Dagblaðið - 12.08.1976, Side 15

Dagblaðið - 12.08.1976, Side 15
\tm> I- I \! .MTL'D,U;i'K 12. ACL'ST 1976. 15 t Hefur sagt skilið við eiginkonuna og Columbo að mestu leyti Verðið er mjög hagstætt: ferðin kostar kr. 36.100.- með dvöl á góðu hóteli og morgunverði. Islenskur fararstjóri verður í ferðinni. Dyflini býr yfir sérstæðum töfrum, þar er skemmtilegur borgarbragur, margt að sjá og hagstætt verðlag. ^ Þar er líka Abbey Tavern með Guinness og írskri tónlist. Samvinnu- fenðir Ferðaskrifstofa-Austurstræti 12 sími 27077 30. ágúst tíl 3. sept. IVtor I-'ullt slappar af á bartströnd kælir si« á iiiclönu. Ilann \ iöiirki'iinir aö hann Ki-ri alilri'i þaö simii hnnum l'innst li-irtinli*nt. ÆTLAR NÚ í ALVÖRU KVIKMYNDIR Þessi mynd var tekin árið 1973, áður en til slita hjónabandsins kom. Alice og fósturdæturnar tvær. Catherine (t.v.) er núna sex ára og Jackie tíu. Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Fyrsta Irlandsferóin tókst meÓ ágætum „Hún [Dyflini] hefur ekki misst andlitið og drukknað í blikkandi, litskrúðugum Ijósaskiltum, eins og svo margar borgir Evrópu“ sagði blaðamaður sem var með í fyrstu ferðinni til Dyflinar (Vísir). ðbúnaður var allur hinn ágœtasti“ sagði annar fulltrúi pressunnar (Þjóðvilj- inn)- , op „Gestrisni þessa elskulega fólks er einstök “ sagði sá þriðji (Tíminn). SamyínnuferÓír efna nú til annarrar 5 daga írlandsferóar Flogið verður beint til Dyflinar og dvalist þar frá þegar maður hefur peninga fer ekki hjá því að maður geti leyft sér eitt og annað. segir hann. Peter viðurkennir að hann geri aldrei neitt sem sé á móti skapi hans. eins og að slá gras- blettinn. fara með föt í hreinsun. fara í neðanjarðarlest ina á sumrin eða bíða i biðröð. „Ég er ekki stoltur af þessu en viðurkenni aðeins að ef þú átt nóg af peningum veitir það þér ákveðið frjálsræði." Peler hefur í rauninni aldrei skort neitt fjárhagslega. Fjöl- skyida hans átti litla kjörbúð í Ossining. New York. Þriggja ára gamall missti iiann hægra augað vegna æxlis. „Ég hata sjálfsmeðaumkun,'' segir Peter Einhverju sinni á hann að hafa sagt: „Ég get ekki neitað þvi að ég hef verið hræddur um að verða blindur og hef séð fyrir hugskotsjónum mínum þegar eldri dóttir mín er að hjálpa mér, steinblindum, niður stiga.“ Hann reyndi að bæta sér upp augnmissinn með því að læra að sætta sig við hann A meðan hann var í skóla vann hann frækilega sigra í íþróttum en þá strax beindist hugur hans að leiklistinni. Hann var hræddur um að standa sig ekki nógu vel í íþróttunum. Hann hefur fengið ailmörg verðlaun fyrir leik sinn, bæði komið til greina við Oscars- verðlaunaafhendingu og fengið Emmy verðlaunin fjórum sinn- um. Núna býr hann cinn sins liðs í ibúð ekki langt frá Beverly Hills húsinu sem þau hjónin bjuggu í með dætrunum tveimur. Hann lifir mjög rólegu lífi — ekki eins og margir ný- skildir menn, sem leggja stund á samkvæmislífið og eltast við ungar stelpur. „Mér þótti gaman aó sam- kvæmislífinu og að eltast við stelpur þegar ég var ungur," segir hann. „En mér finnst það ekki vera neitt líf fyrir mið- aldra fólk.“ Hann er farinn að leika körfubolta og æfir leikfimi þrisvar í viku. „Mér þætti gaman ef ég væri svolítið kærulausari og skeytti svolítið minna um afleiðingar gjörða minna,“ segir Peter Falk. „Það var þannig sem ég var á mínum yngri árum . Börn hafa alltaf haft mikil áhrif á mig og það ekki sízt vegna þess að í sakleysi sínu vita þau ekki hvað framtíðin ber í skauti sínu fyrir þau.