Dagblaðið - 25.05.1976, Qupperneq 24
VAR OLOGRAÐA
ÞEGAR HANN
SAMÞYKKTIVÍXIUNN
Nokkur
hundruð þús.
kr. víxill
Ciecielskis:
Hvaða viðskipti liggja til grundvallar?
Rannsókn beinist nú að
viðskiptum, sem liggja til
grundvallar 400 þúsund króna
vfxli, sem Sævar M- Cieci-
elski er samþykkjandi að.
Hefur lögmaóur hór f borginni
gert kröfu til greiðslu hans, en
ekki er ljóst, hvernig háttað
er viðskiptum, sem að baki
þessa vlxilseru.
Vitað er, að lögmaðurinn
veitir forstöðu fasteignasölu í
Reykjavík. Er ekki vitað, hvort
hún kemur við sögu, beint eða
óbeint. Hins vegar bendir
ekkert til þess, að
samþykkjandinn hafi átt nein
fasteignaviðskipti. Mun Sævar
t.d. hafa verið ólögráða, þegar
hann samþykkti ofangreindan
vfxil.
Dagblaðið skýrði frá því
nýlega, að könnun stæði yfir á
hugsanlegum fjármála-
tengslum, sem varpað gætu
ljósi á hin óhugnanfegu saka-
mál, sem mikið hafa verið rædd
undanfarna mánuði. Meðal
annars hefur verið rætt um
könnun ávisanaviðskipta 1
Seðlabankanum að beiðni saka-
dóms. Ekki var sakadómur
talinn hafa stjórn þeirrar
könnunar með höndum.
Rökstuddur grunur leikur á,
að óheimilar upplýsingar „leki
út“, í hvert skipti sem skyndi-
könnun er gerð á inni-
stæðulausum tékkum. Sjálfsagt
hlýtur að þykja, að sakadómur
hafi með höndum stjórn
könnunar, sem þeirrar, sem hér
um ræðir, hvort sem sá grunur
er réttur eða ekki.
Þess má að lokum geta, að nú
er f athugun réttarstaða Sævars
M. Ciecielskis með tilliti til rfkis-
fangs hans. Kann að vera að
hann hafi, eða geti öðlazt
bandarískan rikisborgararétt,
þegar hann nær 21 árs aldri
hinn 6. júlf næstkomandi. Faðir
Sævars er Bandarikjamaður en
móðir hans íslenzk.
-BS-
Fiskvinnslustöðvar
í yfirborganakapphlaupi:
Uppboð
ó humrinum
— segir forstjóri
Fiskiðjunnar í Eyjum
„Humarinn er á uppboði f dag í
raun og veru, þrátt fyrir ákveðin
opinber verð og gengur
kapphlaupið um humarinn svo
langt að vinnslustöðvar eru
jafnvel farnar að bjóða í afla báta
ákveðið verð, áður en þeir hafa
hugmynd um væntanlegt
raunverulegt verð,“ sagði Guð-
mundur Karlsson, forstjóri Fisk-
iðjunnar í morgun, er hann var
spurður um viðbrögð í kjölfar
þess að nokkrir Vestmannaeyja-
bátar hafa nú siglt með afla sinn
til meginlandsins, þar sem þeir fá
betra verð en f Eyjum.
Guðmundur sagði að Fiskiðjan
flokkaði humarinn eftir gildandi
reglum og væri það misskilningur
að vélflokkunin, sem fyrirtækið
notar, flokkaði óeðlilega mikið
magn í annan flokk.
Er DB náði f Guðmund í
morgun, var hann nýstiginn í
land úr Herjólfi og sagðist ekki
vera nægilega vel inni í stöðunni
það augnablikið, spurningin væri
aðeins hvort menn væru til í
þennan verðslag eða ekki það yrði
hver og einn að gera upp við sig.
-G.S.
INÚKAR
AFTUR
HEIMA!
Það mátti sjá mörg glöð andlii
á Hótel Loftleiðum i morgun, er
þar voru komin börn leikaranna i
ínúk-leikflokknum að taka á móti
pabba og mömmu.
Leikförin tii Suður-Ameríkt;
hefur staðið 5 vikur og alls vai
leikurinn sýndur 22 sinnum m.a
í Caracas, Panama, Costa Rica,
Columbíu.
„ínúk á mikið erindi til þessars
landa vegna þess að þar eigs
Indíánar við sömu vandamál a<
stríða og fengizt er við í leik
ritinu,“ sagði Brynja Benedikts
dóttir eftir mjög vel heppnaða
ferð.
—KP
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJÚDAGUR 25. M^l 1976.
W
r
A
r
V
W
AFSAKIÐ!
Við vorum stœrri
enþetta!
Upplag Dagblaðsins þraut
að mestu á afgreiðslu
blaðsins 1 gærdag. Þó voru
prentuð 27.700 eintök I
prentsmiðju Arvakurs h.f.,
— 500 eintökum meira en
sagt var á forsiðu. Við
biðjumst afsökunar á
röngum upplýsingum þar.
Nauðsyn bar til að auka
upplagið frá þvf sem ákveðið
hafði verið.
Dagblaðið hefur enn
aukið talsvert upplagið með
hækkandi sól. Blaðið er
prentað í 21—22 þús.
eintökum daglega, en 26—28
þús. eintökum á
mánudögum.
Dagblaðið hefur frá
byrjun verið næststærsta
blað landsins.
