Dagblaðið - 25.05.1976, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976.
Forkosningar í sex ríkjum USA í dag
Church og Brown valda
Carter miklum áhyggjum
Svo virðist sem þingmaður-
inn Frank Church og ríkisstjóri
Californíu, Edmund Brown,
eigi töluverða möguleika á því
að gera mótframbjóðanda
þeirra, Jimmy Carter erfitt
fyrir í hinum þýðingarmiklu
forkosningum í Oregon-fylki,
enda þótt áhrifa þeirra í for-
kosningunum hafi ekki gætt
fyrr en nú.
I nýútgefinni skoðanakönn-
un kemur í ljós, að Frank
Church, sem var formaður
nefndar, er kannaði starfsemi
CIA og stórra alþjóðlegra auð-
hringa nýtur hvað mesta fylgis
í herbúðum demókrata. Næstur
honum kemur svo Edmund
(Jerry) Brown, sem tók það
seint þátt í forkosningunum, að
fólk verður að skrifa nafnið
hans neðst á kjörseðilinn í
kosningunum í dag.
Kosningabaráttan hefur
verið geysihörð í fylkinu, en
forkosningar fara einnig fram í
Arkansas, Tennessee,
Kentucky, Idaho og Nevada.
Meira en 10 aðrir demókratar
eru skráðir mótframbjóðendur
Carters, þar á meðal Humphrey
og Kennedy. Hubert Humphrey
hefur lýst því yfir, að hann ætli
sér ekki í virka kosningabar-
áttu og einhverjar vomur eru
einnig á Kennedy. Er það álit
margra, að sameiginlegt
framboð Kennedys og
Humphreys sé eini möguleiki
demókrata til þess að komast í
Hvíta húsið.
í herbúðum repúblikana
hefur Ford forseti lýst því yfir
að hann muni sigra Reaga.o
auðveldlega, en kjörmenn
repúblikána eru 30 í fylkinu,
þar sem kjósendur eru alla-
jafna álitnir fremur frjálsiynd-
ir í stjórnmálum.
Eftir mikla sigurgöngu i
fyrstu forkosningunum verður
Jerry Brown hefur þótt eld-
heitur bardagamaður og telst
sigurstranglegur í dag.
Carter því að fara að berjast
fyrir lifi sínu með kjafti og
klóm. Fylgi hans í fylkinu
hefur fallið úr 33% i 17% frá
því að sfðasta skoðanakönnum
var gerð, á sama tíma og fylgi
Church hefur aukizt úr 7% í
28%.
Brown fylkisstjóri, sem
sigraði Carter auðveldlega í for-
kosningunum í Maryland hefur
reynzt dugmikill baráttumaður
og hefur hlotið 22% greiddra
atkvæða í skoðannakönnun .
Carter, sem nú hefur tryggt
sér 739 kjörmenn af þeim 1505,
sem til þarf til þess að hljóta
útnefningu, breytti áætlun
sinni til þess að ferðast um
fylkið nú yfir helgina, en
honum erspáð sigri í suðurríkj-
unum þrem, Arkansas,
Tennessee og Kentucky. Alls
er barizt um atkvæði 177 kjör-
manna.
Soánn:
Camacho látinn laus í dag
— þingið fœr sólarhring til að rœða umbótatillögur stjórnarinnar
Þekktasti og jafnframt einn
virtasti stjórnmálafangi Spánar,
verkalýðsleiðtoginn Marcelino
Camacho, verður látinn laus gegn
tryggingu síðar í dag þegar
þingið (Cortes) hefur umræðu
um umbótafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar, er miðar að því að
auka lýðræði í landinu.
Camacho er nú 55 ára gamall.
Hann hefur samtals dvalizt fjór-
tán ár á bak við lás og slá fyrir
starfsemi, sem beinist gegn
stjórnvöldum.
Síðast var hann handtekinn og
settur í gæzlu í marz sl., þegar
honum var gefið að sök að hafa
gert samkomulag við kommún-
ista, sósíalista og vinstrisinnaða
kristilega demókrata, sem mynd-
uðu með sér breiðfylkingu til að
leggja áherzlu á kröfur sinar um
aukið lýðræði og frjálsar kosn-
ingar þegar í stað.
Umræðurnar á þinginu í dag
eru fyrsti raunverulegi
prófsteinninn á umbótatilíögur
stjórnar Juans Carlosar konungs.
Til að koma í veg fyrir málþóf
og óþarfa tafir hefur stjórnin
ákveðið, að umræðurnar megi
ekki taka lengri tíma en tuttugu
og fjórar klukkustundir.
Samkvæmt tillögunum verður
leyft að halda stjórnmálafundi ef
aðstandendur fundarins láta yfir-
völd vita með þriggja sólarhringa
fyrirvara. Sem stendur eru allar
samkomur tuttugu manna eða
fleiri bannaðar, hvort sem þær
eru stjórnmálalegs eðlis eður ei.
