Dagblaðið - 25.05.1976, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976.
■HH
Marteinn Geirsson, hinn sterki
miðvörður Fram og landsliðsins,
hélt í gær til Belgíu til að ræða við
forráðamenn belgísks knattspyrnu-
félags um atvinnumannasamning.
Hér er einungis um viðræður að
ræða og alls óvíst hvort Marteinn
fer í atvinnumennskuna, könnunar-
viðræður Marteini að kostnaðar-
lausu.
Félagið sem Marteinn fór til við-
ræðna við er í 2. deildinni belgísku.
Það var fyrir nokkrum árum ofar-
lega í 1. deild en féll. Nú hins vegar
á að gera mikið. Liðið varð ofarlcga
í 2. dcildinni á síðastliðnum vetri.
Viðræður Marteins við hið belg-
iska félag eru í gegnum danska
þjálfarann Jack Johnson, sem
þjálfaði Akureyringa þegar þeir
voru siðast í 1. deild ’74.
Sennilega kemur Marteinn heim
á morgun og leikur með félögum
sinum í Fram gegn Keflavík á
fimmtudag. h halls.
Dregið í riðla
í Montreal!
í gærkvöld var dregið í riðla á
Olympíuleikunum í knattspyrnu í
Montreal, sem fram fara i júlí. Riðl-
arnir eru ákaflega missterkir, til að
mynda lenda saman í riðli Brazilía,
Austur-Þýzkaland, Spánn og
Zambía. Brazilía og Spánn eru með
ákaflegasterklið og hafa báðar þjóð-
irnar farið í kringum lög Alþjóða
Olympiunefndarinnar með reglur
um atvinnumenn. Sama máli gegnir
um A-Þýzkaland, sem tslendingar
þekkja svo vel, en Þjóðverjar nota
svipað lið og mætti okkur í Evrópu-
keppninni.
Hins vegar virðast andstæðingar
okkar úr undankeppninni, Sovét-
menn, eiga auðvelt með að komast
upp úr riðli, mæta Kanada, N-Kóreu
og Ghana.
Drátturinn varð:
Brazilía, Austur-Þýzkaland, Spánn
og Zambia, eru saman í a-riðli.
í b-riðli eru: Mexíkó, Frakkland,
fsrael og Guatcmala, ákaflega tví-
sýnn riðill.
C-riðiIl: Uruguay, Pólland, fran og
Nígería. Olympíumeistararnir
Pólland eru iíklegastir sigurvegarar
í C-riðli.
D-riðilI: Kanada, Sovétmenn, N-
Kórea, Ghana.
Tvö lið fara upp úr riðli.
Töp íslands í
V-Þýzkalandi
fsland lék tvo kvennalandsleiki
um helgina við V-Þjóðvcrja og töp-
uðust báðir. Þó stóðu íslenzku stúlk-
urnar sig framar vonum og spiluðu
oft ágætan handknattleik. Fyrri
leikurinn tapaðist 7-10, en hann fór
fram i Neustadt, sem er lítil borg
skammt frá Hannover. Mörk fslands
í þeim leik skoruðu Oddný Sig-
steinsdóttir og Guðrún Sigþórsdótt-
ir 2 hvor. Þær Arnþrúður Karls-
dóttir, Svanhvít Magnúsdóttir og
Guðrún Sverrisdóttir skoruðu eitt
mark hver.
Síðari landsleikurinn fór fram í
Luneborg og hann tapaðist einnig,
nú með 8-15 eftir að staðan í leik-
hléi hafði verið 8-7 fyrir þýzku
stúlkurnar. En flest gekk úrskeiðis
í síðari hálfleik, víti tapaðist og
nokkrum sinnum small knölturinn í
stöngum v-þýzka marksins. Þá komu
yfirburðir Þýzkalands í Ijós. Mork
fslands skoruðu Svanhvít Magnús
dóttir 2, Arnþrúður Karlsdóttir 2,
Hansína Melsted, Guðrún Sigþórs-
dóttir og Guðrún Sverrisdóttir
skoruðu sitt markið hver.
Ólafur Júlíusson var ákaflega drjúgur liði sínu, ÍBK. Ef allt hefði
verið með felldu hefði Ólafur átt að skora mark eða tvö. Hér sækir
Ólafur að Jóni markverði Þróttar, sem var fyrri til. Steinar Jóhannsson
fylgist með. DB-mynd Bjarnleifur.
á f éll Þi
— Þróttur tapaði fyrir ÍBK1-2 í 1. deil
Enn mátti Þróttur bíta í það
súra epli að tapa í 1. deild fs-
landsmótsins í knattspyrnu. í
gærkvöld tapaði Þróttur sínum
þriðja leik og þá voru það Kefl-
víkingar, sem lögðu nýliðana að
velli 2-1. Þróttur var sízt minna
með boltann. Það voru hroðaleg
varnarmistök, sem kostuð tvö
mörk og hefðu, ef Keflvikingar
hefðu nýtt tækifæri sín betur,
getað kostað fleiri mörk.
