Dagblaðið - 08.12.1976, Síða 1
2. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976 — 277. TBL.
RITSTJORN SIÐUMULA 12, SÍMI 83322. AUGLVSINGAR OG AEGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27023
Lausn Geirfinnsmálsins í sjónmáli?
OKUMAÐURINN A MORD-
STAÐINN ER FUNDINN
LEIKIÐ
VIÐ
TRÖLL-
KONU
Það er vinsælt
meðal yngri bæjar-
búa í Vestmanna-
eyjum að klifra í
Tröllkonunni hans
Ásmundar á Stakka-
gerðistúninu. A þess-
um myndum Ragn-
ars Sigurjónssonar.
fréttaritara DB í
Eyjum. sjást krakk-
ar leika við kellu.
Verk Asmundar eru
sterkleg og þeim
verður fátt að meini
og listamanninum
sjálfum finnst að
börnin eigi og megi
leika sér innan um
listaverkin og í
þeim.
Lausn Geirfinnsmálsins mun
nú vera ésjónmáli, að því er Dag-
blaðið hefur komizt næst. Að
undanförnu hefur nokkuð skýrzí
aðdragandi margumræddrar
ferðar til Keflavíkur að kvöldi 19.
nóvember 1974. Er þar byggt að
verulegu leyti á framburði þess
manns, er úrskurðaður var í
gæzluvarðhald 13. nóvember sl.,
og síðan aftur nú í vikunni.
Samkvæmt þeim framburði V
og DB telur sig hafa öruggar
heimildir fyrir — var nýi
gæzluvarðhaldsfanginn . öku-
maður í umræddri ferð. Var lagt
upp frá húsi í Reykjavík og voru
auk ökumanns í bifreiðinni a.m.k.
tvö þeirra ungmenna, er lengst
hafa setið í gæzluvarðhaldi vegna
þessa máls, og jafnframt maður
er fanginn þekkti ekki. Stóð hon-
um nokkur uggur af þeim manni,
skv. heimildum blaðsins.
Þegar til Keflavíkur kom var
ekið nokkuð um götur og leitað
eftir ákveðnum manni. Var loks
numið staðar og hringt til hans,
trúlega úr Hafnarbúðinni. Var
—
síðan haldið niður að Dráttar-
brautinni í Keflavík. Þar fóru
allir út úr bílnum, nema öku-
maðurinn, er kvaðst hafa beðið.
Hann hafi næst vitað að Sævar
Ciecielski hafi komið tii sín og
sagt eitthvað á þá leið að hann
hlyti að hafa séð það að maðurinn
hefði verið líflátinn. Það kveðst
ökumaðurinn hinsvegar ekki hafa
séð, skv. upplýsingum DB. Er
minni hans nokkuð á reiki
varðandi þau atriði, er bar til
tíðinda eftir að til Keflavíkur
kom.
Þegar haldið var til Reykja-
víkur aftur hafði farþegum í
bílnum fækkað nokkuð, m.a. var
Erla Bolladóttir ekki með þá, og
líklega fleiri. Daginn eftir hafi
hann (fanginn) hitt Sævar á
veitingahúsi í Reykjavík og hafi
hann þá sagt sér að nú væri um að
gera að þegja.
Rannsóknaraðilar í sakadómi
Reykjavíkur hafa ekkert viljað
segja um þetta mál að undan-
förnu.
-ÓV-
' ™'\
Handtekinn fyrír
smygl en aöallega
ákærður fyrir
fjármálamisferli
(^_$jábaksíðuj
Bfldudalur:
„SAMSKIPTIN VIÐ SJOÐINA”
— sjá síðari grein um Bfldudal
Framkva'mdastofnunin við Rauðarárslig
Vl , —
Síðari greinin um sögu atvinnulífs á Bíldudal á undanförnum
árum birtist í blaðinu í dag undir fyrirsögninni „Samskiptin við
sjóðina".
Þar segir meðal annars frá merkilegri hreppsáb.vrgð til handa
Einhamri hf.. einu hlutafélaganna sem stofnað hefur verið
vestra. til smíði báts sem seldur var til Grindavíkur daginn eftir
afhendinguna. Einnig segir frá því er Karl Bjarnason. starfs-
maður Bvggðasjóðs og eftirlitsmaður sjóðanna með uppbygg-
ingu frystihússins var rekinn af stjórn Fiskvinnslunnar hf.. sem
nú er að taka við rekstri hússins á Bíldudal. Framkvæmdastofn-
un ríkisins krafðist þess að Karl yrði ráðinn aftur og var það
gert. Viku síðar sagði Karl upp starfi sínu — en þá neitaði
stjórn Fiskvinnslunnar að taka lausnarbeiðni hans til greina.
Frá mörgu ööru viðlika segir í greininni í dag.
ilún er á bls. 16—18. Bildudalur