðs mannsins. Hann féll og
slasaðist en ekkjan, sem einnig
er nú orðin áttræð, neitaði að
kalla til lækni.
Það tók dóttur ekkjunnar
marga klukkutima að koma
slösuðu gamalmenninu upp á
loft. Hún gat ekki komið honum
upp i rúm og þvi bjó hún um
hann á gólfinu.
Þar lá hann i 10 daga þar til
hann dó. Læknar sögðu að hann
hefði látizt af hjartabilun, vegna
lungnabóigu sem gamli maður-
inn fékk þarna á köldu gólfinu.
Likskoðun leiddi einnig f i ljós
að mótstaða gamlingjáns hefði
verið minni en ella sökum
slæmrar umönnunar.
Stóra tó í stað
þumalfingurs!
ná hendinni reynist hin bezta hjálp.
önnur stóratáin á Englendingn-
um Patrick Gill er ekki á sín
um hefðbundna stað við hliðina
á öllum hinum tánum. Nei,
stóra táin hans Patricks er á
vinstri hendinni þar sem aðrir
menn hafa þumalfingur sinn.
Fyrir um ári varð Patrick
fyrir vélsög i vinnunni og hún
skar af honum þumalfingurinn,
meirihlutann af baugfingrinum
og litlafingrinum lika. Eins og
skiljanlegt er var höndin honum
gagnslaus eftir þetta hroðalega
slys.
En nýlega vöktu læknar á
Queen Victoria sjúkrahúsinu i
Sussex nýja von hjá Patrick.
Sjúkrahús þetta er heimsþekkt
fyrir liffæraflutning og
læknarnir sögðust geta grætt
stóru tána á höndina i stað
þumalfingursins.
Aðgerðin tók tiu
klukkustundir, tenging állra
smáu háræðanna og sinanna
var mikið nákvæmnisverk. Nú
er Patrick kominn af
spítalanum og farinn að æfa sig
með tánni.
— Ég var heldur vantrúaður i
fyrstu en nú er ég stóránægður
með árangurinn. Ég get haldið á
simtóli og jafnvel borðað með
gaffli á ný, sagði Patrick Gill.
FLUGFERÐ A
ÞRIÐJA ÁRA-
TUGNUM
Meðan þróunin i fluginu eykst
dag frá degi getur verið gaman
að rifja upp bernsku þessarar
samgöngutækni.
Ég rakst um daginn á eintak
af leiðbeiningúm sém farþegar
belgiska flugfélagsins KLM
fengu i hendurnar á þriðja
áratugnum.
Brýnt er þar fyrir farþegun-
um að stinga hvorki handleggj-
unum né höfðinu út um glugg-
ann, annars sé hætta á að þeir
tapi höfuðfatinu.
Þá er þeim lika bent á að veifa
ekki höttum né treflum við flug-
tak þvi hætta sé á að þeir flækist
i hliðarstýrinu.
Mest áherzla i leiðbeiningun-
um er þó lögð á að farþegarnir
geri allar sinar þarfir áður en
haldið er i loftið og þeim einnig
bent á að borða hvorki sveskjur,
baunir né rúgbrauð fyrir brott-
förina.
MEÐ ROLLS ROYCE
í ELDHÚSINU!
Eins og aðra hefur frú
Jeanette Tullett oft dreymt um
að eignast Rolls Royce. Draum-
ur hennar rættist svo sannar-
lega.
Frúin var að ryksuga i róleg-
heitum inni i stofu hjá sér i
Surrey i Englandi er hún heyrði
griðarlegan hávaða inni i eld-
húsi. Hún stökk fram og sá þá
stóran bláan Rolls Royce bil
standa á miðju eldhúsgólfinu.
Það var viðskiptajöfur á eftir-
launum og frúin hans sem
reyndust hafa ekið bilnum inn i
eldhúsið. Frúin sem ók þessu
milljónafarartæki mun hafa
misst stjórn á bilnum i beygju
og þvi fór sem fór.
Það má geta þess til gamans i
lokin að talið er að viðgerðin á
Rollsinum verði dýrari en
endurbygging eldhússins.
