Dagblaðið - 06.04.1977, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977.
5
Skreiðin
bíður
enn í
Lagarfossi
Staðfesting hefur ekki
enn fengizt á því að afferm-
ing skreiðarfarms Lagarfoss
sé hafin í Port Harcourt í
Nígeríu, þar sem skipið hef-
ur beðið undanfarna daga.
Tilskildir tollpappírar
áttu að komast á áfangastað
í gær og átti þá ekkert að
vera því til fyrirstöðu að af-
ferming gæti hafizt. Hvorki
Eimskipafélag íslands, eig-
endur skipsins, né eigendur
farmsins höfðu í morgun
fengið staðfestingu á því að
afferming væri hafin enda
er miklum erfiðleikum
bundið að ná símasambandi
við Nígeríu, eins og mörg
önnur Afríkuríki.
-ÓV.
Fjórir dóm-
kirkjuprestar
á kirkjukvöldi
Kjórir dómkirkjuprestar, nú-
verandi og fyrrverandi, taka þátt
í árlegu kirkjukvöldi Bræðrafé-
lags Dómkirkjunnar sem efnt
verður til í kirkjunni á skirdags-
kvöld kl. 8.30.
Sr. Hjalti Guðmundsson annast
kveðjustund. Sr. Óskar .1. Þor-
láksson flytur erindi sem hann
nefnir í einrúmi á skírdagskvöld.
Sr. Jón Auðuns flytur erindi
sem hann nefnir Ofbeldi og sr
Þórir Stephensen ræðir um hið
nána samfélag innan frumkristn-
ínnar.
Ragnar Björnsson dómorganisti
leikur á orgel kirkjunnar og Dðm-
kirkjukórinn syngur.
Kirkjan er þetta kvöld opin öll-
um sem koma vilja.
-ASt.
Athugasemd vegna
Mánafossmálsins
Vegna fréttar af réttarhöldum í
Mánafossmálinu svokallaða í
borgardómi Reykjavíkur 24. síð-
asta mánaðar skal tekið fram að
við réttarhöld í málinu hefur
Markús Þorgeirsson aldrei haldið
því fram að Mánafoss hafi farið á
hliðina þegar átti að henda út
spira við bauju. í gögnum málsins
er ekkert þessu að lútandi.
Viðkomandi eru beðnir velvirð-
ingar á þessum misskilningi.
-ÓV.
LEIGUMIÐLUNIN
húsaskjol
VESTURGOTU 4 S 1 2850
Höfum opnai leigumiðlun, þar sem
við sjámrn um að leigja ibiíðir
yðar að kostnaðarlausu
# Sjáum umað ganga frá samningum og
innheimta húsaleiguna.
# Reynið viðskiptin — Viö erum ávallt
reiðubúnir að liðsinna yður.
# Viö höfum opið frá kl. 2-10 alla daga
nema laugardaga kl. 1-6.
ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/Tfl
//allteitthvaó
gott í matinn
STIGAHLÍÐ 45-47 SÍMI 35645
Heimamenn vilja
halda í Sighvat
—ágreiningur við forystu Alþýðuf lokksins
um bræðslu við Samtökin
Sighvatur Björgvinsson.
Alþýðuflokkurinn og Samtökin
á Vestfjörðum eru hvergi nærri
komin í eina sæng. Undir niðri
Suðri situr
enn fastur
Fyrir hádegið áttu umboðs-
menn útgerðarfélags Suðra, sem
kyrrsettur hefur verið í Rotter-
dam undanfarnar fimm vikur,
von á því að afgerandi svar feng-
ist frá enska bankanum sem
gjaldfelldi um 170 milljón króna
lán útgerðarinnar og kyrrsetti
skipið, þannig að það fengi að
fara úr höfn þar ytra.
Flóknar samningaumleitanir
hafa verið í gangi að undanförnu
en enski bankinn hefur til þessa
ekki geta fallizt á tilboð útgerðar-
félags Siiðra. . -ÓV.
kraumar í Alþýðuflokknum
ágreiningur milli æðstu stjórnar
flokksins og heimamanna.
Stjórnendur Alþýðuflokksins
hafa mikinn hug á bræðslu á
Vestfjörðum og þá helzt undir
merki Alþýðuflokksins, eins og
fram kom í samþykkt flokks-
stjórnar nýlega. Stjórnendurnir
vilja mikið til vinna til að reyna
að fá kjördæmiskjörinn þing-
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra efnir til kab-
arettskemmtunar og bingós á
skirdagskvöld. Skemmtunin verð-
ur í Sigtúni og hefst kl. 20. Svavar
Gests stjórnar skemmtuninni en
skemmtikraftar verða Ómar
Ragnarsson og sönglagatríóið
Bónus.
mann á Vestfjörðum. Þeim mundi
ekki óa við, að Karvel Pálmason
yrði þar efstur á lista. Alþýðu-
flokksmenn á Vestfjörðum eru
hins vegar lítið fýsandi þess, að
Karvel fái efsta sætið. Þeir vilja
heldur hafa Sighvat Björgvinsson
áfram, en hann er nú uppbótar-
þingmaður. Heimamenn vilja því
yfirleitt fremur hafna bræðslu-
hugmyndum en láta Kanvel fá
Kabarettskemmtun þessi er ár-
legur viðburður hjá kvennadeild
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra. Konurnar bjóða vinninga í
bingóinu sem eru að verðmæti urn
800 þúsund krónur. Meðal þeirra
eru þrjár utanlandsferðir, mál-
verk, dvöl í Skíðaskólanum í Kerl-
ingafjöllum, vöruúttektir, raf-
sætið.
Það gerir Alþýðuflokksmönn-
um þar í byggð auðveldara að
koma sínu fram, að í lögum Al-
þýðuflokksins eru nú ákvæði um,
að framboði skuli ráðstafað með
prófkosningum í hverju kjör-
dæmi. Formlega ákveður kjör-
dæmisráðið framboðið, en flokks-
stjórn þarf síðan að samþykkja
það. -HH
magnsvörur og fleira.
Konurnar afla með skemmtun
þessari fjár til starfsemi sinnar,
sem öll beinist að því að styrkja
lamaða og fatlaða. Oftast hefur
verið húsfyllir á skemmtunum fé-
lagsins enda ekkerl til þeirra
sparað.
-ASt.
Vinningur fyrir 800 þúsund á kabarett-bingói
Yízkufatnaöur frá m»Jsr
Hagstætt verð—Póstsendum um land allt
URÐUR
Opið til kl. 10 í kvöld
TÍZKUVERZLUNIN
Hamraborg 1, sími 43711