Dagblaðið - 09.06.1976, Side 13
Markvörður Vikings Diðrik Ólafsson sýndi mikið öryggi í allri markvörzlu sinni í gærkvöld. Hér grípur hann örugglega sendingu fyrir markið.
Arni Guðmundsson er við öllu búinn og af svip Róberts má lesa, ailt í lagi, Diddi á þennan. Annars er það í frásögur færandi að Víkingur hefur
leikið við Reykjavíkurfélögin F'ram, KR og Val og hlotið 4 stig — helmingi fleiri stig en í viðureign Víkings við þessi lið á öllu keppnistímabilinu i
fyrra! DB-mynd Bjarnleifur.
Þrumufleygur, og fyrsta
tap KR varð staðreynd!
— Yíkingur sigraði KR 2-1 í 1. deild á Laugardals velli
Hvílíkt mark! Það var á 18.
mínútu síðari hálfleiks í leik Vík-
ings og KR í 1. deild ísiandsmótsins
i gærkvöld að Víkingar fengu horn-
ípyrnu. Stefán Halldórsson tók
hornspyrnuna, gaf vel inn í teiginn.
Hinir sterku varnarmenn KR sköll-
uðu frá beint fyrir fætur Gunnlaugs
Kristfinnssonar.sem stóð rétt fyrir
utan vitateig. Hann var ekkert að
tvínóna við hlutina drengurinn,
heldur skaut viðstöðulaust þrumu-
skotj neðst í hægra markhornið,
óverjandi fyrir Magnús Guðmunds-
son markvörð KR. Magnús hreyfði
vart legg eða lið enda krafturinn í
skotinu siíkur að ekki festi auga á
— knötturinn bara lá í netinu.
Þau gerast ekki öllu glæsilegri
eða fastari skotin þó víða sé leitað.
Þetta glæsilega mark færði Víkingi
sigur gegn KR, 2-1, í jöfnum leik þar
sem sigurinn gat lent hvoru megin
sem var. Jafntefli ef til vill rétt-
látust úrslit.
Já, leikurinn í gær var milli
þeirra liða sem fæstum stigum hafa
tapað, utan Vals. KR enn ósigrað,
Víkingur tapaði tveimur stigum
fyrir Val. Enda bar leikurinn ke. n
af þvi. Harður og mikil barátta á
miðjunni einkenndi leikinn, sem á
köflum var vel leikinn.
Víkingar voru aðgangsharðari ef
eitthvað var og það var Víkingur,
sem tók forystu í fyrri hálfleik.
Eiríkur Þorsteinsson lyfti knettin-
um yfir vörn KR, Öskar Tómasson
var einn á auðum sjó og skoraði
fram hjá Magnúsi, sem kom úl á
móti. Vel gert hjá Öskari en litlu
munaði að Magnúsi tækist að verja i
öllu falli kom hann við boltann en í
netið fór hann.
Fátt var um góð marktækifæri í
fyrri hálfleik, þó skömmu eftir
markið var Jóhann Torfason einn
frír og skallaði frá markteig en Dið-
rik Ólafsson markvörður Víkings
varði vel.
Í byrjun síðari hálfleiks voru Vík-
ingar mun frískari og einhverjum
varð að orði að nú mundu Víkingar
kafsigla KR-inga. En hvernig er
ekki knattspyrnan! KR skoraði í
sínu fyrsta upphlaupi, að talist gat í
síðari hálfleik. Það var á 12. mínútu
að Sigurður Indriðason, bakvörður
KR gaf háan bolta að marki Víkings.
Róbert Agnarsson missti knöttinn
yfir sig og Jóhann Torfason komst
innfyrir og skoraði fram hjá Diðrik,
sem kom hlaupandi út, nokkuð
slysalegt hjá Víkingum. en 1-1.
Það var síðan á 18. mínutu að
draumamark (iunnlaugs kont, það
eitt út af fyrir sig verðskuldaði sigur.
KR fékk gullið tækifæri til að jafná
skömmu síðar. Eftir hornspyrnu
skaut Hálfdán Örlygsson rétt fram
hjá en smám saman náðu Víkingar
betri tökum á leiknum og fyrsti
ósigur KR í Islandsmótinu stað-
reynd, Víkingur — KR 2-1.
Þessi leikur í gærkvöld var aðeins
þriðji leikur Víkings í íslandsmót-
inu. Liðið hefur aðeins tapað
tveimur stigum, stigi minna en
Valur. Greinilegt er að Víkingur
verður í efri helming deildarinnar í
ár, liðið er ákaflega heilsteypt og
mikill styrkur var liðinu að Stefán
Halldórsson, sem ekki hefur leikið
vegna meiðsla, kom inn. Þrátt fyrir
að Stefán stingi við fæti og væri
greinilega ekki búinn að ná sér
skerpti hann sókn Víkings mikið.
