Dagblaðið - 25.05.1976, Page 1
iríálst,
úháð
daublað
RITSTJÓRN SÍÐUM(JLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SlMI 27022.
84áraídag:
Afmœlisgrein
um Tito Júgó-
slavíuforseta
— bls. 10- II
Er sjálfsmeð-
vitund
þjóðarinnar
dauð?
— Sjá kjallaragrein
Reynis Hugasonar
bls.10-11
Gœzluvarðhald í
Síðumúla:
Sœvari
að koma
— sjá bls. 8
4
ý
í
i
4
i
v
: A
4g|
w
m
w
2. ÁRG. — ÞRIÐJl'DAGl'R 25. MAÍ l!17(i — 114. TBI..
Breiðholt:
RÁÐIZTAÐ
BÍLUM,
PÓSTKÖSSUM
OG GEYMSLU
Stöðvast humarvinnsla í Eyjum?
— Fleiri og fleiri bátar hugleiða nú að landa á meginlandinu vegna betra verðs
„Við munum halda áfram að
landa humrinum á meginland-
inu á meðan vinnslustöðvarnar
i Eyjum bjóða ekki betra verð
en raun ber vitni, því það
borgar sig fyrir okkur að sigia
með aflann til Þorlákshafnar
og láta aka honum til Keflavík-
ur til vinnslu, því þar eru 50 til
55% aflans greidd skv. 1.
flokki en svona 10 til 30%, í
Eyjum,” sagði Vlðir Vatgeirs-
son um borð 1 Gammi frá Vest-
mannaeyjum, I viðtali við DB 1
morgun.
Hann bar saman tvo túra hjá
Gamminum, þar sem annars
vegar var lagt upp í Eyjum og
hins vegar 1 Þorlákshöfn, og
munaði 183 krónum á kilóið,
hvað verðið var betra í Þorláks-
höfn. 15 til 20 Eyjabátar eru nú
á humarveiðum og fimm til sex
þeirra leggja upp á meginland-
inu og sagði Vlðir að hugur
væri í fleirum að fara að dæmi
þeirra, bjóði stöðvarnar 1
Eyjum ekki betra verð strax.
Svipuð deila kom upp i fyrra-
vor og stöðvaðist humarvinnsla
1 Eyjum þá 1 nær viku, en árið
áður buðu stöðvarnar svipuð
kjör og Keflvlkingar bjóða nú.
Sagði Víðir að of miklar fjár-
hæðir væru nú i húfi til þess að
sjómennirnir lönduðu 1 heima-
höfn, sem þeir að sjálfsögðu
vildu þó allir.
— G.S.
■.. .... ...............—
— sjá einnig frétt
á baksíðu.
VIL EKKITJÁ
MIGUMGRUN
UM MISFERLI
— segir tollgœzlustjóri
„Ég tel ekki rétt að tjá
mig um þetta mál að sinni og
á meðan rannsókn fer fram í
málinu,” sagði Kristinn
Ólafsson tollgæzlustjóri i
viðtali við DB í morgun, er
hann var spurður hvort
hann hefði haft einhvern
grun um misferli meðal
manna sinna, m.a. með tilliti
til þess að Kristján Péturs-
son benti á í blaðagrein í
vetur.að ástæða væri til að
rannsaka vinnuaðferðir toll-
gæzlunnar.
„Ég treysti að sakadómur
muni halda á rannsókninni
eins og ástæða er til og vísa á
þessu stigi til sakadóms,
varðandi allar upplýsingar
um rannsóknina,” sagði
Kristinn. —G.S.
Ljót aðkoma beið íbúa að
Gaukshólum tvö er þeir
héldu til vinnu í morgun. 1
forstofu blasti við sú sjón að
búið var að sprengja upp og
tæta sundur 3 eða 4 póst-
kassa íbúanna.
Úti fyrir dyrum höfðu
tveir bílar verið illa leiknir.
Annar mun hafa verið opinn
og var í hann farið og stolið
kassettutæki og þremur
hátölurum. Öllu var um-
turnað í bílnum og aðkoman
ljót.
Rúða í öðrum bíl var brot-
in og í honum hafði eitthvað
verið rótað, en þó minna en
i hinum.
Þá kom í ljós að farið
hafði verið í geymslu í kjall-
ara. Var notað sporjárn til
að plokka upp festingar láss-
ins. Þar var öllu rótað til en
ekki ljóst hvort einhverju
hafði verið stolið.
Rannsóknarlögreglan
rannsakar málið. Grunur
hefur þegar fallið á
ákveðinn ungling.
ASt.
Kjarvalsmynd? Nei, þetta eru bara unglingar að sóla sig í afrennslislæknum ■ Nauthólsvik.
BAÐ í V0LGUM BUNULÆK
— sjá bls. 4
[ Kristján og Haukur komu upp um tollverðina
— bls. 9
)