Dagblaðið - 25.05.1976, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. LRIÐJUDAGUH 25. MAÍ 1976.
9
Tollvarðamálið:
)
V
Enn fara Kristján og
Haukur út fyrir umdœmið
Rannsókn heldur áfram í
máli þeirra tveggja tollvarða
sem Dagblaðið skýrði frá í gær
aó handteknir hefðu verið.
Yfirheyrsur hafa farið fram en
sem vænta má eru þær á
byrjunarstigi. Þriðji maðurinn
sem er sjómaður úr ' Kefla-
vík hefur einnig verið handtek-
inn.
Ekki er vitað á þessu stigi
málsins hversu mikið málið er
aö umfangi en talið er að þar sé
um aðstoð við óiöglegan
innflutning að ræða á ýmsum
vörutegundum, en ekki aðeins
tóbaki og áfengi. Hins vegar má
telja fullvist að rökstuddur
grunur leiki á um alvarleg brot
í starfi tolivarðanna tveggja og
varði þau vióurlögum sam-
kvæmt almennum hegningar-
lögum, reynist hann réttur.
Þeir Kristján Péturs-
son og Haukur Guðmund-
son tóku málið að eigin
frumkvæði til rannsóknar með
þeim árangri að talið var rétt að
setja tollverðina tvo i
gæzluvarðhaldsvist á laugar-
dag. Hafa þeir Kristján og
Haukur afhent Sakadómi
Reykjavikur málið til
meðferðar. Þar rannsakar
Hannes Thorarensen rann-
sóknarlögreglumaður málið, en
Haraldur Henrýsson saka-
dómari stjórnar yfirheyrslum
og rannsókninni allri.
Kristján Pétursson deildar-
stjóri í tollgæzlunni á Kefla-
víkurflugvelli var nýiega
kærður fyrir að hafa afskipti af
grunuðum mönnuin utan
lögsagnarumdæmis Keflavíkur-
flugvallar í samvinnu við Hauk
Guðmundsson. Enn hafa þeir
félagar farið út fyrir sitt
lögsagnarumdæmi. Spurningin
er bara sú hvort þeir fái ekki
eina kæruna enn fyrir afskipti
sín?
Þess skal getið að frumrann-
sókninni hespuðu þeir félagar
af á fimmtudag og föstudag —
en þá daga hafði Kristján
fengið sumarleyfi.
-BS-
„LÖGGÆZLUMAÐURINN" Á FERÐ
— Öldutúnsskóli tekur upp nýjung í kennsluháttum
,,Við höfum leyst upp bekkina
og blandað saman árgöngum. í
þessum hópi, sem var
..Löggæzlumaðurinn”, voru
krakkarnir 10, 11, 12 og 13 ára.”
Þetta eru orð Jóns Jónassonar
kennara i Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði en skólinn hefur
tekið upp þá nýjung í
kennsluháttum að leyfa
krökkunum að fara á ýmsa staði
síðustu kennsluviku skólaársins.
Hópurinn, sem heitir
,,Löggæzlumaðurinn“ og sést hér
á meðfylgjandi myndum, fór að
heimsækja þá á lögreglustöðina í
Hafnarfirði, hann fór í
tollgæzluna, á bæjarfógetaskrif-
stofurnar í Hafnarfirðí og á
lögreglustöðina i Reykjavík.
Jón sagði að alls staðar hefði
þeim verið afskaplega vel tekið og
enginn vafi væri á að allir hefðu
haft hið mesta gaman og gagn af.
ekki síður kennararnir. Þeir voru
tveir með ..Löggæzlumanninum",
Jón og Guðmundur Sveinsson.
Og þeir eru fleiri hóparnir með
kennurum sínum sem sézt hafa á
hinum ýmsu stöðum bæði í
borginni og nágrenni. Hópurinn
..Bóndinn" fór til dæmis til
Selfoss og skoðaði Mjókurstöðina.
Hópurinn „Hljómsveitar-
maðurinn" fór á æfingu hjá
Sinfóníuhljómsveitinni og Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar og fleira.
Það voru líka hópar sem
nefndust „Fréttamaðurinn,"
„Flugmaðurinn" og „Visinda-
maðurinn". Sem sagt, þar var
reynt að hafa sem flestar starfs-
greinar.
Jón sagði að aðalmarkmiðið
með þessu væri að krakkarnir
kæmust í snertingu við hin ýmsu
störf af eigin raun og kynntust
þeim. Síðasti dagur þessarar
raunhæfu starfskynningarviku
fer svo í úrvinnslu.
-EVI.