Og fyrst ég er á annað borð
farinn að ræða um umferðar-
slysin má geta þess að frú
Frances Kauffman frá Oregon i
Bandarikjunum er nú á bata-
vegi.
Þessi 57 ára gamla húsmóðir
hafði slasazt illa ep hún lenti i
hörðum árekstri á rúminu
sinu. Stjórnlaus sportbill
endasentist i gegnum garðinn
hjá henni seint eitt kvöldið, ók i
gegnum svefnherbergisvegginn
ogbeintframan á rúm frúarinn-
ar.
Tryggingafélögin segja að
hvorki svari kostnaði að gera
við bilinn né rúmið, enda hvort
tveggja óökufært eftir árekstur-
Yfirleitt hafa menn eldavél og isskáp ieldhúsunum já, sumir koma
jafnvel fyrir uppþvottavél, en i eldhúsinu hjá frú Tullett mátti finna
þennan stóra Rolls Royce bil.
Tímanna tókn!
Við teljum okkur eiga við
vandamál að striða, en hvað þá
um þessa frétt frá Montgomery
i Alabama i Bandarikjunum.
Nokkrir strákar i kringum 15
ára gamlir króuðu gamla konu
af á hjólunum sinum i fjölfar-
inni verzlunargötu fyrir stuttu.
Hún streittist á móti er þeir
reyndu að hrifsa af henni vesk
ið, sem leiddi til þess að piltarn-
ir drógu fram byssu, skutu hana
til bana og hjóluðu siðan i flýti i
burtu frá likinu sem lá i blóði
sinu i götunni.
— Þetta er vist timanna tákn
sagði lögreglustjórinn á staðn-
um i viðtali við eitt bæjarblað-
anna. — Sifellt yngri borgarar
eru farnir að komast yfir skot-
vopn.
HÆTTURNAR
í UMFERÐINNI
Ný herferð umferöarraös
New Yorkborgar fyrir um-
ferðaröryggi er sögð hafa borið
góðan árangur nú þegar. Um-
ferðarráðið, sem koma vill öku
mönnum i skilning um að þeir
stofni lifi sinu i hættu i hvert
sinn sem þeir stiga inn i bil sinn.
er byrjað að senda öllum öku-
mönnum borgarinnar fyrir-
spurn um hvernig þeir vilji láta
ráðstafa liki sinu þegar þar að
kemur.
VARIÐ YKKUR A LJONINU
Bretar eru þekktir fyrir að
hafa i fórum sinum öll möguleg
og ómöguleg gæludýr. En þegar
Arthur Thomson sá skilti sem
sagði — VARIÐ YKKUR Á
LJÓNINU —, á sakleysislegu
garðshliði i Worcestershire i
Englandi, brosti hann með
sjálfum sér yfir kimnigáfu
eigandans.
Þar sem hann liggur nú á
sjúkrahúsi á staðnum er ekki
lengur að finna bros á vörum
hans. Hann var lagður inn
vegna taugaáfalls og skurðs á
brjöstinu sem hann laut i návigi
við 200 kilóa ljón i garðinum.
Húseigandinn, sem ervarma-
verkfræðingur, hafði fengið sig
fullsaddan af innbrotsþjófum
eftir að þeir höfðu tvisvar
hreinsað til i húsi hans. Hann
fékk þvi Ijón hjá vini sinum sem
vinnur i enskum dýragarði.
Ljónið, sem heitir Laddo, á
sér búr með tommu þykkum
rimlum i garðinum en fær þó yf-
irleitt að hlaupa um i sterkum
taumi sem hindrar að það hætti
sér of langt.
En fyrir stuttu náði dýrið
þó að naga sig laust og hús-
eigandinn varð að þjóta út með
stól, svipu og langan hnif til að
koma ljóninu inn i búrið. Þegar
Arthur Thomson kom i heim-
sókn um daginn var ljónið aftur
á móti bundið i kaðalinn sinn.
Lögregla staðarins segist ekki
vera of hamingjusöm með
ástandið i garðinum.
— Við getum samt ekki kæft
eigandann. hann var með dýrið
bundið og ungi maðurinn var
kominn inn á lóðina. Engu að
siður teljum við það guðs mildi
að hann skuli hafa sloppið
lifandi.