Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 32
3(i DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977. Utvarp _________Sjónvarp Tónlistin íútvarpinu um páskana: Reynum að velja aðgengilega klassíska tónlist, segir tónlistarstjóri útvarpsins, Þorsteinn Hannesson Jón Sígurbjörnsson syngur nokkur lög kl. 16.45 á annan páskadag. Gunnar Kvaran leikur einleik á selló kl. 21.30 á skírdag. „Mörgum þykir að nokkuð mikið sé af alvarlegri tónlist í útvarpinu um páskana," sagði Þorsteinn Hannesson tðnlistar- stjóri útvarpsins í viðtali við DB. „Það er alveg rétt, það er geysilega mikið af músík i hátíðadagskrá útvarpsins. Ef við lítum aðeins á helztu músík- atriði dagskrárinnar, verður fyrst fyrir okkur óratóría eftir Beethoven sem er á dagskránni kl. 9 á skírdagsmorgun. Kristur á Olíufjallinu. Það er eitt af frægustu verkum Beethovens og eitt af hans ekki ýkja mörgu andlegu verkum. Um kvöldið kl. 20.50 fáum við að heyra nýja upptöku í útvarpssal þar sem Elisahet Erlingsdóttir syngur lög eftir Beethoven, Brahms og Schubert. Undir- leikari er Guðrún A. Kristins- dóttir. Kl. 21.30 leikur Gunnar Kvaran á selló í útvarpssal. Gunnar kom til landsins í haust og var þetta þá tekið upp og við höfum geymt upptökuna þangað til núna. í hljómplötu- rabbinu mínu, kl. 22.40, mun ég velja tónlistina með tilliti til þess hvaða dagur er að morgni. A föstudaginn langa ber hæst útvarp frá hátiðaidjómleikum Pólýfónkórsins í Háskólabíói, en tluttur verður fyrri hlutinn. (Sjá annars staðar í dagskrá föstudagsins). Um kvöldiö kl. 20.50 verður Paradis, þáttur úr oratoríunni Friður á jörð eftir Björgvin Guðmundsson, á dagskránni. Flytjendur eru Svala Nielsen, Sigurveig Hjaltested, Hákon Oddgeirsson, söngsveitin Fíl- harmónía og Sinfóníuhljóm- Þorsteinn Hannesson tónlistar- stjóri er með þátt sinn Hljóm- plöturabb kl. 22.40 á skírdags- kvöld. sveit Islands. Stjórnandi er Garðar Cortes. Björgvin Guðmundsson er eitt af okkar allra merkilegustu tónskáldum og Friður á jörðu er mjög merkilegt verk. Björgvin er eins og stendur mjög vanmetinn. Þetta eru alveg sérstaklega merkilegir tónleikar. Á laugardag fyrir páska eru ekki flutt danslög eins og venjulega laugardaga heldur verða léttir og aðgengilegir tón- leikar á dagskránni. M.a. verða fluttir þættir úr þýzkri sálu- messu eftir Johannes Brahms. Elisabeth Schwartskopf, kór og hljómsveitin Fllharmónía í Lundúnum flytja undir stjórn Otto Klemperer. Á páskadagsmorgun hefst dagskráin kl. 7.45 með klukkna- hringingu og síðan leikur blás- araseptett þekkt páskalög. Eru það sjö íslenzkir hljóðfæraleik- arar sem leika og hefur þetta verið viðtekið dagskráratriði á páskadagsmorgun í fjöldamörg ár. Kl. 14.00 a paskadagmn verður flutt óratórían Elías óp. 70 eftir Mendelssohn. Þetta er ákaflega fallegt verk sem er kynnt af Guðmundi Gilssyni. Á annan páskadag er slegið á örlítið léttari strengi Þá er t.d. Svavar Gests með þátt í tilefni af því að hundrað ár eru liðin frá byrjun hljóðritunar (sjá í dagskrá annars páskadags). Jón Sigurbjörnsson syngur kl. 16.45. Sinfóníuhljómsveitin leikur kl. 20.15 og flytur þrjú íslenzk verk eftir Árna Björns- son, Skúla Halldórsson og Sigurð E. Garðarsson en hann er eitt af yngri tónskáldum okkar og hefur verið við nám i Bandaríkjunum. Hljómsveitar- stjóri er Páll P. Pálsson,“ sagði Þorsteinn Hannesson. A.Bj. Páll Pamplicher Pálsson stjórnar Sinfóníuhljúmsveit- inni þegar hún leikur þrjú íslenzk verk kl. 20.15 á annan dag páska.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.