Dagblaðið - 25.05.1976, Blaðsíða 15
DAtiBLAtHt). PKIÐ.Jl'DACl K 2ö. M AI lflTIi
Framhaldsdeildin í
Heyrnleysingjaskólanum
kennir m.a. undirstöðu-
atriði fyrir iðnnóm
Þegar Jón kom svo heim frá
Bergen komst á' góð samvinna
meö honum, Brandi og Guð-
mundi Einarssyni kennar? við
Heyrnleysingjaskólann.
Brandur fór til Birgis Thorla-
eius ráðune.vtisstjóra mennta-
málaráðuneytisins og veitti
ráðune.vtið góðfúslega leyfi sitt
til þess að stofnuð yrði fram-
haldsdeild í Heyrnleysingja-
skölanum, þar sem meðal ann-
ars eru kennd undirstöðuatriði
fyrir iðnnám. Hefur Jón ásamt
Guðmundi kennt flatarmáls-,
rúm- og fríhendisteikningu
ásamt reikningi.
Jón sagði að sér hefði gengið
kennslan vonum framar. Þó
hefði hann stundum notað túlk,
þegar illa gekk að skilja, en sá
var Friðjón Erlendsson og
heyrði hann einna bezt af nem-
endunum. Friðjón er einmitt
nú að taka lokapróf sitt í bif-
vélavirkjun og við tókum hann
tali.
Friðjón er seigur
Hann er að Ijúka prófi
í bifvélavirkjun
,,Mér hefur gengið bara vel,"
segir hann okkur, þar sem hann
er að huga að einhverjum
stykkjum úr bíl, sem hann er að
gera við. ,,Eg hef unnið hjá
Bifreiðasölu Akureyrar, BSA,
þar sem ég hef líka lært," upp-
lýsir hann jafnframt. En Frið-
jón er Akureyringur. Við spyrj-
um af hverju bifvélavirkjun
hafi orðið fyrir valinu. Svarið
var að það hafi svo sem verið
með hann eins og marga aðra
stráka. Áhugi fyrir vélum kom
snemma og svo keyrði Friðjón
traktor, þegar hann var í sveit
hér áður. Friðjón er 23 ára og
hlakkar mikið til þess að ganga
út með prófskírteini sitt sem
bifvélavirki núna í júní.
Mikið af þeim fagbókum sem
kenndar eru í Iðnskólanum eru
á ensku eða norðurlandamál-
um. Hvernig gengur þér að
botna í þeim? spyrjrm við.
Les þó bara úr
myndunum þegar tungu-
mólakunnóttuna vantar
„Jú, það eru skýringarmynd-
ir í bókunum," er svarið. „Frið-
jón er tíka klökur og seigur
náungi," skýtur kennari hans,
Ingibergur Elíasson, inn í.
Bifvélavirkjun hefur verið
fjögra ára nám, en með tilkomu
verknámsaðstöðunnar í Iðn-
skólanum verður komizt af með
þrjú ár.
„Nemendur fá þá lika nægan
tíma til þess að sinna alvöru-
verkefnum. Ekki er rekið á
eftir og menn gera fleira dag
eftir dag en að sópa eða gera
við púströr," segir Ingibergur.
Hörður kominn með
eigin skóvinnustofu
Auk þeirra sem við höfum
sagt frá hér að framan hefur
einn heyrnleysingi í viðbót,
Hörður Steinsson, stundað nám
í Iðnskólanum og lauk hann
verklegu sveinsprófi I skósmíði
í fyrra. Þvi prófi lauk hann
þrátt fyrir bæði heyrnarleysi og
meðfædda spastíska lömun, en
hún gerir það að verkum að
hann hefur ekki fullkomna
stjórn á hreyfingum sínum. En
Hörður er ekki af baki dottinn
og hefur nú opnað sitt eigið
skósmíðaverkstæði að Berg-
staðastræti 10.
Við fengum frekari upplýs-
ingar um tækniteiknaranámið,
sem tekur eitt ár I dagskóla en
tvö ár í kvólddeild. Helgi segir
okkur að skólinn hafi verið
starfræktur í tíu ár. Inngöngu-
skilyrði sé gagnfræðapróf eða
hliðstæð menntun. Kvenfólk er
í meirihluta. I tólf manna deild
hafa kannski verið 2—3 karl-
menn, en í ár er þar enginn.
Atvinnumöguleikar hafa
verið miklir fyrir tækniteikn-
ara því að mikill hörgull hefur
verið á þeim. „Flest allir fengu
vinnu fram að síðastliðnu vori,"
segir Helgi, „en þá kom aftur-
kippur í atvinnumál okkar, sem
einnig bitnaði á tækniteiknur-
um.”
Heyrnarlausir geta
tekið bílpróf
Svona í iok samtalsins kom
það til tals, hvernig Sigurbjörg
kæmist á milli skólanna tveggja
og heimilis síns. Það kom í ljós
að hún keyrir bíl eins og her-
Hér standa þeir Fríðjón og
kennari hans Ingibergur við
einn bíiinn, ef bíl skyldi kalla,
en hann er notaður við
kennsluna i Iðnskólanum.
foringi.
„Það hafðist í gegn fyrir
nokkrum árum, mikið fyrir at-
beina Brands skólastjóra, að
heyrnleysingjar fengju bíl-
próf,” sagði Unnur. „Enda
hefur heyrnarleysið ekki svo
mikið að segja. Athyglisgáfan
er skarpari hjá heyrnleysingj-
um og þeir taka meira eftir
öllum hreyfingum I kringum
sig en þeir sem heyra. Það eina
sem þeir þurfa að hafa fram
yfir aðra bílstjóra eru auka-
speglar."
— EVI
Félag sjálfstœðismanna
i Hlíða- og Holtahverfi
heldur almennan fund í Snorrabæ
(Austurbæjarbíói). Fundarefni:
Staöa íslands í vestrænni samvinnu.
Frummælandi: Kristján J. Gunnars-
son fræöslustjóri (varaþingmaður).
Fundartími kl. 20.30 í kvöld.
Stjórnin.
Til sölu
lítil bifreiðavarahlutaverzlun
Upplýsingar í síma 14925
Gaffallyftarar
Getum útvegað nokkra notaða
dísil gaffallyftara með 2000 kg
lyftugetu til afgreiðslu f ágúst '76
G. Þorsteinsson og Johnson
Ármúla 1 - Sími 85533
Hjallfiskur h/f
Sel brotaharðfisk og
mylsnu nœstu daga.
Opið frá kl. 8 - 6,
laugardaga I - 5
Hjallfiskur h/f
Hafnarbraut 6 — Kópavogi
“ - FERÐASKRIFSTOFA
RlKISIIVS
fOURISt
HKINGVEGURINN
8 daga hópferð um hringveginn kringum landið dagana 21 —28. júní.
Ekið í þægilegri langferðabifreið. gist og borðað á hótelum. Fróður
leiðsögumaður verður með í ferðinni. Verð kr. 49.150 á mann, allt
innifalið Kynnið yður nánar ferðatilhögun á skrifstofu vorri að Reykja-
nesbraut 6 símar 1 1 540 og 25855.