Dagblaðið - 01.10.1976, Page 2

Dagblaðið - 01.10.1976, Page 2
DACBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. OKTÖBER 1976. /* Sœdýrasafnið ó dagskró enn ó ný: III meðferð ó veslings skepnunum — segir dýrovinur Dýravinur skrifar: Mig langar aó pára nokkrar línur í Dagblaöió um Sædýra- safnið og tel mig tala fyrir munn allra þeirra sem bera einhverjar tilfinningar i garö dýra. Hvaö eftir annað h’efur forstöðumaður Sædýrasafnsins ritað greinar í blöð eða látið hafa eftir sér lofsyrði um stofnunina í viðtölum í von um að senn fáist meira fé til rekstursins og framkvæmda þar. Bágt á ég með að trúa því að nokkur maður með heilbrigða skynsemi fari að moka fé í þennan rekstur eftir að hann hefur kynnt sér starf- semina til hlítar. Meðferðin á dýrunum þar er svo hrikaleg að því verður vart með orðum lýst. Föðrunin er f.vrir neðan allar hellur eins og marka iná af þvi að sauðfé er alið eingöngu á rófukáli langtímum saman. En allir sem þekkja til sauðfjárræktar vita að í því er ekki öll sú næring sem kindur þurfa á að halda, þó það geti verið ágætis fóður með öðru. Haugarnir af úldnu rófukáli liggja í nánd við sauðfjárgirðinguna og blöskrar þeim sem leið eiga um að nokkurri lifandi veru skuli vera boðið að nærast á þessu. Þá er sóðaskapurinn svo ofboðslegur að engu lagi er líkt. Einn mann hitti ég fyrir skömmu sem verið hafði á ferli við Sædýrasafnið snemma morguns og mætt þar mikilli skrúðfylkingu af rottum sem spígsporuðu á meðal dýranna. Þetta er ekki hægt að líða til lengdar. Annað atriði í þessu máli er svo það að ekki þykir eðlilegt að loka villt dýr inni í búrum og mannhæðar háum girðingum. Samræmist það ekki eðli skepnunnar, sem er að leika lausum hala úti í náttúrunni. Það er a.m.k. lágmarkið að dýrin fái að búa við sómasam- leg lífsskilyrði ef á að halda þeim föngnum eins og þarna er gert. Það væri eðlilegast að Dýra- verndunarfélag Hafnarfjarðar gengi í málið og mótmælti þessu við yfirvöld. Er það áskorun mín og annarra, sem láta sig þessi mál varða að gripið verði í taumana áður en skattgreiðendur fara enn frekar að moka fé í þessa miður skemmtilegu stofnun. Þorlákshöf n er nú huqsanleg endastöð Smyrill mun halda áfram ferðum hingað nœsta sumar: Nýlega var tekín ákvörðun um að færeyska ferjan Smyrili haldi áfram ferðum hingað næsta sumar, en miklar sögu- sagnir hafa verið um að ferðir þessar væru að leggjast niður vegna tapreksturs. Steinn Lárusson, fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstof- unnar tJrvals. sagði í viðtali við blaðið í gær að viðskiptin af okkar hálfu við ferjuna hafi stöðugt aukizt frá upphafi. Um þá hugmynd að Smyrill komi til Þorlákshafnar í stað Neskaupstaðareinsog nú. sagði Steinn að hún væri í athugun, en það væri 16 tímum lengri sigling fyrir skipið og þeir 16 tímar væru einfaldlega ekki til I vikunni miðað við áætlun skipsins nú. Smyrill gæti vænt- anlega notað aðstöðu Vest- mannaeyjaferjunnar I Þorláks- höfn, þegar hún er fullfrágeng- in. Blaðinu er kunnugt um marga af Reykjavíkursvæðinu, sem hug hafa á að fara með hjólhýsi sín í ferðalag til Evrópu, en leggja ekki 1 að aka þeim austur á Neskaupstað eftir slæmum vegum og telja það muni riða húsunum að fullu. — G.S. BARA FYRIR REYKVÍKINGA Seyðfirðingur um Dagblaðið: Seyðfirðingur skrifar: í grein í Dagblaðinu 7. sept. sl. er fjallað um ferðir færeysku ferjunnar Smyrils. Vegna greinar þessarar vil ég benda á: — Smyrill siglir ekki til Neskaupstaðar heldur Seyðis- fjarðar. —Blaðamaður vorkennirgreini- lega Reykvíkingum að fara með hjólhýsi sín austur á land. En hvað þá með Austfirðinga og Norðlendinga? Skrif blaðamannsins sýna ótvírætt, að Dagblaðið er reykvískt blað með háreykvísk sjónarmið. Við landsbyggðar- menn fáum flestallar vörur okkar um Reykjavík. Við fljúgum til útlanda um Reykja- vík og nú er of gott fyrir okkur að geta siglt til útlanda frá Austfjörðum. Skítt með alla skynsemi, þjónustan skal mið- uð við hjólhýsaeigendur í> Reykjavík. DAGBLAÐK) GERIR EKKI UPP Á MILLI LANDSHLUTA — kannski þarfara að leggja áherzlu á jafnari vöruflutninga en að skemmtiferja komi að á Seyðisfirði? Vegna gagnrýni Seyó- firðingsins vil ég benda á að flestir farþegar með Smyrli eru af Reykjavíkursvæðinu og því ekki óeðlilegt að skipið kæmi til Þorlákshafnar, eða nær stærsta viðskiptahópnum. Eg vil líka skjóta því inn í að ég er utan af landi, bý ekki í Reykjavík og á ekki hjölhýsi. í fljótfærni nefndi ég Nes- kaupstað en ekki Seyðisfjörð. 