Fyrri hálfleikur var jafn, liðin.
skiptust á að sækja en ólíkt var
meiri broddur í sókn Keflvíkinga.
Þeir Ólafur Júlíusson og Gísli
Torfason byggðu vel upp ásamt
hinum unga og ákaflega efnilega
nýliða, Sigurði Björgvinssyni.
Honum hins.vegar hættir til að
einleika um of i stað þess að láta
boltann vinna meir fyrir sig. Iðu-
lega skapaðist hætta við mark
Þróttar, sérstaklega eftir ævin-
týraleg úthlaup unglingalands-
liðsmarkvarðarins Jóns Þor-
björnssonar. Greinilegt að þar á
pilturinn sá ákaflega margt ólært,
þó efnilegur sé.
Fyrra mark Keflvíkina á 35.
mínútu kom eins og þruma úr
heiðskíru loftu. Gísli Torfason gaf
fram bolta á Friðrik Ragnarsson
en miðvörður Þróttar, Leifur
Harðarson var fyrri til í boltann
og engin hætta virtist á ferðum.
Þá kom hreint furðuleg sending
til markvarðar og hinn ungi mið-
herji Keflviícinga, Rúnar Georgs-
son komst í sendinguna og
skoraði þrátt fyrir góða tilburði
Jóns í markinu, 0-1.
Við þetta var eins og dofnaði
yfir Þrótturum og það reyndist
Staðan í íslandsmótinu
Eftir tvær umferðir er staðan í 1.
deild nú:
ÍBK
Valur
KR
ÍA
Vikingur
Fram
FH
Breiðablik
Þróttur
2 0 0 8-2
2 0 0 7-2
110 5-2
1101-0
1
1
1
10 0 12-40
3 0 0 3 2-7 0
1 0
0 1
0 1
2-3
1-3
1-6
Að loknum tveimur umferðum
í 2. deild er staðan:
ÍBV
ÍBÍ
Ármann
Haukar
Völsungur
Þór
KA
Reynir
Selfoss
0 0 3-0 4
105-23
2
2
2 110 5-23
1 1 0 0 4-0 2
012-32
111-2 1
111-5 1
1 1-4 0
2 2-6 0
1
0
0
0 0
0 0
Dómarinn stöðvaði leik-
inn er Dunn lá í 6. sinn
— Muhammad Ali lék sér að brezka Evrópumeistaranum í Munchen í nótt
Muhammad Ali var aftur við
sitt bezta í nótt. Eftir að hann
hafði slegið enska Evrópumeist-
arann Richard Dunn þrívegis
niður í 4. lotu og aftur þrívegis í
þeirri 5. stöðvaði dómarinn
keppni þeirra í Múnchen í nótt,
sem hófst kl. tvö að íslenzkum
tíma vegna sjónvarpsáhorfenda í
Bandarikjunum. Ali hafði al-
gjöra yfirburði í titilleiknum —
sýndi nú allt annan og betri leik
en fyrir mánuði, þegar hann lenti
í taphættu gegn Jimmy Young.
En þó leikurinn væri góður
fyrir Ali, sem fékk eina milljón
dollara í sinn hlut — um 180
milljónir íslenzkar, en Dunn
hlaut 32 milljónir — var hann það
ekki fyrir Þjóðverjana, sem sáu
um framkvæmd leiksins. Klukku-
stund fyrir leikinn voru áhorf-
endur aðeins í helming 13000
sæta í Olympíuhöllinni í
Múnchen. Fjölgaði verulega
síðustu klukkustundina — en þó
langt frá því, sem reiknað hafði
verið með. Dýrustu miðarnir, við
hringinn, kostuðu 70 þúsund
krónur og þar sátu aðallega prúð-
búnar konur í síðum kjólum.
',,Ég er mjög ánægður — ég
æfði svo vel fyrir þennan leik,”
sagði AIi í sjónvarpsviðtali eftir
leikinn. „Þessi maður — Dunn —
á eftir að vera í fremstu röð lengi.
Eg vil gjarnan keppa við hann
aftur — hann á það skilið,” sagði
Ali. Hinn 31 árs Dunn, sem var
nær öþekktur boxari fyrir ári, var
spurður hvort Ali hefði meitt
hann og svaraði: „Já, tvö högg
hans voru ógnarleg. Auðvitað
varð ég fyrir vonbrigðum — en ég
vona að ég fái annað tækifæri. Ég
er nógu sterkur. En Ali sýndi það
í nótt, sem hann hefur alltaf sagt
— að hann er/„The greatest” —
sá mesti.”