“ LEIKUR Á MÓTILIV ULLMANN í NÝRRIINGMAR BERGMAN MYND í SUMAR Þegar Peter Falk, sem við þekkjum kannski betur undir nafninu Columbo, hengdi gamla frakkann sinn upp á snaga og sagði forsvarsmönn- um Universal kvikmyndafyrir- tækisins að hann væri skilinn að skiptum við Columbo fyrir fullt og allt, létu þeir sér hvergi bregða. Peter Falk hafði gert þetta sama á hverju ári nú um árabil. Þá hefur honum jafnan verið boðin rífleg kauphækkun og hann tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Falk finnst sjálfum að gamli frakkinn, sem hefur verið vöru- merki hans á undanförnum árum, sé farinn að þrengja að sér eins og spennitreyja. Frakk- inn hefur líka verið eins konar lífsakkeri fyrir hann því nú hefur honum tekizt að koma laununum fyrir hvern einstak- an þátt upp í 300 þúsund dali (60 ntillj. ísl. kr.). ,.Eg er ekki fífldjarfur rnaður," segir þann sjálfir, „ég kasta mér ekki út í hlutina heldur mjaka mér út í þá.“ Alice Falk, sem hann er nú skilinn við. hefur sagt’ urn Peter að hann hafi verið í níu ár að hugsa sig um áður en hann kvæntist henni og þaó hefði tekið hann tíu ár að ákveða að hella sér út i leiklistina af full- unt krafti. „Peter er mjög lengi að taka ákvarðanir," segir hún. Nú i sumar. sem er hans 48., hefur hann samt tekið nokkrar og það afdrifaríkar ákvarðanir. Hann hefur ákveðið að skera Cdumho-þættina niður í einn á ári en áður hafa verið teknir sex eða átta þættir á ári. Hann er skilinn við Alice konu sina eftir sextán ára hjónaband. Hann segir sjálfur að það geti varla talizt mjög eigin- g.jarnt af honum að reyna að „vera hann sjálfur". Peter viðurkennir að hann myndi sakna þess að sjá með öllu á bak Columbo, — hann sé reiðu- búinn að gera einn þátt á ári með Columbo það sem hann eigi eftir ólifaó. Fyrrverandi eiginkona hans verður eins- konar ráðunautur fyrir hann í framtíðinní og hann nýtur mik- illa vinsælda meðal fósturdætr- anna tveggja sem hann hefur heimild til að heimsækja hvenær sem hann vill eftir skilnaðinn. Peter Falk er ekki ólíkur Columbo í einkalífinu. Hann týnir bíllyklunum sínum, gleymir stefnumótum (Ég hata að koma of seint á stefnumót — það er dónaskapur, segir hann), hann gleymir að renna upp buxnaklaufinni, gleymir nöfnum á þekktu fólki sem hann þarf að umgangast. Símanúmer einkaritarans, Crole Smith, er i rauninni það eina sem hann getur munað rétt. Hún er honum mikils virði og bjargar honum oft úr klípum sem hann kemur sér í. Þar f.vrir utan er ekkert á milli þeirra — og engin önnur kona hefur haft áhrif á Peter. Peter ségir sjálfur að það sé mjög erfitt að vera einlægur bæði gagnvart fjölskyldunni og Ieiklistinni. Hann viðurkennir að það geti þó verið mögulegt. „En leiklistin er allt sem ég hef ein-lægan áhuga á um þessar mundir," segir hann Nú ætlar hann að helga sig leik- list.inni pingöngu. í sumar leikur hann í gamanmyndinni Murder by Death. Bráðlega hefst myndataka á einni merk- ústu myndinni, sem Peter Falk hefur komið nálægt til þessa, The Serpents Egg. Mótleikari hans verður engin önnur en Liv Ullman og leik- stjóri er Ingmar Bergman. „Karlar eins og Ingmar Bergman eru eitthvað sem er talandi um,“ segir Peter. „Hann fer ekki á lappir á morgnana til þess að leita uppi nýjustu metsölubókina til að kvikmynda. Hann veit nákvæmlega hvað hann vill — og gerir sínar kvikmyndir sam- kvæmt sínum eigin áætlunum." Peter Falk viðurkennir að Columbo „hafi komið undir hann fótunum fjárhagslega“ og V J

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.