Dagblaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 23
DACBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUK 17. SEPTEMBER 1976.
f
Utvarp
Útvarp kl. 20.40: Vitrasti maður veraldar
Fjárcrf lamenn geta margt
kert af Salómon konungi
„Tvisvar sinnum hef ég verið
beðinn að flytja erindi hjá
Rotaryklúbb Akureyrar. Eg
valdi þetta viðfangsefni þá því
þar eru margir fjáraflamenn og
þ\ i liklegt aðþeii hefðu áhuga á
á Salómon konungi." sagði
Sæmundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri. Hann mun
flytja erindi sitt um Salómon
konung í útvarpinu i kvöld kl.
20.40. Erindið nefnist „Vitrasti
maður veraldar1'.
„1 erindinu segi ég frá
ætterni Salómons og uppeldi.
en hann ólst upp hjá einum af
vinum Davíðs, Nathan að nafni.
Nathan var spámaður. Einnig
segi ég frá stjórnarstörfum
KRISTIN
LÝÐSDÓTTIR
hans, auði og skáldskap.
Salómon var oft fenginn til
að skera úr deilumálum. Hann
kvað upp dóm í máli sem virtist
óleysanlegt. Tvær konur deildu
um það hvor þeirra ætti lifandi
barn og hvor ætti látið barn.
Allir sættust á dóminn og sáu
að hann var réttur. Þetta varð
til þess að lýðurinn fór að bera
oftar undir hann sín deilumál.
Erindin sem ég hef flutt í
útvarpi eru orðin þó nokkuð
mörg, en það eru orðin alltaf
10-15 ár siðan ég byrjaði á því“,
sagði Sæmundur. -KL
Atriði úr myndinni Sekur eða saklaus? sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld
Sjónvarp kl. 21.35: Sekur eða saklaus?
Fyrsta flokks skemmtun
Ekki ættu
sjónvarpsáhorfendur að verða
fyrir vonbrigðum með myndina
sem sýnd verður í sjónvarpinu í
kvöld kl. 21.35. Bandaríska
bíómyndin Sekur eða saklaus?
(Boomerang) var gerð árið
1947. Elia Kazan leikstýrði
myndinni frábærlega vel, og
framúrskarandi myndataka og
hrífandi saga málsækjanda,
sem trúði ekki málsókn
ríkisins, gerir þessa mynd að
fyrsta flokks skemmtun. Kvik-
myndahandbókin gefur henni
fjórar stjörnur og það eru
aðeins beztu myndir sem fá
slíkan heiður. Mynd þessi er
byggð á sannsöguleeum
atburðum en víkur þó talsvert
frá raunverulegri atburðarás.
Nefnist slík gerð mynda „semi-
documentaries" á ensku.
Lítt þekktir leikarar og kvik-
myndatökur á staðnum sjálfum
gáfu myndunum raunverulegan
blæ, en kvikmvndagerð eftn
þessari formúlu dó í frum-
bernsku því erfiðleikarnir, sem
voru því samfara að ná harm-
þrunginni spennu úr því efni
sem daglegt líf býður upp á,
reyndust of miklir.
Elia Kazan sem leikstýrir
myndinni „Boomerarig" er
jafn-hæfileikamikill stjórnandi
kvikmynda sem leikrita,
leikinna á sviði. Hann hefur
gert fjöldann allan af áhuga-
verðum myndum allt frá því
árið 1940. Hann hlaut Öskars-
verðlaun fyrir leikstjórn sína á
myndinni Gentleman’s
Agreement (1947) og önnur
fyrir myndina On the Water-
front (1954). Hann gerði einnig
tvær myndir sem byggðar voru
4 sögum, er hann skrifaði
sjálfur. Af myndum hans má
nefna A Streetcar Named
Desire og East of Eden. Með
hluterk í myndinni fara Dana
Andrews, Jane Wyatt, Lee J.
Cobb og Arthur Kennedy.
Þýðandi er Óskar Ingimars-
son.
-KL
Íf
Föstudagur
17. september.
12.25 Voðurfrcgnir og fréttir. Til-
kvnningar.
13.0Ó Við vinnuna: Tðnleikar.
14.20 Miðdegissagan „Grænn varstu,
Jalur“ eftir Richard Uewellyn Ólafur
Jóh. Sigurðsson íslenzkaði. ttskar
llalldursMm les (7j.
15.00 Miödegistónleikar.
15.45 Lesin dagskró næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17 30 Feröaþætlir eftir Qipma Sæmunds-
son fiskifræöing. Oskar Ingimarsson
les úr bókinni. „Um láð og Iög“ (5).
lS.OO Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson
flytur þáttinn.
