Dagblaðið - 14.12.1976, Side 24
Færeyingar farnir af íslandsmiðum:
Pétur „ýtti” þeim út
með ummælum sínum
— ráðuneytið taldi þá enn eiga talsvert óveitt upp í kvótann
Færeyingarnir eru farnir af
íslandsmiðum að því er Pétur
Sigurðsson, forstjóri Landhelg-
isgæzlunnar sagði í viðtali við
blaðið í gærkvöldi. Sagði hann
að þeir hefðu tekið upp á laug-
ardag og verið þann dag og
sumir fram á sunnudag að sigla
út fyrir 200 mílurnar, en fyrir
helgina voru eitthvað unt 11
færeysk skip hér á miðunum.
sex togarar og fintm annars kon-
ar veiðiskip. Hafa þeir aldrei
áður farið allir i einu af miðun-
Fyrir nokkru sagði Pétur í
sjónvarpsviðtali að sennilega
væru Færeyingarnir búnir að
veiða upp í kvóta sinn hér og
hugsanlega meira. Byggi hann
þá skoðun á talningum
Gæzlunnar, samanburði á afla-
möguleikum færeysku skip-
anna og annarra sambærilegra
skipa og veiðitölum annarra
skipa af þeirn slóðum sem
Færeyingarnir héldu sig aðal-
lega.
í viðtalinu við DB í gær stað-
festi Pétur að hann hefði ritað
sjávarútvegsráðuneytinu bréf
urn þetta i nóvember sl., en skv.
samningum var Færeyingum
heimilt að veiða hér alveg fram
í rnars á næsta ári, hefðu þeir
ekki veitt upp í kvótann fyrr.
Staðfesti hann að ráðuneytið
hefði svarað þessu bréfi, en
ekki vildi hann tjá sig um það
frekar. Blaðið hefur hins vegar
trausta heimild fyrir að ráðu-
neytiö hafi ekki viljað fallast á
þessa skoðun Péturs og talið
afla Færeyinga mun minni en
Pétur taldi. Miðað við sókn
Færeyinga hér, gerð fiskiskipa
þeirra og veiðisvæði virðist
heimildinni sem ráðuneytið
telji Færeyinga aðeins hálf-
drættinga á við íslendinga og
Breta á sömu svæðum, en sem
kunnugt er mega tveir þeir
síðarnefndu telja sig góða að
halda í við Færeyinga í veiðum.
—G.S.
„Neyðarstöðin”
skemmdist
á leiðinni til
Djúpavogs
en milt veður og straumur frá
Austfjarðalínu hefur bjargað öllu við
Jólasveinarnir
Það er engu líkara en að jóla-
sveinarnir komi ékki lengur
ofan úr Esju. Þessir félagar
voru á leið niður í miðborg
Reykjavíkur á sunnudaginn
úr Breiðholti
var og reyndar fann ljósmynd-
arinn þá uppi í Breiðhoiti. þar-
sem þeir voru eitthvað að bera
saman bækur sínar (DB-mynd
Sv. Þ.).
JEPPI KASTAÐIST INN Á HÚSALÓD
— vii harian árekstur í Kópavogi
,,Þó framhald hafi orðið á
keðju óhappanna í rafmagnsmál-
unum á Djúpavogi, hefur alls
ekki dregið til vandræða. Lífið
hér heldur áfram sinn vanagang.
Gott veður og milt á sinn stóra
þátt í að svo er. Hefði verið frost
og vetrarhörkur má ætla að ein-
hverjir hefðu orðið að flýja hús
sín“, sagði Sigurður Ananiasson
hótelstjóri á Djúpavogi í viðtali
við DB.
Djúpivogur var tengdur við
Austfjarðalínuna eftir að rafstöð-
in eyðilagðist í eldi. Dísirrafstöð
sem var um borð í Heklu á leið til
Eskifjarðar átti að bæta ástandið
og fara til Djúpavogs í stað Eski-
fjarðar. En vegna veðurs varð raf-
stöðin fyrir skemmdum um borð í
skipinu og verður nú að fara til
viðgerðar á Eskifirði.
