Dagblaðið - 20.09.1976, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1976.
44 ára veldi krata
í Svíþjóð er lokið
— vinstrí flokkarnir undir stjórn Olofs Palme töpuðu 5
þingsœtum. Thorbjörn Falldin verðurnœsti forsœtisráðherra
Svíþjóðar.
Sænski Jafnaðarmanna-
flokkurinn undir forystu Olofs
Palme tapaði naumlega þing-
kosningunum í Svíþjóð í gær.
Palme viðurkenndi
snemma í morgun, að fjörutíu
og fjögurra ára valdaferli
Jafnaðarmannaflokksins væri
lokið. „Mér þykir sárt að vita til
þess, að við skulum ekki hafa
haft það eftir alla okkar
vinnu.“ Palme bætti við: „Við
munum halda áfram að fylgja
áætlun okkar og stefnu jafn
skorinort og við höfum gert til
þessa nú, þegar við erum í
stjórnarandstöðu."
Lars Werner, leiðtogi VPK
--------------m.
Olof Palme tapaði kosningunum.
— Vinstri flokksins —
Kommúnistanna, tók úr-
slitunum, heldur verr og lýsti
því yfir, að hægri sveifla gengi
nú yfir landið.
Endanlegri talningu atkvæða
er ekki iokið, en samkvæmt því
sem fyrir lá í morgun var ljóst,
að Jafnaðarmannaflokkurinnog
VPK voru tveim hundraðshlut-
um á eftir borgaralegu
flokkunum, þ.e. Miðflokknum,
Hægri flokkunum og Þjóðar-
flokknum.
Leiðtogi Miðflokksins,
Thorbjörn Fálldin, yfirvegaður
fjárbóndi og píureykinga-
maður, verður nú að öllum
líkindum næsti forsætis-
ráðherra Svíþjóðar. Hann sagði
í morgun „Þetta (úrslitin)
hleypir nýju blóði í sænsKa
stjórnmálaumræðu."
Þessi úrslit benda til þess, að
borgaraflokkarnir muni hafa
179 fulltrúa á næsta þingi en
Jafnaðarmenn og VPK 170.
Kosningunum 1973 lyktaoi með
jafntefli, 175 gegn 175, þannig
að vinstriflokkarnir hafa nú
tapað fimm þingsætum.
Helsta mál kosninganna
hefur verið framtíðarstefna
Svía í kjarnorkumálum og hinn
væntanlegi forsætisráðherra,
Fálldin, hefur lagzt eindregið
gegn því að togð verði jafn
mikil áherzla á uppbyggingu
kjarnorkuiðnaðarins og Palme
og Jafnaðarmannaflokkur hans
hefurgert.MáþvLjafnvel'segja,
að.kosningarrarhafi fyrst og
fremst snúizt um það, hvort
stefna stjórnarinnar í kjarn-
orkumálum hafi átt nægilegt
fylgi meðal þjóðarinnar. Ef
marka má úrslitin, þá hefur svo
ekki verið.
forsœtisráðherra Svía: Skipti um skoðun — og sigraði
Thorbjörn Fálldin, leiðtogi
sænska Miðflokksins, sem nú
verður að öllum líkindum næsti
forsætisráðherra Svíþjóðar, á
fylgi sitt að verulegu leyti að
þakka því, hversu mjög hann
hefur stutt við baráttu um-
hverfisverndarmanna gegn
aukningu kjarnorkuiðnaðarins
í landinu.
Þó eru ekki nema örfá ár
síðan hann var dyggur stuðn-
ingsmaður áætlunar stjórnar-
innar um að kjarnorkufram-
leiðsla Svía yrði hin mesta í
heimi — miðað við höfðatölu —
eigi síðar en 1985.
Fálldin skipti um skoðun
þegar vinur hans einn kynnti
hann fyrir sænska nóbelsverð-
launahafanum og eðlis-
fræðingnum Hannesi Alfven.
Fálldin, sem er fimmtugur
bóndasonur frá Högsjö í Ánger-
manland í norðurhluta Sví-
þjóðar, segir að það hafi verið
vísindamaðurinn sem opnaði
augu hans fyrir hættunum af
kjarnorkunni. Það hafi verið
Alfven, sem hafi sagt sér frá
vaxandi vantrú vísindamanna á
því, að hægt væri að hafa fulla
stjórn á úrgangsefnum úr
kjarnorkuiðnaðinum og að
hægt væri að koma í veg fyrir
skemmdarverk á kjarnorkuver-
um.
Þegar Thorbjörn Fálldin var
nítján ára gamall hætti hann í
skóla og hélt áfram námi utan
skóla um hríð. Jafnframt varð
hann undirforingi í varaliði
hersins.
Hann tók þátt í starfi æsku-
lýðsdeildar Bændaflokksins í
lok fimmta áratugsins og var
kosinn á þing 1958, um svipað
leyti og flokkurinn breytti
nafni sínu í Miðflokkurinn.
Hann tapaði þingsæti sínu
með ellefu atkvæða mun 1964
en vann það aftur 1967. Hann
tók sæti I miðstjórn flokksins
1966 og tók við embætti for-
manns flokksins af Gunnari
Hedlund 1971.
Thorbjörn Fálldin, — bóndasonurinn, sem skipti um skoðun.
