Dagblaðið - 25.08.1976, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1976.
2
r
Hvenœr fáum víð FM í stereo?
Ekki í bráð segja
útvarpsmenn
l.'lvarpshlustandi hringdi:
Hvenær mesum við útvarps-
hlustendur á íslandi eiga von á
að fá úivarpað í stereo, og á ég
|)á við FM-útsendingar? Það er
orðið anzi tilbreytingarlaust og
leiðig.jarnt að hlusta á þessar
eilífu mono-sendingar.
Guðmundur Jónsson fram-
kvæmdastjóri Útvarps varð
fyrir svorum með þessa spurn-
ingu. Hann kvað uppástungur
um þessi mál hafa komið upp
oftar en einu sinni, en engar
ráðagerðir vera uppi um fram-
kvæmd þessa. Viturlegra væri
að gera öllum landsmönnum
kleift að hlusta á góðar útsend-
ingar við almennileg móttöku-
skilyrði í mono áður en lengra
væri háldið. Annað atriði i
þessu máli væri, að ekki næðu
FM-útsendingar til allra lands-
manna og því yrði hér um for-
réttindi frekar takmarkaðs
hóps að ræöa.
Hríngið í síma 83322
miffi kl. 13 og 15
Að sögn útvarpsmanna verður það ekki í bráð sem tæknimenn útvarps geta farið að senda út í stereo.
Ein lög í
þessu landi
— eða hvað?
5996-9560 hringdi:
„Hvers vegna er listinn yfir
mennina sem stóðu í þessu
ávísanamisferli ekki birtur?
Það stóð ekki á því að birta
nafn rannsóknarlögreglu-
mannsins, sem var þó með smá-
peninga miðað við þessa menn.
Þetta eiga svo að vera einhverj-
ir stórlaxar. Hvers konar for-
dæmi skapa þessir menn fyrir
æskuna í okkar landi? Er það
kannski fínt að svindla og
koma sér áfram á fölskum for-
sendum?
Mér finnst að birta eigi nöfr
þessara manna strax. Þeir vita
vel hvað þeir hafa verið að að-
hafast og eru væntanlega það
vel menntaðir að þeir vita að
svona athæfi brýtur í bága við
lögin. Eitt skal yfir alla ganga.
Það eru ekki til nein sérstök lög
sem einhverjir karlar úti í bæ
hafa prívat fyrir sjálfa sig.
Hver er að hlífa þessum mönn-
um. Eru kannski einhverjir
ráðamenn í þessari klíku
þeirra?
Almenningur hér á þessu
landi vill fá að vita hverjir
þetta eru. Hvers vegna eiga
þeir sem saklausir eru að liggja
undir grun? Á ekki alveg eins
að hreinsa þá menn af því sem
þeir hafa ekki gert?
STARFSVELL-
IRNIR ERU
BJARGRÆÐI
BARNANNA
Móðir skrifar:
..Mig langar að koma á fram-
færi 111 borgaryfirvalda þakk-
læii fyrir þá framtakssemi að
liafa opnað svo marga starfs-
velli hér i borginni.
Þeiia er alveg einstakt um-
hverfi fyrir börn að leika sér í á
meðan þau eru á milli vita', ef
sv.o má segja. því þarna fá þau
útrás fyrir þá athafnasemi og
skiipunargáfu. sem þau eiga svo
oft ertitt með að tjá í öðru
formi. Og þetta forðar þeirn frá
því að ráfa um göturnar með
hendur í vösum og h'afa alls
ekkert fyrir stafni.
Það er sannarlega þörf á
fleiri svona völlum. svo að
öllum börnum sé gert jaf.nt
undir i,öfði. og vona ég aö
borgaryfirvöld haldi áfram
þeirri jákvæðu stefnu sem hún
hefur sýnt undanfarið i þessum
efnum."
Leigumiðlanir eru
hreinrœktuð
gróðafyrirtœki
— Einn hafði litið annað en svik og pretti
út úr viðskiptum við þau
Skúli Jóhannsson skrifar:
Ég má til með að koma á
framfæri reynslu sem ég varð
fyrir í viðskiptum mínum við
eina af.þeim stofnunum hér i
borg sem nefndar eru leigu-
miðlanir.
Ég labbaði inn á eina slíka
einn daginn og lét skrá mig á
lista og greiddi skráningar-
gjaldið, 3000 krónur, enda var
mér sagt i sífellu að þeir ættu
nóg af íbúðum einmitt við mitt
hæfi og á þeim stað sem ég
óskaði. Nú svo leið og beið, ég
hringdi nokkrum dögum síðar,
en var þá sagt að engar ibúðir
væru til, jú vel á minnzt ein í
Kópavogi, en ég hafði óskað
eftir íbúð í Breiðholti. Maður-
inn, sem fyrir svörum varð,
sagði þó að stöðugt væru að
koma inn fleiri íbúðir og yrði
hringt í mig þegar eitthvað
kæmi við mitt hæfi. Ég beið og
hringdi svo enn einu sinni og
sagðist ómögulega standa í
þessu lengur, bað um að fá
skráningargjaldið endurgreitt.
Fannst mér alveg út í hött að
vera með alls konar yfirlýs-
ingar og loforð áður en menn
létu skrá sig, en síðan væri ekki
unnt að standa við neitt af því.
En þau voru frekar „ódönn-
uð“ svörin sem ég fékk. „Ef þú
ferð ekki að halda kjafti og
hætta þessu rausi, þá færð þú
enga fyrirgreiðslu hér framar,“
sagði afgreiðslumaðurinn, og
við svo búið skellti hann á. Ég
reyndi að hringja aftur en fékk
fljótlega svipað svar: „Þetta er
allt á hreinu maður, þú færð
enga þjónustu hér.“
Er það furða þó manni of-
bjóði. Þessi fyrirtæki auglýsa
daglega í blöðunum, lofa gulli
og grænum skógum, áður en
maður borgar skráningargjald-
ið en síðan bara ,,farvel“. Ef
það er ekki hlutverk yfirvalda
að fylgjast með svona
verzlunarmáta og svikum, þá
veit ég ekki til hvers þau eru.
Þessi inynd er lekin á starfsvellinum í Breiðholti III. sem opnaður var f.vrir skömmu. og
er þar verið að leggja tyrstu spvturnar i byggingar framtíðarinnar.