Dagblaðið - 03.08.1976, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 03.08.1976, Blaðsíða 12
12 DACBLAÐIÐ. — DKIÐ.JUDAGUK 3. ÁUÚST 1976. HUS- byggi endur Fyrirliggjandi: Glerullar- einangrun Glerullar- hólkar Plast- einangrun Steinullar- einangrun Spóna- plötur Milliveggja- plötur Kynnið ykkur verðið - það ér hvergi lœgra JÓN LOFTSSONWF: Hringbraut 121 íS 10 600 Sérstokt verð 1 120.-pr. stk. cí Sérverzlun með rafhlöður RAFBORG Rauðarárstíg 1 • Sími 11141 Smósaki — Heildsala i\A \ PRENTUM A FLJÓTT OG VEL* Við prentum fljótt og vel með nýjum og hraðvlrkum 'vélum, sem gerir okkur mögulegtað taka rastaðar ljós- myndir beint á plötu án filmugerðar. — Það er ódýrara og hraðvirkara. Þvi ekki að hringja eða koma og kanna hvað við getum gert fyrir þig? Offsetprentsmiðjan FJÖLNIR H/F Brautarholti 6. — Sími 22133. Reykjavík. FIÖLNIR hf BlABin ÞAÐ LIFI Lino Veriura og Franeois Fabían sýna snilldarleik í hlutverkum sínum. Frábœr mynd um gimsteinarár íLaugarásbíé Gimsteinaránið (La Bonne Année) Leikstjóri og höfundur handrits: Claude Lelouch Aðalhlutverk: Lino Ventura, Francois Fabib.i og Chartes Gerard. Þessi vel gerða franska mynd og meistaralega skrifaða kvik- myndahandrit, sem Laugarás- bíó býður upp á þessa dagana, staðfestir þau meistaratök sem Frakkar búa yfir til að koma. hinu tilfinningalega og ástríðu- fulla til skila í kvikmynd svo að eftirminnilegt verði. Sagan er um kaldrifjaða félaga, sem undirbúa af natni og nákvæmni mikið gimsteina- rán. Brögð þeirra félaga til að ná settu marki eru sett á svið með þeim tilbrigðum og ná- kvæmni sem skapar stígandi spennu í myndgerðinni allri. Jafnframt gleymist hvergi kvíðinn og óvissan sem kvelur þá, sem slíkt rán undirbúa. Jafnvel ást og hughrifum í sambandi við hana er hvergi gleymt. Með ótrúlegum brögðum komast þeir félagar að settu marki, unz í ljós kemur að þeim hafði yfirsézt í smávægilegu atriði. þ.e. fullkomna tækni sjálfvirks öryggisútbúnaðar í gimsteinaverzluninni, sem var ,,skotmark“ þeirra. Annar félaganna kemst undan, með þýfið allt, en hinn lokast inni i verzluninni. Hans bíður löng fangavist. En í nýársgjöf fær hann frelsi eins og tíðkast í ýmsunt frönskum fangabúðum. Ástæðan er þó ekki eingöngu góð hegðun, heldur telja yfir- völd sér hag að því að iáta hann lausan, ef hinn dýrmæti gim- steinafengur, sem þeir höfðu mrm myndir STEINARSSON upp úr krafsinu kæmi á einhvern átt fram í dagsljósið er fanginn losnaði. Á örlagastundinni þegar Lino Ventura er handtekinn, blómstrar upp ást Francoise Fabian til hans, en hún hafði mikið komið við sögu I undir- búningi ránsins. Skiptum þeirra bæði fyrir og eftir hand- töku hans, er meistaralega vel lýst og á svo skemmtilegan hátt, að myndin verður lengi minnis-' stæð. Saman fer I þessum skiptum frábær leikur, skemmtilegt handrit og óvenjulega vel gerð mynd. Aldrei fundu lögregluyfir- völd ránsfenginn og skemmti- legri sögu lýkur með fyrir- gefningu á smáframhjáhaldi konunnar, Sú fyrirgefning er tjáð í svipbigðum og breyttri hegðun á þann hátt sem Frakkar eru kannski einir færir um að tjá. Skemmtileg mynd og sér- stæð, sem lifir lengi í endur- minningunni. ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.