Dagblaðið - 25.05.1976, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. MAI. 1976.
Fer í mál við
lögregluna:
Nýstárlegasti sundstaðurinn:
Telur
meðferð
á sér
hafa
valdið
meiðslum
„Eg hef legið rúmfastur nú í
vikutíma og bið þess að bólga
hjaðni svo í fæti mínum að ég
geti gengizt undir skurð og
neglingu beina í sjúkrahúsinu
á Akureyri,” sagði Bjarni
Árnason fréttaritari Dagblaðs-
ins á Siglufirði er hann hafði
samband við blaðið.
„Það eru óheppileg afskipti
lögreglumanna af mér á slys-
stað sem ég tel eiga alla sök á
því hversu illa til tókst með
fótbrot er ég hlaut á götu úti.
Auk ökklabrotsins, er ég hlaut
við fall, eru sinar teygðar og
æðar í hnút eftir aðgerðir lög-
reglumanna er á vettvang
komu. Þeir ákváðu með
sjálfum sér að ökklinn væri
aðeins úr liði og ætluðu að
kippa í liðinn á staðnum. Þá
fór sem fór og mun ég eiga í
afleiðingum verka þeirra
margar vikur umfram það sem
orðið hefði af fótbrotinu einu
saman,” sagði Bjarni.
„Forsagan er sú,” sagði
Bjarni, „að ég kom af balli
aðfaranótt 16. maí. Á Þormóðs1-
götu heyrði ég kallað til mín að
baki mér. Ég sneri mér snöggt
við og á einhvern óskiljanleg-
an hátt snerist fóturinn undir
mér og ég féll. Kvalirnar voru
ólýsanlegar og fóturinn sneri í
öfuga átt við það sem vera átti.
Fólk dreif að, þar sem ég lá í
götunni, og einn vegfarenda
hagræddi fæti mínum. Þá
minnkuðu kvalirnar. Lög-
reglumenn, sem voru skammt
frá, voru látnir vita. 1 stað þess
að flytja mig i sjúkrahúsið,
sem er í 2—300 m fjarlægð,
ályktuðu þeir að ég hefði farið
úr liði um ökkla. Hófu þeir að
toga í og vinda fótinn brotna
með ólýsanlegum kvölum fyrir
mig. Síðan ákváðu þeir heim-
flutning. Var mér eiginlega
hent upp í bílinn og látinn
ganga upp tröppurnar er heim
kom, og sagt að vera ekki með
neinn aumingjaskap. Fyrir
þrábeiðni féllust þeir síðar á
að flytja mig I sjúkrahúsið.
1 sjúkrahúsinu kom í ljós að
ökklinn var brotinn svo illa að
negla yrði saman og yrði það
að gerast á Akureyri.
FLATMAGAÐ í TÆRUM 0G
HLÝJUM AFRENNSLISLÆK
„Þetta er 35—40 stiga heitt
afgangsvatn, sem rennur þarna
í lækinn svo það er engin hætta
á að neinn brenni sig,” sagði
Gunriar Kristinsson, verkfræð-
ingur hjá Hitaveitu Reykja-
víkur, er DB spurði
hann hvernig stæði á þessum
læk er svo margir hafa flat-
magað í á sólardögunum undan-
farna daga. „Vatn þetta notum
við til að blanda saman við
vatnið úr borholunum en eins
og tíðin er núna þurfum við
ekki á þessu vatni að halda.”
n
„Váá, hasa skutla!” (Snemma
opnast augu piltanna fyrir
kvenlegum yndisþokka).
— KL
' % -j; 1
Ja, ég er að passa að tærnar
sóibrenni ekki.
Það er ekki amalegt að geta
baðað sig í svona náttúrlegu
umhverfi.
(DB-myndir Björgvin).
Ytri-Njarðvík: SÓKNARBÖRNIN VINNA
SJÁLF AÐ SMÍÐI KIRKJUNNAR
Ég fór inn til Akureyrar og
sögðu læknar þar að fóturinn
væri illa farinn. Auk brots
væru sinar teygðar og æðar í
hnút og ökklinn mjög bólginn.
Aðgerð var óframkvæmanleg
unz bólga hjaðnaði. Er ákveðið
að ég fari aftur til Akureyrar
nk. fimmtudag og uppskurður
og negling fari fram nk. mánu-
dag. Þá verður rúmur hálfur
mánuður frá því að slysið átti
sér stað. Þá fyrst getur aðgerð
og lækning hafizt og tel ég
lögreglumennina eiga mesta ef
ekki alla sök á þeirri bitru
staðreynd.”
Bjarni kvaðst viðurkenna að
hann hefði verið undir
áhrifum áfengis. Einnig taldi
hann hásólaða skó eiga þátt í
fallinu á götunni og þar með
brotinu. En fljótfærnislegar og
misráðnar athafnir lögreglu-
mannanna hefðu komið sér
verst. Taldi hann sig betur
hafa verið settan liggjandi i
götunni en að fá lögreglu-
mennina á vettvang.
Bjarni kvaðst nú undirbúa
málsökn á hendur lögreglunni
og unnið væri að vitna- og
gagnasöfnun.
BÁ/ASt.
„Áhuginn á kirkjubyggingunni
hefur verið mjög mikill hérna í
Ytri-Njarðvíkunum,” sagði Árni
Júlíusson, formaður nýstofnaðs
bræðrafélags í Njarðvíkunum, er
við töfðum hann við frásláttinn á
guðshúsi þvi sem Ytri-
Njarðvíkingar hyggjast reisa yfir
söfnuð sinn — og eru reyndar
búnir að steypa upp að nokkru
leyti.
„Undanfarnar helgar hafa
starfað á milli 15 og 30 sjálfboða-
liðar við fráslátt, naglhreinsun og
mótahreinsun og lýsir það gleggst
áhuganum á því að við eignumst
okkar kirkju í Ytri-Njarðvíkum
og einnig að sóknarpresturinn
okkar, Páll Þórðarson, fái góða
aðstöðu til sinna starfa,” sagði
Árni.
Ytri-Njarðvíkurkirkjan verður
hin fegursta bygging, ef dæma má
eftir likani. Áætlað var að hún
kostaði fullbúin um 30 milljónir
króna, en sjálfsagt hafa þær tölur
eitthvað hækkað í dýrtíðinni.
Fjárins til byggingarinnar hefur
verið aflað og verður með starfi
sóknarbarnanna, en auk þess
leggur Njarðvíkurhreppur fram
eina milljón króna árlega.
— emm
Grjótjötni forðoð undon hamrinum
Samkvæmt upplýsingum,
sem Dagblaðið hefur aflað sér,
hefur stjórn fyrirtækisins
Sandskips hf., sem gerði út
dæluskipið Grjótjötun um eins
árs skeið, tekizt að forða fyrir-
tækinu frá gjaldþroti.
Auk persónulegra framlaga
tve'ggja stjórnarmanna hefur
tekizt að útvega fyrirtækinu
lán að upphæð rúmlega þrjátíu
millj. kr.; stór hluti þess í víxl-
um á tvo banka, Landsbankann
og Búnaðarbankann.
— ÓV.