Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977. 9 AA-samtökin á íslandi 23ára gömul: Gagn og gaman kynnir sig íNorræna hiísinu: FÉLAGSDEILDIR STARFA Á r ■■ r Kvöldf réttir heitir fyrsta útgáfa róttæks útgáf ufélags NIU STOÐUM A LANDINU Undirbúningur að stofnun deilda víðar Tuttugu og þriggja ára afmælis AA samtakanna á Islandi verður minnst á föstudaginn langa. Verð- ur þá haldinn opinn fundur í fé- lagsheimili Langholtssafnaðar og hefst hann kl. 20.30. Öllum sem áhuga hafa á að kynnast því sem fram fer á fundum AA gefst þá kostur á að kynnast starfi samtak- anna í fjölmenni og félögum hinna ýmsu deilda gefst þá tæki- færi til að hittast og kynnast bet- ur. AA samtökin voru stofnuð í Bandaríkjunum árið 1935. Upp- vaxtarárin voru erfið en ítarleg grein um samtökin sem birtist í víðlesnu tímariti 1946 varð til þess að útbreiða starfsemi sam- takanna um gervöll Bandaríkin og víðar um lönd. í dag eru starf- andi deildir í yfir 100 þjóðlöndum með ólíkustu trúrbrögðum og þjóðháttum. Til íslands bárust kynni af þessum samtökum 1954 með ís- ienzkum manni úr vesturvegi, Fyrsti formlegi AA fundurinn á' Islandi var haldinn föstudaginn langa sama ár og halda samtökin síðan jafnan upp á afmæli sitt þann dag. Nú stendur starfsemi samtak- anna traustum fótum hér á landi. I húsakynnum AA að Tjarnar- götu 3C í Reykjavík eru fundir haldnir öll kvöld vikunnar kl. 9. Ennfremur eru fundur á sunnu- r Ovenjuleg lista- verkasýning í Hveragerði Sigurður M. Sólmundsson held- ur sína fyrstu sýningu í Félags- heimili Ölfusinga í Hveragerði, við hliðina á Eden, dagana 7.-11. apríl. Verkin sem sýnd verða eru öll unnin á árunum 1968-1977. Á sýningunni eru 40 myndir sern Sigurður hefur unnið úr efnum úr ríki náttúrunnar, þar á meðal úr sandi, leir og tré. Einnig eru á sýningunni steinsteyptar styttur og margs konar munir, smáir og stórir, sem unnir eru úr ótrúleg- ustu efnum. Sýningin verður opin frá kl. 14-22 alla daga. Veitingar verða seldar á staðnum. -HJ- BóTn/vninG ÍÖRHRI/EV ó/KfRORG Nú þegar sumar fer í hönd, viljum við vekja athygli ykkar á PIONER plastbátum okkar. Þeir eru fáanlegir í 10 stærðum og gerðum. Þetta eru geysisterkir bátar, en mjög léttir og stöðugir, og sökkva ekki, en umfram allt eru þeir ódýrir. Því viljum við bjóða ykkur að líta við þar sem við erum til húsa, í Örfirisey, milli kl. 10 f.h. til kl. 6 e.h., og kynna ykkur að eigin raun þessa ágætu báta. UMBOÐSMENN: SKRISTJÁNÓ. SKAGRÍORDHF Hólmsgötu 4 — Reykjavík (SAFIRÐI: Netagerð Vestfjarða, sími: 3413. AKUREYRI: Eyfjörð, umboðs- og helldverslun, Gránufélagsgötu 48, sími: 22275. VESTMANNAEYJUM: H. Sigurmundsson hf., sími: 1112. dagsmorgnum kl. 11 og síðdegis á laugardögum eða kl. 4. Ein deild heldur fundi sína hvern laugar- dag kl. 2 síðdegis í félagsheimili Langholtssafnaðar og önnur deild í félagsheimili Bústaðasóknar hvert þriðjudagskvöld kl. 9. Deildir eru starfandi í Vest- mannaeyjum, Keflavík, Hafnar- firði, Selfossi, Akureyri, Isafirði, Bolungarvík og Sauðárkróki. Unnið er að undirbúningi að stofnun deilda víðar um landið. Símsvári samtakanna í Reykjavík er 16373 og þar fást ítarlegar upp- lýsingar um starfið. Engar tölur liggja fyrir um þann mikla fjölda manna sem hafa leitað bóta á sínum drykkju- vandamálum eftir leiðum AA samtakanna. Engar félagaskrár eru haldnar, enda er hverjum sem er heimilt að eigin vilja að koma þar og fara í fullri vissu um að þeir sem áframhalda virði þá erfðavenju samtakanna, að nafnleynd ríki fyrir alla sem til samtakanna leita. -ASt. Olga Guðrún syngur Ijóð og lög Ólafs Hauks Eftir páska kemur út fyrsta hljómplata útgáfufélagsins Gagns og gamans, Kvöldfréttir með Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Allt efniðer eftir Ólaf Hauk Símonarson, eins og á fyrri plötu Olgu Guðrúnar. A laugardaginn kl. 16 gengst Gagn og gaman fyrir kynningu á skipulagi sínu og markmiðum í Norræna húsinu. Verður plata Olgu kynnt þar í heild. Utgáfufélagið Gagn og gaman var stofnað í janúar sl., í þeim tilgangi að „rjúfa það ástand, sem um langt skeið hefur ríkt i útgáfu og dreifingu á róttækri list,“ eins og segir í fréttabréfi forráða- manna félagsins. Félagið er öllum opið. Ætlar það sér að vinna að útgáfu rót- tækrar listar og einnig að koma í veg fyrir þann háa kostnað sem hlýzt af milliliðum í dreifingu og sölu. Útgáfuverkum er dreift til félagsmanna á félagsverði, sem er mun lægra en smásöluverð. Auk þessara hlunninda félagsmanna er ætlazt til að þeir taki þátt i ákvarðanatöku um verkefni og starf á félagsfundum, sem haldnir eru fjórum sinnum á ári og stýra starfi félagsins. Plata Olgu Guðrúnar var full- unnin í febrúar. Utsetningar ann- aðistKarl Sighvatsson, sem einnig lék á hljómborð. Tómas Tómasson lék á bassa, Þórður Árnason á gítara og þeir Áskell Másson og Ragnar Sigurjónsson á slagverk. Næsta verkefni Gagns og gam- ans verður barnaplata sem einnig ber heitið Gagn og gaman. Textar eru eftir listaskáldið vonda Pétur Gunnarsson, en lögin eftir Spil- verksmanninn Valgeir Guðjóns- son og Þokkabötarfélagann Leif Hauksson. Vinnsla plötunnar hefst um mánaðamótin maí-júní. -ÓV. Aldrei meira úrval af L0FT- 0G VEGGLJÓSUM Opið á laugardaginn fyrir páska kl. 9 -12 Landsins mesta lampaúrval LJOS & ORKA Suöurlandsbraut 12 sími 84488

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.