I stað þess mun í ráði að önnur
dísilstöð kom til Djúpavogs í
dag með bíl frá Reykjavík. Mun
f 1 jótlegt að tengja hana svo íbúar
Djúpavogs munu sennilega hafa
nóg rafmagn á morgun.
„Annars hefur þetta gengið án
truflana," sagði Sigurður.
„Spenna þess straums sem við
höfum haft hefur verið það góð,
að engum vandræðum hefur vald-
ið og hefur ekki þurft að grípa til
skömmtunar eins og búizt hafði
verið við. Atvinnurekstur hefur
heldur ekki-truflazt."
„Hér hafði enginn rafhitun frá
kl. 7.30 í gærmorgun til um 10 í
gærkvöldi. Ef kalt hefði verið í
veðri hefðu einhverjir orðið að
flýja hús sín en til þess kom
ekki,“ sagði Sigurður.
—ASt.
Mjög harður árekstur varð á
mótum Borgarholtsbrautar og
Urðarbrautar í Kópavogi kl. 23.40
í gærkvöldi. Lentu þar saman
tveir jeppar, Landrover og
Bronco.
A þessum gatnamótum er
stöðvunarskylda, en henni var
ekki sinnt. Eru jepparnir illa
farnir og hafnaði annar þeirra
ÞRIÐJUDAGIJR 14. DES 1976
Scottice slitinn á
versta stað:
Tekur
a.m.k. þrjá
sólarhringa
að gera við
— mesti álags-
tíminn er
einmitt nú
„Það má búast við a.m.k.
þriggja sólarhringa bið eftir
að viðgerð ljúki og miða ég
þá við að viðgerð taki stytzta
mögulegan tima og veður
haldist gott á bilunarstaðn-
um,“ sagði Þorvarður Jóns-
son, verkfræðingur hjá
Landssímanum í morgun er
hann var spurður hvenær
vænta mætti að Scottice
kæmist aftur í lag. Strengur-
inn slitnaði seint í gærkvöldi
skammt frá Færeyjum, milli
þeirra og Vestmannaeyja. Á
þeim kafla er aðeins einn
kapall en hinsvegar tveir frá
Færeyjum til Evrópu þannig
að ekki verða eins tilfinnan-
leg vandræði ef annar þeirra
slitnar.
Nú eru símtöl til Evrópu
afgreidd gegnum Kanada og
sem dæmi um erfiðleikana,
nú á mesta álagstíma ársins,
má geta að miðað við venju-
legar aðstæður eru 10 tallín-
ur til Kaupmannahafnar og
8 til London en nú er hægt
að tala um eina línu til hvors
staðar. Að sögn Þorvarðar
má telja líklegt að togari
hafi slitið kapalinn með
veiðarfærum sínum, en það
er langalgengasta orsök
þessara bilana.
—G.S
inni á húsalóð, svo harður var
áreksturinn.
Ökumaður og farþegi í öðrum
jeppanum slösuðust og voru
fluttir í slysadeild. Ekki voru
meiðsl þeirra talin lifshættuleg að
áliti Kópavogslögreglunnar í
morgun.
-ASt.
r
Banamenn Guðmundar ákærðir
Sl. miðvikudag, 8. desember,
höfðaði ríkissaksóknari opin-
bert mál á hendur banamönn-
urn Guðmundar Einarssonar og
fjórum öðrum, sem tekið hafa
þátt i öðrum brotum, er ákæra
var einnig birt i samtímis. Brot-
in, sem ákært er fyrir, eru sam-
tals tuttugu og fimm.
Akæra var birt á hendur
þeim:
1. Kristjáni Viðari Viðarssyni,
Grettisgötu 82, Reykjavík, nú
gæzlufanga I Reykjavik, fædd-
um 21. apríl 1955 í R.;
2. Sævari Marinó Ciesielski,
Þverbrekku 4, Kópavogi, nú
gæzlufanga í Reykjavík, fædd-
um 6. júlí 1955 að Stóra-Hofi í
Gnúpverjahrcppi, Arnessýslu;
3. Tryggva Rúnari Leifssyni,
Selásbletti 14, R„ nú gæzlu-
l'anga í Reykjavík, fæddum 2.
október 1951 i Reykjavík;
4. Albert Klahn Skaftasyni,
Laugavegi 46A, R„ fæddum 16.
febrúar 1955 í Reykjavík;
5. Erlu Bolladóttur, Þver-
brekku 4, Kópavogi, nú gæzlu-
fanga i Reykjavik, fæddri 19.
júlí 1955 i Reykjavik;
6. Asgeiri Ebenezer Þórðar-
sýni, Sigtúni 35, R„ fæddum 15.