1 sporum Seyðfirðingsins legði ég margfalda áherzlu á að vöruflutningar til allra lands manna færu ekki eingöngu unt Reykjavík, það hlýtur þó að vera margfalt meira hags- munamál en hvort einhver ferðamannaferjasiglirtil staðar úti á landi en ekki Reykjavíkur og það rétt yfir hásumarið. Að lokum lít ég ekki alvarlega á að Dagblaðið skuli vera sagt reykvískt og þar skuli m.a. koma fram háreykvísk sjónarmið, eins og Seyðfirðingurinn kallar það. Eg veit ekki enn um þau sjónar- mið, sem ekki hafa átt aðgang að þessu blaði. Dagblaðið birtir eskfirzk, seyðfirzk, ísfirzk og akureyrsk sjónarmið, svo eitt- hvað sé nefnt, auk sjónarmiða hagsmunahópa, félaga og sam- taka og er ekkert upp á milli þeirra gert. -G.S. Fólk hefur lagt misjafnt mat á starfsemi Sædýrasafnsins. Sumir gleðjast yfir að hafa nú loksins stað til að skreppa á með börnin á sunnudögum, en aðrir líta á málið frá sjónarhóli dýranna. SJÓNVARPIÐ ER ÁGÆTT 1 riljr kAfl rp Við verðum að sníða okkur stakk EllW wr Elm eftir vexti segir sjónvarpsunnandi Margir deila um kvik- myndaúrval sjónvarpsins og finnst sumum McCIoud hafa litið menningarlegt gildi eða uppb.vggjandi áhrif, en flestir eru sammála um að þættirnir hans séu ágætis afþreying og er það ekki einmitt það sem ofþreyttir og „stressaðir" Vesturlandabúar þurfa á að halda? Guðrún Kjartansdóttir hringdi: „Það eru nú meiri lifandis ósköpin sem fólk getur eilíflega rifizt út af sjónvarpinu. Einuin finnst það einkennast af ómenningu og vera helzta orsök fyrir neikvæðum viðhorfum og hegðun unglinga. Annar vill láta allt fara fram á íslenzku, hvernig sem það á svo að vera framkvæmanlegt. Sumir rífast og skammast yfir lélegu kvik- myndaúrvali og leiðigjörnum framhaldsmyndum, vilja helzt horfa á Laxness og Ibsen kvöld eftir kvöld. Enn aðrir kvarta yfir of miklum íþróttum, eða þá hvað þulirnir séu leiðinlegir, nefmæltir eða andstuttir. Ja, heyr á endemi. Enginn gerir svo öllum líki, segir máltækið. Hvernig er hægt að ætlast til að dagskrárstjórar og yfirmenn sjónvarpsins getihaft hvern einasta dagskrárlið þannig gerðan að alhr hafi unun af? Engir tveir hafa sama smekk og það er alls ekki fram- kvæmanlegl að gera öllum til geðs. Ef einhverjum mislíkar, er hægt um vik að slökkva á kassanum, nema sá hinn sami sé svo andlaus og ósjálf- stæður að hann geti ekki fleytt sér í gegnutn kvöldin án þess að sjónvarpið hafi ofan af f.vrir honum. Eg ætla ekki að taka undir alla þessa gagnrýni. Mér finnst sjónvarpið alveg ágætt eins og það er. Við íslendingar höfum enn ekki náð svo langt að geta séð okkur sjálfum fyrir frambærilegu sjónvarpsefni. Þessi örfáu leikrit, sem sett eru upp annað slagið, falla fáum í geð, að ég held, og flestir eru fljótir að skrúfa f.vrir þau. Erlendar kvikmyndir og framhaldsþættir eru enginn skaðvaldur fyrir íslenzka tungu. Frá barnsaldri þurfum við að læra erlend tungumál í skólum og ættu myndir með erlendu tali aðeins að bæta við þá menntun. a.m.k. að halda henni sæmilega við. Það væri þess vegna allt í lagi að leyfa Kanasjónvarpið á ný. Yfirleitt held ég að kvikmyndir þær og framhaldsþættir, sem sjón- varpið sýnir, séu almenn- ingi til ánægju, því fæstir pæla í hvert iistrænt eða menningarlegt gildi þeirra sé. Re.vnum frekar að byggja íslenzka sjónvarpið upp með jákvæðri afstöðu í staó þessarar eilifu gagnrýni sem dynur á þvi í tíma og ótíma."

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.