Jafnframt verður nú leyft að
fara fjöldagöngur um stræti og
torg, ef tilkynnt er um það með
tíu daga fyrirvara.
Saksóknari ríkisins í Belgiu
hefur lagt fram ákæru á hendur
sextán flæmskum hægri sinnum á
þinginu vegna þátttöku þeirra i
mótmælaaðgerðum vegna tungu-
málaaðskilnaðar sl. föstudag.
Sextánmenningarnir, sem allir
eru félagar í Volksunieflokknum,
eru sakaðir um átroðning,
skemmdarverk og ósiðlega fram-
komu.
Sekt gæti haft í för með sér allt
að sex mánaða fangelsisvist og
sektir um 20 þúsund franka, eða
liðlega 80 þúsund krónur.
Mótmælaaðgerðirnar voru í
skrifstofum innanríkisráðuneytis-
ins í Brússel. Þeim var beint gegn
stjórnvöldum, sem hafa látið
undir höfuð leggjast að afnema
tvöfalda afgreiðslu — hollenzku-
ntælandi og frönskumælandi — í
ráðhúsinu í Schaerbeek, sem er
eitt úthverfa Brússel.
Líðan
Karenar
Quinlan
óbreytt
Líðan Karenar Anne Quinlan
er enn við það sama. Hún lifir
án stállungans, sem talið hefur
verið undanfarna þrettán
mánuði að heldi henni á lífi, en
likamlegt ástand hennar er
óbreytt. Eins og fram hefur
komið er ekki hægt að tala um
,,andlegt“ ástand eða líóan
stúlkunnar, sem missti
meðvitund fyrir rúmlega ári
síðan eftir að hafa tekið of
Eftir umavifamikil róttarhöld og gífuriegar
umræÖur manna á meöal um heim allan
ákvaö hæstirettur, aö leyfilegt væri aö taka
vólar þær. som hóldu lífi i stúlkunni úr
sambandi. Síöan hefur liöan hennar ekkert
breytzt og eins og nærri mó geta eru
foreldrar honnar fámólir um ástandiö.
stóran skammt deyfilyfja ásamt
áfengi.
Foreldrar Karenar hafa tekið
þá ákvörðun, að seg ja ekkert
frekar um líðan hennar, en þau
munu vera andsnúin því. að
gjörsamlega verði hætt að
annast um hana. Sem stendur
er Karen sprautuð reglulega
gegn smiti utanaðkomandi efna
og áhrifa.
Marcelino Camacho sést hér með Jósefínu konu sinni, stuttu eftir að
honum var sleppt úr fangelsi ásamt fleiri leiðtogum neðanjarðarhreyf-
inga kommúnista, eftir lát Francos.
Sextán þingmenn
ákœrðir í Belgíu
— mótmœltu misrétti byggðu á
þjóðtungu manna
Erlendar
fréttir
*
REUTER)
Ródesía:
Sprengju- og
skotárásir
skœruliðanna
Þjálfun sjálfboðaliða f
heimavarnarliði Ródesíu: Allt
er tínt til.
Ródesískir skæruliðar hafa
hert á baráttu sinni gegn
stjórnvöldum í landinu. í gær
sprengdu þeir eimreið i loft
upp og gerðu skothríð að bíl.
Þrír menn í honum urðu fyrir
skotum, að því er segir í til-
kynningu herstjórnarinnar í
Salisbury í gærkvöld.
Þessi herferð skæruliðanna
beinist að því að trufla sam-
göngukerfi landsins, svo það
verði óvirkt og minnihluta-
stjórn hvítra manna verði svelt
inni, ef svo má segja.
Magabelti
ór gulli
uppgötvað
þegar...
Maður nokkur var stöðvaður
á götu í Kalkútta I Indlandi
vegna þess að honum hafði
orðið á að kasta af sér vatni á
almannafæri. Þegar hann var
fluttur á lögreglustöð kom í
ljós að um mittið hafði
maðurinn bundið heilt kíló af
gulli.
Gullinu var skilað til gjald-
eyrisyfirvalda en ekki fylgdi
sögunni hvaða tilgangi þetta
ovenjulega magabelti þjónaði.
Olga banar
53 á
Filippseyjum
Meira en 10 þúsund hcimili
til viðbótar hafa nú eyðilagzt í
flóðbylgjunni, sem fylgdi í
kjölfar fellibylsins Olgu sem
gekk yfir Filippseyjar í gær.
Skammt norður af höfuðborg-
inni Manila brast flóðgarður
og eru nú stórir hrísgjróna-
akrar undir vatni.
Markos forseti hefur lýst
yfir neyðarástandi á þeim
hluta eyjanna, sem verst hafa
orðið úti, en fram til þess að er
vitað um 53 látna en eyðilegg-
ing hefur orðið gífurleg.