Dagblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 22
•n
1
HÁSKÓLABÍÓ
Einu sinni er ekki nóg
(Once is no( cnoiif’h)
Snilldarlega leikin amerísk lit-
mynd í Panavision er fjallar um
hin eilífu vandamál, ástir og at<d
og alls kyns erfiðleika. Myndin er
gerð eftir samnefndri metsölubók
Jacqueline Susan.
Aöalhlutverk: Kirk Douglas,
Alexis Smith, Brenda Vaccaro,
Deborah Raffin.
tslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9.
m
NÝJA BÍÓ
I
Þokkaleg þrenning
PETER FONDA SUSAN GEORGE
DIIITY WIARY
.GRAZY I.AIIIIY
slenzkur texti.
Ofsaspennandi ný kappaksturs-
mynd um þrjú ungmenni á flótta
undan Iögreglunni.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ
I
í klóm drekans
Æsispennandi mynd með beztu
karateatriðum sem sézt hafa i
kvikmynd.
Aðalhlutverk: Bruce Lee og John
Saxon.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 9.
I
HAFNARBÍÓ
I
Barnsrónið
Frábær japönsk kvikmynd,
spennandi og afar vel gerð.
Toshiro Mifune.
Tatsuya Nakadai.
Leikstjóri: Akira Kurosawa.
Bönnuð innan 12 ára.
Endursýnd kl. 5 og 8.30.
Skrítnir feðgar ó ferð
Sprenghlægileg grínmynd. Seinni
m.vndin um hina furðulegu
Steptoc-feðga. Endursvnd kl. 3 og
11.15.
I
LAUGARÁSBÍÓ
I
The Romantic
Englishwoman
Áhrifamikil ný brezk kvikmynd
með Oskarsverðlaunaleikkonunm
Olenda Jackson í aðalhlutverki
ásamt Michael Caine og Helmut
Berger.
Leikstjóri: Joseph Lose.v.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
íslenzkur texti.
Barizt unz yfir lýkur
Svnd kl. 11.10.
GAMLA BÍÓ
Ken Russells Film
/ovoge
me//ioh
M
Ensk úrvalsmynd, snilldarlega
gerð og vel leikin.
Leikstjóri: Ken Russell.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
1
STJÖRNUBÍÓ
I
Emmanuelle 2
Heimsfræg ný frönsk kvikmynd i
litum. Aðalhlutverk: S.vlvia Krist-
el, Umberto Orsini, Catherine
Rivet.
Enskt tal, islenzkur texti.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Miðasala frá kl. 5.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Nafnskírteini.
Hækkað verð.
I
TÓNABÍÓ
8
Enn heiti ég Trinity
(My name is still Trinitv).
Skemmtileg ítölsk mynd með
ensku tali. Þessi mynd er önnur
m.vndin í hinum vinsæla Trinity
myndaflokki.
Aðalhlutverk:
Bud Spencer
Terence Hill.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.15.
1
AUSTURBÆJARBÍÓ
8
Íslenzkur texti
Magnum Force
með Clint Eastwood.
Bönnuðinnan 16ára.
Endursýnd kl. 5.
kvöld kl. 20,
Sóiarferð
6. sýning
uppselt.
Hvit aðgangskort gilda.
Laugardag kl. 20.
Sunnudag kl. 20.
ímyndunarveikin
föstudag kl. 20.
Litli prinsinn
sunnudag kl. 15.
Miðasala 13.15—20.
Simi 1-1200.
Höfum
kaupanda að
Chevrolet Blazer
'73—'74. sem imelli greiðasl
aðfulluá 10—12mánuðum.
DACBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. OKTOBER 1976.
tJtvarp
Sjónvarp
i . i.
8
Útvarpið í
kvöld kl. 22.15:
Til umrœðu
Hvert stefnir í
kjaramálum opin-
berra starfsmanna?
Þátturinn Til umræðu
verður i kvöld og fjallar um
mál sem mikið hefur verið í
brennidepli undanfarið, hvert
stefni í kjaramálum opinberra
starfsmanna. • Þátttakendur
eru Eiður Guðnason frétta-
maður, Höskuldur Jónsson
ráðuneytisstjóri og Kristján
Thorlacíus formaður Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja.