19.40 íþróttir. Umsjón: Bjarni Felixson.
20.00 Sinfónískir tónleikar frá útvarpinu í
Berlín. Salvatore Accardo og
Fílharmoníusveitin þar i borg leika:
20.40 Vitrasti maöur veraldar. Sæmundur
G. Jóhannesson ritstjóri á Akureyri
flytur erindi um Salómon konung.
21.10 Gítarleikur í útvarpssal: Símon H.
Ivarsson leikur, a. Svíta eítir Robert
Devise b. Gavotte; Sarabande og
Bourré eftir Johann Sebastian Bach.
21.30 Útvarpssagan: „öxin'* eftir Mihail
Sadoveanu. Dagur Þorleifsson les
þýðingu sína (9).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Tíl umræöu. Baldur
Kristjánsson stjórnar þættinum.
22.55 Áfangar. Tónlistarþattur í untsjá
Asmundar Jónssonar og Guðna Hún-
ars Agnarssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fróttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kirgísamir í Afganistan. Bresk
heimildamynd um Kirgísa. 2000
ntanna þjóðflokk. sem býr í tjöldum
21.35 Sekur eöa saklaust? (Boomerang).
Bandarísk bíómynd frá árinu 1947.
Leikstjóri Elia Kazan. Aðalhlutverk
Dana Andrews, Jane Wyatt, Lee J.
Cobb og Arthur Kennedy. Sagan, sem
byggð er á sannsögulegum atburðum,
gerist I Fairport í Connecticut.
Prestur er skotinn til bana. Mikil leit
er hafin að morðingjanum. en hann
finnst ekki. Kosningar eru i nánd, og
stjórnarandstæðingar gera sér mat úr
inálinu til að sýna fram á getuleysi
lögreglu og saksóknara. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
23.00 Dagskrárlok.
23
Sjónvarp
Sjónvarp kl. 20.40: Kirgisarnir í Afganiston
HÖRÐ LÍFSBARÁTTA
Sýnd verður brezk heimildar-
mynd um þjóðflokk sem býr í
tjöldum á hásléttu í Afganistan.
Myndin verður á dagskrá sjón-
varpsins kl. 20.40.
Þjóðflokkur þessi, sem er um
2000 manns, býr við erfið lífs-
skilyrði. Á andliti þessa manns
má sjá rúnir þær sem erfið lífs-
baráttan hefur rist. _ -KL.
Tónabær hefur verið mikið í brennidepii undanfarið.
Útvarpið í kvöld kl. 22.15: „Til umrœðu
TÓNABÆR OG
LOKUN HANS
„Umræðuefnið verður
æskulýðsmálefni Reykjavíkur-
borgar og fæ ég þá borgar-
fulltrúana Davíð Oddsson og
Alfreð Þorsteinsson til liðs við
mig,“ sagði Baldur Kristjáns-
son félagsfræðingur er stjórnar
þættinum „Til umræðu" í
kvöld.
Þeir Davíð, sem er formaður
Æskulýðsráðs, og Alfreð eru
töluvert á öndverðum meiði um
hvernig haga skuli þessum mál-
um, bæði hver heildarstefna
Baidur Kristjánsson stjórnar
umræðum um æskulýðsmál í
Æskulýðsráðs skuli vera og
stjórnun ýmissa þátta ráðsins.
Tónabær var kveikjan að þess-
um umræðuþætti, en Tónabæ
var lokað í síðustu viku, og
hefur Davíð haft á orði að hann
muni ekki vilja bera ábyrgð á
því hvernig málum er háttað
þar. Nú er starfandi nefnd til
þess að gera tillögur um hvað
gera eigi við Tónabæ. Komið
hefur til tals að selja staðinn og
nota féð til uppbyggingar í Salt
vík og einnig að starfrækja
staðinn áfram og þá í svipuðu
formi og Fellahelli.sem félags-
miðstöð fyrir hverfið, en eins
og flestum er kunnugt hefur
eingöngu verið um böll að ræða
í Tónabæ.
Vafalaust verður mörgum
hugleikið að fá að vita hvort
eitthvað nýtt kemur fram í
þessum umræðum. A meðan
málið er óleyst er þeirri stóru
spurningu ósvarað hvert
krakkarnir eigi að fara til aö
skemmta ser. Eiga þeir að láta
sér nægja Hallærisplanið?
kvöld.
-EVI.