Dagblaðið - 09.06.1976, Side 8
„MITT MESTA YNDI
ER AÐ ÆFA MIG"
.
— segir
Michola Petri,
sem f erðast
16 klst. leið
frá Danmörku
til Þýzkalands
íflaututíma
^ —y
„ísland er yndislegt og það er
ofsagaman að fá að koma hing-
að,“ sagði Michala Petri, heims-
frægur flautuleikari, þegar
blaðamáður Dagblaðsins heim-
sótti hana og fjölskyldu hennar
í Norræna húsinu, en þau eru
hér á tónleikaferð í tilefni lista-
hátiðarinnar.
Þau eru tvö systkinin
Michala 17 ára og David 14 ára,
sem ásamt móður sinni mynda
Michala-flaututríóið. Þau héldu
sinn fyrsta konsert í gærkvöldi,
en áður ferðuðust þau lítið eitt
til Krísuvíkur og nágrennis.
Þau eru yfir sig hrifin af land-
inu og hlakka til að sjá meira,
en á fimmtudag halda þau til
Gullfoss og Geysis og á föstudag
verða tónleikar á Akureyri.
Michala er hnyttin, brosmild
og elskuleg stúlka, sem auð-
sjáanlega nýtur lífsins til fulln-
ustu, þó eflaust sé það oft erfitt
fyrir svo unga stúlku að vera
heimsþekktur einleikari.
,,Eg byrjaði að spila á blokk-
flautu þegar ég var þriggja
ára,“ segir hún. „Það greip mig
strax og ég helgaði tónlistinni
allar mínar stundir. Ég sótti
skóla heima í Danmörku í fjög-
ur ár en skyldunámið er níu ár.
Eftir það fékk ég einkakennslu
til að geta sinnt tónlistinni bet-
ur. Tíu ára byrjaði ég i tímum
hjá Ferdinand Conrad próf-
essor í Hannover, og hefur
hann verið kennari minn síðan.
Fyrst í stað fór ég einu sinni í
viku í tíma, en það var erfitt
því það tekur átta tíma að aka
hvora leið frá heimili okkar í
Kaupmannahöfn og til
Hannover. Nú orðið sæki ég
tíma einu sinni í mánuði. Ég fæ
ekki að taka einleikarapróf fyrr
en ég er orðin átján ára, en
þangað til er bara um að gera
að æfa sig nóg. Yfirleitt fara
milli sjö og átta tímar á dag í
æfingar hjá mér. Mig langar að
ferðast um sem einleikari, en
reikna með að verða að kenna
líka til að geta séð almennilega
fyrir mér,“ segir hún að lokum.
David er karlkyns fulltrúinn
í tríóinu og hefur auðsjáanlega
lært af reynslunni að láta kven-
fólkinu eftir orðið, því hann
hafði frekar lítið til málanna að
leggja. Hann sagði okkur þó að
hann hefði spilað á sellóið frá
tíu ára aldri og fyrsti kennari
hans var Gunnar Kvaran. Nú
stundar hann nám í tónlistar-
skóla í Kaupmannahöfn, auk
þess sem hann á eftir tvö ár af
almenna skyldunáminu. Hann
stefnir að því, eins og systir
hans, að verða einleikari og ætl-
ar eingöngu í tónlistarnám að
lokinni skylduskólagöngu.
„Þetta er mikil vinna og álag
oft á tíðum," segir móðir þeirra,
Hanna Petri, en hún annast
semballeikinn í tríóinu. ,,En
það er fyrir öllu að krakkarnir
lifa fyrir tónlistina og hafa
mesta löngun til að æfa sig og
spila. Þau loka sig þó ails ekki
inni eða einangra sig, heldur
eiga sína vini og kunningja,
skreppa í bíó og leikhús og gera
yfirleitt það sem þau hafa löng-
un til. Nú þegar við komum
heim verður tónleikahald allt
fram í júlí, en þá tökum við
okkur sumarfrí og svo byrjar
önnur vertíð í ágúst.“
Frú Hanna Petri er lærður
píanóleikari, en tók til við
sembalinn þegar börn hennar
fóru að þarfnast undirleikara.
Hún var m.a. samtíða Guðrúnu
Kristinsdóttur við tónlistarnám
í Kaupmannahöfn og Vin. Auk
þess að vera meðlimur tríósins
kennir hún hljóðfæraleik.
Michala-tríóið hefur fengið
frábæra dóma hvarvetna og
hefur Michala jafnvel verið
nefnd heimsmeistari í blokk-
flautuleik. Aðrir tónleikar
þeirra verða í Norræna húsinu
í kvöld kl. 20.30. Þau munu
dveljast hér fram á sunnudag.
—JB
DAGBl.AÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 9. JCNÍ 1976
Hver ó mig?
A myndinni eru talið frá vinstri: David, Michala, frú Petri og hr. Gommans.
Sverrir
og Tómas
forstjórar
Stjórn Framkvæmdastofnunar
ríkisins hefur samþykkt að gera
þá tillögu til ríkisstjórnarinnar að
Sverrir Hermannsson og Tómas
Árnason verði skipaðir forstjórar
Framkvæmdastofnunarinnar. Þá
var samþykkt að Guðmundur B.
Ólafsson, sem verið hefur for-
stöðumaður lánadeildar, verði
skipaður framkvæmdastjóri lána-
deildar. Ennfremur var samþykkt
að Bjarni Bragi Jónsson, forstöðu-
maður áætlanadeildar, verði sett-
ur framkvæmdastjóri þeirrar
deildar til 1. september næstkom-
andi.
Þess má geta að ríkisstjórnin
skal skipa forstjóra Fram-
kvæmdastofnunar og fram-
kvæmdastjóra einstakra deilda
hennar samkvæmt tillögum
stjórnarinnar.
—BA
Hún Valgerður Gunnarsdóttir í
Barmahlíð 17 fann þennan
hvolp á förnum vegi núna á
dögunum. Nú er bara að vita
hver eigandinn er.
DB-mynd Björgvin
„ÞAU ERU SVO VEL
SKRIFUÐ, EINS 06
EFTIR KENNARA"
— sagði Gísli Gíslason sem fann gömul skjöl
í Bernhöftstorfunni
„Eg fór bara þarna inn í skúr-
inn af forvitni og þá fann ég þessi
skjöl. Ég tók bara nokkur, hin
hafa farið á öskuhaugana," sagði
Gísli Gíslason.
Gísli var hjá föður sínum, Gisla
Fedínandssyni skósmið í Lækjar-
götunni, og í leiðinni labbaði
hann upp að skúrnum sem brann
en hann var á bakvið gamla land-
læknishúsið að Amtmannsstíg 1.
Þar var verið að ýta honum
niður og að sögn Gísla var þarna
mikið af alls konar skjölum. Ilann
tók nokkur með sér og kom með
þau og sýndi okkur. Þetta eru
'skjöl frá árunum um aldamótin,
orðin gul og þvæld. Við litum í
gegn um þau og sum voru merkt
sem trúnaðarmál og auðvitað
voru þau á dönsku.
„Þetta hlýtur að vera eitthvað
merkilegt og svo eru þau svo vel
skrifuð, alveg eins og eftir
skriftarkennara." sagði Gísli.
„Þegar við pabbi fórum að skoða
þetta, þá sáum við nafn eins
manns sem er frændi okkar, það
var gaman að þvi að þekkja ein-
hvern, þvi það er minnst á margt
fólk i skjölunum.”
— KP.
Gísli Gislason kom með skjalahunka á ritstjórn Dagblaðsins og sýndi
okkur.