Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRlL 1977. 23 ttir f Iþróttir Iþróttir flþróttir Iþróttir I ich skauzt spinn á ný gur gegn Coventry ígærkvöld Hill skoraöi bæði mörk United á Goodison Park. Hið fyrra eftir aðeins 44 sekúndur. Aston Villa vann Middlesbro og hefur enn mjög góða möguleika í 1. deild. Hefur tapað jafnmörgum stigum og Liverpool, en leikið fjórum leikjum minna. í 2. deild komust Úlfarnir á ný í efsta sætið, en þar er spennan mjög mikil. Sex lið enn, sem möguleika hafa á því að tryggja sér sæti í 1. deild næsta. keppnis- tímabil. Þrjú efstu liðin komast upp — en staðan á toppnum er nú þannig: Wolves 32 18 9 5 70-36 45 Chelsea 33 17 11 5 59-43 45 Nott. For. 34 17 8 9 65-36 42 Luton 34 19 4 11 57-35 42 Bolton 32 17 7 8 61-42 41 Notts. Co. 34 17 7 10 55-48 41 Jesper Petersen, sem sést skora á myndinni að ofan, er einn kunnasti leikmaður Fredericia KFUM. Hefur leikið 48 landsleiki og skorað 48 mörk í þeim. Reykjavík „rændi” göngunni frá heimamönnum á Siglufirði —skíöalandsmótið hafið—gull til Ólaf sf jarðar og Reykjavíkur á fyrsta degi Frá fréttaritara Dagblaðsins á Siglufirði, Karli Pálssyni. Reykjavík og Ólafsfjörður fögnuðu sigurvegurum i fyrstu keppnisgreinum Skíðalands- mótsins, sem sett var í gær að Hóii 'við Siglufjörð. Halldór Matthíasson, Reykjavík, vann öruggan sigur í 15 km göngunni og Guðmundur Garðarsson Ólafs- firði í 10 km göngu 17-19 ára. Veðurfar var ekki sem bezt til göngukeppninnar í gærdag. Lágskýjað og norðan gola ásamt lítils háttar fjúki í 6 stiga frosti. Bæjarstjórinn á Siglufirði setti mótið við stutta athöfn að Hóli en að því búnu hófst ganga 17-19 ára pilta. Úrslit urðu þessi: 1. Guðmundur Garðarsson, Ólafsfirði 41.28 mín. 2. Björn Ásgrímsson, Siglufirði 42.37 mín. 3. Jón Konráðsson, Ólafsfirði 44.40 min. 4. Valur Hinriksson, Ólafsfirði 48.23 Af sex skráðum mættu 5 til keppni en fjórir luku henni. Ólafsfirðingar voru hér mjög áberandi eins og sjá má. I lökmgöngunnihöfðuíslenzku keppendurnir ekki roð við norska gestinum á mótinu, Martin Hole. Hann gekk þennan spöl á 55.42 mínútum en meistaratitillinn fór til Reykjavíkur, að vísu til Akur- eyrings sem keppir og býr í höfuðborginni, Halldórs Matthíassonar. Úrslit urðu þessi: 1. Halldór Matthíasson, Reykjavik 56,39 2. Magnús Eiríksson, Siglufirði 57.24 3. Ilaukur Sigurðsson, Ölafsfirði 59.37 íslandsmeistarinn frá í fyrra, Magnús Eiríksson, varð því að lúta í lægra haldi að þessu sinni og það á heimavelli, Siglfirðing- um til sárra vonbrigða. Keppendur voru 19 talsins og kom sá síðasti í mark nær hálf- índsson, einn hæsti maóur lands- ki stór hjá Pétri Guðmundssyni, lyndin var tekin fyrir utan nýju i. BARIZTIEVROPU- KEPPNI í KVÖLD! Fyrri leikirnir í undanúrslitum Evrópumótanna þriggja í knatt- spyrnunni verða háðir í kvöid. Eins og áðúr beinist athygiin mest að Evrópubikarnum. Þar leika Dynamo Kiev og Borussia Mönchengladbach í Kænugarði, og Zurich og Liverpool í Sviss. Leikmenn í öllum þessum liðum eiga við meiðsli að stríða — eða eru í keppnisbanni. Onischenko hefur litla möguléika að leika gegn Borussia, og fleiri eru vafasamir, m.a. Blohkin. Hjá Borussia eiga Jupp Heynckes og HanneS við meiðsli að stríða. Zurich er án aðalmarkaskorara síns, ítalans Cucinotta, sem er í keppnisbanni og Kuhn, bezti maður liðsins, er vafasamur. Hjá Liverpool vantar Toshack, Callag- han og Thompson. 