Dagblaðið - 13.04.1976, Síða 13

Dagblaðið - 13.04.1976, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. APRIL 1976. 13 Iþróttir Iþróttir íþróttir róttir ÍSLAND-PORTÚGAL 82-75 Slakt í byrjun! Islendingum gekk illa með Portúgalina framan af leiknum, sem háður var í íþróttahúsinu í Njarðvík á föstudagskvöldið. Hetjan frá fyrsta leiknum, Jón Sigurðsson ætlaði sér einum um of og allt fór úrskeiðis, bæði hjá honum og liðinu sem Iék fyrstu mínúturnar, — sendingar mis- tókust, hittnin á núllpunkti og samieikurinn i molum, enda höfðu Portúgalirnir yfir í hléi, 46—43. Bjarni Gunnar átti eftir hlé sinn stóra þátt í að þoka íslenzka liðinu smám saman að jöfnu og upp fyrir gestina að stigum með góðri hittni og með því að hirða aragrúa af fráköstum en samtals skoraði hann 21 stig í leiknum, flest íslenzku leikmannanna. Honum fremri við þá iðju var bezti leikmaður og fyrirliði Portú- galanna, Aniceto Camro, með 27 stig. Portúgalarnir reyndu allt hvað af tók að halda í við landann en tókst ekki og lokatölurnar urðu ísl. 82—75. ISLAND-PORTUGAL 102-84 100. stigið Kára! Bjarni Gunnar Sveinsson átti sinn stóra þátt Íslandi í hag. DB-myndir emm. að breyta stöðunni Það er ekki í hverjum leik sem íslenzka körfuknattleikslands- liðið skorar yfir 100 stig, eins og því tókst í seinni leiknum við Portúgalina í Njarðvíkunum. Öfugt við fyrri ieikinn tók íslenzka liðið forystuna strax í byrjun og hélt henni allan tíman, að vísu með mismunandi reisn. Hvorki Jóni .Sigurðssyni né Jónasi Jóhannessyni tókst að finna sig í leiknum en Þórir Magnússon, Bjarni Gunnar og Birgir Jakobsson voru í essinu sínu ásamt Gunnari Þorvarðar- syni, en hann var skamman tíma inn á. Portúgalirnir áttu því aldrei möguleika á sigri, þrátt fyrir mikinn baráttuvilja þeirra Ancieto fyrirliða, hins hávaxna Jose Henriquees eða hins snögga og skapríka Jose Luis, sem voru bestu menn Portúgalanna. Utícfir lokin stóð baráttan um það hvort ísl. liðinu tækist að ná 100 stigum. Lengi vel mátti sjá á nýju ljósa- töflunni töluna 93 og þegar nokkrar sekúndur voru til loka hafði hún hækkað upp í 99 og áhorfendur sem næstum fylltu bekkina, voru farnir að efast, þegar Kári Marísson fékk tvö vitaköst. Menn héldu niðri í sér andanum, en Kári brást ekki, 100 stigin náðust og tveim betur úr | skyndisókn. Urslitin urðu því 102:82, réttlátur sigur. —emm Hóf hjó bœjarstjórn Bæjarstjórn Njarðvíkur sýndi körfuknattleiksmönnum þann sóma að halda þeim boð í félags- heimilinu Stapa þar sem bæði landsliðin, það íslenzka og portúgalska, nutu veitinga ásamt föruneyti og bæjarstjórn. Albert K. Sanders bæjarstjóri þakkaði þeim komuna til Njarðvíkur og tók við gjöf frá Portúgölunum — fána sambandsins. Gylfi Kristjánsson þakkaði fyrir hönd körfuknattleiksmanna góðar móttökur og vonaðist til þess að KKl mætti oftar leita til Njarðvíkinga með landsleiki. Vikingur krœkti í 3 stig Víkingar léku oft skínandi vel á Meiavellinum í gær gegn slöku liði Armanns og unnu stórsigur, 5-0 i Reykjavíkurmótinu. Þar með hlutu þeir þrjú stig. Tvö fyrir sigurinn og eitt fyrir að skora meir en þrjú mörk. Víkingar Iéku undan vindi i f.h. og skoruðu þá fjórum sinnum — Stefán Halldórsson, Bergþór Jónasson, Lárus Jónsson og Jóhannes Bárðarson og réðu Óvœnt tap Breiðabliks í Litlu bikarkeppninni Eftir góða byrjun Breiðabliks í Litlu-bikarkeppninni fékk það heldur en ekki bakslag í seglin þegar liðið lék við Hauka á Vallargerðisvelli — tap 1—2. Það er greinilegt að Hafnfirðingar tcfla fram ungum og vaxandi leikmönnum og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim vegnar i 2. deild í sumar. Þessi ósigur Breiðabliks setur aftur spennu i mótið, cn áður hafði iiðið sigrað ÍAog ÍBK. alveg gangi leiksins. Fimmta markið skoraði Eiríkur Þorsteins- son og undir lokin fékk Víkingur vítaspyrnu. Markvörður liðsins, Diðrik Olafsson, reyndi að skora hjá ögmundi Kristinssyni, fyrrum félaga sínum í Víking, en tókst ekki. Spyrnti knettinum í stöng. Það vakti athygli, að ung stúlka Guðbjörg Petersen, var línuvörður og stóð sig vel. Staðan í mótinu eftir tvær Viðir slapp með skrekkinn umferðir er þannig: Minnstu munaði að Gróttu tækist að jafna í leik sínum við Fram 2 2 0 0 6-0 5 Víði, sem fram fór i Keflavík á Víkingur 2 1 1 0 5-0 4 laugardaginn, í keppni þeirra Valur 2 .1 0 1 4-1 3 félaga á Suðurlandi sem ekki taka Þróttur 2 1 0 1 1-4 2 þátt í Litlu bikarkeppninni. KR 2 0 1 1 0-2 1 Þegar fimm mínútur voru til Ármann 2 0 0 2 0-9 0 leiksloka var staðan 3:0 fyrir Víði en þá tóku Gróttupiltarnir sig heldur betur á og skoruðu tvö mörk með stuttu millibili og voru nærri því að jafna metin þegar flautað var til leiksloka. Víðis- menn sluppu því með skrekkinn, — en héldu báðum stigunum með markatölunni, 3:2. —emm Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum Bókanir hjá Zoéga. Sími:25544

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.