IRA játar morðið á
brezka sendiberranum
Yfirmenn Privisional-arms
írska lýðveld(shersins (IRA)
hafa viðurkennt, að hafa staðið
að baki morðinu á sendiherra
Breta á írlandi, Christopher
Ewart-Biggs. Hann var myrtur í
júlí síðastliðnum ásamt einka-
ritara sínum, er bíll þeirra
sprakk i loft upp.
Þessi yfirlýsing yfirmanna
I.R.A. kom fram í viðtali, sem
stórblaðið Sunday Independent
IRA segir Ewart-Biggs hafa
verið starfsmann brezku leyni-
þjónustunnar.
átti við þa. Þar fullyrtu
mennirnir ennfremur, að sendi-
herrann hefði verið í brezku
leyniþjónustunni, og eingöngu
verið sendur til írlands til að
taka þátt í starfsemi hennar.
Þeirri staðhæfingu hefur verið
harðlega mótmælt í
brezka utanríkisráðuneytinu.
Talsmaður ráðuneytisins sagði,
að Biggs hafi eingöngu farið til
Irlands til að tala máli Breta
þar og bæta samskipti- land-
anna.
I leiðara Sunday inae-
pendent, sem birtist um leið og
viðtalið, sagði að blaðið hefði
enga samúð með baráttu írska
lýðveldishersins. Það teldi hins
vegar að rödö hans ætti rétt á
að fá að heyrast eins og rödd
andstæðinga hans. Jafnframt
sagði þar, að augljóst væri að
sumar fullyrðingar yfir-
mannanna væru hreinn og
beinn áróður.
Ennfremur kom fram í
viðtali blaðsins, að yfir-
mennirnir segjast hafa vopn og
mannafla til að ber.iast á
Norður-írlandi í að minnsta
kosti tvö ár í viðbót. Reyndar
sögðu þeir, að starfsemi IRA
hefði lamazt nokkuð vegna
handtöku meðlimanna að und-
anförnu, en enn ættu þeir nóg
af nýjum herbrögðum í poka-
horninu.
Dom Mintoff
sigraði áMöltu
Verkamannaflokkur Dom
Mintoffs á Möltu hélt velli í
kosningum sem fóru þar fram um
helgina. Eftir fyrstu talningu at-
kvæða, sem náði til um það bil
helmings greiddra atkvæða, virt-
ist mönnum sem allt stæði I stað
frá því sem var í kosningunum
fyrir fimm árum er Mintoff komst
til valda. I seinni hlutanum vann
Verkamannaflokkurinn einn
mann frá Þjóðernisflokknum,
þannig að Dom Mintoff hefur nú
tryggt sig enn betur í sessi en
áður.
Israelsdœtur fá
Playgirl ritskoðað
Héraðsöómur í Haifa í Israel
hefur sagt, að dreifiaðilar tíma-
ritsins Playgirl i ísrael hafi
breytt rétt, er þeir krotuðu yfir
myndir af kynfærum karlkyns-
fyrirsæta I blaðinu. Kona
nokkur í Haifa hafði höfðað
mál á hendur dreifingarfyrir-
tækinu fyrir að leyfa henni og
kynsystrum hennar ekki að sjá
allt, sem ætti að sjást á mynd-
unum. Hins vegar fengju karl-
menn að sjá það, sem þá lysti í
Playboy og öðrum slíkum.
Dómarar héraðsdómsins töldu
að ákæra konunnar, um að
þarna væru lög um jafnrétti
kynjanna brotin, væri ekki á
rökum reist. Hins vegar sagði í
dómnum að dreifingarfyrir-
tækið hefði breytt rétt er það
taldi að með því að krassa yfir
kynfæri karlanna, væri það að
framfylgja ísraelskum lögum
um kiám — Ekki kom fram í
fréttinni, hvort héraðsdómur-
inn hefði eingöngu verið
skipaður karlmönnum.
Sid Bernstein skorar á
Bítlana að spila aftur
Sid Bernstein, — maourinn
sem fyrstur hélt hljómleika
með hljómsveitinni frægu, The
Beatles. í Bandarikjunum lét
Dirta heilsíðu bréf til allra
meðlima hljómsveitarinnar i
stórblaðinu New York Times í
gær. Bréfið hófst á þennan
hátt: „Kæru George, John
Paul^ og Ringó, og síðan kom
áskorun til þeirra fjórmenning-
anna að leika á aðeins einum
hljómleikum í viðbót til að
gleðja Bítlaþyrst mannkynið
einu sinni enn.
I bréfinu stóð ennfremur, að
með tónlist sinni hefðu Bítl-
arnir gert heiminn betri en
hann hefði ella orðið. — Að
sögn Bernsteins fékk hann heil
ósköp af þakkarupphringingum
frá fólki strax eftir að bréfið
birtist. Hann hafði hins veear
ekkert heyrt frá fjórmenning-
unum, þegar síðast fréttist.
Bernstein sagði að sams
konar bréf til Bítlanna myndi
birtast i Parísarútgáfu stór-
blaðsins Herald Tribune í dag.
Hann greiðir fullt auglýsinga-
verð fyrir bréfin til þeirra, en
vildi ekki gefa upp hve mikið
þessi viðleitni hans hefði
kostað, sagði aðeins að upphæð-
in væri svo há að hann yrði að
slá lán til að geta greitt hana.