—JBP—
Akureyri:
Heljarstökk
í stöllum
kirkjubrekku
Sextán ára piltur flaug í
gærkvöldi fram af
stöllunum við Akureyrar-
kirkjú á léttbyggðu mótor-
hjóli sfnu. Hófst ökuferðin
efst á brekkubrún, en á
öðrum stalli fór pilturinn
kollhnfs með hjólið I
klofinu. Lögreglan var
kvödd á vettvang kl. 21.40.
Pilturinn var fluttur
slasaður i sjúkrahúsið, en
um meiðsli hans vissi
lögreglan ekki gerla. Við
skoðun á hjólinu kom í ljós
að það var nær hemlalaust.
Ekki er með fullu vitað,
hvort hér var um hreint slys
að ræða að pilturinn lenti
niður brekkuna, eða hvort
hann var að því í leikara-
skap.
-ASt.
„EKKERT AÐ FELA"
— segja þeir hjá Dagsbrún
„Ég hélt að þessi félagsmaður
væri búinn að fá nóg af dylgjum
sínum um Dagsbrún,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson,
varaformaður Dagsbrúnar, er
Dagblaðið leitaði upplýsinga
vegna ummæla sem höfð eru eftir
Böðvari Indriðasyni undir ofan-
ritaðri fyrirsögn í gær.
Guðmundur kvað Verkamanna-
félagið Dagsbrún hafa verið
fyrsta verkalýðsfélagið sem tók
það upp i sín lög að hafa löggiltan
endurskoðanda. „Siðan eru nú
liðin yfir 30 ár,“ sagði
Guðmundur. Hann sagði að lög-
giltur endurskoðandi annaðist
alla endurskoðun og fjármálalegt
eftirlit hjá félaginu.
1 lögum félagsins er ákveðið, að
reikningar skuli liggja frammi á
skrifstofu félagsins í viku fyrir
aðalfund. Þar geta félagsmenn
skoðað þá. Óski þeir skýringa,
geta þeir fengið þær hjá starfs-
mönnum Dagsbrúnar. Ef þeir
sætta sig ekki við þær skýringar,
er kvaddur til endurskoðandi,
sem er skyldugur að gefa þær.
A aðalfundi er dreift útdrætti
úr reiknii-gunum, þar sem grein
er gerð fyrir tekjum og gjöldum á
reikningsárinu og efnahagsstöðu.
„Böðvar Indriðason óskaði
aldrei skýringa á reikningum.
Þær hefði hann að sjáifsögðu
fengið. Hins vegar krafðist hann
þess að fá ljósrit af frumriti
endurskoðanda. Eg, sem varafor-
maður félagsins, varð til þess að
synja þeirri kröfu. Eðvarð
Sigurðsson formaður kom þar
ekki nærri,“ sagði Guðmundur J.
Guðrnundsson.
,,A aðalfundinum voru reikn-
ingar lesnir og skýrðir að venju.
Frá Böðvari Indriðasyni kom
engiti athugasemd eða fyrirspurn,
og voru reikningarnir samþykktir
mótatkvæðalaust," sagði
Guðmundur. „Það er ekki venja
forystumanna Dagsbrúnar að
vera að elta uppi sina félagsmenn
í dagblöðum, en þessi félagslega
framkoma Böðvars Indriðasonar
gefur tilefni til að ætla, að eitt-
hvað annað en hollusta við félagið
vaki fyrir honum," sagði
Guðmundur. „Hann virðist hafa
þann áhuga einn að rægja æruna
af sínu eigin verkalýðsfélagi.“
Þess má geta, að Böðvar
Indriðason kærði reikninga Dags-
brúnar fyrir 2—3 árum. Var
kæran rannsökuð hjá sakadómi
að fyrirlagi ríkissaksóknara og
öllum atriðum hennar vísað frá.
„Böðvar hirðir ekki um að not-
færa sér heimildir félagslaga tii
athugunar á reikningum. Vilji
hann endurtaka fyrri tilraunir,
má hann vita, að Dagsbrún hefur
ekkert að óttast í því sambandi,“
sagði Guðmundur J. C.uðmunds-
son að lokum.
—BS
Uppselt á nokkur
atriði Listahátíðar-
innar nú þegar
„Það er ótrúlega jöfn sala á
hin ý'msu atriði listahátíðarinn-
ar,” sagði Guðríður Þórhalls-
dóttir, sem hefur umsjón með
miðasölu hátíðarinnar í samtali
við Dagblaðið. „Þetta kemur
manni svolítið á óvart, vegna
þess að úr svo miklu er að
velja."
Söngkonan Anneliese
Rothenberger virðist vera vin-
sælust af því sem á boðstólum
er, því miðar á söngskemmtun
hennar seldust fyrst upp. Þá er
uppselt á fyrri daginn sem fær-
eysku leikararnir koma fram,
fáeinir miðar voru eftir á tón-
leika Benny Goodman. Eftir
voru miðar á efri svöium Þjóð-
leikhússins þegar Helgi Tómas-
son dansar þar, en það er 5. og
6. júní. Þá var uppselt I Þjóð-
leikhúskjallaranum á sýning-
una Sizwe bansi ar död 12. og
13., en til miðar á þriðju sýning-
una sem er 16. júni. Þá var-
uppselt á sýningu Leikfélags
Reykjavíkur i Iðnó á Sögu dát-
ans 7. júni, en alls verða fimm
sýningar á því verki.
Miðar á aðra viðburði hátið-
arinnar eru enn til og miðasal-
an er opin daglega frá kl. 4—8
síðdegis, einnig laugardaga og
sunnudaga, en þó ekki á upp-
stigningardag (næstk. fimmtu-
dag).
— A.BJ.
;■
v
W