Helgi ,,Basli“ Helgason var í leik-
banni og Adolf Guðmundsson tók
stöðu miðvarðar, við hlið Róberts.
Adolf átti skínandi leik, útsjónar-
samur leikmaður. Hins vegar var
Róbert Agnarsson óöruggur og ólík-
ur sjálfum sér.
Þrátt fyrir sitt fyrsta tap í ís-
landsmótinu má ljóst vera að mikil
framför hefur verið í KR-liðinu und-
anfarið. Liðið saknaði greinilega
fyrirliða síns, Halldórs Björnssonar
og kom það illa niður á baráttunni
um miðjuna, hana unnu Víkingar.
Hins vegar styrkir endurkoma
Halldórs KR mikið og ljóst má vera
að KR verður í efri helming 1.
deildar.
Dómari leiksins var Valur Bene-
diktsson. Honum fórst dómgæzlan
illa úr hendi. Valur hefur ákaflega
litla yfirferð — enda að nálgast
fimmtugsaldurinn.
h.halls.
Hart verður barizt
í 2. deild í kvöld
Þrír leikir verða háðir i kvöld í
2. deild fslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Þeir eru í 5. umferð ís-
landsmótsins — þegar hafa leikið
í 5. umferð Völsungur og KA,
1—3.
A Laugardalsvellinum mætast
efstu liðin í 2. deild — Armann
og ÍBV, ekki er að efa að hart
verður barizt. Armenningar
hyggja á stóra hluti í sumar en
ljóst er að ÍBV ætlar sér ekkert
minna en 1. deiidarsæti næsta
sumar.
A Selfossi mætast botnliðin í 2.
deild — Selfoss og Re.vnir. Sel-
fyssingar hafa þegar hlotið stig —
hins vegar á Re.vnir enn eftir að
fá stig í hinni hörðu baráttu 2.
deildar.
Loks mætast á Akureyri Þór og
Ilaukar. Við talsverðu hefur verið
búizt af báðum liðum, sem þó ef
til vill hefur ekki alveg rætzt. En
aðeins fjórar umferðir eru búnar,
12 eftir og því allt opið enn.
Vormót ó
Akureyri
Akureyri 5. júní 1976
f siðustu viku og nú um
helgina var háð vormót
yngri flokkanna á Akureyri.
(Jrslit urðu £em hér segir:
6. flokkur
KA — Þór (a-lið) 1
KA — Þór (b-lið) 0
KA — Þór (c-lið) 0
5. flokkur
KA — Þór (a-lið) 3
KA — Þór (b-lið) 1
KA — Þór (c-lið) 1
4. flokkur
KA — Þór
3. flokkur
KA — Þór
2. flokkur
KA — Þór
0-4
1-2
4-0
KS vann
Árroða
5. júní 1976. Siglufjarðar-
völlur. 3. deild. KS — Ar-
roðinn.
Úrslit leiksins urðu þann-
ig að Siglfirðingar skoruðu
þrívegis en liðsmönnum
Arroða tókst aðeins að skora
eitt mark. Heimamenn áttu
nokkur stangarskot og sóttu
mun meira en andstæðingar
þeirra. Að öllum líkindum
munu Siglfirðingar verða
með í baráttunni um efsta
sæti 3. deildar.
A laugardaginn áttu
einnig að leika Magni,
Grenivík. og UMSS, Ung-
mennasamband Skaga-
fjarðar en þeim leik var
frestað til mánudagsins 7.
júní. St.A.
Enski lands-
liðshópurinn
gegn Finnum
Don Revie, landsliðsein-
valdur enskra í knattspyrn-
unni, valdi í gær landsliðs-
hóp í HM-leikinn gegn
Finnum síðar í þessum
mánuði. Hann bætti Poul
Madeley, Leeds, í hópinn —
en þeir Roy McFarland,
Derby, og Phil Neal, Liver-
pool, féllu úr.
Eftirtaldir leikmenn voru
valdir: Clemence, Keegan,
Thompson og Kennedy,
Liverpool, Greenhoff, Hill
og Pearson, Manch. Utd.,
Doyle, Corrigan og Royle,
Manch. City, Francis og
Clement, QPR, Cherry og
Madeley Leeds, Rimmer,
Arsenal, Mills, Ipswich,
Todd, Derby, Brooking,
West Ham, Channon,
Southampton, Taylor, C.
Palace og Wilkins, Chelsea.
PUMA
fótboltaskór
10 gerðir
Verð frá kr. 3.100.-
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Hólagarði,
Breiðholti,
sími 75020.
KÍapparstíg 44.
Simi 11783.