Dagblaðið - 14.12.1976, Side 17
i)A(iBI.Af)lf). ÞRIÐJUDAC.UR 14. DESEMBER 1976
63
Siííurður J. F. Benediktsson lézt
3. desember sl. on var .jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju 10. des-
ember. Andlátsorð um Sigurð,
heitinn birtust í blaðinu sl. föstu-
dag en þá varð viðskila ljósmynd
af hinum látna. Birtum við hana
hér með og biðjumst velvirðingar
á mistökunum.
Sigmar B.G. Þormar sem andaðist
í Landspítalanum 6. des. sl. var
fæddur 7. des. 1890 að Strönd í
Vallahreppi en fluttist ungur með
foreldrum sínum að Geitagerði.
Foreldrar hans voru Sigríður Sig-
mundsdóttir og Guttormur Vig-
fússon, fyrrum alþingismaður.
Sigmar lauk námi frá búnaðar-
skólanum á Eiðum, fór til Dan-
merkur til náms og er hann kom
hem frá námi 1919 réðst hann
sem bústjóri á Skriðuklaustri til
tilvonandi tengdamóður sinnar,
Arnbjargar Sigfúsdóttur, en
maður hennar, Halldór Bene-
diktsson var þá látinn. Kona Sig-
mars var Sigríður dóttir þeirra.
Konu sína missti Sigmar 1966.Sig-
mar og kona hans fluttu frá
Skriðuklaustri að Arnheiðar-
stöðum og bjuggu þar í nokkur ár
unz þau fluttu til Rvíkur. Sig-
mar var lengi húsvörður við Lang-
holtsskólann og vann jafnframt
að garðyrkjustörfum. Þau
eignuðust fjóra syni: Halldór
verzlunarmann, kvæntan Unni E.
Kjerúlf, Sigurð verkfræðing
kvæntan Ólöfu Ásgeirsdóttur,
Atla, innkaupastjóra kvæntan
Maríu Nielsen, hann lézt 1972 og
Valgeir eftirlitsmann kvæntan
Sígurlaugu Pétursdóttur.
Kristín Pétursdóttir frá
Berserkjahrauni i Helgafellssveit
lézt 6. des. og fer minningarat-
höfn um hana fram í Fossvogs-
kirkju í dag en jarðsett verður að
Helgafelli n.k. fimmtudag.
Kristín var fædd í Svefneyjum á
Breiðafirði 24. ágúst 1887. Hún
var af svonefndri Svefneyjaætt og
faðir hennar var Pétur Hafliða-
son Eyjólfssonar eyjajarls í
Svefneyjum. Móðir Kristínar var
Sveinsína Sveinsdóttir úr Flatey
á Breiðafirði. Kristín ólst upp
í Svefneyjum með for-
eldrum sínum og tvíbura-
styrur. Hún giftist Guðmundi
Sigurðssyni frá Berserkjahrauni
1912 og bjuggu þau fyrst í
Hraunsfirði eitt ár en síðan að
Hrauni allan sinn búskap. Þau
eignuðust 11 börn, sem öll eru á
lífi og búa flest í Reykjavík. Tvær
systur búa með mönnum sínum í
sveit en ein er búsett í Ameríku.
Börn þeirra eru Halldór verzlun-
armaður, Sigurður húsvörður,
Ingvi starfar á Ólafsfirði, Guðrún
húsmóðir í Ameríku, Sigríður,
Maria og Andrea giftar í Reykja-
vík, Pétur skipstjóri, Jón verk-
stjóri í Kópavogi, Sveinsína og
Guðlaug búsettar í Gaulverja-
bæjarhr. og Grundarf. Mann.
sinn missti Krístín 1946 og bjó
hún þá nokkur ár áfram með
yngstu börnum sínum. Síðan
hefur Kristín dvalið með börnum
sínum.
Útför Steinunnar Magnúsdóttur.
Laufásvegi 76, fer fram frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 16.
dese. kl. 2.
Theódóra Kristmundsdóttir and-
aðist 12. des.
Sigurður H. Jóhannsson,. Lindar-
götu 41, andaðist 10. des.
Sigrún Ólína Carlsdóttir, sem lézt
29. nóv. verður jarðsunginn frá
Þjóðkirkjunni í Harnafirði
miðvikudaginn 15. des. kl. 13.30.
Borgþór Guðmundsson vélvirki,
Unufelli 46, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju miðvikud. 15.
des. kl. 15.00.
Kristín Einarsdóttir Alftröð 7
verður jarðsettfrá Fossvogskirkju
15. þ.m. kl. 13.30.
María Eliasdóttir. Grundarstíg
19, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju í dag 14. des. kl. 15.00.