Strax í byrjun hóf Dunn sókn
— „það er hið eina, sem ég þekki í
boxi, stefna áfram og berjast,”
sagði hann eftir á. Hann kom inn
vinstri handar höggum í hverri
lotu — en hægri handar högg Alis
lentu á höfði Dunn og með þeim
skoraði hann stigin. Þriðja lotan
var þó jöfn. „Ég hélt að þetta yrði
auðveldara — ég vissi ekki að
hann var svona þunghöggur. Ég
hélt hann mundi hlaupa og
hlaupa, en hann óttast greinilega
ekkert.” sagði Ali. I hringnum
dansaði Ali — var miklu léttari
en á dögunum en gegn Young, eða
um 100 kíló, sex kílóum þyngri en
Dunn!
„Ali vann tvær fyrstu loturnar á
stigum — naumlega þó — en
bezta lota Dunn var sú þriðja. Þá
kom hann nokkrum vinstri
handar höggum á Ali, tvívegis
fylgt eftir með þeirri hægri. Ali
varð þá að fara út í kaðlana og
verjast. Jöfn lota. En í þeirri
fjórðu tók Ali völdin í sínar
hendur — virtist geta komið
höggi á enska áskorandann, þegar
hann vildi. En við skulum nú
aðeins fara yfir loturnar fimm.
1. lota. Dunn var fyrri til að slá,
en fór svo í hringi þegar Ali dans-
aði í kringum hann. Sá enski
hrakti Ali í eitt hornið og kom
þremur vinstri handar höggum á
rif Alis. Ali svaraði með „langri”
hægri, vinstri í magann — og
skæðadrífu af höggum. Fékk þó
eitt í andlitið, því Dunn hélt
áfram að sækja. Lota Alis.
2. lota. Kapparnir beinlínis
hlupu inn á miðju hringsins — og
þrjú vinstri handar högg Dunn
lentu framan í Ali. En meistarinn
mikli skoraði stigin með þeirri
hægri. Dunn riðaði um tíma á
fótunum, en náði sér fljótt á strik
aftur. Við bjölluhljóminn fékk
Dunn högg á kjálkann. Lota Alis.
3. lota. Ali dansaði — Dunn
steig þungt niður — og kom allt í
einu miklu höggi á kjálka Alis —
hrakti hann út í kaðlana, en Ali
slapp. Kom síðan báðum hönzkum
á kjálka Dunns — og upperkutti
og sótti mjög í lok lotunnar. Jöfn
lota.
4. lota. Enn dansaði Ali — sá
enski óð áfram. Hægri handar
högg lenti á Dunn, sem tók taln-
ingu að átta. Þá byrjaði hann líka
að dansa — en það var stutt.
Skæðadrifa á höfuð áskorandans
og hann var illa meiddur. önnur
og aftur talning — nú aðeins að
fjórum. Þá stóð Dunn upp aftur
— en Ali sendi hann strax I gólf-
ið. Talning að átta. Dunn var enn
uppistandandi í lok lotunnar —
illa særður. Lota Alis.
5. lota. Ali benti á gólfið, þegar
lotan hófst: „Nú færðu að liggja,”
en Dunn elti hann. Lifði á kjark-
inum eins og hann hafði lofað. Ali
fór í kaðlana — beið opnunar, en
lét Dunn berja sig í rifin. Þá kom
Ali með vinstri handar högg I
maga Dunn og fylgdi eftir með
þeirri hægri á kjálkann. Grrfni-
legt að Dunn gat fallið hvenær
sem var. Hægri aftur, síðan sú
vinstri hjá meistaranum. Dunn
féll — en stóð upp á níu. Féll
strax aftur við fyrsta högg Alis.
Stóð aftur á fætur á átta — en Ali
kom honum strax í gólfið, vinstri,
hægri. Dunn reyndi að standa á
fætur, en dómarinn Herbert.
Thomser greip inn í. Öllu lokið —
Ali sigraði á tæknilegu rothöggi.
Sautjón ára
yngsti
liðsmaðurinn í badm
Fimmtudaginn 27. maí heldur
íslenzka landsliðið í badmin|on
til Færeyja og leikur landsleik
við Færeyinga 27. maí í Þórshöfn
og verða leikirnir fimm einliða-
leikir og tv.eir tviliðaleikir.
Eftirtaldir menn leika fyrir
Island:
Friðleifur Stefánsson fyrirliði,
Sigurður Haraldsson, Haraldur
Kornelíusson, Sigfús Ægir Arna-
son, Steinar Petersen og Jóhann
Kjartansson. Jóhann er eini
nýliðinn í landsliðinu og um leið
yngsti leikmaður sem leikur
landsleik fyrir Island í bad-
minton, aðeins 17 ára. Þetta
verður annar landsleikur þessara
þjóða. Hinn fyrri fór fram hér i
Reykjavík 31. október 1975 og
lauk með sigri tslands 5:0.
Þessi landsleikur við
Færeyinga verður 4. landsleikur
íslendinga í badminton, áður
höfum við leikið við Norðmenn og
Finna. Þegar landskeppnin við
Færeyinga fór fram hér cl. haust,
komu Færeyingar með veglegan
bikar til að keppa um í lands-
keppni og er hann gefinn af