Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRlL 1977. Kvikmyndir um páskana... Laugarásbíó: Orrustan um Midway —hún olli þáttaskilum íseinna stríði Orrustan um Midway verður sýnd í Laugarásbíói um páskana. Það eru engir smá- karlar sem leika í myndinni t.d. Charlton Heston, Henry Fonda, James Coburn, Glenn Ford, Robert Mitchum Cliff Roberts- son og Robert Wagner. Þegar kemur fram i apríl 1942 eru Bandaríkin enn í vörn eftir árásina sem Japanir gerðu á Pearl Harbour. Spurningin er bara: Hvar gera Japanir árás næst? Bandaríkjamenn gera nokkrar loftárásir á borgir í Japan til að sanna það fyrir landsmönnum að hægt sé að ná til þeirra heima fyrir. En loft- árásirnar ráða ekki miklu um gang stríðsins. Bandaríkjamenn gátu ráðið að nokkru leyti dulmál japanska flotans. Það er þvi ljóst að þeir munu leggja næst til atlögu á Kóralhafi. Megninu af flotastyrk Bandaríkjanna er því stefnt þangað til að koma í veg fyrir að ný stórsókn Japana heppnist. Bandaríkjamönnúm tekst að ráða það af dulmáli Japana að næsta árás verði gerð ,á eyjuna Midway. Kvikmyndin fjallar svo um styrjöldina milli flota Japana og Bandaríkjamanna. Þó að stríðið á Kyrrahafi stæði enn í rúm þrjú ár eftir orustuna við Midway, réð hún í rauninni úrslitum í stríðinu. Kvikmyndin er gerð árið 1976 og sýningartíminn er 132 mínútur. KP. Gamla Bíó: DISNEY-MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Kvikmyndahúsagestir fá að sjá ný.ia Walt Disney-mynd í Gamla Bíói um páskana. Hér er á ferðinni þekkt saga sem nefn- ist The Apple Dumpling Gang. Með aðalhlutverk fara Bill Bixby, Susan Clark, Don Knotts og Tim Conway. Sagan gerist árið 1879 í Quake City í Californíu í Bandaríkjunum. Þangað kemur myndarlegur ungur maður sem hefur þann löst að vera sjúkur í alls konar peningaspil. Gæfan fylgir honum ekki í þessum fyrrverandi gullgrafarabæ. Hann tapar sínum síðasta eyri í peningaspili. Þá ákveður hann að komast yfir verðmæta vöru- sendingu sem John Wintle nokkur á (Don Knight). Varningurinn á að koma með vagni sem Dusty Clydesdale (Susan Clark) ekur. Varningurinn reyndist vera þrir munaðarleysingjar sem voru skyldir Wintle. Þeir eru Bobby, 12 ára, Clovis, 7 ára, og Celia, 5 ára. Kvikmyndin segir svo frá þeim ævintýrum sem krakk- arnir lenda í með póker- spilaranum, sem er sífellt í auraleit. Disney-myndirnar eru löngu kunnar fyrir skemmtilegan boðskap og létt yfirbragð. Þessi' er ekki siðri en margar aðrar sem hafa sézt á hvíta tjaldinu i • Gamla Bíói á undanförnum árum. Ekki má heldur gleyma því að hér er á ferðinni mynd fyrir alla fjölskylduna. -KP Stjörnubíó: Hjónin Bronson og Ireland á hvrta tjaidinu Hjónakornin Charles Bron- son og Jill Ireland leika aðal- hlutverkin í kvikmynd Stjörnu- bíós. Hún heitir Valachiskjölin. Myndin er bandarísk frá Columbia. Joe Valachi (Charles Bronson) er dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir fíkniefnasölu. Hann er lát- inn í ríkisfangelsið í Atlanta. Þar hittir hann gamla félaga sína og yfirboðara. Þeir láta í ljós álit sitt á honum með því að heilsa honum rneð „helkossin- um“ þegar þeir hittast. Það verður til þess að Joe ákveður að segja ríkislögreglunni, FBI, allt af létta um ævi sína og störf Mafíunnar. Hann vonast til að það verði til þess að yfirvöldin veiti honum, konu hans og syni nægilega vernd. Joe hafði verið foringi sjö manna bófaflokks í New York um 1930. Þá börðust þar tveir menn um völdin innan Mafí- unnar. Atökunum lýkur svo að Joe verður einkabílstjóri þess sem nær yfirtökunum. Yfirsaksóknari New York hættir ekki fyrr en hann hefur komið öllum bófunum undir lás og slá. Joe .segir sögu sína. Hann er leiddurfyrir afbrota- nefnd og svarar þar spurning- um um starfsemi Mafíunnar. Sú saga á eftir að draga dilk á eftir sér. KP. u Bæjarbíó: