Dagblaðið - 22.12.1976, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 22.12.1976, Blaðsíða 22
22 DACBLADH). M H)VI KÖDACUK 22. DKSKMBKR 1976. Gamla Bíó: Spennandi mynd með öllu tilheyrandi Það ríkti mikil „stemmning“ í Gamla Biói, þegar fulltrúi DB sá sýninguna og virtist unga fólkið sem þar var skemmta sér hið bezta. -A.Bj. gestir búnir að fá nokkrar geimsteinaránsmyndir á undanförnum mánuðum, en þetta er alltaf vinsælt efni. Þetta gimsteinarán er svolít- ið öðruvísi en hin fyrri, en gimsteinarnir, sem bófarnir höfðu rænt komast fyrir ein- skæra tilviljun í hendur ung- menna, sem vita ekki einu sinni af því að þau hafa svo verðmætt þýfi undir höndum. Rally-keppnin. Ensk mynd fra Walt Disnoy Productions. Loikstjori: Jerome Courtland. AAalhlutverk: Patrick Allen George Sewell Spencer Banks Cynthia Lund Eins og jafnan um myndir frá Walt Disney fyrirtækinu er þessi mynd bæði spennandi og einnig eru mörg spaugileg at- riði í henni. Hún fjallar um gimsteinarán, raunar eru bíó- Kvik myndir Inn í atburðarásina fléttast ^ að sjálfsögðu eltingaleikur og rally-keppni, myndarinnar eins ber og nafn með sér. Endirinn er ekki ólíkur og í öðrum Disneymyndum, hann er „góður," bófarnir fá makleg málagjöld og ungmennin sem mest koma við sögu hljóta verðskuldaða viðurkenningu. Kópavogsbúai Leitið ekki langt yfir skammt. Allar nýlenduvörur með 10% lægri álagningu en heimilt er. Mjög ódýr egg, kr. 380,- kg Við erum í leiðinni að heiman og heim. Opið til kl. 10 föstudaga VERZLUNIN KÓPAVOGUR Borgarholtsbraut 6 — Sími 41640 \ UTLITIÐ HEFUR MIKH) AÐ SEGJA Það hefur ekki svo lítið að segýa að kökurnar sem við bjóðum upp á líti vel út. Það er líka til ýmislegt sem hægt er að láta oían á þær til þess að bæta útlitið. Bezt er að láta þeyttan rjóma ekki ofan á fyrr en rétt áður en nota á tertuna, því hann vill renna út. Ofan á þeyttan rjóma má rífa súkku- laði eða nota ávexti til skrauts. Ofan á sykurglassúr má nota ýmislegt kökuskraut, sem nú má fá í matvöruverzlunum, flest af skrautinu er hægt að borða, en sumt er úr plasti, svo betra er að nota einungis ætilegt kökuskraut ef börn eru annars vegar. Þegar þið notið vatn til þess að hræra glassúrinn út með er bezt að nota soðið vatn og einungis mjög lítið i einu. Það er ekki svo gott að segja til um hve mikið vatn þarf og soðna vatnið gerir það að verkum að glassúrinn verður glansandi og fallegur. -A.B.j. lólin nálgast: Gott að eiga köku- krem í pokahorninu Mikið er undir því komið hvað látið er á terturnar hvort þær séu góðar eða ekki. Allir geta bakað sæmilega góða svampbotna, einnig er hægt að kaupa þá í matvöruverzlunum og hjá bökurum. Ekki er óskyn- samlegt að eiga að jafnaði nokkra botna f frystikistunni. Það tekur enga stund að þíða botn, og ef maður á góða uppskrift að kremi í hand- raðanum er maður ofan á, ef heimilisfólkinu langar í tertu með kvöldkaffinu, eða ef óvænta gesti ber að garði. Þykkt vanillukrem Kökukrem má aldrei vera of þunnt, þá vill það leka út og kakan fær „ósnyrtilegt" útlit. 2 eggjarauður,3 matsk. sykur, vanilla, 3 kúfaðar tesk. hveiti, 2Wdl mjólk eða rjómi. Eggjarauðurnar eru þeyttar mjög vel með sykrinum (það má alveg gera það í pottinum), hveiti og mjólk hrært út í og suðan látin koma upp. Gætið þess aðeins að hræra vel í allan tímann, — einnig á meðan kremið er að kólna. Kalt krem Það er líka hægt að nota „skyndibúðing“ (Royal instant) í staðinn fyrir soðið kökukrem. Vanalega er notaður 'A lítri af mjólk út í duft úr einum pakka, en betra er að nota ekki nema rétt um 4 dl til þess að kremið verði ekki of þunnt. Aður en það er látið á kökuna skaðar ekki að blanda þeyttum rjóma saman við. Kaffikrem 2 eggjarauður, 3 matsk. sykur, 3 kúffullar tesk. hveiti, 1 dl rjómi, V4 dl sterkt kaffi. Kremið er soðið á sarna hátt. og vanillukremið. Sítrónukrem 1 eggjarauða. 2 matsk. sykur, 2 tesk. kartöflumjöl. 2 dl rjómi. safi og rifinn börkur af 1‘4 sítrónu, sítfþeyttar eggja- hvítur. Eggjarauðan er hrærð mjög vel með sykrinum, kartöflu- mjölinu og köldum rjómanum hrært saman við og þetta látið í pott. Hrært stöðugt í og þegar kremið er orðið"þykkt er pott- urinn tekinn af. Sítrónusafinn og berkinumhrærtút í og þegar kremið er orðið kalt er stíf- þeyttum hvítunum hrært varlega saman við. Möndlukrem með víni 3 eggjarauður, 3 matsk sykur, 3 fullar tesk. hveiti, 2H dl rjómi, 3 matsk. vín, 2-3 matsk. þeyttur rjómi (má sleppa), 50 gr afhýddar, malaðar möndlur. Eggjarauðan er hrærð vel með sykrinum, hveitinu og rjómanum hrært saman við og suðan er látin koma upp. Hrært vel i. Möndlurnar og vínið er látið út í og þegar kremið er orðið kalt er þeyttum"rjómanum blandað santan við. Fromage sem kökukrem Það er mjög gott að hafa fromage sem kreni á kökur. 3 egg, 5 matsk. sykur. 4 blöð matarlím. safi úr tveim sítrón- um, smávegis rifinn börkur. Eggjarauðurnar eru þevttar vel með sykrinum, sítrónu- börkurinn og safinn látinn út í. Því næst er matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn smástund. tekið upp úr og vatnið strokið vel af. Blöðin eru látin í pott og brædd yfir vægum hita. Matar- límið er síðan látið út í eggjahræruna og loks er stíf- þeyttum eggjahvítunum bland- að varlega saman við. Kremið stífnar fljótt og er þá tilbúið til þess að notast á kökur. Marsipankrem (nægilegt á tvær kökur) 4 blöð matarlím, '4 litri rjómi. vanilla, 1-2 matsk. svkur (má veraineiref vill), 4 eggjarauður, ca luú-150 gr marsípan. Kremið er soðið á vanalegan hátt. eggjarauðurnar hrærðar með sykrinum og látnar í pott með rjómanum og hrært vel í á meðan kremið sýður. Matarlim- ið er iátið út í eftir að potturinn hefur verið tekinn af og loks er marsipaninu og vanillunni (bezt er að nota korn úr van- illustöng) hrært saman við. Þetta krem er alveg sérstak- lega gott. enda nokkuð dýrt. en við látum slikt ekki á okkur fá þegar verið er aðútbúagóðga>ti til jólanna.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.