ágúst 1950 í Reykjavík; og
7. Guðjóni Skarphéðinssyni,
Rauðarárstíg 32, Reykjavík, nú
gæzlufanga í R„ fæddum 19.
júní 1943 í Vatnsdal, A-Hún.
I ákærunni eru sakarefni
rakin i átta meginþáttum. í
þeim fyrsta er fjallað um ntann-
dráp. Er þeim Kristjáni Viðari.
Sævari Marinó og Tryggva
Rúnari gefið að sök aö
hafa í félagi ráðizt á
Guðmund Einarsson, Hraun-
prýði í Blesugróf, f. 6. október
1955, aðfaranótt sunnudagsins
27. janúar 1974 og misþyrmt
honunt svo, þar á nteðal með
hnífsstungum Kristjans Viðars,
að hann hlaut bana af. Gerðist
þetta i kjallara hússins að
IIamarst)raut 11, Hafnarfirði,
þar sem þau Sævar og Erla
bjuggu á þeim tíma. Er þre-
ménningunum einnig gefið að
sök að hafa komið líki Guð-
mundar f.vrir á „ókunnum
stað", eins og segir í frétta-
tilk.vnningu frá ríkissak-
sóknara í gær.
Albert Klahn er ákærður fyr-
ir að hai'a veitt Sævari,
Kristjáni og Tryggva liðsinni
við að fjarlægja og koma líki
Guðmundar fyrir á ókunnum
stað og þannig leitazt við að
afrná ummerki brotsins. bæði
þegar f.vrrgreinda nótl og síðan
aftur. síðla sumars sama ár. er
líkamsleifar Guðmundar voru
fluttar á enn annan stað. Fóru
þessir flutningar fram í bifreið-
um er Albert hafði til umráða
og ók.
Eins og sagt hefur verið frá í
blaðinu bar Albert, við yf-
irheyrslur á sínunt tínta. að
síðai. ien...i hefði verið farin
um miðjan ágúst 1974 og þá í
Kúagerði sunnan Hafnarfjarð-
ar. Þrátt fyrir ítrekaða leit hef-
ur lík Guðmundar ekki íundizt
og er leitinni stöðugt haldið
áfram.
Akæruefni annarra þátta
ákæruskjalsins taka til brennu,
nauðgunar og þjófnaðarbrota
Tryggva Rúnars; skjalafals,
þjófnaðar og fjársvika Sævars
og Erlu; þjófnaðarbrota
Kristjáns Viðars; svo og til
fíkniefnabrota þeirra Sævars,
Ásgeirs Ebenezer. Alberts
Klahn og Guðjóns Skarphéðins-
,sonar.
Brennan. sem Tr.vggvi er
ákærður íyrir, er ikveikja á
Litla-Hrauni þar sem Trvggvi
kveikti í klefa sinuni fyrir
nokkrum árurn og olli miklu
tjóni. [Weðal þjófnaðar og fjár-
svika Sæva.rs og Erlu ntá nefna
Póst og símá-málið svokallaða.
Fíkniefnamálið er tilraun
þeirra Sævars. Asgeirs og
Guðjóns til að smygla hálfu
Guðmundur Einarsson. Hraun-
prýði. Blesugróf. 6. október
1955 — 27,janúar 1974.
þrið.ja kilói af ha'ssi til landsins
f.vrir rúmlega ári síðan í
Citroen-bifreið Guðjóns frá
Hollandi. Guðjón situr nú i
gæzluvarðhaldi vegna aðildar
sinnar að hvarfi Geirfinns
Einarssonar.
Málinu hefur verið vísað til
dómsmeðverðar við sakadóm R.
-ÓV.
V