Dagblaðið - 14.12.1976, Side 9
DACBI.AÐIÐ. DRIÐJUDACiUR 14. DESEMBER 197b
9
RÓDESÍURÁÐSTEFN
UNNIFRESTAÐ
— ekki vitað hvenær eða hvar hún kemur saman á ný
Ráðstef'nunm um sjálfstæði
Ródesíu kann að verða frestað I
dag, án þess að þar hafi nokkur
árangur náðst. Tilgangur
ráðstefnunnar var að koma á
fót- ríkisstjórn allra kynþátta,
þar til sjálfstæði landsins yrði
tryggt.
Búizt er við að ráðstefnan
taki aftur til starfa um miðjan
janúar á næsta ári og þá undir
forsæti Ivors Richards,
sendiherra Bréta hjá
Sameinuðu þjóðunum, en ekki
er víst hvort hún verður þá
haldin I Genf eða í Nairobi.
Frestun fundarhalda á
ráðstefnunni er talin koma í
kjölfar yfirlýsingar sem
Antony Crosland,
utanríkisráðherra Breta, mun
flytja í neðri deild brezka
þingsins í dag.
Samkvæmf heimildum er
búizt við að hann lýsi þar áhuga
brezkra stjórnvalda á því að
verða beinn þátttakandi í
ríkisstjórn i Rodesiu sem
skipuð verði fulltrúum allra
málsaðila, þar til sjálfstæði
verður komið á fót og
kosningar munu tryggja
svörtum mönnum. sem eru í
miklum meirihluta i landinu,
öll völd innan tveggja ára.
Fulltrúar tjögurra
sjáfstæðishreyfinga svartra
manna á ráðstefnunni hafa
verið að leggja áherzlu á að
Bretar ættu rikisstjóra eða
sendiíulltrúa sem hefði búsetu
í landinu til þess að flýta fyrir
sjálfstæði landsins. Þessu hafa
hvítir Ródesíubúar lagzt hart
gegn.
Fulltrúi hvítra manna, Ian
Smith íorsætisráðherra, hefur
haldið sig við áætlun Breta og
Bandarikjamanna sem Henry
Kissinger kynnti honum sl.
sumar.
Samkvæmt henni er gert ráð
fyrir að komið verði á fót
rikisstjórn allra kynþátta, þar
sem yfirráð lögreglu- og
hermála væru i höndum hvítra
manna. Þessu hafa leiðtogar
svartra manna hafnað
algjörlega og lagt fram tillögur
sínar á móti.
Samkvæmt heimildum er
talið að báðir málsaðilar muni
sætta sig við að varnar- og
innanríkismál verði fengin
sérstökum fulltrúa Breta til
umfj.öllunar. Slíkt er talið
illmögulegt þar eð Bretar hafa
algjörlega neitað, að senda
hvers konar herlið til Ródesíu á
meðan núverandi ástand varir.
Við heimkomuna til
Salisbury í gær sagði Ian
Smith. sem hér sést með
ráðgjöfum sínum á
Ródesiuráðstefnunni. að hún
væri „tóm vitleysa". Nú verður
fundarhöldum frestað og ekki
er vitað hvenær. eða hvar hún
kemur saman á ný.
Hæstiréttur Bandaríkjanna:
Gilmore fær að
deyja
Hæstiréttur Bandaríkjanna
hefur dregið til baka þá ákvörðun
sína að fresta aftöku Gary
Gilmore, sem krafizt hefur þess
að fá að verða tekinn af lífi fyrir
framan aftökusveit heldur en að
eyða lífinu í fangelsi I Utha í
Bandaríkjunum.
Gilmore, sem er í
hungurverkfalli til þess að leggja
áherzlu á kröfur sínar um að
verða tekinn af lífi, var dæmdur
til dauða fyrir morð á
hótelstarfsmanni í sumar.
Hæstiréttur Utah-ríkis mun nú
ákveða dagsetningu fyrir
fullnægingu dauðadómsins.
Myndin sýnir þá tvo stóla sem
tveir dauðadæmdir fangar voru
teknir af lífi i árið 1956. Fari nú
svo að Gilmore fái ósk sína
uppfyllta verður hann reyrður
niður i annan þessara stóla og
skotinn.
Fiskveiðar í lögsögu
Ef nahagsbandalagsrík ja:
Sovétmönnum
gefinn þríggja
mánaða frestur
til samninga
— annars skilyrðislaust út fyrir
200 mflur EBE
Sovétmönnum hefur verið
gefinn minna en þriggja
mánaða frestur til þess að ná
samkomulagi við
Efnahagsbandalagsríkin um
fiskeiðar eða hafa sig úr út 200
mílna fiskveiðilögsögu þeirra
ella.
Var þeim gefinn þessi
frestur á fundi utanríkisráð-
herra bandalagsrikjanna, en
vitað er að ríkin gera þá kröfu
til Sovétmanna um að þeir
minnki afla sinn um að minnsta
kosti 10%.
Samkvæmt heimildum ei
talið að Sovétmenn verði aó
hafa sig á brott úr
fiskveiðilögsögu Bandaríkj
anna með flota sinn fyrir 31
marz. ef samkomulag hefur
ekki náðst fyrir þann tíma.
Werner von
Braun
alvarlega
sjúkur
Werner von Braun, faðir
bandarísku geimferðaáætlun-
arinnar er alvarlega veikur af
krabbameini að sögn nánustu
vina hans.
Samkvæmt fréttum mun
hann hal'a verið til meðferðar á
sjúkrahúsi skainmt frá heimili
sinu í Álexandría, Virginíu,
undanfarnar vikur en er and-
lega hress. Von Braun er 64 ára
að aldri og var einn helzti sér-
fræðingur Hitlers um eld-
flaugasmíði í síðustu heinis-
styrjöld en var tekinn i sátt
vegna þekkingar sinnar á þess-
ari vísindagrein.
Stærsta farþegafer ja í heimi
Stærsta farþegaferja í heimi,
Finnjet, sem smíðuð e'r i
Helsinki hefur nú hafið
tilraunasiglingar. Finnjet er 23
þúsund brúttólonn og getur
flutt meira en 1500 farþega og
notar tvær gastúrbínur til þess
að framleiða 75000 hestafla
kraft til þess að knýja sig
áfram.
Skipið mun hefja
reglubundnar ferðir miili
Helsinki og Travemunde í
V-Þýzkalandi í apríl n.k. íil
marks um hraða skipsins má
geta þess að það þarf ekki nema
22 tíma til að sigla þessa leið
sem venjulega tekur um 40