Dagblaðið - 17.09.1976, Síða 1
2. ARG. — FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976. — 207. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12, SÍMl 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOI/H 2, SÍMI ,27022
SKEIÐARA ER FARIN AÐ FLÆÐA
ÚT FYRIR FARVEG SINN
— Ragnar Stefánsson telur að hlaupið nái hámarki i seinni hluta nœstu viku
„Skeiðará hefur vaxið ósköp
hægt og rólega siðan í gær-
morgun," sagði Ragnar Stefáns-
son í Skaftafelli í samtali við
Dagblaðið í morgun. „Áin er nú
farin að flæða örlítið út fyrir
farveginn. Það er örlítil læna,
sem rennur þarna austur með
túnunum."
Ragnar bætti því við, að
Sigurjón Rist vatnamælinga-
maður hefði mælt vatns-
rennslið í gær. Það reyndist
vera 1250 teningsmetrar á
sekúndu. Ragnar var ekki alveg
viss um hvert rennslið væri við
meðalaðstæður en sagði að í
almestu hitum á sumrin gæti
það náð 900—1000 teningsmetr-
um á sekúndu, ef hitarnir væru
langvarandi.
Talsverð brennisteinsfýla er
öðru hvoru af ánni. Ragnar
taldi, að ef miðað væri við
síðasta hlaup, ætti þetta að ná
hámarki seinni partinn í næstu
viku.
— AT —
Hœkkun ó landbúnaðarvörum:
Engar niðurgreiðslur
í bigerð
„Þessi hækkun h'efur ekki
verið rædd í ríkisstjórninni en
ég á von á því að þetta muni
ganga í gegn án nokkurra
breytinga," sagði Halldór E.
Sigurðsson landbúnaðarráð-
herra um tillögur sexmanna-
nefndarinnar um hækkun á
kjötvörum.
Halldór kvaðst ekki búast við
að niðurgreiðslur yrðu auknar
enda væru margir sem
kvörtuðu yfir því að of stór
hluti ríkistekna færi beint i
niðurgreiðslur.
. í dag mun ríkisstjórnin
væntanlega fjalla um tillögur
si-xmannanefndarinnar. —bA
Ekkert sjónvarp í kvöld?
Í morgun var allt við það
sama hjá Sjónvarpinu. Starfs-
fólkið mætti en vann ekki
handtak og varð ekki annað séð
en samstaða væri um setuverk-
tallið.
Starfsmannafélagið dreifði í
morgun fjölritaðri kröfugerð
starfsfólksins. Þau orð voru
látin falla að ekkert yrði
aðhafzt fyrr en rætt yrði við
starfsfólkið og yrði það ekki
gert í dag, mætti búast við að
ekkert sjónvarp yrði í kvöld.
—ASt.
Ekki hœgt að stjórna með tilskipunum
Setuverkfallið hjá Sjónvarpinu — bls. 8
Saga úr
dómskerfi
nefnist föstu-
dagskjallari
Vilmundar Gylfa-
sonar í dag. Þar
fjallar hann um
ásjónu dóms-
málanna i landinu
í dag.
Hann segir einnig
hrikalega sögu úr
fangelsi á íslandi
og frá dómi yfir
föngum, sem á
eftir fylgdi.
— sjá bls. 10-11