Dagblaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 8
8
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAííUR 14. DESEMBER 19V6.
Mannræningjarnir á Spáni:
BÍDA EKKI
MIKIÐ LENGUR
— hafa endurtekið kröfur sínar
Hinir öfgasinnuðu vinstri
sinnar, sem rændu háttsettum
ráðgjafa úr spænsku
rikisstjórninni, hafa sent
dagblaði einu í Madrid nýjar
kröfur þess efnis að 15
pólitískir fangar verði látnir
lausir gegn þvi að lífi
ráðgjafans verði þyrmt.
Samkvæmt fréttastofu-
fregnum frá Spáni, þar sem
segir að blaðið E1 Pais hafi
fengið sent bréf, þar sem
kröfurnar um að fangarnir
verði látnir lausir eru
endurteknar. Undir bréfið er
ritað, Andspyrnuhreyfing
fasismans, GARPO.
Hreyfingin viðurkenndi sl.
sunnudag að hafa staðið að baki
mannráninu á Antonio Maria
de Oriol y Urquijo, 63ja ára
auðugum iðniöfri af
baskaættum, sem er forn'aður
ráðgjafanefndar ríkisstjórnar-
innar, einnar valdamestu stofn-
unar á Spáni.
Þó sögðu þeir að þeir myndu
láta Oriol lausan gegn því að
fimmtán pólitískir fangar
yrðu látnir lausir úr fangelsum,
þar á meðal tveir leiðtogar
frelsishreyfingar Baska sem
handteknir voru í fyrra og bíða
enn réttarhalda.
I bréfinu sem barst í gær, var
sagt að ekki vrði beðið frekar..
Adolfo Suarez. forsætis-
ráðhetrra Spánar, sem hætti
ferðalag sitt til Barcelona til
þess að stjórna leitinni að Oriol,
hitti einn ættingja hans að máii
í gær og innanrkisráðherrann,
Rodolfo Martin Villa.
Sagði Suarez að mannránið
myndi ekki auðvelda leiðina frá
einræði að þeim lýðræðis-
takmörkum, sem sett vour
fram í breytingartillögum
þeim, er Spánverjar eiga að
greiða atkvæði um á morgun.
Hópar vinstri sinna áttu I
útistöðum við óeirðarlögreglu á
Spáni í gær eftir miklar
mótmælagöngur, þar sem fólk
var hvatt til þess, að ganga ekki'
Til mikilla óoirða kom í Madrid i gær þar sem vinstri sinnuð
ungmenni efndu til mótmæía gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni um
stjórnarskrárbreytingarnar.
til atkvæða um breytingartil-
lögurnar, þar eð þær tryggðu á
engan hátt varanlegt öryggi
stjórnarandstöðu í landinu.
Vitað er að nokkur fjöldi
manns hefur særzt í þeim
átökum við lögregluna, sem
beitti kylfum og táragasi.
MIKLAR OEIRÐIR A VESTUR-
BAKKA JÓRDANÁRINNAR
— taldar standa í sambandi við fund leiðtoga
skæruliða og skattahækkanir ísraelsmanna
Hernámslið ísraelsmanna á
vesturbakka Jórdanárinnar réðst
í gær gegn arabískum unglingum,
er efnt höfðu til mótmælaaðgerða
til stuðnings Palestínumönnum í
tveimur stærstu bæjum þar.
Nablus og Ramallanh.
Samkvæmt heimildum hersins
réðust hermennirnir gegn
unglingunum eftir að fylkingar
þeirra höfðu hafið grjótkast. Var
táragas notað við aðgerðirnar og
komin ró á um hádegisbil.
Alla undanfarna viku hefur
verið heitt í kolunum á
vesturbakkanum og er það talið
standa i nánu sambandi við fund
leiðtoga Palestínuskæruliða í
Damaskus og skattahækkanir sem
tsraelsmenn hafa komið á.
Undanfarið hafa verið ntiklar
óeirðir á vcsturbakka
Jórdanáririnar þar sem
ísraelsmenn hafa hersetu.
Þessi mynd er tekin i
flóttamannabúðum Araba á
svæðinu. sent hermenn Israels
hafa mikiar gætur á.
Kátur afi
IFremur sjaldgæft er að
leiðtogarnir i Krem sitji fvrir
hjá Ijósmyndurum með litlum
hörnum en þessi skemmtilega
mynd sýnir l.eonid Breshnev,
aðalritara kommúnistaflokks-
ins. nteð barnabarn sitt. Galya.
VÍKINGUR Á MARS
HEFUR STÖRF Á NÝ
Radíóbylgjur hafa verið sendar
til geimstöðvarinnar Víkings á
Mars til þess að koma starfsemi
hans aftur í gang eftir að reiki-
stjarnan rauða fór umferð sína
bak við sólu.
- Segja vísindamenn að þeir bú-
ist ekki við því að fá neinar sér-
stakar jólantyndir frá lendingar-
ferju Víkings á reikistjörnunni
þótt hún hafi lent ekki langt frá
norðurpól stjörnunnar, enda séu
veðurfarsbreytingar allmiklu
minni en hér á jörðu.
Sagði Barney Farmer, einn
vísindamannanna, við fréttamenn
að ekki væri búizt við því að snjór
félli á ferjuna fyrr en í april n.k.,
en það er miður vetur á reiki-
stjörnunni.
Fyrst var Víkingi 1., sem hring-
sólar umhverfis stjörnuna, komið
í gang með radíómerkjum og mun
hann verða notaður sem end-
urvarpsstöð fyrir hinar vísinda-
stöðvarnar. Sendingar frá þeim
hefjast, ef allt fer að vonum, á
fimmtudaginn kemur.
Þar á meðal munu koma niður-
stöður tölvurannsókna, veður-
skýrslur og athuganir á því, hvort
einhvers konar líf kunni að fyrir-
finnast í jarðvegi reikistjörnunn-
ar.
Marsflaugarnar Vikingur I. og 2. hafa þótt gegna vel sínu hlutvcrki.
enda þótl inargt sé þar ókannað. Þannig hugsar teiknarinn sér. að
lendingarferja Vikings 3ja muni líta út á yfirborði stjörnunnar. en
hún á að geta liutl sig úr stað á sérstökum beltum. Henni verður
skotið á loft árió 1981.
Michael Blumenthal: sér-
fræðingur í alþjóðlegri hag-
fræði og starfaði með stjórn-
um Johnsons og Kennedys.
Carter tilkynnir
val á fjármála-
ráðherra og
varnarmála-
ráðherra
Kjörinn forseti Bandaríkj-
anna, Jimmy Carter, mun til-
kynna val sitt á fjármálaráð-
herra á blaðamannafundi í
Bandaríkjunum í dag.
Líklegt er talið og
nær fullvíst að sá sem orðið
hefur fyrir valinu sé Michael
Blumental. en fjölsk.vlda hans
flúði frá Þýzkalandi er
nasistar komust til valda.
Þá er búizt við að Carter
tilkynni val sitt á
varnarmálaráðherra og að það
verði Harold Brown. fyrrum
flugmálaráðherra.
HELGI
PETURSSOIM
Erlendar
fréttir
REUTER