Fuiuiir
Aðalfundur Knatt-
spyrnudeildar KR
verður haldinn í KR-heimilinu fimmtu-j
daginn 16. des. 1976 kl. 20. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Stjórnin.
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
í Reykjavík
heldur jólafund miðvikudaginn 15. desember
kl. 20 e.h. í Slysavarnahúsinu við Granda-
garð. Þar verður jólahappdrætti, upplestur,
hljóðfærasláttur og jólahugleiðing. Félags-
konur eru beðnar að mæta stundvislega.
Kvenfélag Bœjarleiða
heldur jólafund að Sfðumúla 11 þriðjudaginn
14. des. kl. 20.30. Spilað verður bingó. Takið
með ykkur gesti.
Jólafundur
Systrafélags
Fíladelfíu
verður mánudaginn 17. desember kl. 20.30
Hátúni 2. Sýndar verða litskuggamyndir frá
Önnu Höskuldsdóttur frá Swazilandi.
Nefndin.
Fró Kattavinafélaginu
Svartur högni með hvitan kvið og fætur
fannst í Hlíðunum. Eigandi hringi í síma’
14594. Kattavinafélagið.
Jólapottar
Hjólprœðishersins
Jófapottar Hjálpræðishersins eru enn einu
sinni komnir á fornar slóðir, en hver krónaj
sem í þá kemur fer til að gleðja og hjálpa
hrjáðum og hrelldum, eins og segir í pistli’
Hjálpræðishersins af þessu tilefni.
AL—AN0N
Aðstandendur drykkjufólkfs.
Reykjavík; fundir.
Langholtskirkja kl. 2 laugardaga.
Grensáskirkja kl. 8 þriðjudaga.
Simavakt mánudaga Jd.ll5-16og
fimmtudaga kl. 17-18
Sími: 19282, Traðakotssundi 6.
Vestmannaeyjar, Sunnudag kl. 20.30. Heima-
götu 24, sími 98-1140.
Akureyri. Miðvikudag kl. 9-10 e.h. Geislagötu
39. Sími 96-22373.
Sóknarkonur
sem eiga rétt á styrk úr Vilborgarsjóði sendi
umsókn sem fyrsi.
Stjórnin.
Munið jólasöfnun
Mœðrastyrksnefndar
Mæðrast.vrksneTnd hefur nú hafið árlega
jólasöfnun sína að Njálsgötu 3. Er opið alla
virka daga frá kl. 12-16. sími 14349.
Óperukvikmyndir
! vetur munu félagið Germanía og Tónleika-
nefnd Háskóla íslands eiga samvinnu um
sýningu óperukvikmynda.
Kvikmyndir þessar eru í litum og hafa allar
verið gerðar fyrir norður-þýzka sjónvarpið í
Hamborgaróperunni í listrænni umsjá
prófessors Rolf Liebermann, sem lengi var
forstjóri þar, en stýrir nú óperunni í Paris.
Vestur-þýzka sendiráðið hefur haft milli-
göngu um útvegun myndanna.
Sýningarnar verða í Nýja Bíói kl. 2 á laugar-
dögum. nema f.vrsta sýningin, sem verður
laugardaginn 11. desember kl. 13.30. Er það
BrúðkaupFígarós eftir Mozart. Eftir áramót
verða sýridar Töfraskyttan (Der Freischiitz)
eftir Carl Maria von Weber, 22. janúar. og
Meistarasöngvararnir frá Niirnberg eftir
Richard Wagner verða sýndir í tveimur hlut-
um. fyrri hluti 26. febrúar en síðari hluti 5.
marz. Mjög hefur verið vandað til allrar
gerðar þessara mynda og er mikill fengur i að
fá þær hingað til sýninga, ekki sízt Meistara-
söngvarana.
Hóteigskirkja.
Tómas áveinsson sóknarprestur í Háteigs-
prestakalli, Barmahllð 52, slmi 12530, er til
viðtals I kirkjunni’ mánudaga til föstudaga
frá kl. 11 f.h. til kl. 12. Sími 12407.
Laugarnesprestakall: Jón Dalbú Hróbjartsson
sóknarprestur hefur viðtalstíma I Laugarnes-
kirkju þriðjudaga — föstudaga frá kl. 16-17
og eftir samkomulagi. Sími I kirkjunni er
34516, hcimasimi 71900.
Minningarkort
Byggingarsjóðs
Breiðholtskirkju
fást hjá Einari Sigurossyni, Gilsárstekk 1,
sími 74136' og Grétari Hannessyr>i, Skriðu
stekk 3, sími 74381.
Minningarkort
Kvenfólags Neskirkju fást á cftirtöldum stöð-
um: Hjá kirkjuverði Neskirkju. Bókabúð
Vesturbæjar. Dunhaga 23. Verzluninni
Sunnuhvoll. Viðimel 35.
