Dagblaðið - 13.07.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 13.07.1976, Blaðsíða 15
1)ACBI.ADIÐ — MmMUDACUR l.{. JÚLl 1976. 15 1 ♦♦♦ af I frœqu 1 fólki f EUen var eiginkona númer tvö. Fyrstu eiginkonunni kvæntist Ingmar Bergman árið 1943. Gun Grunt tókst að halda Sonuriiin Daniel er frá fjórða hjónabandinu. Hann var að- Ingmar iengst i hjónabandinu stoðarleikstjóri Bergmans við Töfraflautuna. eða í níu ár. Hún fórst i bílslysi. Sumir saf na frímerkjum en Ingmor Bergman sofnor eiginkonum eiginkonum og átta börnutft. Hann gat yfirleitt ekki þolað sömu konuna lengur en í þrjú ár. Einu sinni var hann þó heil níuárieinu í hjónabandi. Hann hefur nú verið kvæntur Ingrid von Rosen sem er fyrrverandi greifafrú og móðir fjögurra barna. Hjónabandið er talið mjög hamingjusamt. Ingrid von Rosen var mikil vinkona sænsku prinsessanna Birgittu og Desiree áður en hún giftist von Rosen greifa. Sagt er að Ingrid hafi verið mjög léttlynd á þeim árum og full gáska. I dag er hún ákaflega settleg og full öryggiskenndar, sem kemur sér vel fyrir eiginmann hennarj 'sem hefur valið að dveljast í útlegð frá heimalandi sínu vegna skattamála. Fyrsta eiginkona Ingmars Bergman var dansarinn og leik- stjórinn Else Fisher. Þau giftust árið 1943 og skildu þrem árum síðar. Þau eignuðust eina dóttur, Lenu, sem vinnur í dag í félagsmálaráðuneytinu sænska. Hún vill ógjarnan vera talin ein af ,,Bergmans-börnunum“. —Það hefur aldrei haft neitt gott í för með sér, segir hún. Fleiri af hinum sjö afkvæmum Bergmans eru á sama máli. Þau hafa reynt að spjara sig f frægðarskugga föður síns, en gengið bað misjafnlega vel. Næsta eiginkona hét Elien, en í dag stendur hún framar- lega í menningarlífi Gautaborgar. Hún fékk eftir- nafnið Bergman árið 1947, þremur árum seinna var hún ein og yfirgefin móðir með fjögur börn. Elzta dóttir þeirra, Elsa, sem nú er þrjátíu ára, fetaði f fótspor hins fræga föður síns og er nú leikstjóri við ríkisleik- húsið i Gautaborg. Gun Grunt varð eiginkona númer þrjú. Það var hjóna- bandið sem entist í níu ár. Eftir að þau skildu tók Gun doktors- gráðu í slavneskum. málum. Hún fórst í bílslysi árið 1971 í Júgóslavíu. Sonur þeirra, Ingmar Bergman jr.,fékk ekki að vita um slysið fyrr en þrem dögum eftir að móðir hans lézt. Þetta hræðilega slys hnýtti föður og son saman sterkum böndum. Árið 1959 kvæntist Ingmar konsertpíanistanum Kábi Larentei. Þrem árum síðar fæddist þeim sonurinn Daníel. Hann er enn við nám en vann sem aðstoðarleikstjóri föður sí.ns við upptökuna á Töfra- flautunni. Ingmar Bergman bjó í mörg ár með norsku leikkonunni Liv Ullman, og þau eignuðust saman dóttirina Linn. Hún er oft hjá föður sínum í skóla- leyfum. Linn er mikil mála- manneskja, talar bæði norsku, sænsku og ensku reiprennandi. Hún er eina konan í lífi Ingmars Bergman sem hefur tekizt að snúa honum um fingur sér. Fimmta eiginkonan og nú- verandi, Ingrid von Rosen greifafrú, er ekki bara frábær eiginkona heldur einnig ómissandi einkaritari. Sænski leikstjórinn, Ingmar Bergman, hefur haft miklar tekjur á umliðnum árum og er hann ekki í neinum vandræðum með að eyða þeim. Hann þarf að sjá fyrir fiittm Liv Ullman bjó i mörg ár í óvígðri sambúð með Ingmar. Linn dóttir þeirra er sú eina sem kann lagið á föðurnum. KISSINGER SENDI UV ULLMAN LJÓD Bráðlega kemur út sjálfsævi- saga norsk-sænsku leikkon- unnar'.Ljv UUnran, sem bæði fjallar urii éinkalíf hennar og starf. Mörg bókaforlög hafa ásælzt útgáfuréttinn. Forum- bókaforlagið bar sigur af hólmi og þurfti að greiða hálfa millj- ón danskra króna fyrir vikið. Utdráttur úr bókinni birtist nýlega í Bonniers bókmennta- tímaritinu. Hér afhjúpar Liv Ullman atburði frá Hollywood, heimili sinu í Osló og segir frá sambandi sinu við leikstjórann Ingmar Bergman, en með honum á hún dótturina Linn. Leikkonan dregur ekki dul á að eitt sinn var hún illa svikin af kunningja sinum. Þau höfðu keypt seglbát í sameiningu sem skyldi geymdur á Ítalíu. Eftir stutta sjóferð fór Liv í land sökum sjóveiki en bátinn sá hún ekki eftir það. „Vinur minn sagði að honum hpfðí verið stolið, en ég hef grun um að hann hafi snuðað mig þar. A.m.k. gat hann keypt sér antik-verzlun stuttu síðar,“ skrifar kvikmyndastjarnan til vinkonu sinnar í Svíþjóð. Liv segir einnig frá manni sem eitt sinn sendi henni ljóð um heimþrá. „Ég sé oft myndir af honum í blöðunum og alltaf er hann þar fremstur, skæl- brosandi," skrifar hún. Nafn hans er ekki nefnt, en fiesta grunar að hér sé átt við utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Henry Kissinger, en þau Liv eru góðir vinir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.