Dagblaðið - 25.05.1976, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976.
'MMBIAÐW
frfálst, úháð dagblað
OtKofundi: bagbiártirt hf.
Framkvæmdast.jóri: Svuinn H. Fyjólfsson. Hitst jóri: Jónas Kiistjátlsson.
Frúttastjóri: .lón Bir«ir IVtursson. Hitstjórnarfulltrúi: Haukur Hiinason. Artstoóarfrótla-
stjóri: Atli Stoinarsson. ÍJnóttir: Ilallur Simonarson. llönnun: .Jóhanncs Huykdal. Ilandrit:
AsKrimur Pálsson.
Blartamunn: Anna Bjarnason. As«oir Tómasson. Bolli Hórtinsson. Bra«i Sigurrtsson, Erna V.
Innólfsdóttir. (’.issur Siuurrtsson. Ilallur Hallsson. Hol«i Pótursson, Katrín Fálsdóttir. Ólafur*
Jónsson. Ómar Valdimarsson. Ljósmyndir: Bjarnloifur Bjarnluifsson. Björ«vjn Pálsson.
Ragnar Th. Sigurðsson.
('ijaldkuri: Práiiyi horluifsson. I)ruifin«arstjóri: Már K.M. Halldórsson.
Askriftaríijald 1000 kr. á ntánurti innanlands. í lausasölu 50 kr. ointakirt.
Ritstjórn Sírtumúla 12. sími KJ322. auylýsinKar. áskriftir o« afjjroirtsla Þvorholti 2. slmi 27022.
Sotninjí oj* umbrot: Dajíblartirt hf. o« .Stuindórsprunt Itf.. Armúla 5.
Mynda-ou plötuiíurrt: Hilmir hf..Sírtumúla 12.Pn-.vtuo: Arvakurhf.. Skuifunni 10.
Fjölskyldur sameinast
Það er gömul hefð úr mafíu-
heiminum, að á hættustundu
standa fjölskyldurnar saman.
Þessa hefur orðið vart síðustu
dagana, er ríkisblöðin fjögur,
Alþýðublaðið, Tíminn, Vísir og
Þjóðviljinn, hafa veitzt að Dag-
blaðinu með ýmiss konar slúðri, sem framleitt
er í sagnamaskínu flokkseigendafélags Sjálf-
stæðisflokksins.
Upplýsingar Dagblaðsins um Grjótjötuns-
málið eru meðal þeirra atriða, sem hafa þjapp-
að fjölskyldunum saman. Fjármálamenn Fram-
sóknarflokksins og Vísisdeildar flokkseigenda-
félagsins óttast mjög, að þetta sé aðeins byrjun-
in á frekari uppljóstrunum, sem Dagblaðið
muni birta um leið og allar heimildir um máls-
atvik eru komnar í höfn.
Fjölskyldurnar vita, að ýmsir heiðarlegir
menn í kerfinu, embættismenn, lögfræðingar
og rannsóknamenn, eru orðnir þreyttir á því
lastabæli fjármálanna, sem magnazt hefur í
samtryggingarkerfi stjórnmálanna. Þær vita
líka, að sumir þessara manna hafa staðið í
sambandi viö Dagblaðið.
Þessi ótti blandast almennri óbeit stjórn-
málamanna á Dagblaðinu vegna óþægilegrar
afskiptasemi þess af meðferð þeirra á þjóðmál-
unum. Þannig hefur myndazt víðtækt hræðslu-
bandalag, sem nær neðan frá Skuggasundi og
upp á Skólavörðustíg 19.
Nýjasta atlagan að Dagblaðinu er veikari en
hinar tvær fyrri og ber flest einkenni
örvæntin|ar. í fyrstu atlögunni var reynt að
hindra prentun Dagblaðsins og munaði stund-
um raunar ekki nema hársbreidd, að það tæk-
ist, eins og mörgum ér enn í fersku minni.
Menn vita minna um þá atlögu, sem var
önnur í röðinni og fólst í tilraunum til að loka
bankakerfinu gagnvart Dagblaðinu. Fór þar
fremstur bankaráðsmaður Tímans. Arangur-
inn varð sá, að Dagblaðið hefur nær enga
fyrirgreiðslu í viðskiptabönkunum, þótt það
velti um milljón krónum á hverjum virkum
degi. En Dagblaðið gat bætt sér þetta upp með
eigin rekstrartekjum.
Það var sem sagt komið í ljós, að hræðslu-
bandalagið gat ekki klekkt á Dagblaðinu með
tæknilegum eða fjármálalegum aðgerðum. Þá
var flúið út í slúðrið og beitt gamalkunnri
aðferð, sem felst í því, að hvert ríkisblaðið
étur upp eftir ööru.
Einni sögunni er ýtt á flot í Þjóðviljanum.
Tíminn vitnar í hana. Síðan vitnar Vísir í
Tímann og Þjóðviljann og loks litli Vísir í hin
þrjú blöðin. Aðrar sögur fara aðrar leiðir
gegnum slúðurkerfið.
Meðan upplag Dagblaðsins er komið upp í
23.000—27.200 og fer sívaxandi, heldur
hræðslubandalagið því fram, ,að það sé um
16.000. Sölubörn og söluturnamenn vita betur.
Meðan Dagblaðið á inni tæpar þrjár milljónir
króna hjá Blaðaprenti, heldur hræðslubanda-
lagið því fram, að blaðið skuldi Blaðaprenti sjö
milljónir. Dagblaðið birti í gær ýtarlegar vitn-
anir í stjórnarbókanir Blaðaprents til að leiða
hið sanna í ljós.
Skemmtilegust er saga Vísis um, að Dag-
blaðiö hafi fengið lánaðan pappír Tímans til að
selja Blaðaprenti, svo að það gæti prentað
Tímann. Þessa sögu hefur Tíminn ekki þorað
að endurprenta til að kasta ekki rýrð á fjár-
málavit framkvæmdastjóra síns.
Hinar sameinuðu mafíur rembast án
árangurs.
Tito Júgóslavíuforseti
84 ára í dag:
Sjálfsmeðvitund
þjóðarinnar
MINNINGARGREIN
Hismið og kjarninn
Islendingar hafa löngum þótt
seinþreyttir til vandræða, svo
seinþreyttir að þess eru
sennilega engin dæmi í
veraldarsögunni að nokkur
þjóð hafi látið bjóða sér aðra
eins ósvinnu eins og
lslendingar gera. Verður nú að
telja að sjálfsmeðvitund
þjóðarinnar sé með öllu dauð
og ekkert sé eftir nema
viljalausar verur, sem láta
stjórnast af skrumi og
blekkingum og trúa best þeim,
sem hæst láta og mest hafa fjár-
magnið.
Hismið er okkur jafnan
kærast en kjarnann látum við
lönd og leið.
Fyrirsjáanlegt gjaldþrot
þjóðarinnar vegna skulda-
söfnunar, gereyðingar
fiskstofna, gróðureyðingar og
landauðnar, deyjandi iðnaðar
og afturfara á öllum sviðum
þjóðlífsins, eru ekki málefni
sem eru efst á baugi í fjöl-
miðlum landsins. Miklu frétt-
næmara þykir ef varðskip
klippir aftan úr breskum
togara, eða ef ráðherra verður