Dagblaðið - 18.03.1977, Side 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1977.
2
r
og Reykjavík?
íReykjavík a.m.k. geymdir og
auglýstir áður en þeim er Idgað
Er Kópavogslögreglunni allt
leyfilegt? Er von að maður
spyrji? Ég hef átt heima hérna
siðan ég fæddist og vitanlega
þykir manni vænt um bæinn
sinn. En mér blöskraði alveg
þegar ég las í DB 8. marz sl.
hvernig Kópavogslögreglan fór
að ráði sínu þegar hún skaut
aðkomuhund úr Mosfellssveit
sem hafði aðeins verið hér í
stuttri heimsókn.
Nú er mér spurn: Eru ekki
sömu reglur um hunda í Kópa-
vogi og Reykjavík? í Reykjavík
eru óskilahundar geymdir í
vissan tíma og auglýstir og
siðan er þeim lógað ef enginn
vitjar þeirra. Er þetta ekki
rétt? En í Kópavogi eru þeir
teknir og skotnir á svipstundu
og ekkert kannað og þetta er
ekki í fyrsta skipti sem slíkt
kemur fyrir. Það er nokkuð
langt siðan hvolpafull tík
var tekin og skotin. Hún var
einnig aðkomuhundur í stuttri
heimsókn.
Og hvaða lögreglumaður með
fullu viti stekkur á konu eins
og i þessu tilviki, kastar henni
út um dyrnar og konan þar að
auki með barni. Alll af því hún
dangiaði rétt í hann með
hendinni. Mér hefði ekki þótt
óeðlilegt þótt konan hefði
ráðizt á umræddán lögreglu-
þjón, því fólki getur þótt vænt
um hundinn sinn jafnt og
barnið sitt og það held ég að
þið í lögreglunni, sem að þessu
stóðuð, ættuð að hafa hugfast.
Kópavogsbúi.
»
Það var ólíkt mildari meó-
höndlun sem þessi hundur fékk,
hjá Reykjavíkurlögreglunni er
hann vard viðskila við eiganda
sinn.
Eru ekki sömu reglur um hunda í Kópavogi
PLÖTUPORTIÐ REKUR AF SÉR SLYÐRUORÐIÐ
—-ósönn ummæli Sólveigar
Vegna greinar í Dagblaðinu
4. marz 1977 „Plötuprútt“. Eg
undirritaður f/h Plötuportsins,
Laugavegi 17, vil vekja athygli
á því að hér er farið með algjör
ósannindi og vildi ég minna
Dagblaðsmenn á rannsóknar-
blaðamennsku áður en þeir
birta greinar eftir símtölum að
ókönnuðu máli, eins og t.d. í
þessu tilfelli.
Ekki var haft samband við
Plötuportið til að fá
staðfestingu á því sem einhver
Sólveig Pálsdóttir á Akureyri
hringir út af. Ef einhver hefur
orðið fyrir skakkaföllum vegna
plötusendingar frá Plötuport-
inu veit ég ekki betur en það
hafi verið aó fullu bætt.
Greinina sjálfa má sjá
í Dagblaðinu þann fjórða
marz 1977. Sólveig segir að ein
platan hafi verið gölluð, hvaða
plata var það? Platan, sem var
pöntuð eða var það einhver
önnur en ein af þessum fimm,
sem ekki var pöntuð. Eftir tali
Sólveigar er þess ekki getið.
Kvörtun til Plötuportsins
barst og var greiðsla samkvæmt
póstkröfu greidd að fullu að
f
I
Plötuprútt
—erfitt um vik að skila aftur
gölluðum plötum
SólveÍK Pálsdótllr, Akureyri,
hrlngdi:
Fyrir um þremur vikum
pantaði sonur minn nokkrar
plðtur hjá Plötuportinu I
Reykjavlk. Nokkru siðar fékk
hann póstkrðfusendingu upp á
rúmar 16 þús. kr. Hann opnaði
pakkann á pósthúsinu hér og
reyndust þá vera i pakkanum 6
plötur. Aðeins eina þeirra hafði
sonur minn pantað. hinar átti
hann fyrir. Þar að auki var 1 af
þessum 5 piötum gölluð.
Við kvörtuðum til
Plötuportsins sem lofaði að
greiða plöturnar til baka. Sfðar
varð svo bið á að greiðslan
bærist en svo komu rúmar 12
þús. kr. f póstávfsun og taldi
Plötuportið að við hefðum
skemmt plötuna sem var gölluð
og vildi ekki greiða hana. En
sem fyrr segir höfðum við vitni
að því þegar pakkinn var
opnaður svo að ekkert fór á
milli mála.