Stjórnandi þáttarins er Baldur
Kristjánsson. -FVI
Gamla bíó: SAVAGE MESSIAH
Brjólœði er svaríð
við brjáluðum heimi
Gamla bíó er að sýna stór-
skemmtilega mynd þessa dag-
ana „Savage Messiah“ eftir
brezka kvikmyndagerðarmann-
inn og leikstjórann Ken
Russell. Myndin fjallar um
stutt lífsstarf franska mynd-
höggvarans Henrh Gaudiers og
ástarævintýri hans með pólskri
stúlku í París og London
skömmu fyrir upphaf fyrri
heimsstyrjaldarinnar.
Þessi mynd sver sig í ætt við
þær fyrri myndir eftir Russell,
sem ég hef séð. Þær bera með
sér að maðurinn telur brjálæði
líklega eina svarið við
brjáluðum heimi. Ofsi og
grófleiki — sem þó verður
yfirleitt ekki ljótur — eru áber-
andi og kynlíf er sett á oddinn.
Það kom þvi skemmtilega á
óvart (og raunar mjög þægi-
lega), að þrátt fyrir allt tal um
kynlíf og líkamlegar fýsnir í
þessari mynd, var ekki í henni
ein einasta „ástarsena". Það
eina í þá áttina var fallegt lítið
augnablik, þegar Henri og
pólska stúlkan snertu andlit og
hendur hvors annars með
litlum kossum.
Henry Gaudier er leikinn af
Scott Anthony, sem ég kannast
raunar ekkert við en er
myndarpiltur, og pólska
stúlkan Sophie er leikin af
Dorothy Tutin, sem lék
kennslukonuna i sjónvarps-
myndaflokknun. „A Suðurslóð“.
Bæði fara á kostuin. einkum
þó hann sem v.irðist mjög
trúverðugur. Aðrir leikarar
koma og við sögu og hvað mig
varðar þá skila þeir
hlutverkum sínum þannig, að
allt eins gæti verið um
heimildarmynd að ræða.
An þess að ég sé kunnugur
þeim fræðum sem Ken Russel
þekkir og beitir, fer ekkert á
milli mála, að maðurinn kann
heilmikið fyrir sér i kvik-
myndagerð. Leikstjórn og kvik-
myndataka er þannig útfærð,
að stöðugt er verið að koma
manni á óvart, stöðugt eitthvað
lítið, skrítið og skemmtilegt að
OMAR
VALDIMARSSON
Kvik
myndir
gerast og ýkjurnartil þess eins
að undirstrika án þess að koma
kjánalega eða fáránlega út.
Samkvœmisdansaklúbburinn
heldur sína fyrstu
skemmtun laugardag-
inn 2. okt. kl. 9 í
Brautarholti 4.
VETRARSTARFIÐ KYNNT.
DANSAÐ TIL KL. 2.
Miöa- og horóapantanir
milli kl. 5 og 7 í síma
27676.
Verið með fró byrjun.
SAMKVÆMISDANSAKLUBBURINN
Scott Anthony í hlutverki
franska myndhöggvarans
Henri Gaudiers.
Söguþráðurinn skiptir e.t.v
minna máli. Henri er ungur
listamaður í París og ætlar að
verða frægur. Sophie kemur
frá Póllandi og ætlar að njóta
friðar og innblásturs menning-
arborgarinnar til að skrifa
skáldsögu sína um sannleikann.
Þau hittast á bókasafni, verða
ástfangin, trúlofast og flytja
saman i kompu undir járn-
brautarstöð. Þar býr hann til
aínar myndir, reynir að komast
|upp í hjá henni (en hún segist
einfaldlega ekki hafa áhuga),
elskar hana á sinn hátt. Svo
brýzt út stríð, en þá hefur hann
búið til myndir fyrir heila
sýningu. Sýningin er haldin án
hans, þvi hann fellur í bardaga.
Þessi Gaudier mun hafa verið
til en í Gamla bíói var engar
upplýsingar að fá, hvorki um
hann né myndina. Kvikmynda-
bækur ritstjórnarinnar segja
ekkert um m.vndina heldur —
en það skiptir engu máli. Hútt
er góð.
Aftur á móti eru bekkirnir í
bíóinu vondir og þröngt á ntilli
þeirra. Textaþýðingin er hálf-
gert klúður.
-ov.