Minningarkort
Minningarkort Toreldra- og styrktarfélags
þeyrnar^aufra fást I Bókabúð Isafoldar I
Austurstræti.
Minjningarkort
Langholtskirkju
fást á eftírtöldumstöðurTi: Blómabúðin HölLa
blómi'ð, Langholtsvegi 126, s. 26711. Rósin
Glæsibæ, s. 84820. Dögg, Álfheimum 6. s.
33978. Bókabúðin Álfheimum 6. s. 37318$
Ingibjörgu,*Sólheimum 17, s. 33580, Sigríði,
Gnoðarvogi 84, s. 34097, Jónu, Langholtsvegi
67, s. 34141, Margréti, Efstasundi 69. s. 34088.
Borgarbókasafn
Reykjavíkur
Útlánstímar frá 1. okt. 1976:
Aðalsafn, útlánsdeild, Þingholtsstræti 29a,
sími 12308. Mánudaga til föstudaga kl. 9—22,'
laugardaga kl. 9—16.
Lestrarsalur. Opnunartímar: 1. sept. — 31.
maí. Mánud. — föstud. kl. 9-22, laugard. kl.
9-18, sunnud. kl. 14-18.
1. júní — 31. ágúst. Mánud. — föstud. kl. 9-22.
Bústaðasafn, Bústaðakirkju, sínfi 36270.
Mánudaga til föstudaga kl. 14—21, laugar-
dagakl. 13—16.
Sólheimasafn, Sólheimum 27. sími 36814.
Mánudaga til föstudaga kl. 14—21, laugar-
daga kl. 13—16.
Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16. sími 27640.
Mánudaga til föstudaga kl. 16—19.
BÓKIN HEIM, Sólheimum 27. slnfi 83780.
Mánudaga til föstudaga kl. 10—12. Bóka- og'
talbókaþjónusta við aldraða, fátlaða og sjón-
dapra.
FARANDBÓKASÖFN. Afgreiðsla I Þingholts-,
stræti 29a. Bókakassar lánaðir skipum,
heilsuhælum og stofnpnum, sími 12308.
Engin barnadeild er opin lengur en til kl. 19.
BÓKABÍLAR. Bækistöð I Bústaðasafni, sími
36270.
DAGBUVDIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ SÍMI 27022 ÞVERHOLTI 2
Til sölu
JVC ferðaútvarp og sjónvarp í
einu tæki. Utvarp: fm, stuttbylgja
og miðbylgja, sjónvarpsskermur
74x6 cm. Tækið er hægt að hafa í
bíl, með rafhlöðum og við raf-
magn. Uppl. í sima 21678.
Til sölu amerískur
pottketill með kápu, sjálfvirk
k.vndingartæki og dæla fylgja.
Uppl. í síma 36481 eftir kl. 20.
Til sölu
sambyggð trésmíðavél skemmd
eftir flutning. G. Þorsteinsson &
Johnson, Armúla 1, s. 85533.
Til sölu
hvíldarstóll, rimlarúm, barnabíl-
sæti, þríhjól, dúkkurúm og mörg
fleiri loikföng, einnig 65 lítra
fiskabúr með dælu, hitara o.fl. Til
sýnis að Grænuhlíð 5. 3. hæð,
milli 5 og 8, sími eftir kl. 5 11393.
Til sölu
þvottavél, sjónvarp, radíófónn,
sófasett, kommóða, snyrtiborð,
eldhúsborð og stólar, ryksuga, ís-
skápur o.fl. Uppl. í sínta 43124
næstu daga.
Til sölu
notað gólfleppi, 50 fm. Uppl. í
sínia 51131 eftir kl. 17.
Til sölu
gamalt gólfteppi, 50 fm. Uppl. í
síma 51131.
Til sölu
er stereosamstæða, útvarp, magn-
ari og plötuspilari, einnig er til
sölu nýtt burðarrúm og leikgrind
og notaður barnavagn. Uppl. í
síma 44754.
Bíleigendur - Bílvirkjar
Sexkantasett, skrúfstykki, átaks-
niælar, draghnoðatengur, stál-
merkipennar, lakksprautur,
micrometer, öfuguggasett, boddí-
klippur, bremsudæluslíparar,
höggskrúfjárn, rafmagnslóðbolt-
ar/föndurtæki, Black & Decker
löndursett, rafmagnsborvélar
rafmagnshjólsagir, ódýrir hand-
fræsarar, topplyklasett (brota-
ábyrgð), toppgrindabogar fyrir
jeppa og fólksbíla, skíðafestingar,
úrval jólagjafa handa bíleigend-
um og iðnaðarmönnum — Ingþór,
Armúla. sími 84845.