1 Evrópukeppni bikarhafa leika Atletico og Hamborg í Mad- rid, og Napoli og Anderlecht á Italíu. í UEFA-keppninni Bilbao og Molkenbeek á Spáni, en Juventus og AEK, Grikklandi, á Italíu. Síðari leikirnir verða 20. apríl. tíma á eftir sigurvegaranum. Sá var einnig frá Reykjavík. Mótið heldur áfram í dag. — íþróttir RITSTJORN: HALLUR SiMONARSON ISLANDSMETILYFT- INGUM Á AKUREYRI Akureyri, 19. marz 1977. Mót í lyftingum á vegum Junior Chambers var haldið í hinú nýja og glæsilega íþróttahúsið Glerár- skólans á Akureyri. Keppt var í tvíþraut og voru keppendur 20, 7 úr Þór, 5 úr KA, 6 úr Ármanni og NY VERZLUN MEÐ ÍÞRÓTTAVARNING Hin nýja verzlun mun sérhæfa sig i sölu á hvers konar íþrótta- fatnaði, sem allur er íslenzk framleiðsla frá Henson- sportfatnaði, sagði Halldór Einarsson, hinn kunni knatt- spyrnumaður úr Val. Hann hefur sett á stofn nýja íþróttavöru- verzlun, sem nýlega var opnuð í Hafnarstræti 16 í Reykjavík. Verzlunarstjóri verður Þorbjörn Guðmundsson landsliðsmaður í handknattleik. Ennfremur ætlar verzlunin að hafa til sölu erlendar íþrótta- vörur af þeim gerðum, sem ekki eru framleiddar hér innanlands. Eru þetta þekkt erlend vörumerki. Halldór Einarsson hóf rekstur sportfataverksmiðju fyrir 9 árum. og hefur fyrirtækið verið í örum vexti. í upphafi starfaði ein saumakona hjá Halldóri, en núna eru 18 saumakonur í fullu starfi hjá Hensen-sportfatnaði. Núver- andi húsnæði verksmiðjunnar er þegar orðið of lítið og áformar fyrirtækið að hefja byggingu nýs 500 fermetra verksmiðjuhúss í Borgarmýri í Reykjavík, sem mun gera það að verkum, að gæði framleiðslunnar munu enn batna með tilkomu nýrra véla. Jafnframt hyggst Halldór Einarsson færa út kvíarnar með því að hefja nú verzlunarrekstur. Verzlunin að Hafnarstræti 16 er 110 fermetrar að gólffleti. I þessu húsnæði var áður kaffistofa til húsa. s2 úr KR. Úrslit urðu sem hér segir: Fluguvigt (líkamsþ. að 52,5 kg) Snörun/Jafnh./Samanl. Haraldur Ólafss. Þór (Akm)55 75 130 Garðar Gfslason KA 47.5 60 107,5 Gylfi Gíslason Þör 40 60 100 Dvergvigt (52,5—56 kg) Viðar Eðvarðsson KA 60 77,5 137,5 (4 tilr. 62,5 sem er nýtt Ak.met) Lóttvigt (60—64,5 kg) Kári Elísson Ármanni 102,5 122,5 225 Nýtt ísl. met Nýtt ísl.met Sigbert Hannesson Árm. 95 110 205 Gísli Ólafsson Þór 62,5 80 142,5 Millivigt (67,5—75 kg) Guógeir Jónsson Árm. 103,5 125 228,5 isl.met unglinga P'reyr Aóalsteinsson Þór 90 125 215 Sigmar Knútsson Þór 4. tilr. 130,5 nýtt ísl. met 75 112,5 187,5 Steindór Olafsson Þór féll úr. Lóttþungavigt (75—82,5 kg) Már Vilhjálmsson Árm. 115 145 260 Kristján Falsson KA 110 132,5 242,5 Ármann Sigurðsson KA 70 112,5 182,5 Milliþungavigt (82,5—90) Ólafur Sigurgeirsson KR 117,5 157,5 275 Hjörtur Gislason Þór 123 150 273 (4. tilr. í jafnh. lyfti Hjörtur 156 kg, sem er isl.m. ungl.) Magnús Óskarsson Ármanni féll úr. 100 kg. flokkur (90—100 kg) Guðm. Sigurðss. Árm. 142.5 190 332,5 Jakob Býarnason KA 90 115 205 Akm og íslm