Dagblaðið - 09.06.1976, Page 15
P.V’BLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGIIR 9. JÚNt 1976
15
4. skoðanakönnun Dagblaðsins: Finnst þér, að (slendingar
eigi að vera áf ram í Atlantshafsbandalaginu?
„Allt í lagi að
hrœða þá svolítið"
Mönnum þótti Joseph Luns, framkvæmdastjóri NATO, ekki stórtækur í landhelgismálinu.
„Já, en það er allt í lagi
að hrœða þó svolítið.”
(Karl í Keflavík).
„Við eigum að nota
Atlantshafsbandalagið til
að knýja ó um hagstœða
lausn landhelgismólsins”
(Karl á Reykjavíkur-
svœðinu).
„Já, vegna þess að því er
ósvarað, hvort við
gœtum staðið einir og
frjálsir án þeirrar aðild-
ar.” (Karl á Reykjavíkur-
svœðinu).
„Ég get ómögulega
komið auga á, hvað við
höfum í NATO að gera.”
(Kona á Reykjavíkur-
svœðinu).
„Ég var þessu fylgjandi
en er orðin mjög
óákveðin ná.” (Kona á
Akureyri).
„Við spekúlerum nú
mest í rollurössum hér
um þessar mundir.”
(Kona í sveit).
„Ég er eindregið með því
að íslendingar taki þátt í
vestrœnni samvinnu.”
(Karl í sveit).
„Já, en ég tel nauðsyn-
legt, að við endurskoð-
um stöðu okkar innan
bandalagsins.” (Kona á
Reykjavíkursvœðinu).
„Nei, NATO brást okkur í
íandhelgismálinu.” (Karl
á Reykjavíkursvœðinu).
Þetta eru nokkur dæmi um
athugasemdir, sem fólk lét
fylgja svörum sínum í skoðana-
könnun Dagblaðsins um aðild
að Atlantshafsbandalaginu.
Hringt var í 300 manns, 150
konur og 150 karla, og voru 150
á Reykjavíkursvæðinu og jafn-
margir úti á landi. Með þessu
móti er unnt að fara nærri um
skoðanir almennings, svo að
ekki á að skakka nema nokkr-
um prósentum. Hringt var í
númer á ákveðnum stöðum í
símaskrá.
Karlar eindregnari
NATO-sinnar.
Stuðningsmenn NATO
reyndust i meirihluta. Þó var
tæpur fimmtungur þeirra, sem
við var talað óákveðinn, svo að
fylgi við NATO náði ekki 50 af
hundraði. Alls voru rúmlega 43
af hverjum 100 fylgjandi
NATO, 31 af 100 andvígur og
tæplega 24 af hverjum 100
óákveðnir. Það kann að koma
nokkuð á óvart að NATO hafði
mun meira fylgi meðal karla en
kvenna. Konur skiptust í þrjá
nær jafnstóra hópa, með-móti
og óákveðnar. Langlíklegast er,
að afstöðu kvennanna hafi ráð-
ið þreyta á aðgerðarleysi At-
lantshafsbandalagsins í land-
helgismálinu. Vel að merkja
var könnunin gerð fyrir rúmri
viku, áður en samið var um
landhelgismálið.
Meirihluti NATO-sinna var
álíka mikill á Reykjavíkur-
svæðinu og úti á landi. Á
báðum stöðum ultu úrslitin á
afstöðu karlkynsins.
Ef undan eru skildir þeir
óákveðnu, reynast um 60 af
hundraði fylgjandi áframhald-
andi veru í NATO og um 40 af
hundraði andvígir.
NAT0 nýtur minna
fylgis en áður
Fylgi Atlantshafsbandalags-
ins er greinilega minna en það
hefur verið undanfarin ár. Til
samanburðar má taka niður-
stöður skoðanakannana Vísis
fyrrum, sem gerðar voru með
svipuðum hætti og skoðana-
kannanir Dagblaðsins eru nú.
Hlutfallið var til dæmis 73 gegn
27, Nato-aðild í vil. 1
könnun sem Vísir gerði
árið 1968, þegar búið var að
undanskilja hina óákveðnu.
Árið 1969 var hlutfallið 83 gegn
17, NATO í vil, í könnun Vísis,
og það komst upp i 88 gegn 12
árið 1972. Nú er það 60 gegn 40,
eins og áður var nefnt.
Öákveðnir eru litlu fleiri nú en
var í þessum könnunum.
Landhelgismálið
oftast nefnt
Spurt var: Finnst þér, að ís-
lendingar eigi að vera áfram í
Atlantshafsbandalaginu? Fólk
svaraði yfirleitt hiklaust, og at-
hugasemdir voru sjaldgæfari
en í öðrum skoðanakönnunum,
sem Dagblaðið hefur gert.
Þegar það kom fram í athuga-
semdum, að fólk hefði skipt um
skoðun, nefndi það yfirleitt, að
NATO hefði ekki hjálpað okkur
í landhelgismálinu.
Stuðningsmenn aðildar að
bandalaginu gátu þess gjarnan,
að íslendingar ættu að ástunda
vestræna samvinnu, við þyrft-
um á vernd að lialda og þar
fram eftir götunum.
Andstöðumenn aðildar
minntust stundum á, að þeir
sæju ekki tilganginn með því að
vera í hernaðarbandalagi, það
gæti verið hættulegt.
Nokkuð var um, að fólk
nefndi, að við ættum að ætla
okkur stærri hlut í bandalaginu
og ekki taka við öllu ómeltu
þaðan, eða eitthvað á þá leið.
Fjórðungur
stuðningsmanna
ríkisstjórnarinnar
óákveðinn um NAT0.
Dagblaðið bar saman svör
fólks við spurningunni um
afstöðu til ríkisstjórnarinnar og
svörin við spurningunni um
NATO. Fjórðungur stuðnings-
manna ríkisstjórnarinnar
reyndist vera óákveðinn í af-
stöðu til aðildar að Atlantshafs-
bandalaginu. Talsverður meiri-
hluti stjórnarsinna styður
NATO, en til eru þeir, sem eru
á móti.
Talsverður meirihluti and-
stæðinga stjórnarinnar er and-
vígur aðild að NATO, en NATO
á þó verulegt fylgi í röðum
stjórnarandstæðinga.
Flestir þeirra, sem voru
óákveðnir í afstöðu til ríkis-
stjórnarinnar, styðja NATO-
aðild.
Merkilegt er, að aðildin að
Atlantshafsbandalaginu nýtur
ekki að ráði meira fylgis en
dvöl varnarliðsins hér. Hins
vegar er andstaðan við NATO
miklu minni en andstaðan við
varnarliðið, og miklu fleiri eru
óákveðnir í afstöðu til NATO
en varnarliðsins.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
Afram í NAT0 136 eða 451/3%
Fara úr NAT0 93 eða 31%
Óákveðnir 71 eða 23 2/s%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða
niðurstöðurnar þessar:
Áfram í NAT0 59,4%
Fara úr NAT0 40,6%
V
HH
KVARTMILUKLUBBURINN
Sunnudaginn 20. júní mun
Kvartmíluklúbburinn standa fyrir
sandspyrnukeppni
við Hraun í Ölfusi.
Keppt verður í fimm flokkum:
1. flokkur 8 strokka jeppar
2. flokkur 6 strokka jeppar
3. flokkur 4 strokka jeppar
4. flokkur mótorhjól
5. flokkur fólksbílar
Vœntanlegir þátttakendur tilkynni þátttöku í síma 50619 fyrir 15.
juni.
GÓÐ VERÐLAUN — ENGIN KEPPNISGJÖLD. STJÓRNIN.
V.