Óskast keypt
Gólfteppi
Notað gólfteppi óskast. Upplýs-
ingar í síma 92-6519.
Þ.vkktarhefill óskast.
Oska eftir að kaupa þykktarhefil
og afréttara, sambyggða, helzt lit-
ið notaða. Nánari uppl. i síma
73513 milli 5 og 8 i kvöld.
Verzlun
i
Kanínupelsar, loðsjöl
(capes), húfur og treflar. Skinna-
salan, Laufásvegi 19, 2. hæð tíl
hægri, sími 15644.
íslenzk
alullargólfteppi i sérflokki, þrí-
þættur plötulopi, verksmiðjuverð,:
auk þess gefum við magnafslátt
Teppi hf. Súðarvogi 4, simi 36630
og 30581.
Úrval af Sm.vrna-vörum.
Mottur, veggmyndir og púðar,
krosssaumsmyndir fyrir börn.
iflosmyndir í pakkningu, Leithen
prjónagarn. (ísl. uppskriftir),
Hann.vrðaverzlunin Ellen, Siðu-
múla 29, sími 81747.
Leikföng og gjafavörur
í glæsilegu úrvali. Ný verzlun
með nýjar vörur. Vesturbúð,
Garðastræti 2 (Vesturgötumeg-
in, sírni 20141).
Antik.
Borðstofuhúsgögn, svefn-
herbergishúsgögn, dagstofuhús-
gögn, skrifborð, borð, stólar,
speglar, úrval gjafavara, kaupum
og tökum i umboðssöiu. Antik-
munir, Laufásvegi 6, simi 20290.
Leikfangahúsið auglýsir.
Höfum opnað leijtfangaverzlun í
Iðnaðarhúsinu við Ingólfsstræti,:
stórfenglegt úrval af stórum og
smáum leikföngum, Sindý-
dúkkur, sófar, stólar, snyrtiborð,
náttlampi, borðstofuborð, bað,
fataskápar, bilar. Barby-dúkkur,
föt, bilar, sundlaugar, tjöld, tösk-
ur, Big Jim, föt, bílar, töskur;
krókódílar, apar; ævintýramaður-
inn, föt og fylgihlutir, brúðuleik-
grindur, brúðurúnt, D.V.P. dúkk-
ur, Fisher Price bensinstöðvar,
skólar, brúðuhús, bóndabær, flug-
stöð, þorp. stór brúðuhús. Póst-
sendunt. Leikfangahúsið, Iðnað-
arhúsinu Ingólfsstræti og Skóla-
vörðustíg 10, simi 14806.
Nýjung — Nýjung.
Hillurnar fyrir jólaskeiðarnar
komnar. Tvær gerðir. Sendunt i
póstkröfu. Uppsetningarbúðin.
Hverfisgötu 74. Sírni 25270.
Útsölumarkaðurinn
Laugarnesvegi 112!
Allur fatnaður seldur langt undir
hálfvirði þessa viku, galla- og'
flauelsbuxur á kr„
500,1000,1500,2000 og 2500 kr.J
peysur fyrir börn og fullorðna frá
kr. 750, barnaúlpur á kr. 3900,
kápur og kjólar frá kr. 500, blúss-1
ur á kr. 1000, herraskyrtur á kr.
1000 og margt fl. á ótrúlega lágu
verði.
Uppsetningarbúðin auglýsir:
Allt til skerma. Tólf litir satin
nýkomið, einnig siffon, flauel.
blúnduefni, leggingar, kögur, 30
gerðir skermagrindur, grindur
fyrir serviettustív komnar. Allt á
sama stað sendum í póstkröfu.
Uppsetningarbúðin, Hverfisgötu
74, Sími 25270.
Kirkjufell:
Fallegar nýjar jólavörur
komnar.Gjafavörur, kerti.
jólakort, umbúðapappir, bönd,
skraut, serviettur o.fl. Nýkomnar,
glæsilegar vestur-þýzkar skirnar-
gjafir. Brúðkaupsvörur og allar
fermingarvörur. Póstsendum.
Opið 9-12 og 1-6, laugardaga 9-12.
Kirkjufell, Ingólfsstræti 6. sími
21090.
Amatörverzlunin
Allt til kvikmyndagerðar. Sýning-
arvélar, upptökuvélar, limara,
spólur, auk þ. áteknar super 8
filmur, Slides-sýningarvélar,
tjöld, silfurendurskin, geymslu-
kassar, plastrammar m/gleri og
án glers, myndvarpar og fl. Gott
úrval af myndaalbúmum, filnyúal-
búnt. Fyrir litlu börnin: þrividd-
arsjónaukar og úrval af myndum
i þá (litm). -
Amatör, Laugav. 55, s. 22718.