Dagblaðið - 01.10.1976, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUÐAGUR 1. OKTÖBER 1976.
14
PARAOlS: Paradis (Par 002)
Upptaka: Pobblo Boach Sound Recorders
Stióm upptöku: Jonathan Rowlands.
Skuröur: CBS, London.
Pressun, prentun: Soundtek. New York.
Hljómsveitin Paradls hefur
náð slíkum vinsældum hjá ís-
lenzkum táningum, að annað
eins hefur ekki gerzt siðustu
árin, síðan Hljómar og síðar
Ævintýri voru og hétu. Það er
því svo sannarlega mikill
fengur fyrir þessa táninga að fá
þessa fyrstu LP plötu hljóm-
sveitarinnar í hendur. Hljóm-
sveitin hefur líka valið lög á
plötuna fyrir þann markað, sem
hún hefur notið hvað mestra
vinsælda á.
Það er fyrst og fremst góður
hljóðfæraleikur sem gerir
þessa fyrstu LP plötu Paradísar
að því sem hún er. Lögin eru
flest venjulegir línurokkarar.
Þó eru tvær undantekningar.
Önnur er rólegt og hugljúft lag
eftir Nikulás Róbertsson, sem
nefnist Someday. Hin undan-
tekningin er lag Björgv. Gísla
sonar Life Is A Liar. Það lag
minnir meira á efnið, sem
Pelican sáluga setti á plötur, og
jafnvel á köflum á gömlu
Náttúruplötuna. sem nú er því
miður flestum gleymd.
Hin átta lögin á plötunni
sverja sig i ætt við þá tónlist,
sem Paradís leikur á dansleikj-
um. Hljómsveitin hefur þau
velflest á dansleikjaprógrammi
sínu. Það er reyndar rangt að
setja þau öll undir sama hatt,
því þau grípa fólk misjafnlega
vel. Aðal stuðlögin eru Tarzan,
Rabhits og Siip Me Five. Para-
dís hefur flutt öll þessi lög á
hljómleikum og fengið góðar og
verðskuldaðar viðtökur fyrir
flutning sinn á þeim.
Textar á Paradísarplötunni
eru flestir á einn veg. Þeir eru
fremur innihaldslitlir, sem er
út af fyrir sig enginn galli, þar
sem hljómsveitin leikur ein-
göngu á dansleikjum og hljóm-
ieikum og hefur engan
boðskap sem hún þarf að koma
á framfæri.
Textahöfundar eru fjórir.
Fyrst skal telja þá blaðamenn-
ina Gunnar Salvarsson og Gísla
Svein Loftsson. Þeir sleppa
þokkalega frá sínu hlutverki,
— Gunnar með einfalda texta,
en Gísli aftur á móti með heilar
ritgerðir. Ágúst Guðmundsson,
öðru nafni Eastan McNeal, á
tvo texta, sem minna fremur á
orðaleik en lyrikk. Agúst samdi
á sínum tíma marga texta fyrir
Pelican, og þeir sem hann gerir
f.vrir Paradis eru ósköp áþekkir
hinum fyrri. — Þá er ótalinn
höfundur textans við Someday.
Sá er skráður H. Antonsson og
virðist hafa hitt á viðeigandi
efnivið við lagið.
Umsiag Paradísarplötunnar
er þokkalegt. Á forsíðu er
mynd af Adam og Evu i Para-
dís. Sú er gerð af Þorsteini Egg-
ertssyni. Einhvern veginn
finnst mér þessi mynd ekki
hæfa rokkplötu þó að hún sé
vel gerð. Ljósmynd Björgvins
Pálssonar á baksíðu er góð, eins
og við var að búast
frá honum. Samt tel ég, að
Paradís hefði átt að notfæra sér
hæfileika Björgvins til að taka
,,live“ myndir af hljómsveitinni
og setja eina slíka á umslagið.
1 stuttu máli: Paradísar-
platan er ágætlega áheyrileg.
Hún er eingöngu miðuð við tón-
listarþarfir þess aldursflokks
sem Paradís miðar flutning
sinn við. Ef litið er á dægurtón-
listina í heild, þá er platan ef til
vill dálítið gamaldags. Það er
funky- og diskótektónlistin,
sem er i tízku þessa dagana, en
guð foröi Paradís frá því að
fara að flytja slíka tónlist.
