Dagblaðið - 23.03.1977, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1977.
f
Útvarp
Sjónvarp
2v
V
Útvarpið ídag kl. 15.45: Vorverk ískrúðgörðum
Klipping og
tilfærsla tríáa
Jón H. Björnsson skrúðgarðaarkitekt er tilbúinn með klippurnar en nú fer í hönd hentugur tími til að
klippa og snyrta trén. DB-mynd Sv. Þorm.
„Eg hef nú aðallega hugsað
mér að huga að klippingu á
trjágróðri því að nú er hent-
ugur tími til þess og einnig til
tilfærslna á eldri trjám,“ sagði
Jón H. Björnsson skrúðgarða-
arkitekt sem flytur 1. erindi sitt
um vorverk í skrúðgörðum.
Jón sagði að nú væri upp-
lagður tími til þess að fjarlægja
tré. I gömlum görðum standa
þau oft of þétt og ná því ekki að
koma með sterkan stofn og fall-
ega krónu. Hins-vegar væri það
oft freisting þegar byrjað er á
garðrækt og trén eru lítil að
planta þeim þétt. Jafnvel helm-
ingi þéttar en æskilegt er þegar
trén fara að stækka að ráði.
Þetta- á oft við runnaraðir
sem þarf að grisja, svo sem
dísarunna, geitblöðunga og
mistla, sem oft fá að vaxa
óklipptir og bera oft blóm, jafn-
vel ber. Runnar koma með nýja
sprota neðan frá.
Ef klaki er ekki mikill í jörðu
er gott að færa til tré. Ekki er
það verra upp á hnausinn sem
fylgir plöntunni, því að klakinn
bindur hann betur saman.
Ætlunin er að framhald verði
á þessum erindum Jóns og
ræðir hann þá um sáningu
sumarblóma og umhirðu gras-
bletta svo að eitthvað sé nefnt.
Hann vildi einnig gjarnan fá
spurningar frá fólki, sérstak-
lega þess eðlis um hvað það
vildi helzt fá vitneskju um.
Hægt er að stíla þær á þáttinn
„Vorverk í skrúðgörðum“, Út-
varpinu, Skúlagötu 4.
EVI
LEIGUMIÐLUNIN
• A
VESTURGÖTU 4 — SÍMI 12850
Höfum opnað leigumiðlun, þar sem við sjóum
um að leigja fbúðir yðar að kostnaðariausu.
Höfum til leigu eftirtaidar íbúðir:
2 herb. íbúð í Breiðholti,
lítil fyrirframgreiðsla. —
Teppi, gardínur og sími
fylgja.
3 herb. íbúð í Laugarnesi.
— Teppi, gardínur og sími
fyigja. — Aðeins reglu-
samt fólk kemur til greina.
3 herb. stórglæsileg íbúð f
Breiðholti. — Teppi og
gardfnur fylgja. — 200
þús. fyrirframgreiðsla.
Skrifstofuherbergi óskast
fyrir teiknistofu. —
FYRSTA FLOKKS ÞJÓN-
USTA.
Opið món.—föstud. 1—10 e.h.
[laugardaga 1—6 e.h.|
BÍLASALA
RENAULT 12 TL 72
RENAULT 12 TL 73
RENAULT 12 TL 74
RENAULT 12 TL 74
RENAULT 12 ST 71
RENAULT 12 ST 74
RENAULT 12 ST 75
RENAULT 12 ST 75
RENAULT 15 TS
RENAULT 16 TL 74
RENAULT 4 VAN 75
RENAULT 4 VAN 76
Kristinn Guðnason hf.
SUÐURLANDSBRAUT 20 — SÍMI 86633
Mest seldi bíllinn í Evrópu 1976.
RENAULT
■
^ ■ Steingrímur Sigurðsson listamaður
íforsíðuviðtali
■ Smásaga eftir Einar Loga Einarsson
a RættviðHannesÞórarinsson lækni
á kynsjúkdámadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar
■ María eignaðist þríbura —
tvo hvíta og einn brúnan