Borgarljósin hans Chaplins Páskamyndin í Bæjarbíói verður Borgarljós hans Charlie Chaplins. Myndin er gerð árið 1931 og var það hans fyrsta mynd eftir að talmyndirnar komu til sögunnar. Margir biðu hennar því með eftirvæntingu. Það var forvitnilegt að heyra rödd meistarans. Chaplin hélt hins vegar sínu striki, honum lá ekkert á að nota sér hina nýju tækni. Myndin er þögul eins og þær fyrri, nema að nú var hljóm- list með. Eins og fyrr var þessi mynd að öllu leyti hans eigið afkvæmi. Hann samdi söguna og hljómlistina, bar sjálfur kostnaðinn, leikstjóri og lék aðalhlutverkið. Sagan fjallar um flækinginn, þennan útskeifa sem sveiflar stafnum sinum. Hinn eina sanna flæking. Hann kynnist blindri stúlku og fjallar myndin um samskipti þeirra. -KP. Austurbæjarbíó: Sorpblaðamennirnir” tveir ff Woodward og Bernstein — kvikmyndin um Watergatehneykslið Kvikmyndina um þá félaga Woodward og Bernstein þarf vart að kýnna. En til að allir séu vissir um hvað páska- myndin í Austurbæjarbíói fjallar, þá rifjum við upp nokk- ur atriði um blaóamennina tvo sem urðu til þess með skrifum sínum að Nixon Bandaríkjafor- seti varð að segja af sér. Þetta hafði aldrei gerzt í sögu Banda- ríkjanna fyrr. Carl Bernstein og Robert Woodward voru blaðamenn við Washington Post. Fyrir slysni voru þeir látnir skrifa um innbrot í höfuðstöðvar demókrata i Watergate. Það var framið 17. júní 1972. Þetta var ekki talið merkilegt mál og þess vegna fengu þeir að garfa í þvi að vild. Þeir tóku þannig á málinu að um síðir voru sporin rakin til Hvíta hússins. Þeir komu upp um Watergate, mesta hneyksli í allri stjórnmálasögu Banda- ríkjanna. Eftir Watergatemálið urðu þeir þekktir um víða veröld og varla leið sá dagur að ekki væri minnzt á þá í heimspressunni. í fyrstu voru þeir kallaðist lygar- ar og sorpblaðamenn. Enginn trúði sögu þeirra. Það var barizt hart gegn því að þeir fengju að birta upplýsingarnár sem þeir höfðu undir höndum. Þrátt fyrir alla baráttuna gegn skrifum þeirra varð Nixon að segja af sér, ásamt öllum helztu aðstoðarmönnum sínum. Þeir afplána nú margir fangelsis- dóma. Bernstein og Woodward fengu Pulitzerverðlaunin fyrir frásagnir sínar af Watergate- hneykslinu. Þeir hafa nú að mestu hætt störfum sem blaða menn en beina kröftum sínum að skrifum bóka. Þeir hafa þeg- ar skrifað tvær metsölubækur All the Presidents Men, sem við sjáum nú í Austurbæjarbíói og Final Days. Það eru þeir Robert Redford og Dustin Hoffman sem leika þá félaga. Redford er mjög ánægður með kvikmyndina og segir hana mjög raunverulega. Bókin um Watergate hlaut alveg frábæra dóma og mót- tökur og það sama má segja um kvikmyndina. Hún hefur vakið mikla athygli um viða veröld. -KP. Hafnarfjarðar- biö: Cngmn er fullkominn — með Monroe, Lemmon og Curtis í aðalhlutverkum Hafnfirðingar geta hlegið sig máttlausa ef þeir fara í Hafnarfjarðarbíó um páskana. Þar verður sýnd kvikmyndin Some Like it Hot, eða Enginn er fullkominn. Aðalhlutverkin leika Marilyn Monroe, Jack Lemmon og Tony Curtis. Það er víst að enginn er svikinn þar sem þeir félagarnir eru annars vegar. Hver vill ekki sjá Mon- roe í eigin persónu? Some Like it Hot var gerð fyrir tæpum tveimur áratugum og naut þegar mikilla vinsælda. Hún hefur slegið i gegn í kvik- myndahúsum vestanhafs. Gervi Lemmons og Curtis tókust mjög vel og uppátæki þeirra félaga eru alveg kostuleg. Myndin er dæmigerð Holly- woodmynd frá þeim tíma er hin mikla kvikmyndaborg var upp á sitt bezta. Þá var hugsað um það fyrst og síðast að skemmta áhorfendum, lyfta fólki upp úr gráum hversdagsleikanum. Þetta tekst dæmalaust vel hjá Biliy Wilder, leikstjóranum. Börnin fá lfka sinn skammt og geta farið að sjá á þriðjudaginn Lukkubílinn sem framleidd er af Walt Disney. -KP.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.