„Löggæzlumaðurinn", hópurinn úr Öltutúnsskóla ásamt kennurum sinum, fékk kók og kræsingar hjá
Óskari Ólasyni yfirlögregluþjóni (f.vrir miðju). Óskar sýndi þeim herlegheitin á lögreglustöðinni og
svo mótorhjólin. Strákarnir tylltu sér á bak og einstaka stelpa lika. Það vakti mikla kátinu þegar
sírenurnar vældu og rauðu ljósin blikkuðu á tryllitækjunum.
Lamaði íþróttamaðurinn:
SUÐURNESJAMENN ÆTLA AÐ
GEFA ÁGÚSTI NÝJAN BÍL
Fjársöfnunin til styrktar
Ágústi Matthíassyni, sem staðið
hefur 'yfir á Suðurnesjum und-
anfarna daga, hefur gengið
mjög vel en ætlunin er að safna
fyrir nýjum bíl handa Ágústi,
en Dagblaðið birti viðtal við
hann fyrir nokkru.
Ágúst, eða lamaði íþrótta-
maðurinn eins og hann hefur
verið nefndur, meiddist illilega
á stangarstökksæfingu fyrir.25
árum. Hryggurinn brotnaði og
mænan skaddaðist, sem
orsakaði lömun fyrir neðan
mitti. Síðan hefur Ágúst að
mestu verið bundinn við rúmið
og hjólastólinn og það eina sem
gert hefur honum kleift að
ferðast um svipað og aðrir, er
bifreiðin. — Bilar ganga bara
úr sér með árunum og Mustang-
inn hans Gústa var farinn að
láta á sjá.
Nokkrir vinir og félagar
Gústa hófu þvi f jársöfnun i því
skyni að kaupa nýja bifreið og
hefur hún gengið mjög vel.
Bæði félög og einstaklingar
hafa aflað eða lagt fram fé.
Lionsklúbbur Njar'ðvíkur hélt
bingó og gaf ágóðann í söfnun-
ina, 120 þúsund. Örn Erlings-
son, útgerðarmaður og skip-
stjóri, safnaði saman einvala-
liði um borð, með þá Jón Ey-
steinsson sýslumann, Zakarías
Hjartarson tollvörð, Árna
Samúélsson kaupmann og Jón
lsleifsson bankastjóra í farar-
broddi. og reri til fiskjar á báti
sínum Erninum um sl. helgi og
nam aflaverðmætið um 70 þús.
krónum.
Eftir Dagblaðsgreinina hafa
margir haft samband við Ágúst
og rifjað upp gömul kynni,
.honum til mikillar ánægju.
Einnig hringdi móðir Helga
Tómassonar og bauð Ágústi á
listahátíðina þar sem Helgi
mun dansa, en hún er systir
Frímanns heitins Helgasonar
sem reyndist Ágústi manna
bezt á erfiðustu stundum hans.
Friðrik Ársæll Magnússon í
Njarðvíkunum og sparisjóður-
inn í Keflavík veita söfnunarfé
til Ágústs móttöku.
emm
Jóhanna Njálsdóttir og Berti Möller horfa á Ásmund Kristján sem
ætlar áreiðanlega að verða lögregluþjónn ef hann verður nógu stór til
þess.
VILL OPNA AFGREIÐSLUR í
NÆSTU BYGGDARLÖGUM
Óskir hundraða Suðurnesja-
manna, sem skipta við sparisjóð-
inn í Keflavík, um að fá af-
greiðslustaði í nágrannabyggðun-
um fara að öllum líkindum að
rætast bráðlega. Sparisjóðurinn i
Keflavík hefur nýlega sótt um
leyfi til Seðlabankans um að fá að
opna afgreiðslustofnanir í Garði,
Njarðvíkum og Grindavík, en það
hefur lengi verið mjög aðkallandi
fyrir sparisjóðinn að geta þjónað
hinum mörgu viðskiptavinum
sínum á þessum stöðum og ekki
nema réttlátt að sparisjóðurinn
verji einhverju af tekjum sín-
um til bættrar þjónustu við við-
skiptavini sína.
Viðskipti sjóðsins hafa farið
mjög vaxandi undanfarin ár.
Veltuaukningin á sl. ári var 65%
og sparifjáraukningin var 49% á
sama tíma og landsmeðaltal í
bankakerfinu var 28%. Spari-
sjóðsbækur eru orðnar yfir 10
þúsund og árið 1975 veitti spari-
sjóðurinn 1806 viðskiptamönnum
fyrirgreiðslu að upphæð 343,3
milljónir á móti 600 fyrir-
greiðslum árið 1974. Velta sjóðs-
ins var 10.8 milljarðar á síðasta
ári.
Sparisjóðsstjórar eru tveir,
þeir Páll Jónsson og Tómas
Tómasson
emm
Kvenskór
Verðkr. 3.570.-
Litir: Brúnt — svart
(GERVIEFNI)
Laugavegi 59 simi 16850.
Miðbæjarmarkaði —simi 19494.