— AT —
Kaktus er kominn úr sumarfríi
Stuðmannaferð
í undirbúningi
Ragnar Sigurjónsson
trommuleikari hefur nú verið
valinn til að leika með hljóm-
sveitinni Stuðmönnum á
væntanlegu hljómleika-
ferðalagi hennar út um land í
stað Sigurðar Karlssonar. Enn
hefur ekki verið endanlega
ákveðið hvar leikið verður, en
verið er að leggja síðustu hönd
á þann undirbúning.
Öttar Felix Hauksscn hefur
verið fenginn til að annast allar
framkvæmdir varðandi Stuð-
mannaferðina. Hann sagði í
samtali við DB í vikunni, að
fullvíst væri, að ferðin byrjaði
á Akureyri fimmtudaginn 7.
október, en gat ekki á þessu
stigi málsins nefnt fleiri sam-
komuhús.
Auk Ragnars Sigurjónssonar
verða í Stuðmannaferðinni þeir
Valgeir Guðjónsson, Egill
Ólafsson, Sigurður Bjóla, Jakob
Magnússon og Þórður Árnason.
Þá er verið að ganga frá
ráðningum skemmtikrafta, sem
verða með í förinni.
-AT
ÞRIÐJA HLJÓMPLATA
MEGASAR KOMIN ÚT
Hljómplaia Megasar. Fram & aftur blindgöliina. kom út á máiiu-
daginn var og hefur nú verið dreifl i hliómplöluver/laiiir. A
plötunni svngur Megas nokkur lög eftir sjálfau sig. llann seniur
einnig alla lexla. Þella er þriðja LP plala Megasar, — sú fyrsta kom
út árið 1972 á kostnað höiundar og önnur plalau. Millilending. koni
á markað í fyrrahaust.
A þessari nýju pliilu aðsloða Megas nokkrir þaulvanir liljóðfa'ra-
leikarar og þykja þeir sleppa injög vel frá sínu. Megas valdi
einungis menn. seni gálu lesið nólur. þvi að hann skrifar öll liig sin
og útsetur. áður en farið er í stúdió. — l'lgefandi plölunnar er iiýll
fyrirtæki. Hrím að nafni. Ingibergur Þorkelsson veilir því fyrirlæki
forstöðu.
-AT/l)B-niynd Arni Pall.
Nú er Kaktus aftur kominn í
gang með alla brodda spennta
og eru félagarnir nú aðeins
þrír, þeir Ólafur (gitar, bassi og
söngur), Björn (orgei, píanó,
nikka, bassi, söngur) og
Árni, sem hýðir rándýrt
trommusett, auk þess að
syngja. M.ö.o. Kaktus hefur
fjölbreytta hljóðfæraskipan og
leggur mikið upp úr fjölrödduð-
um söng.
í vetur ætlar hljómsveitin að
hafa mikla breidd í prógramm-
inu. Hávaðamengun verður
engum til ama og áherzla lögð á
að fólk á aldrinum 1-101 árs
geti skemmt sér vel, því að
Kaktus tekur llkaað sér jólatrés-
skemmtanir með jólasveininn
innifalinn (hver skyldi það
vera?).
Góða skemmtun.
p.s.
Stefán Aagrímuon fyrrum bassnlaikarí og
•öngvari Kaktuts er floginn af skerinu og
býr nú I Kaupinhavn meö konu og bömum,
þar sem hann hyggst Ijúka guöfrasöinámi.
Amen."
Ragnar Sigurjónsson tekur sæti Sigurðar Karlssonar í Stuðmönn-
um. DB-mynd Arni Páll.
ÆTLUÐ AÐDÁENDUM Á
TÁNINGAALDRINUM
— umsögn um
Paradísarplötuna
KAKTUS: Frá vinstri eru Ólafur, Björn og Arni. Spurningin er
aðeins sú, hver þeirra muni vera jólasveinninn.
Poppsíða Dagbiaðsins barst
fyrir skömmu skemmtilegt
bréf frá hljómsveitinni
Kaktusi. Það fer hér á eftir:
„Hljómsveitin Kaktus hefur
starfað um þriggja ára skeið og
leikið víða um land en mest á
höfuðborgarsvæóinu. Fyrstu
tvö árin voru meðlimirnir brír
—þeir Björn Þórarinsson,
Stefán Ásgrímsson og Arni
Askelsson. A siðasta ári bættist
fjórði maður, Helgi Kristjáns-
son gítarleikari, i hópinn.
Þannig lék Kaktus um tima.
eða þar til Helgi hætti og Ólaf-
urÞórarinsson úr Mánum tók
sæti hans. Þannig lék
flokkurinn enn um sinn eða til
vors, er ákveðið var að taka
langþráð sumarfrí, sem og var
gjört.