ungl.Akm. og fslm ungl. Þungavigt (100— 110 kg) Gústaf Agnarsson KK 160 195 355 Úrslit mótsins i stigum várð því þannig 1. Þór 24 stig. 2. KA 21 stig Mót þetta fór vel fram og mætti gjarnan halda fleiri slík. Að lokum skal þess getið að Ármann og KK voru gestir ihótsins. - STA. Þeir beztu í Danmörku — Fredericta KFUM leikur þrjá leiki hérálandi um páskana Bezta handknattleikslið Dan- merkur síðustu þrjú árin, Fredericia, KFUM, kemur til íslands í dag og mun leika hér þrjá leiki um páskana. í Iiðinu eru átta danskir landsliðsmenn. Þar á meðal nokkrir kunnustu leikmenn Danmerkur. Flemming Hansen, sem leikið hefur 75 iandsieiki og skorað hvorki meira né minna en 359 mörk i þeim, Jörgen Heideman með 89 lands- leiki, Anders Dahl-Hansen með 79 iandsieiki, og talinn bezti handknattleiksmaður Dana nú, Sören Andersen, sem leikið hefur 14 landsleiki, og Jesper Peter- sen með 48 landsleiki. Mark- vörðurinn Mogens Jeppesen hefur leikið 12 landsleiki og Ole Madsen er með átta landsleiki. Margir þessara leikmanna léku hér mcð danska landsliðinu í desember. Fyrsti leikur Fredericia verður við Víking annað kvöid og hefst leikurinn kl. 21.00 í Laugardals- höll. A laugardag leikur iiðið við íslandsmeistara FH í Hafnar- firði, en á mánudag við úrvalslið HSÍ (íslenzka landsliðið). Hér er um einstæða heimsókn að ræða — og þar fæst gðður samanburður á íslenzkum og dönskum hand- knattleik. Fredericia hefur náð ágætum árangri í Fvrópukeppni síðustu árin — komst meðal ann- ars í undanúrslit í vor. íþrótta- félagið Leiknir í Árbæjarhverfi stendur að heimboði danska liðsins í tilefni 10 ára afmælis síns. Japanivann á HM íborðtennis Heimsmeistarakeppninni i borðtennis iauk í gær í Birming- ham á Fnglandi. I einliðaleik karia sigraði Japaninn Itsuro Kohno en Pak Yung, Sun, Norður- Kóreu, i einiiðaleik kvenna. Hún sigraði einnig í fyrra. í úrslitum sigraði Kohno Kuo Yao-Hua, Kína, sem talinn var sigurstrang- legastur 3-1, eða 17-21, 21-9, 21-19 og 21-13. Kínverjar hlutu þrjá heims- meistaratitla á mðtinu svo sigur- ganga þeirra var mun minni en reiknað hafði verið með. Japan hlaut tvo titla, Kðrea einn, og Evrópa einn — í síðustu keppnis- greininni, þegar Jacques Secretin og Claude Bergeret, Frakklandi, sigruðu japanska mótherja í tvenndarkeppninni. Víðavangs- hlaup ÍR Víðavangshlaup ÍR hið 62. i röðinni fer fram á sumardaginn fyrsta — fimmtudaginn 21. apríl — og hefst eins og venjulega kl. 2 e.h. Hiaupið verður líkt og síðustu tvö hlaup. Það hefst í hljómskáia- garðinum vestan tjarnarinnar. Hlaupið er suður í mýri en síðan í norður og endað með því að hlaupa austur Áusturstræti. Markið verður á mótum Austur- strætis og Pósthússtrætis. Vegalengd hlaupsins verður miili 4 og 4,5 km. Keppnin er einstaklmgskeppni en jafnframt er sveitakeppni, þar sem keppt er í 3ja, 5 og 10 manna sveitum karla, elztu sveit karla, 3ja kvenna sveit og einnig nú í fyrsta sinn í 3ja manna sveina- sveit. Þátttökutilkynningar þurfa að berast tii Guðmundar Þórarins- sonar þjálfara ÍR-inganna eigi síóar en á föstudaginn 16. apríi. Nauðsynlegt er að fæðingarár karlanna fylgi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.