Dagblaðið - 25.05.1976, Blaðsíða 8
DAKBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976.
Einangrunin ekki alger:
Sœvorí tókst að koma boðum
til Erlu í gœzluvarðhaldinu
Fljótlega eftir að þau Erla
Bolladóttir og Sævar M.
Ciesielski voru handtekin og
hneppt í gæzluvarðhald sl.
haust vegna fjársvika hjá Pósti
& síma kom í ljós að einangrun
þeirra i Síðumúlafangelsinu
var ekki eins og hún átti að
vera.
Dagblaðið hefur öruggar
heimildir fyrir því að Sævari
hafi í fangelsinu tekizt að koma
boðum til Erlu, að öllum líkind-
um án þess að vart yrði við það,
en hún var þá í næsta klefa eða
svo gott sem. Engir fangaverðir
munu hafa komið nærri þessu
en þessi galli í kerfinu komst
upp þegar Erla sagði sjálf frá
honum og voru þá þegar gerðar
viðeigandi ráðstafanir.
Boðin, sem Sævar sendi
barnsmóður sinni, voru á þá
leið að hún skyldi ekkert segja,
neita öllu. — ÓV.
SEX MÁNAÐA FERÐ
Á LEDURBÁTIHAFIN
Ef þú lítur
undan — þó
ertu undir
óhrifum lyfja!
Maður nokkur hefur ritað lög-
regiustjóra bréf þar sem hann fer
fram á að embættið kanni nánar
þá fullyrðingu lögregluþjóns í
lögregluskýrslu að hann hafi
verið undir áhrifum lyfja.
Skýrsla þessi var gerð 1. apríl
sl., fimm dögum eftir að maður-
inn, ásamt öðrum manni, var
handtekinn, talinn hafa valdið
ónæði við hús eitt hér í borginni.
Maður þessi hefur mikið unnið
að barnaverndarmálum og hefur
misjafna sögu að segja af lög-
gæzlumönnum og þeir af honum.
Hefur hann haft þann sið að
hljóðrita öll samtöl sín við þá.
Kemur þar fram að lögreglu-
maðurinn hefur lítið sem ekkert
hlustað á skýringar mannanna á
framferði sinu, né viljað ein-
hverra hluta vegna, og skrifar
skýrsluna ekki fyrr en fimm
dögum síðar. Þá segir hann að
mennirnir tveir hafi virzt undir
áhrifum lyfja og byggir þá full-
yrðingu sína á því að þeir hafi
litið undan, er lögreglan kom á
staðinn og ekki viljað horfast í
augu við fulltrúa laganna.
Ekki hefur maðurinn fengið
leiðréttingu sinna mála, þrátt
fyrir bréfaskrif til lögreglustjóra,
og þykir honum að vonum hart að
þurfa að liggja undir þessum
áburði.
En lögregluskýrslunni virðist
ekki verða breytt, og þar við situr.
— H.P.
trski leðurbáturinn Brendan
sigldi fram hjá Dingleskaga á suð-
vesturströnd írlands á dögunum.
Brendan er sem kunnugt er
gerður úr leðri og smíðaður sam-
kvæmt upplýsingum um bát írska
trúboðans St. Brendan. Sögur
geyma frásagnir um siglingu trú-
boðans til Ameríku á 6. öld,
tæpum 500 árum áður en Leifur
Eiríksson fann Ameríku og 1000
árum áður en Kólumbus sigldi
þangað. Leiðangursstjórinn á
leðurbátnum Brendan ætlar að
reyna að endurtaka siglingaafrek
trúboðans. Er áætlað að ferðin
taki 6 mánuði. Leðurbátar eru
enn í notkun meðal sjómanna á
trlandi en þeir eru mun minni en
Brendan sem er 11 metra langur.
Brendan ráðgerir viðkomu á ís-
landi síðar í sumar, eins og fram
kom í DB á sínum tíma I viðtali
við leiðangursstjórann.
Jóhann G. Jóhannsson: „Sól-
in er harður keppinautur.”
Sýning Jóhanns G.
framlengd
Jóhann G. Jóhannsson
tón- og myndlistarmaður
hefur ákveðið að framlengja
listaverkasýningu sína í
Garðabæ til næsta sunnu-
dags.
„Aðsóknin hefur verið
mjög góð, sérstaklega á
sunnudaginn, enda var ég þá
ekki í samkeppni við sól-
ina,” sagði Jóhann í spjalli
við fréttamann blaðsins í
gær.
A sýningunni sýnir
Jóhann að þessu sinni
fimmtíu og tvær myndir,
mestmegnis vatnslitamynd-
ir, „en það eru þarna líka
nokkur olíumálverk,” sagði
Jóhann. „Ég hef málað þetta
allt frá þvi að síðustu sýn-
ingu lauk skömmu fyrir ára-
mót og geri ekki mikið
annað — hef þó búið til eitt
og eitt lag enda hyggst ég
gera plötu áður en langt um
líður.”
Sýning Jóhanns er opin
daglega kl. 15—23 og leiðin
að Skógarlundi 3 í Garðabæ
er rækilega merkt frá.
Hafnarfjarðarvegi. ÓV.
morgna niður að Jörfa og sækir
fólk sem vinnur hjá íslenzkum
aðalverktökum og Pósti og síma.
En í svona tilfellum, þegar
byggjast upp heil hverfi, verður
að meta þarfir og útlagðan
kostnað.
— KL
„Allir með strœtó..."
Stórt
iðnoðar-
I f* r
::: :::
Ártúns-
höfða enn
útundan
Jóhanna
sýnir í
SÚM
Eg hef haldið þrjár einka-
sýningar hér í Reykjavík og
nokkrar úti á landi,” sagði
Jóhanna Bogadóttir lista-
kona við DB-menn þegar við
litum inn á sýningu hennar í
Gallery Súm við Vatnsstíg
þar sem hún sýnir 36
myndir, teikningar og
grafík. Jóhanna stundaði
myndlistarnám í Frakklandi
og hefur tekið þátt í samsýn-
ingum 1 Noregi, Bretlandi,
Spáni og Póllandi.
— KP
„Það er ekkert á döfinni
varðandi strætisvagnaferðir
niður i þetta hverfi,” sagði
Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri
Strætisvagna Reykjavikur, er DB
spurðist f.vrir um hvort áætlað
væri að hefja strætisvagnaferðir
niður í iðnaðarhverfið fyrir neðan
Vesturlandsveginn. „Þetta hverfi
er í uppbyggingu og meðan ekki
er búið að malbika göturnar og
svo mikið er umbyggingarfrám-
kvæmdir þá er varla ökufært
fyrir strætisvagna SVR. Að visu
leggur leið 10 leið sína kvölds og
Frœnka Matthíasar Jochumssonar
— og heitlr Zlskin!
„Þér finnst það kannski
skrítið en ég er skyld
Matthíasi Jochumssyni og
hef eftirnafnið Ziskin,”
sagði Anna Concetta í sam-
tali við Dagblaðió. Hún er
íslenzk í móðurætt en faðir
hennar er ítalskur. Hún
hefur verið búsett í Banda-
ríkjunum þar til fyrír einu
og hálfu ári en þá fluttist
hún hingað.
Anna sýnir um þessar
mundir myndir á Mokka við
Skölavórðustig og þar hanga
myndir hennar uppi næstu
þrjár vikurnar. —KP.
Anna Ziskin við eina
myndum sínum á Mokka.
af