Dagblaðið - 20.09.1976, Blaðsíða 9
9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 20. SEPTEMBER 1976.
Erlendar
fréttir
Einnig
samsvarandi
EKKIVITAÐ HVAÐ
VERÐUR UM LÍK MAOS
— ekki tafíð óliklegt að það verði smurt til
œvarandi varðveizlu
Kissinger bjartsýnn á
lausn Ródesíu-deilunnar
— eftir tvo fundi með lan Smith í gœr
VEGG-
0G
BORÐ-
LAMPAR
Opinberri útför Maos for-
manns kínverska kommúnista-
flokksins lauk í Peking á
laugardagskvöldiö án þess að
nokkuð væri látið uppi um hver
afdrif líks hans yrðu.
Til þessa hafa hetjur kín-
verska •» konimúnistaflokksins
verið brenndar en nú hefur
getum verið leitt að því að lík
Maos verði smurt og varðveitt
um aldur og ævi á sama hátt og
lík Lenins og Ho Chi Minhs.
Tiu daga þjóðarsorg í Kína
lauk með mikilli minningarat-
höfn í gærmorgun, sem milljón
manna tók þátt í. í gærkvöld
hafði ekkert verið sagt af
opinberri hálfu um hvort Mao
hefði verið brenndur.
Eftir útför Chou En-lais,
forsætisráðherra, í janúar sl.
var tilkynnt þegar í stað, að í
samræmi við óskir hans hefði
líkið verið brennt og ösku þess
dreift yfir ár og sveitir
landsins. Ekki er talið ólíklegt,
að Mao hafi einnig verið búinn
að gera ákveðnar óskir um af
drif líks síns.
A undanförnum árum hefur
líkamsösku kínverskra
leiðtoga yfirleitt verið komið
fyrir í Papaoshan-kirkjugarði í
fjallshlíð skammt vestur af
Peking.
Þjóðarsorgin náði hámarki
sínu á laugardaginn, þegar öll
kínverska þjóðin, fjórðungur
mannkyns, stóð þögul í þrjár
mínútur í virðingarskyni við
hinn látna leiðtoga sinn.
Hua Kuo-feng, forsætis-
ráðherra, flutti minningarorð
um Mao á Torgi hins himneska
friðar í Peking, og þar lutu allir
viðstaddir, rúmlega milljón
manna, höfði þrisvar sinnum
fyrir framan risastóra ljósmynd
af Mao. Útlendingum var
meinaður aðgangur að útfarar-
athöfninni, en grát viðstaddra
mátti heyra í kílómeters fjar-
lægð.
íbúar Peking eru enn með
svört armbönd til vitnis um
sorg sína.
Ekkert hefur verið tilkynnt
um nýan fund miðstjórnar
Kommúnistaflokksins, en þar
sem allir 160 stjórnarmennirnir
eru nú í Peking er hægt að
kalla hana saman með mjög
stuttum fyrirvara.
Miðstjórnin verður einnig að
tilnefna nýja menn í fasta-
nefndina og æðstaráðið, en
síðan í desember hafa fjórir af
átta æðstaráðsmönnum horfið á
fund feðra sinna.
Lík IMaos á viðhafnarbörum í Höll alþýðunnar í Peking. Gráturinn heyrðist i kílómeters f jarlægð.
þegar stjórn Smiths lýsti yfii
sjálfstæði, til að geta viðhaldið
minnihlutastjórn 270 þúsund
hvítra manna yfir sex milljón
blökkumönnum. Allar tilraunir
til að leysa þennan vanda hafa
reynzt árangurslausar og afleið-
ingin er sú, að blökkumenn í
Ródesíu og nágrannaríkjunum
hafa hafið skæruhernað á
hendur stjórninni og hvitum
mönnum til að heimta rétt sinn:
meirihlutastjórn blökkumanna.
Ian Smith og Vorster hittast.
NY
sending
af
luktum
og Ijósa-
krónum
fró Svali
Lands-
ins
mesta
lampa-
úrval
: |f
Sendum í póstkrðfu
LJÓS & ORKA
Suðurlandshraut 12
simi 84488
REUTER
Tyrkland:
Henry Kissinger og Ian
Smith, forsætisráðherra minni-
hlutastjórnar hvítra í Ródesíu,
áttu tvo fundi í Suður-Afríku í
gær. Kissinger lét í það skína að
fundinum loknum að sæmilega
horfði með lausn vándamál-
anna í Ródesíu og þótti jafnvel
með ólíkindum að Smith hefði
fallizt á fundinn, því áður hafði
verið skýrt frá því að gerði
hann þaö, þá þýddi það að hann
væri reiðubúinn að láta tölu-
vert undan síga.
Smith hélt til Salisbury í
Ródesíu í gærkvöld til að skýra
ráðherrum sínum og flokks-
félögum frá fundum sínum með
Kissinger, en bandaríski utan-
ríkisráðherrann sagði á fundi
með fréttamönnum að sér hefði
virzt Smith taka vel í þær tillög-
ur, sem samdar hefðu verið af
fulltrúum Bandaríkjanna og
Bretlands i félagi við blökku-
mannaleiðtoga í Afríku.
,,Ródesíuvandamálið“ má
rekja allt aftur til ársins 1965,
TALIÐ AÐ 154 HAFI
FARIZT í FLUGSLYSI
Tyrknesk farþegaflugvél af
gerðinni Boeing 727 fórst yfir
Tyrklandi í nótt. Talið er að áhöfn
og farþegar, alls 154 talsins, hafi
farizt.
Flugvélin var að koma frá
Ítalíu, er slysið varð. Það síðasta
sem heyrðist frá flugmönnunum
var, að þeir hygðust lækka sig úr
13.000 fetum í 12000. Á þeirri
stundu er talið fullvfst að eitthvað
hafi komið fyrir.
Af 147 farþegum vélarinnar,
voru útlendingar 125, flestir
Italir og Vestur-Þjóðverjar, sem
voru að fara í sumarleyfi. Flug-
vélin hafði lent í borgunum Róm
og Mílanó og komið við í Istam-
bul, áður en hún hélt til borgar-
innar Antalya. Einhvers staðar
þar á milli hefur slysið átt sér
stað.