Þetta er búið að valda okkur
erfiðleikum. simtölum og
leiðindum. Mér þætti gaman að
vita hvort Plötuportið stundar
svona verzlunarmáta yfirleítt.
Það er þá ástæða til þess að
menn vari sig, sérstaklega úti á
landsbyggðinni, þar sem
mönnum er óhægt um vik að
skila aftur.
fjárhæð kr. 12.515.00. Sjá
ljósrit af póstkröfu greiddri
þann 28. febrúar 1977.
Ekki er rétt að við höfum
talið að þau hafi skemmt
plötuna. Eins og viðskiptin við
Jakob Jóhannsson, Víðilundi
18c, Akureyri, gengu fyrir sig:
Miðvikudaginn 9. febrúar
1977 fengum við í Plötuportinu
pöntun á hljómplötum frá
Jakobi Jóhannssyni, Víðilundi
18c, Akureyri, sjá meðfylgjandi
ljósrit. Af sams konar lista
merkti Jakob við þar sem
stendur David Bowie allar. Þá
sendum við honum eitt eintak
af plötunni David Bowie LP
sem við áttum, því við sjáum að
fyrst að hann krossar við þær
allar — David Bowie, liggur
það ljóst fyrir að hann vill fá
þær allar sendar.
Faðir Jakobs hringdi og sagði
að það hefði ekki verið átt við
allar David Bowie plöturnar,
heldur aðeins eina, nýjustu að
mig minnir David Bowie low.
Var ákveðið í því simtali að
hann endursendi Plötuportinu
þær plötur, er hann átti fyrir. í
póstkröfu. Sjá meðfylgjandi
Ijósrit af greiddri póstkröfu
þann 28. febrúar 1977.
Aftur á móti er Plötuportið
móttók hinar endursendu
plötur af Bögglapóststofunni
var ein LP brotin í tvennt. Ef
þetta er galli sem Sólveig er að
tala um, kallast þetta brotið.
Augljóst er að við höfum
endurgreitt plöturnar, sjá með-
fylgjandi ljósrit, þar er kemur
fram að endurgreiðsla hafi átt
sér stað þann 28. febrúar 1977,
og hefur Jakob því fengið
greiðsluna í hendur þegar hún
barst til Akureyrar. En aftur á
móti krafði Plötuportið Böggla-
póststofuna um endurgreiðslu
á plötu þeirri er brotin var,
vegna þess að við teljum að
frágangur á plötum þeim er við
sendum frá okkur í póstkröfur
sé það varanlegur að ekki eigi
að geta brotnað nema með
slæmri meðferð.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna. Og er nú öllum ljóst
hvernig í málinu liggur.
Virðingarfyllst,
f.h. Plötuportsins,
Ragnar Guðmundsson.
. R
« ; *f« ... s i
MEIR UM „PLÖTUPRlín”
— íframhaldi af
simtali Sólveigar
Hjónin Sólveig Pálsdóttir og
Jóhann O. Jakobsson skrifa
vegna símaviðtals Sólveigar við
DB.
Okkur þykir rétt að það komi
fram að upphæðin, rúmlega 12
þúsund krónur, var rétt sam-
kvæmt samkomulagi. Endur-
sendu plöturnar voru 5 á þessa
upphæð. Hér var um póstkröfu
að ræða og eyðublaðið útfyllt af
okkur og greiðandi Plötuportið.
Varðandi brotnu plötuna var
aldrei um það rætt að við
borguðum hana, heldur átti
aðeins að vera á það bent að
hún kom brotin úr pakkanum.
A öðru sást ekki, ekki einu
sinni á umslagi plötunnar.
Það mun ekki hafa komið
fram í simaviðtalinu að sonur
okkar pantaði fjórar plötur en
fékk sex og eins og áður segir
átti hann fimm fyrir. Aðeins
ein kom af þeim sem hann
pantaði.
Annað kom ekki fram, þ.e. að
áður en endurkrafan frá okkur
var greidd var Plötuportið
búið, óbeðið, að senda póst-
kröfu kr. 2.650. Hvað i þeim
pakka er vitum við ekki. Hér er
e.t.v. um góða þjónusta að ræða
sem við misskiljum. En hvað er
í pakkanum? Að öðru leyti
stendur simtalið óhaggað og
rétt.
' ..Æm
*** *' \
Laugavegi 69 #»mj1Ö8ö6
M«db»iarmarlca6í'—; síml 19494
•; ,
5980
5980.-
:v m
i'V*
m*
Leöursólar
fjölmargir
Jitir 6650.-
Hrágúmmísólar
5980
V
8650
Wxm